NT - 15.03.1985, Blaðsíða 23

NT - 15.03.1985, Blaðsíða 23
 Knattspyrnuúrslit: Spánn: ■ Leikið var í fjórðu umferð spænsku bikar- keppninnar í knattspyrnu í gær. Þetta voru fyrri leikirnir: Úrslit urðu þessi: Real Sociedad-Sabadell .... 1-0 Coruna-At. Madrid........... 1-1 Real Betis-Real Mallorca ... 4 -0 Real Zaragoza-Cadiz......... 1-2 Real Madrid-At. Bilbao .... 1-0 Castellon-Tenerife ..........2-0 Sporting-Valencia............0-0 Barcelona-Hercules..........5-0 Frakkland: Einn leikur var í fyrstu umferð bikarkeppninnar. Red Star og Racing Paris gerðu jafntefli 1-1 íseinni leik liðanna og dugar það Racing til að komast áfram þar sem liðið vann fyrri leikinn 3-0. Þýskaland: Bielefeld sigraði Köln í Búndeslígunni með einu marki gegn engu, 1-0. Skíðablaðið ■ Út er komið málgagn Skíðasambands íslands, Skíðablaðiö, fyrsta tólu- blað 1985. Blaðið er 32 síður og í því eru meðal annars viðtöl við þá Steingrím Hermannsson forsætisráðherra og Phil Mahre. Nokkuð er af myndum í ritinu. ■ Gylfi Þorkelsson reynir skot að körfu ÍS. Þetta skot rataði ekki rétta leið fremur en önnur hjá honum. ' NT-mynd: Sverrir. Úrslitakeppni úrvaldsdeildar: fallbaráttan: IR-ingar áfram í úrvalsdeildinni ■ Það verða ÍR-ingar sem leika í úrvalsdeildinni að ári ásamt Njarðvíkingum, Valsmönnum, Haukum, KR-ingum og Keflvíkingum. Þeir unnu Stúdenta í öðrum leik liðanna um úrvalsdeildarsætið í gærkvöldi með 16 stiga mun, 77-61. Mestur varð munurinn 20 stig rétt fyrir lok leiksins, 77-57 en ÍS lagaði stöðuna örlítið með tveimur síðustu körfunum. Þrátt fyrir þennan mikla mun í lokin var leikurinn jafn lengst af og það var ekki fyrr en síðast í seinni hálfleik sem ÍR-ingar náðu afgerandi forystu, mest fyrir tilstilli Ragnars Torfasonar og Hjartar Oddssonar, sem voru þeir einu í liðinu sem hittu vel. ÍR-ingar sluppu við skrekkinn eftir að hafa tapað 3 af 4 leikjum liðanna í íslandsmótinu sjáifu, og unnu tvo úrslitaleiki í röð, þann fyrri í Seljaskóla á laugardaginn með 6 stiga mun og nú á heimavelli Stúdenta, íþróttahúsi Kennaraháskólans. Leikurinn var lélegur, hittni slæm og mikið um mistök. Hraðinn var ekki mikill en barátta leikmanna í sæmilegu lagi. Knattspyrna í Bandaríkjunum: Aðeins þrjú lið í útideildinni ■ Það verða aðeins þrjú lið sem keppa munu um meistara- titilinn-í knattspyrnu utanhúss í Norður-Ameríku þetta árið. Toronto, Tulsa og Minnesota hafa þegar tilkynnt þátttöku sína og talið var líkíega að Cosmos myndi líka leika með. Svo fór þó ekki því í fyrradag tók stjórn NASL (North Am- erican Scooser League) knatt- spyrnusamband Norður-Am- eríku þá ákvörðun að vísa Cosmos á dyr þar sem liðið hafði ekki borgað tilsetta upp- hæð í þátttökugjöld fyrir keppnistímabilið 1985. Þar með er stigið enn eitt skrefið í átt að því að leggja niður utanhússknattspyrnu í Norður-Ameríku. Cosmos hefur þegar tilkynnt að liðið muni spila 15 leiki á keppnistímabilinu og verða þeir allir á móti liðum utan Norður-Ameríku. Helst á móti liðum frá Evrópu og S-Amer- íku. Við þessa ákvörðun virðist enn líklegra að knattspyrna í Ameríku verða einungis háð innanhúss, á litlum velli með sex menn í liði. Þessi íþrótt á líka betur við ameríska áhorf- endur, hraðari leikur, mikið skor og fjör. Allur fyrri hálfleikurinn var jafn og liðin skiptust á um að hafa forystuna. Mestan hlutann hvorki gekk né rak í sókn hjá báðum liðum, enda tekið fast á móti af varnarmönnum hins liðsins. Staðan í hálfleik var samkvæmt þessu jöfn, 32-32. I seinni hálfleik voru ÍR-ingar heldur ákveðnari framanaf og komust í 50-42, en Stúdentar börðust aö hörku og minnkuðu muninn í 52-48. Þá kom góður kafli hjá ÍR, eða kannski frekar lélegur hjá ÍS því bilið jókst aftur. ÍR-ingar spiluðu sóknina af