NT - 15.03.1985, Síða 10

NT - 15.03.1985, Síða 10
lít Föstudagur 15. mars 1985 10 Um Berlínalinn og sögu hans ■ Biðröð fyrir utan Zoo Palast, eitt þeirra kvikmyndahúsa, þar sem sýningar Berlínarhátíðarinnar fóru fram. Frcttarilari NT á kvikmyndahátíðinni í Bcrlín 15.-26. fcbrúar 1985. ■ Erill og ös, hiti og sviti einkenndi Cine Center, niark- að 1800 kvikmyndakaup- manna og það m.a.s. strax á opnunardegi kvikmyndahátíð- arinnar í Berlín. Cine Center voru líka höfuðstöðvar 1600 blaðamanna sem fóru þangaö daglega til að ná í pappírana sína, tékka á blaðamannafund- Um, hamra á ritvélar og hlaupa í næsta síma eða tclex með greinarnar sínar. Og í Cine Center komu líka 1600 gestir og 1000 „V.I.P-arar“ þ.e. kvikmyndáleikstjórar, leikarar og framleiöendur sem komu til að sýna sig og sjá aðra og athuga hvernig gengi að sclja kvikmyndirnar sínar. Frétta- ritara NT varð barasta um og ó enda ekki vön stærri kvik- myndahátíðum en hátíðum Listahátíðar á íslandi og því ekki skrítið að slíkur fjöldi, ös og erill kæmi nokkuð spánskt fyrir sjónir. Berlínalinn er líka stærstur sinnar tegundar fyrir utan kvikmyndahátíðirnar í Cannes og Feneyjum. Kvikmyndakaupmennirnir völdu sér kvikmyndir úr hópi 300 mynda í 10 sýningarsölum Cine Centers. En aðrar 300 kvikmyndir voru á sjálfri há- tíðinni. A hátíðina þustu allir sískrifandi blaðantennirnir og gestirnir auk u.þ.b. 500.000 Berlínarbúa, V-Pjóðverja og annarra þjóða kvikinda sem annaðhvort höfðu keypt sér sérstök aðgöngukort sem giltu á flestar sýningar eða keyptu sig bara á hverja sýningu fyrir sig oft eftir að hafa beðið í langri biðröð þremur dögum fyrir sýningu myndarinnar sem þá langaði svona óskaplega ntikið til að sjá. Úr vöndu var að ráða. Fæstir könnuðust við leikstjórana scm áttu kvik- myndir á hátíöinni. Fjölmarg- ar voru fyrstu kvikmyndir leikstjóranna í fullri lengd eða fyrstu kvikmyndir þeirra sem komust á alþóðamarkað. Margir voru núsvolítiðsvekkt- ir að sjá ekki myndir eftir uppáhaldsleikstjórana sína, en þá var bara um að gera að lesa katalóginn sinn vel, grand- skoða alla pappírana sína og liafa eyrun galopin en nota annars nefið til að þefa uppi áhugaverðar kvikmyndir og hver vissi nema maður sæi citthvað nýtt og stórkostlegt. Hátíðin skiptist í sjö deildir. Sú fyrsta er sjálf keppnin þar sem barist er um alla gullbirn- ina og silfurbirnina, önnur er kölluð International Forum des Jungen Filmen (Alþjóð- legur vettvangur nýrra kvik- mynda). í þcssari deild cru sýndar heimildarkvikmyndir, pólitískar kvikmyndir, nýstár- legar kvikmyndir en auk þess fleiri kvikmyndir frá þriðja heiminum en gcngur og gerist í hinum deildunum. Aö þessu sinni var lögð sérstök áhersla á brasilískar kvikmyndir og Jazz-kvikmyndir. Þriðja deild- in er svokölluð Info-Schau þar sem athyglinni er t.d. beint að sérstökum kvikmyndaleik- stjórum eða að kvikmyndum ákveðinna ríkja. I ár var m.a. fókusað á skandinavískar og a-evrópskar kvikmyndir. Fjórða deildin er sérstök barnakvikmyndahátíð en sú fimmta er svokölluð Retrosp- ektive þar sem sýndar eru eldri kvikmyndir hejgaðar ákveðnu viðfangsefni. í ár voru það „Special Effects" sem á ís- lensku gæti útlagst sem „Sér- stakar brellur". Pessi liður naut fádæma vinsælda. Sýningar á nýjum þýskum kvikmyndum eru í sjöttu