NT

Ulloq

NT - 15.03.1985, Qupperneq 5

NT - 15.03.1985, Qupperneq 5
■Wr~ Sölvi Bjarnason á uppboð: Sjáum ekkert ■ „Við sjáum ekkert til bjarg- ar samkvæmt þeirri forskrift sem við höfum fengiö,“ sagði Bjarni Andrésson á Tálknafirði, einn aðaleiganda togarans Sölva Bjarnasonar sem auglýstur hef- ur verið á nauðungaruppboði þann 11. næsta mánaðar. Fisk- vinnsla Bíldudals lamast ef skip- ið fer úr héraðinu. Nema skuldir togarans við Fiskveiðasjóð og Byggðasjóð alls um 180 milljón- um króna en upphaflegt kaup- verð skipsins var um 17 milljónir króna árið 1980. Að sögn Bjarna hefur togar- inn hvert einasta ár verið yfir meðaltali minni togara í afla, en Sölvi er rúmlega 400 brúttólestir og telst því til ntinni togara. Eftir að kröfur sjóðanna hefðu orðið hærri en svo að útgerðin gæti staðið undir rekstrinum sagði Bjarni að gripið hefði verið til þess ráðs að leigja togarann aðilum á Bíldudal sem hafa nú rekið hann um tveggja ára skeið. Sölvi Bjarnason hefur alla tíð verið gerður út frá Bíldudal og staðið undir rekstri Fiskvinnsl- unnar þar þannig að um 90% af afla hússins hefur komið frá togaranum. 70-80 manns vinna í Fiskvinnslunni. „Við verðum að halda skipinu með einhverjum ráðum," sagði Jakob Kristinsson fram- kvæmdastjóri Fiskvinnslunnar í samtali við NT. „Það verður að líkindum Fiskveiðasjóður sem eignast skipið og hjá honum reynum við líklega að fá skipið keypt og stofnum útgerðarfélag til þess." Tvö önnur skip eru nú í sömu stöðu og Sölvi Bjarnason að fara bráðlega undir hamarinn, Sigurfari í Grundarfirði og Kol- beinsey á Húsavík. Pá hafa tveir togarar þegar verið seldir, Bjarni Herjólfsson af Suður- landi og Óskar Magnússon frá Akranesi. Stærðfræðikeppni fram- haldsskólanemenda: 7 í úrslitum ■ Úrslitakeppnin í stærð- fræðikeppni framhalds- skólanemenda fer fram í húsakynnum verkfræði- og raunvísindadeildar Háskóla íslands á laugardaginn, 16. mars milli kl. 9 og 12. Sjö keppendur komust í úrslit en alls bárust 14 úr- lausnir í undanúrslitum. Peir sem spreyta sig á laug- ardag eru: Agnar R. Agn- arsson MS, Agúst Sverrir Egilsson MR, Bjarni Gunn- arsson MR, Hákon Guð- bjartsson MR, Rögnvaldur Möller MH, Sigurður Áss Grétarsson MR og Vil- mundur Pálmason MK. Dómnefndin er skipuð Jóni Magnússyni, Reyni Ax- elssyni og Sven Sigurðssyni sem allir starfa við HÍ en keppnin er haldin af Félagi raungreinakennara í fram- haldsskólum og íslenska stærðfræðifélaginu en kost- uð af IBM á íslandi. ■ Ragnhildur Helgadóttir í ræðustól á Alþingi í gær. NT-mynd: Ari. Fjórir dóu í umferðarslysum fyrstu 2 mánuði ársins: Fleira ungt fólk lend- ir í umferðarslysum ■ í febrúarmánuði slösuðust alls 55 í umferðinni og eru það 10 fleiri en í sama mánuði árið 1984 og 30 fleiri en 1983. Öll fjölgunin og nieira til hefur verið meðal fólks á aldrinum 15-24 ára, en á þeim aldri voru nú 30 (meira en helmingur) hinna slösuðu en 9 í febrúar á síðasta ári. samkvæmt yfirliti Umferðarráðs. Þrír létust af völdum