NT - 15.03.1985, Blaðsíða 19
(37
Rafveita Hafnartjarðar óskar eftir að ráða
rafvirkja til starfa.
Grunnlaun samkv. 16. launaflokki. Umsókn-
um um starfið skal skila á sérstökum eyðu-
blöðum fyrir 23. mars n.k. til rafveitustjóra,
sem veitir nánari upplýsingar.
Rafveita Hafnarfjarðar
tilkynningar
Flutningavagn óskast
Óskum eftir að kaupa rlutningavagn (2ja
hásinga) sem hægt er að festa á 40 feta gám.
Allar nánari upplýsingar gefur Gunnlaugur
Ingvarsson, framkvæmdastjóri í síma 97-
8880 og heima 97-8886.
Búlandstindur h/f
Djúpavogi.
Sérleyfisleið laus
til umsóknar
Sérleyfisleiðin Siglufjörður - Sauðárkrókur -
Varmahlíð er laus til umsóknar. Umskóknir
skulu sendar Umferðarmáladeild Vatnsmýr-
arvegi 10 101 Reykjavík fyrir 25. mars 1985.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
bifreiðakost umsækjanda.
Reykjavík 14. mars 1985
Umferðarmáladeild
Oskum eftir trillu
á leigu eða kaupleigu.
Æskileg stærð 3-8 tonn.
Upplýsingar í síma 20485 eða 75208.
t
Móöir okkar og tengdamóðir
Jórunn Ólafsdóttir
frá Hamrahól
andaðist að heimili sínu Eyjum í Kjós aðfaranótt fimmtudags-
ins 14. mars
Guðrún Tómasdóttir Magnús Sæmundsson
Guðjón Tómasson Margrét Einarsdóttir
Útför eiginmanns míns
Sigfúsar Davíðssonar
frá Læk
verður gerð frá Hagakirkju, Holtahreppi, laugardaginn 16.
mars kl. 14.00. Rútuferð frá Umferðarmiðstöð kl. 11.00 frá
Fossnesti 12.30. Þeir sem vilja minnast hans, láti Sjúkrahús
Suðurlands njóta þess.
Margrét Eyjólfsdóttir
bðrn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar, ömmu og langömmu
Guðrúnar H. Sæmundsdóttur
Sérstakar þakkir eru færðar starfsliöi Hafnarbúða fyrir ein-
stæða hjúkrun, alúð og hlýhug.
F.h. ættingja
Högni Jónsson
Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og útför
Sveins Jónssonar
leigubílstjóra
Ártúni 10, Selfossi.
Sérstakar þakkir skulu færðar læknum og öðru starfsfólki á
deild A-4 Borgarsjúkrahúsinu.
Gestur Jónsson Steinunn Ástgeirsdóttir
Sigurjón Jónsson Gerður Guðjónsdóttir
Bjarnheiður Ástgeirsdóttir Guðf inna Jónsdóttir
Föstudagur 15. mars 1985 19
Utlönd
Suður-Afríka:
„Hvíti“ minnihlutinn
sagður kynblandaður
Jóhannesarborg-Reuter
■ Suður - afrískur lærdóms-
maður, Hans Heese, hefur
skrifað bók þar sem hann sýnir
fram á, með því að nota ýmsar
heimildir og gömul skjöl, að
valdamestu fjölskyldurn'ar í
Suður-Afríku eiga sér forfeður
frá Afríku eða Asíu sem giftust
inn í fjölskyldurnar skömmu
eftir landnám Evrópumanna í
Suður-Afríku.
Bókin, sem heitir Gröp Sond-
er Grense (Hópur án landa-
mæra), hefur vakið mikla at-
hygli í Suður-Afríku. Margir
hvítir aðskilnaðarsinnar eru æfir
yfir því að í bókinni segir að þeir
séu ekki algjörlega „hvítir"
heldur í raun og veru kynblend-
ingar.
Heese heldur því fram að í
fyrstu hafi kynþáttamunurinn
ekki verið bundinn við litarhátt
heldur hafi hann verið menning-
arlegur. Konur af asíu og jafn-
Metupp-
skera í
Rúmeníu
Vín-Reuter.
■ Rúmenar settu nýtt korn-
uppskerumet á seinasta ári. Að
sögn Agerpres-fréttastofunnar í
Rúmeníu var uppskeran 23,6
milljón tonn sem er rétt rúmlega
eitt tonn á hvert mannsbarn í
landinu.
