NT - 23.03.1985, Page 13
Laugardagur 23. mars 1985
Nýr taktui
mul sveifl
13
Hagen, og þótt röddin sé mikil
þarf ögun einnig.
Næstu lög voru í sama þung-
lyndislega ragnarakastílnuni,
bara heitin á þeim fylltu mann
leiða, Tóm og Daginn eftir. -
Þungt, þungt og ekki spenn-
andi. Það sama verður að segj-
ast um sviðsframkomuna. Hún
var öll slitrótt og óhnitmiðuð.
Svona lagað „peppar ekki
upp“ liðið sem er kornið til
þess að hlusta. Á köflum í
seinni hluta prógrammsins náði
þó Dá-sveitin sér á strik og brá
fyrir skemmtilcgum tilþrifum,
jafnvel lífi. Það mætti vera
meira af slíku, því hljóðfæra-
leikararnir spila þétt og ná
nokkuð vel saman, sérstaklega
var gítarleikarinn með góða
takta að öðrum ólöstuðum.
Oxsmá, nýkomnir úr hljóm-
leikaferð til Hollands, og ísa-
fjarðar, með sjötta meðliminn
í farteskinu, Jón Steinþórsson
standbassaleikara, kom, sá og
sigraði í Safarí þetta kvöld og
lét sig hverfa aftur áður en
áheyrendur vissu hvaðan á þá
stóð veðrið.
Tóku liðið
með áhlaupi
Þarna eru á ferðinni sex
hressir piltar sem vita hvað
„Showbiz" er og kunna á sitt
públikum. Gítarleikararnir,
Hrafnkell og Axel, í fremstu
víglínu, Óskar „saxi“ Jónasson
á miðjunni, með hring á hverj-
um fingri, og Hörður orgelleik-
ari, Jón bassi og Kormákur
trommari fylgja þeim þétt
eftir. Allir syngja þeir af lífi og
sál en Hrafnkell titlaðursöngv-
ari.
Það var keyrsla frá fyrstu
stundu, lögin hrá og rífandi,
og Safarí iðaði af lífi sem ekki
hafði sést fyrr um kvöldið.
Apes var eitt lagið, rífandi
saxariff, orgel og gítarar í
skemmtilegum ærslum.
Áheyrendur sannarlega með á
nótunum. söngurinn um Dokt-
or Rumpo ögn dempaðri en
samt fylgt fast eftir þeirri nótu
sem slegin var í upphafi og
hvergi gefið eftir. Hver taug
áheyrenda var þanin, þetta var
eitthvað nýtt, frumlegt, og
ekki síst, helvíti skemmtilegt!
Rip, Rap, Rup, síðasta lagið
um þá félaga í Andeby með
grípandi stefi, allir með á nót-
unum og Ijósin fóru hamför-
um. Svo var allt búið og gestum
tilkynnt að hljómsveitin Oxsmá
hefði yfirgefið húsið!
Beðið eftir
Hvíta úlfinum
Svona á að gera hlutina og
allir gátu farið ánægðir heim
þótt franski úlfurinn hefði ekki
sýnt sig á svæðinu. „Við urðum
bara að bjarga þessu“, sagði
Óskar Jónasson eftir leikinn.
En vonandi verður af því fyrr
en seinna að Etron Fou Le-
loublan komi til landsins og á
meðan geta menn bara æft sig
heima í að spangóla - á
frönsku!
■ Jóhanna Steinunn, söng-
kona Dá.
Texti: áþj.
Myndir: Ari
Sigtryggur bakkaði skemmti-
lega upp með „munnspili".
Síðasta lagið fjallaði um elsk-
huga Evu og hendur hans.
Dágóð ■ tilþrif
annað slagið
Hljómsveitin Dá, með söng-
konuna Jóhönnu Hjálmtýs-
dóttur í fylkingarbrjósti, átti
næsta leik og komst dável frá
sínu, sérstaklega undir lokin.
Berlín, hét fyrsta lag þeirra,
orðið ársgamalt eða meira og
verið á prógramminu frá upp-
hafi. Nafnið gefur vísbendingu
um hvert sveitin sækir fyrir-
mynd sína í tónlistinni, en úr
þessu varð aldrei neitt meira
en léleg þýsk stæling. Það fara
ekki allir í skóna hennar Nínu
■ Oxsmá átti leikinn.
■ Framlínumennirnir í Oxsmá, Axel og Hrafnkell.
Hvíti úlfurinn fjarri góðu gamni í Safan':
Spangólað upp á íslensku!
■ Vammlaust kvöld í Safarí
á fimmtudagskvöldið, þrátt
fyrir að „Hvíti úlfurinn" frá
Frans hafi ekki mætt á staðinn.
Opinber söguskýring ku vera
sú að hljómleikaferð þeirra til
USA hafi farið í vaskinn, en
þegar búið var að redda flug-
síður, tók trommarinn upp á
því að veikjast á flugvellinum í
Lux . Vont mál, en aðstandandi
tónleikanna, Grammið, lét
þetta ekki á sig fá og tii tónleik-
anna var efnt með tilstuðlan
íslenskra krafta.
Dúettinn Björk & Sigtrygg-
með skemmtilegu samspili
ásláttar, raddar og hljóðgervla.
Þeim til aðstoðar í einu lagi
var Abdul Dhour á bongo-
trommur. Björk hefur sterka
og blæbrigðaríka rödd og
skemmtilega sviðsframkomu.
Hún söng og talaði um lífið í
ænskt popp
i Broadway
i því hún gæfl af sér bæði „peninga og píur“ sótti
i sér hafði hann nokkra af helstu poppurum Svía,
það gott en tónlist hans er melodískt popp og
NT-raynd: Ari
Við viljum vekja athygli ykkar á hinni
nýju og afkastamiklu Fíat-Allis FD-7
jarðýtu.
* Vélin er með vökvastýrðri tönn
á aiia vegu.
* 82 hestafla vél.
* ,,Full power shift".
* Vegur aðeins 8.300 kg án riftannar.
* Fullkomin hljóðeinangrun úti og inni
* Afar hagstætt verð.
* Fullkomin þjónusta.
Yækjasalan hf
Vinsamlegast hringið og fáið nánari
upplýsingar.
Munið að við erum aldrei
lengra frá yður en næsta símtæki.
Athugið:
Getum einnig boðið lítið
notaðar Fíat-Allis vélar ó hagstœðu
verði með takmarkaðri óbyrgð
tækiítaktviótímann
FlFUHVAMMI KÓpavogi ‘S 91-46577
Ræktunarsambönd
Verktakar