umferðarslysa í febrúar og eru dauðaslys í umferðinni því alls fjögur fyrstu tvo mánuði ársins, en eitt á sama tíma 1984. Eins og í janúar ber febrúar- yfirlitið yfir umferðarslys miklu meiri merki sumarumferðar en 1 vetrar. Slasaðir eru miklu flciri, cn umferðarslys meö eignatjóni eingöngu eru miklu færri en í venjulegum vetrarmánuði - 506 nú en 716 í febrúar á síðasta ári. Þrennt er sérstaklega athygl- isvert við umferðárslysayfirlit fyrstu tveggja mánaða þessa árs miðað við síðasta ár. Alls hafa nú 28 slasast vegna útafaksturs (11 í fyrra) og 19 slasast vegna þess aö ekið hefur verið á þá (12 í íyrra). Þá hefur konum sem slysum valda stórfjölgað. Ur þeirra hópi eru nú 32 af alls 102 slysavöldum en voru aðeins 14 af 88 slysavöldum þessa tvo mánuði 1984. Föstudagur 15. mars 1985 5 Ahrif kennarauppsagnanna Misjöfn eftir skólum, bekkjum og námsgreinum ■ Kagnhildur Helgadóttir 440 kennarar lögðu fram upp- menntamálaráðherra gaf í gær á Alþingi yfirlit fyrirhvaða bein áhrif það hefði haft á starfsemi framhaldsskólanna að kennarar lögðu niður störf 1. mars. Það var Hjörleifur Guttormsson, sem bað um þessar upplýsingar í fyrirspurn. ■ Tomas Ledin er mættur til landsins til að heilla íslenska popp- unnendur. Tomas Ledin ■ Sænski popparinn Tomas Led- in er staddur á íslandi og kemur fram í Broadway í kvöld og á laugardagskvöld. Tomas Ledin er þekktur skemmtikraftur í heimalandi sínu. sagmr, en 4U-5U kennarar hata afturkallað þær. hugsanlega bætast fleiri við í dag, en í gær lá öll kennsla í framhaldsskólum niðri vegna árshátíða. Mennta- málaráðherra gaf yfirlit um það hversu margar prósentur „kennslumagns" væru í boði hjá mennta- og fjölbrauta- skólunum. í MR 51%, Mennta- skólanum við Hamrahlíð 30%, Menntafekiólanum við Sund 42%, MA 35%, Menntaskólan- um í Kópavogi 54%, engin kennsla er við Menntaskólann á Egilsstöðum, 30% við Mennta- skólann á Laugarvatni, 51% við Fjölbrautaskólann í Breið- holti, 49% við Ármúlaskólann, 19% í Kvennaskólanum, og 38% í Flensborg. Þessar tölur segja ekki alla söguna. Menntamálaráðherra sagði að uppsagnir kennaranna kæmu mjög misjafnlega niður eftir bekkjum og kennslugrein- um. í ýmsum sérskólum á fram- haldsskólastiginu gengur kennsla nær eðlilega fyrir sig. í Broadway Svíþjóð, og hefur sent frá sér 12 breiðskífur. Hann naut töluverðra vinsælda hérlendis í fyrra með laginu „What Are You Doing Tonight". Svar við þeirri spurn- ingu fæst ef til vill í Broadway í kvöld. Við kynnum ÍSLENSKU KARTÖFL í Grænmetismarkaðinum, homi Síðumúla ogFellsmúla, föstudaginn 15. mars. Við bjóðum mikið úrval af alls kyns grænmeti og ávöxtum, en íslenska kartafian verður í aðalhlutverkinu. Við veitum upplýsingar um matreiðslu og geymslu, kynnum óvenjulegan 14 daga „kartöfluu megrunarkúr og bjóðum girnilega smakkrétti o.fl. o.fl. Grœnmétisvérslun londbúnQdarins 1 Síðumúla 34 - Sfmi 81600 kynnmn orenjulegan 14 daga „kartöflu“ megrunarkúr

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.