deild- inni. Pessi deild er hins vegar ekki opin almenningi, sama gildir um kvikmyndamarkað- inn sem getið var um í upphafi. Kvikmyndahátíðin í Berlín - Berlínalinn - átti 35 ára afntæli í ár. Upphaflega var hún sett á laggirnar í þeim tilgangi að sýna A-Þjóðverjum (og öðrum A-Evrópubúum) fram á hvers Vesturlandabúar væru megnugir. Bandaríski herinn flaug inn með kvik- myndirnar á hátíðina og aug- lýsingaplaköt voru fest við landamærin í þeim tilgangi að bjóða A-Þjóðverjum vel- komna á sýningarnar á niður- settu verði. En svo kom múrinn. Þáverandi fram- kvæmdastjóri Berlínalsins gerði margar tilraunir til að gera hátíðina að alþjóðlegum viðburði í kvikmyndaheimin- um í stað pólitískrar sýningar. Hann gerði allt hvað hann gat til að styðja t.d. Jean-Luc Godard, Michaelangelo Ant- onioni, Agnés Varda, Ingmar Bergman og Francois Truffaut Konan og ókunni maðurinn - Austur-Þýskaland 1984 Die Frau und der Fremde (Kon- an og ókunni maðurinn ) - Austur-Þýskaland 1984. Lcikstjórn og handrit: Rainer Simon. Kvikmyndataka: Ro- land Dressel. Tónlist: Rainer Bredemeyer. Kiipping: Helga Gentz. Leikarar: Kathrin Wali- gura, Joachim Látsch, Peter Zimmcrinann o.fl. Framleið- andi: Defa-Studio. Sýningar- tími: 95 minútur. ■ Karl og Richard eru stríös- fangar í fangabúðum Rússa í fyrri hcimsstyrjöldinni. Milli þeirra tekst svo náinn vinskapur að þeir segja hvor öðrum allt um sjálfa sig. Richard er miður sín af söknuði til konu sinnar, Önnu, og segir Karli frá lífi þeirra og hjónabandi í smáatrið- um. Karl finnur til vaxandi þrár Ahrif styrjalda á sálarlíf manna og ástar til þessarar sterku konu sem honum finnst hann gjör- þekkja. Honum tekst að flýja fanga búðirnar og fer rakleiðis til Önnu og læst vera eiginmaður hennar, Richard. Anna lætur ekki blekkjast en undarlegar tilfinningar blandnar efa grípa hana þegar Karl virðist vita allt um hana og líf hennar fram til þessa. Og vegna þess hve mikla þörf hún Itefur fyrir ást og hamingju og vegna þess að bæjarbúar halda að Karl sé eig- inmaður Önnu verður hún ást- fangin af honum og lítur á hann sem eiginmann sinn. Anna á von á barni með Karli þegar bréf berst með þeim upplýsing- um að Richard, eiginmaður hennar sé á heimleið. Miklar sálarflækjur hefjast þegar þau þrjú hittast og neyðast til að liorfast í augu við aðstæðurnar og taka ákvörðun unt mál sín. Konan og ókunni maðurinn sem byggð er á smásögu eftir Leonhard Frank er ekki einung- is óvenjuleg ástarsaga í formi kvikmyndar heldur fjallar hún líka um þær félagslegu og sál- fræðilegu aðstæður sem gera svona flækjur mögulegar. Leikstjórinn, Rainer Simon, forðast meðvitað að sýna okkur grimmd og ruddaskap vígvallar- ins en beinir athyglinni þess í stað að áhrifum styrjalda á sál- arlíf manna - þegar fólk á í erfiðleikum með að fóta sig, fyrra öryggi er horfið en í stað ■ Leikstjórinn Rainer Simon. þess hefur grimmileg óvissa tek- ið við. Anna, Karl og Richard hafa öll glatað sjálfsvitund sinni, þau vita ckki lengur hver þau eru. En þau lifa af. í kvikmynd- inni kynnumst við hins vegar líka manneskjum sem hvorki eru eins sterkar né eins tilfinn- inganæmar og örvinglast því og gefast upp. Kathrin Waligura (Anna), Joachim Látsch (Karl) og Peter Zimmermann (Richard) þreyta ■ Kathrin Waligura og Joac- him Látsch í Konunni