NT


NT - 17.03.1985, Side 7

NT - 17.03.1985, Side 7
7 Sunnudagur 17. mars 1985 ■ \ LlL M Best að fara varlega þegar leigubOstjórar, sem eru meðlimir i Frama eru annars vegar. Honum þótti ekkert athugavert við heimatilbúinn gjaldmiðilinn og ekki kom til neinna átaka. um tilvikum að leiðrétta glæpinn. Margir vildu hreint og beint ekki trúa því að peningarnir væru falsaðir. „Ég trúi ekki, að þetta sé ekta falsaður fimmhundruðkall," eins og ein afgreiðslustúlka komst svo hnyttilega að orði. * Islendingar grandalausir Þegar heimatilbúnu seðlarn- ir eru bornir saman við ekta innflutta bankóseðla kemur auðvitað strax í ljós hvað er ekta og hvað er falsaður seðill. Erfitt er að komast yfir pappír sem er svipaður og í ekta seðlum og í þeinr eru alls kyns V Ekta rannsóknarblaða- maður í baráttu við hið illa. Jafnvel Óli blaðsali gekk í gildruna og skipti peningunum eins og ekkert væri og er hann nú ýmsu vanur. merki og fiff sem erfitt er að falsa. Það sem tilraun okkar leiddi hins vegar í Ijós er að íslend- ingar eru grandalausir fyrir svindli af þessu tagi og ísland því gósenland fyrir þá sem virða lögin að vettugi á þennan hátt. Nýju ljósritunarvélarnar gera síðan málið töluvert ein- faldara fyrir hina framtaks- sömu. Tólf ára fangelsi Þó að hugtök eins og einka- framtak og afnám ríkisafskipta séu mikið í tísku á íslandi á þessum síðustu og verstu tím- um er álitamál hvort slíkt ætti einnig að gilda um heimil- isiðnað af þessu tagi. Sam- kvæmt almennum hegningar- lögum eru viðurlög við peninga- fölsun allt að tólf ára fangelsi og minnst þrjátíu daga fang- elsi, hversu lítið sem brotið er. Það runnu einnig tvær grím- ur á okkur Helgarblaðsmenn þegar við fórum að glugga í hegningarlögin og komumst að því, að það eitt að ljósrita peninga er lögbrot. Samkvæmt 150. grein hegningarlaganna, skal hver sem falsar peninga í því skyni að koma þeim í umferð, sæta allt að tólf ára fangelsi. Glæpurinn hafði því þegar verið drýgður, eða hvað. Það eina sem hægt var að hugga sig við var að íslensku viðurlögin voru þó töluvert mildari en sambærileg lög í Englandi á dögum Hinriks áttunda. í þá daga voru peningafalsarar soðnir í olíu ef upp komst. Gamalt máltæki segir að hollur sé heimafenginn baggi en ekki er víst að slík speki eigi við í öllum tilvikum. Dag- launamaðurinn, söguhetja okkar, hafði að vísu látið drauminn um auðinn rætast þó ekki væri nema part úr degi. Hann hafði fengið að sjá inn í dýrðarríki peninganna þar sem baðherbergisflísar og sólar- landaferðir eru daglegt brauð. En þar sem ljósið er skærast er skugginn dekkstur. Rétt í þann mund sem dyr peninga- sælunnar voru að opnast, hrönnuðust éljabakkar hinnar vondu samvisicu upp á himin- inn. Draumurinn breyttist skyndilega í hrollkaldan veru- leikann þar sem hver og einn verður að strita fyrir brauði sínu og baðherbergisflísum. Og þó að Ijósritunarvélar geti nú ljósritað í litum regn- bogans þá halda ekta peningar áfram að vera ekta peningar og glæpurinn er eins og áður aðeins valkostur. JÁÞ. V Okkar maður kominn með peningabúntið í Landsbankann. Gjaldkerinn átti sér einskis ills von enda framleiðslan pottþétt. þá að fá að prófa gripinn. Þegar búið var að stilla litinn rétt, gekk þetta eins og í lyga- sögu. Stórar litfagrar arkir streymdu úr vélinni og þá var ekki annað en að klippa og skera og peningaseðlarnir hrúguðust upp. Framleiðslan var hafin. Það þarf varla