Uppskeran var samt langt frá
því að ná því marki sem stjórn-
völd höfðu sett fyrir árið en það
var 29 milljón tonn. Þrátt fyrir
góða kornuppskeru er stöðugur
matvælaskortur í Rúmeníu þar
sem stór hluti kornsins er fluttur
út til að greiða skuldir ríkisins
erlendis. Skortur á ýmiss konar
grænmeti er sagður sérstaklega
mikill nú á seinustu árum.
Grafarastríð
í Frakklandi
Arcachon, Frakkland-Rcutcr
■ Verðstríð grafara hefur leitt
til þess að frönsk fjölskylda
hefur neyðst til að grafa sjálf 78
ára ættingja. Grafari undirbauð
greftrunarfyrirtæki sem hefur haft
einokunaraðstöðu í fjörtíu ár.
Franskar sveitarstjórnir hafa
rétt til að veita einkarétt til
útfara. Þetta hefur orðið til þess
að risafyrirtækið Pompes Fune-
bres Generales (PFG) hefur
einokunaraðstöðu í smáum
þorpum og borgum á Frakk-
landi.
Þegar Alcide Moumont dó 78
ára í útgerðarborginni Arcac-
hon bauð grafarinn Michel Lecl-
erc jarðaför fyrir aðeins 6500
franka og undirbauð þannig
PFG en að sögn fjölskyldunnar
er verðið hjá PFG 15000
frankar.
Þegar fjölskyldan réði Lecl-
erc í starfið tók borgarstjórinn
til sinna ráða og bannaði Leclerc
að sjá um jarðarförina þar sem
hann hefur ekki opinber réttindi
til þess. Hann sagði fjölskyld-
unni hins vegar að henni væri
frjálst að hafna boði PFG en
yrði að þá sjálf að sjá um að
grafa ættingjann, bera kistuna
o.s.frv. Fjölskyldan sá því sjálf
urn útför Alcide Maumont.
vel afrískum uppruna hafi verið
teknar upp í hvítt samfélag. í
því sambandi hafi skipt miklu
hvort þær hafi tekið kristna trú.
Nú hafa nokkrir voldugir
Suður-Afríkumenn ákveðið að
hindra umjöllun um bókina.
Lögfræðingar hafa tilkynnt
suðurafríska blaðinu Sunday
Times að hætti það ekki að
vitna í bókina um forfeður
skjólstæðinga sinna muni þeir
hefja mál á hendur blaðinu og
krefjast 320.000 rand (6-7
millj. ísl. kr.) í skaðabætur.
Sunday Times skýrði frá
þessu í forsíðufrétt nú fyrir
helgina og ritstjóri blaðsins,
Tertius Myburgh, sagðist búast
við því að blaðinu gæfust tæki-
færitilað viitnaoftaríbókina.
Lest án lestarstjóra
■ Eftir umfangsmiklar tilraunir og rannsóknir hafa yfirvöld í Vestur-Berlín ákveðið að taka
þessa lestarstjóralausu lest í notkun árið 1987 í tilefni af því að þá verða liðin 750 ár frá stofnun
borgarinnar. Engir starfsmenn verða um borð í lestinni sem er algjörlega sjálfvirk. Hún verður
fyrst um sinn notuð á einnar mílu löngum spotta (1,6 km) á milli Gleisdreieck-stöðvarinnar og
Fílharmóníulistamiðstöðvarinnar.
Heilögum kletti skilað
til upphaflegra eigenda
Yulara-Rcutcr
■ Áströlsk stjórnvöld hafa nú
náð samkomulagi við frum-
byggja um að skila frum-
byggjunum aftur Ayer-kletti
sem er eitt helgasta svæði
þeirra.
Aycr-kletturinn er 9,7 kílb-
metra að ummáli og á honum
eru meira en tuttugu heilagir
staðir þar sem frumbyggjar
framkvæma ákveðnar mikilvæg-
ar helgiathafnir. Kletturinn er
mjög vinsæll ferðamannastað-
ur.
Samkvæmt samkomulaginu,
sem verður undirritað í júní,
fær Pitjantjatjara-ættbálkurinn
eignarrétt á klettinum og þjóð-
garðinum í kringum hann.
Ríkisstjórnin mun leigja klett-
inn til 99 ára og greiða árlega
75.000 ástralska dollara til Pitj-
antjatjara-ættbálksins auk
tekna af ferðamönnum. Engin
námuvinnsla verður leyfð á
svæðinu.
Frumbyggjar eru um eitt
prósent af áströlsku þjóðinni
sem nú er um 14,5 milljónir.
Við sérstakt manntal árið 1981
töldust þeir vera samtals
144.665.