skynsemi á þessu tímabili, létu boltann ganga og fengu góð skotfæri sem Ragnarog Hjörtur sáu um að nýta. Þegar Stúdentar sáu að þeir áttu á brattann að sækja fóru þeir að taka fleiri og fleiri ótímabær skot en heppnin var ekki með þeim, boltinn vildi ekki ofaní og ÍR náði flestum fráköstum. Eins og áður sagði varð munurinn mestur 20 stig og sigurinn öruggur í lokin. Valdimar Guðlaugsson var bestur Stúdenta og Guðmundur pg Ragnar einnig ágætir. Hjá IR voru Ragnar og Hjörtur langbestir, aðrir voru nokkuð frá sínu besta. Stigin í leiknum skoruðu : ÍR: Ragnar25, Hjörtur 18, Karl 10, Gylfi 8, Kristinn 6, Hreinn 4, Björn 4, Vignir 2. ÍS: Valdi- mar 18, Guðmundur 14, Helgi 10, Ragnar 11, Árni 4, Eiríkur 2 og Ágúst 2. Föstudagur 15. mars 1985 23 HM í handknattleik: íslendingar voru heppnir -er dregið var í riðla í gær A-riðill: Júgóslavía A-Þýskaland Sovétríkin Ameríka B-riðill: V-Þýskaland Sviss Pólland Spánn C-riðill: Rúmenia ísland Tékkóslóvakía Asía D-riðill: Damörk Svíþjóð Ungverjaland Afríka ■ í gær var dregið í riðla í heimsmeistarakeppninni í handknattleik sem fram fer í Sviss um mánaðamótin febrúar mars á næsta ári. íslendingar verða þar meðal þátttakenda og má segja að við getum verið ánægðir með þann riðil er við drógumst í því vissulega eru þarna öll bestu handknattleiks- lið í heiminum. Það sem skiptir þtr enn meira máli eru millliriðlarn- ir en þeir eru nánast séðir fyrir- fram. Riðlarnir líta þannig út: Þrjú efstu liðin í hverjum riðli komast í milliriðla. Milliriðlarn- ir eru tveir og sex lið í hvorum. Þrjú efstu liðin í A og B-riðli leika saman og þrjú efstu liðin í C og D-riðli leika saman. Nú geta lesendur spáð í hlutina og reynt að geta sér til um með hvaða liðum íslendingar verða í milliriðli. Þess má geta að úrslit- in úr innbyrðis viðureignum í riðlunum gilda í milliriðlum. Handknattleikur: Úrslitakeppnin - hefst með leik KR og FH á sunnudag ■ Úrslitakeppni 1. deildar í handknattleik hefst á sunnudag- inn kemur með leik KR og FH kl. 20.00. Strax á eftir lcika Víkingur og Valur. Á mánu- dagskvöldið verða aðrir tveir leikir. Víkingur og KR keppa kl. 20.00 og síðan Valur og FH. Þessari fyrstu umferð af fjórum í úrslitakeppninni lýkur svo á þriðjudagskvöld með leikjum FH og Víkings kl. 20.00 og KR og Vals strax á eftir. Önnur umferð keppninnar verður síðan dagana 10.-12. apríl. Þriðja umferðin verður 17.-19. apríl og síðasta umferð- in í úrslitakeppninni verður26.- 28. apríl. Stjörnuhlaup ■ Þriöja stjörnuhlaup FH fer fram laugardaginn 16. mars. Þaö hefst viö Lækjarskóla kl. 14.00. Keppt verður í karla- flokki 8 km,! venna- og drengjaflokki 4 kin og telpna- og piltaflokki í 2 km. r'réUatilkynnin}; Belgía: Anderlecht úrleik Frá Reyni Þór Finnbogasyni í llollandi: ■ Stórlið belgísku knattspyrnunnar Anderlecljt erúrleik í belgísku bikar- kcppninni. Liðið lék við FC Liege og tap- aði eftir vítaspyrnu- keppni 2-4. Ander- lecht hafði ekki tap- að leik í Belgíu í 24 skipti í röð fyrir þennan leik. Willy Geurts skoraði mark Liege í leiknum. Þar sem Anderlecht hafði unnið fyrri leikinn 1-0 þurfti að framlengja. Ekkert var skorað í fram- lengingunni og þurfti því vítakeppni til að fá sigurvegara Þá var FC Liege betra. Önnur úrslit: f bikarkeppninni 8- liða úrslitum: Beveren-AA Ghent 1- 0. Beveren áfram. Searing-Warengem 2- 0. Searing áfram. CS Brugge-Harebe- eke 1-0 CS Brugge áfram. (IE™) Vandaðir bíl- kranar í öllum stærðum á lægsta verði á markaðnum 18 tonn/m /N Lyftigeta 8.5 tonn, þyngd 2.3 — 2.5 tonn. Hátt á 2.hundrað gerðir fáan- legar frá 2.5 tonn/m til 180 tonn/m Hafið samband við okkur og fáið nánari upplýsingar. Hmmi FUNAHÖFÐA 1 k S. 91-6 REYKJAVÍK 5260

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.