og ókunna manninum. hér frumraun sína í kvikmynda- leik og virðast efnileg. Konan og ókunni maðurinn er áhrifa- mikil mynd enda er Jeikstjórinn greinilega metnaðargjarn í list- sköpun sinni. En undirrituð tel- ur harla ólíklegt að kvikmyndin komi nokkurn tíma fyrir augu íslendinga. Og þó, það er aldrei að vita. Þá skuluð þið endilega fara að sjá hana. Rainer Simon fæddist í Hain- ichen í A-Þýskalandi 1941. Eftir stúdentspróf gekk hann í herinn en lærði síðan kvikmyndagerð í Deutsche Hochschule fúr Film- kunst í Potsdam-Babelsberg. Var aðstoðarleikstjóri hjá Ralf Kirsten og Konrad Wolf. Frá 1968 hefur hann unnið sem leikstjóri hjá Defa-Studio sem framleiðir kvikmyndir í fullri lengd og gert einar 8 kvikmyndir þar. Margrét Rún tfí#rrtrr^^tnV(ri?(Vri»í¥itnTiTfÉlfiPa Helstu verðlaun kvikmynda- hátíðarinnar i Berlín 1985 -11 mann dómnefnd átti í erfiðleik- um með að koma sér saman Gullbjörninn, æðstu verð- laun kvikmyndahátíðarinnar (fyrir kvikmynd í fullri lengd) hlutu að þessu sinni tvær myndir: Wetherby eftir David Hare Stóra-Bretland 1984 og Die Frau und der Fremde (Konan og ókunni maðurinn) e. Rainer Sinton A-Þýskaland 1984. Gullbjörn fyrir stutta kvik- mynd hlaut Helke Sander fyrir mynd sína Nr 1 -Aus Berichten der Wach- und Patrouillendienste (Úr skýrslum öryggisvarða og eftirlissveita -1. hluti) V- Þýskaland 1984. Silfurbjörn sem sérstök verð- laun dómnefndarinnar hlaut ungverska myndin Szirmok, virágok, koszorúk (Blóm dagdraumanna) eftir Laszlo - Ungverjaland 1984. Silfurbjörn fyrir bestu kvik- myndaleikstjórn hlaut Ro- bert Benton fyrir kvikmynd sína Places in the Heart - Bandaríkin 1984. Silfurbjörn fyrir besta leik í kvenhlutverki hlaut Jo Kennedy fyrir leik sinn í kvikmyndinni Wrong World eftir Ian Pringle - Ástralía 1984. Silfurbjörn fyrir besta leik í karlhlutverki hlaut Fernando Fernán Gómez fyrir leik sinn í Stico eftir Jaime de Armin- an - Spánn 1984. Silfurbjörn fyrir „framúr- skarandi afrek í listsköp- un" hlaut Tolomusch Ok- ejew fyrir kvikmynd sína Potomok Belogo Barssa (Af- komandi snjóhlébarðans) - Sovétríkin 1984. Silfurbjörn vegna „einstak- lega fantasíufullrar kvik- myndar" hlutu Norðmenn og Svíar fyrir kvikmyndina Ronja Rövardotter (byggð á sögu Astrid Lindgren) eftir Tage Danielsson. - Svíþjóð/ Noregur 1984. Marguerite Duras hlaut sér- stakt lof fyrir mynd sína: Les Enfants (Börnin) - Frakkland 1984, sömuleiðis tyrkneski leikarinn Tarik Ákan fyrir leik sinn í mynd- inni Pehlivan (Glimumaður- inn) eftir Zeki Ökten -Tyrk- land 1984. og ítalski kvik- myndaleikstjórinn Damiano Damiano fyrir kvikmynd sína Pizza Connection um Mafíuna - Ítalía 1984. Ýmsar aðrar dómnefndir veittu önnur smærri verð- laun. Þess má til gamans geta að Alþjóðlega evangelíska kvikmyndadómnefndin verðlaunaði kvikmynd Jean- Luc Godard Je vous salue Marie (María og Jósef) og það sem meira var, að dóm- nefnd alþjólegu kaþólsku kvikmyndasamtakanna lýsti yfir áhuga sínum á kvikmynd Godards og byltingarsinnuð- um tökum hans á viðfangs- efninu en eins og íslenskir lesendur kannast sjálfsagt við voru franskir kaþólikkar lítið hrifnir af mynd hans um Maríu og Jósef og þeim tök- um sem hann tekur þessar persónur biblíunnar í mynd sinni. Margrét Rún.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.