NT

Ulloq

NT - 15.03.1985, Qupperneq 21

NT - 15.03.1985, Qupperneq 21
 Föstudagur 15. mars 1985 21 Utlönd Suður>Afríka: Minnihlutastjórn hvítra óttast efnahagsþvinganir Ilöfðaborg-Reutcr ■ Botha utanríkisráðherra hvítu minnihlutastjórnarinnar í Suður-Afríku lýsti nú í vikunni yfir áhyggjum stjórnarinnar vegna alþjóðlegrar herferðar gegn fjárfestingum í Suður-Afr- íku. Botha benti á að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefði samþykkt einróma fordæmingu á drápi blökkumanna sem mót- mæltu nauðungarflutningum í Suður-Afríku en hann sagði að bæði Bandaríkjamenn og Bret- ar hefðu haft vissa fyrirvara á afstöðu sinni í öryggisráðinu. Suður-Afríkumenn mættu samt ekki vanmeta afleiðingar þeirr- ar stefnu sem öryggisráðið hefði tekið. Portúgal: Húsaleigu' sprengja Lissabon-Reuter: ■ Sanrtökin FP-25 í Portúgal sögðust í gær hafa sprengt sprengju í aðalstöðvum sam- taka fasteignaeigenda í Lissa- bon og vildu með því mótmæla umdeildu húsaleigufrumvarpi, sem nýlega var lagt fram á portúgalska þinginu. Engan sakaði í sprenging- unni, en hún kemur í kjölfarið, á frumvarpi seni afléttir banni á leiguhækkunum sem haldið hefur leigu niðri um árabil. Leigjendasamtök hafa harð- lega mótmælt frumvarpinu. Samtökin FP-25 eru skírð eftir portúgölsku byltingurini í apríl 1974. Pau hafa fram- kvæmt aftökur, staðið fyrir sprengjutilræðum og ránum síðan 1980. Stúdentaverk- fall á Spáni Madrid-Reutcr: ■ Stúdentar í spænskum ríkis- háskólum hófu í gær verkfall til að mótmæla hærri skólagjöldum og krefjast ókeypis menntunar. Forystumenn stúdentanna sögðust búast við því að meira en helmingur nemenda í náskól- um í Madrid, Barcelona, Las Palmas, Sevilla, Santiago De Compostella og í Baskalöndum myndu taka þátt í verkfallinu. Embættismenn hvítu minni- hlutastjórnarinnar í Suður-Afr- íku hafa lýst yfir ótta urn að Sameinaða þjóðirnar kunni að grípa til beinna aðgerða gegn Suður-Afríku en öryggisráðið hefur nú samþykkt fjórar álykt- anir á síðustu sjö mánuðum þar sem kynþáttastefna stjórnarinn- ar í Suður-Afríku er fordæmd. Sameinuðu lýðræðisfylkingin gegn kynþáttastefnu í Suður- Afríku (UDF), sem segist hafa tvær milljónir félaga innan sinna vébanda, hefur hins vegar lýst yfir ánægju vegna fordæmingar öryggisráðs SÞ á kynþáttastefn- unni. Talsmaður samtakanna, Patrick Lekota, sagði að sam- þykkt öryggisráðsins, um að Nelson Mandela og aðrir póli- tískir fangar skyldu látnir lausir, kæmi á góðum tíma og væri uppörvandi. ■ Þótt snyrtisérfræðingar sjái um að halda Reagan unglegum og liti á honum hárið reglulega er greinilegt að hann er mun eldri en hinn nýi leiðtogi Sovétríkjanna, Mikhail Gorbachev, sem gæti aldursins vegna verið sonur Reagans. Gorbachev unglingur sam- anborið við Ronald Reagan Moskva-Reuler ■ Æska liins nýja leiðtoga So- vétmanna hefur vakið mikla athygli. Mikhail Gorbachev er aðeins 54 ára gamall og þannig einn af yngstu ríkisleiðtogum heims. . Gorbachev cr hvorki meira né minna en tuttugu árum yngri en Ronald Reagan Bandaríkja- forseti, en Reagan er nú 74 ára