að taka það fram að hér er um kolólöglegt athæfi að ræða en hvað gera menn ekki þegar blessaðir pen- ingarnir eru annars vegar? Óneitanlega skaut ýmsum hugmyndum upp í koll blm. þar sem hann sat við vélina og búntin stækkuðu og stækkuðu. Af hverju ekki að nota nú tækifærið og skella sér til Mallorca eða Bíbí og Jóni, já eða slá til og kaupa loksins flísar á baðherbergisgólfið? A meðan suðaði notalega í Ijósritunarvélinni var auðvelt að láta hugann reika. Auðvitað mundi maður fata sig sæmilega upp og borga svo af húsnæðis- málastjórnarláninu og stækka jafnvel við sig með vorinu. Það væri kannski of gróft að kaupa einbýlishús strax. Byrja bara á raðhúsi til að vekja ekki grun- semdir. Það vantaði ekki hug- myndirnar. Auðvitað yrði maður að byrja á því að fá sér svona vél, hún fengist með afborgunum eins og hvað annað. . F ramleiðslan gjaldgeng Það er óþarfi að taka það fram að það var setið langt fram eftir kvöldi og vélin látin ganga „nonstopp" eins og það heitir. Hér var loksins komin næturvinna sem er almenni- lega launuð. Nú er það svo að peningar eru einskis virði eins og allir vita, nema hægt sé að eyða þeim. Það varð því að gera prufu á því hvort framleiðslan væri ekki gjaldgeng. úti á hin- um frjálsa markaði, ef svo má að orðum komast. í bítið næsta morgun fór undirritaður svo á stúfana með þykkt seðalbúnt upp á frakka- vasann. Það var þægileg til- finning að strjúka rökum lófanum um búntið. Nú skyldi á það reyna hvort heimatilbún- ir peningar væru ekki alveg eins gjaldgengir eins og inn- fluttir seðlar. Og viti menn, einnig það gekk eins og í sögu. Það kann að líta smáborg- aralega út en það fyrsta sem blm. datt í hug að kaupa var eitt af þessum nýbökuðu vínar- brauðum, sem seld eru úr vögnunum á Lækjartorgi. Af- greiðslustúlkan brosti meira að segja þegar hún tók við fimm- hundruð króna seðlinum og gaf til baka í alvöru hundrað- köllum. Hinn langþráði draumur var að rætast. Én þá skeði það. Það var engu líkara en fyrsti munnbitinn stæði fastur í háls- inum. Bragðið af volgu glass- úrinu varð beiskt og hóstinn sem fylgdi strax á eftir ætlaði engan endi að taka. Forherð- ingin stóð föst í hálsi útsendara Helgarblaðsins. Glæpnum var ekki hægt að kyngja. Runnið á rassiun Stúlkan fékk aftur það sem hún hafði gefið til baka, auk andvirðis vínarbrauðsins í al- vöru peningum. Falsaða seðl- inum var stungið hratt niður í vasann og blm. flýtti sér í burtu. Það var engu líkara en- hálf étið vínarbrauðið, sem lá á götunni, glotti hæðnislega. Til að bjarga andlitinu og öðlast aftur sjálfsvirðinguna, hófst nú baráttan fyrir réttlæt- inu. Til að gera langa sögu stutta fór undirritaður í banka, versl- anir og til Óla blaðasala sem er öllu vanur og alls staðar var tekið við hinum fölsuðu seðlum. Auðvitað voru málin leiðrétt strax og sýnt þótti að hægt var að nota „peningana.“ Jafnvel harðsvíruðustu við- skiptajöfrar, eins og náunginn í sjoppunni, sem ég er vanur að versla við, var algjörlega grunlaus þegar hann smellti glóðvolgum heimatilbúnum seðli í kassann hjá sér og rétti mér sígaretturnar og rússnesk- ar eldspýtur, ásamt afgangin- um til baka. Það tók meira að segja langar útskýringar í sum- * Kræm dös not pei. Viðurlög við peningafölsun eru tólfár á Litla-Hrauni í Ölfusi. Þó skárra en i Englandi á dögum Hinriks áttunda þegar falsarar voru steiktir í otíu.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.