gamall og elsti forseti Banda- ríkjanna frá upphafi. Gorbachcv er einnig yngri en leiðtogar Breta, Frakka, Vest- ur-Þjóverjar, Japans og allra Austur-Evrópuþjóðanna. Ind- verjar eru eina stórþjóðin sem á sér yngri leiðtoga þar sem Rajiv Gandlii er aðeins fertugur. Sviss: ■ Eþíópísk flóttamannabörn í Súdan. Súdan: Milljon eiga Kjarnorkuvopna andstæðingum vísað úr landi hungurdauða á hættu Genf-Reuter ■ Fulltrúi barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna í Súdan segir að milljón börn þar í landi séu nú í hættu vegna hungurdauða á þessu ári nema mikið af mat- vælum berist innan skamms til Súdans. Samir Basta sagði að barna- dauði væri nú þegar ógnvænlega mikill í Súdan og um 700.000 börn væru vannærð og hungur- dauði vofði yfir þeint. Hann sagði eitt alvarlegasta vanda- málið vera að það tæki marga mánuði að flytja neyðaraðstoð til Súdan og koma henni til hungursvæðanna. Nú munu um 4,5 milljón hinna 22 milljón íbúa Súdans búa á þurrkasvæðum. Þá er ekki talin um ein milljón flótta- manna frá nágrannalöndunum sem að undanförnu hafa streymt til Súdans. Genf-Reuter ■ Svissnesk yfirvöld vísuðu tveimur kjarnorkueldflauga- andstæðingum úr landi í gær en þeir höfðu mótmælt tilraunum með kjarnorkuvopn á upphafs- degi viðræðna Sovétmanna og Bandaríkjamanna á þriðjudag- inn var. Mótmælendurnir tveir, Bar- bara Fruth 20 ára frá V-Þýska- landi og Swede Lena Hagelin 23 ára.’höfðu klifrað upp 20 metra háan krana andspænissendiráði Sovétríkjanna. Þærfestu á hann borða sem á var letruð hvatning um að tilraunum með kjarn- orkuvopn verði hætt. Barbara og Swede vorú handsantaðar þegar þær komu niður aftur. Talsmaður Greenpeace, Ron Taylor, sagði að „á þeim 15 árum sem Greenpeace-samtök- in hafa staðið fyrir mótmælaað- gerðum víðs vegar um Evrópu, hefur annað eins aldrei komið fyrir". Svissneska lögreglan hefur hótað að taka hart á fólki sem mótmælir kjarnorkuvopnum meðan á viðræðunum stendur. Vopnaviðræð- urnar í Genf: Virðing í viðræðum Genf-Reuter ■ Vopnaviðræður Sov- étmanna og Bandaríkja- manna í Genf hófust fyrir alvöru í gær og fóru rösk- lega af stað eftir 15 mán- aða hlé. Talsmaður Bandaríkja- ntanna sagði að fundur sendinefndanna hafi stað- ið í tvær stundir og sagði viðræðurnar hafa verið „virkar og gætt hafi gagn- kvæmrar virðingar". Sov- étmenn létu ekkert hafa eftir sér um fundinn. Ákveðið var að halda allsherjarfund allra sendi- fulltrúanna næsta fimrntu- dag, en ekki hefur verið upplýst hvenær undir- nefndir muni hefja störf en þær munu ræða geim- vopn, langdrægar kjarn- orkueldflaugar og um meðaldrægar kjarnorku- eldflaugar í Evrópu. En talsmaður Bandaríkja- manna sagði að undir- nefndirnar myndu ganga fljótlega til starfa. í Skólav breytinga í Skólavörubúö ve 'i Víöishúsinu“ 2. hæö. Bækur, ritfön& litir, kori. skuY, litskvQQnur, kennslutæki... o.fl. o.fl. sel\ Einnig útlitsg^llaSarvörur 7 með mikluí [ Opiðfrákl. BTZ AU&VELT A0 (=INNAr sk&la'soh.ub.úðina! r— Slfólavörubúð msgagriastofnu Láugavegi 166, Re

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.