NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 27.03.1985, Qupperneq 5

NT - 27.03.1985, Qupperneq 5
 % V Vinnumiðlun ■ Stefán Valgeirsson hefur lagt fram breytingar- tillögu við frumvarp til laga um vinnumiðlun þar sem lagt er til að hverju sveitarfélagi, sem er með 500 íbúa eða fleiri, sé skylt að annast vinnumiðlun samkvæmt lögunum og reglugerð settri samkvæmt þeim en öll sveitarfélög skuli hafa atvinnuleysis- skráningu með höndum. I kaupstöðum með fleiri en 10 þúsund íbúa skuli starfa sérstakar vinnumiðlunar- skrifstofur, reknar af hlut- aðeigandi sveitarfélagi, en aðrir kaupstaðir og kaup- túnahreppar með 1000 íbúa eða fleiri geti falið sérstökum deildum eða starfsmanni að annast vinnumiðlun. Sveitarfélög með færri en 1000 íbúa geta falið oddvita sínum eða sveitarstjóra að annast vinnumiðlun og atvinnu- leysisskráningu. Vandi sjávarútvegsins Meiri hluti atvinnu- málanefndar hefur sent frá sér nefndarálit vegna til- lögu til þingsályktunar um kosningu nefndar vegna rekstrarvanda í íslenskum sjávarútvegi, þar sem kemur fram að rætt hafi verið við flesta hagsmuna- aðila og umsagnir þeirra fengnar. Pótt flestar um- sagnirnar hvetji til að- gerða af hálfu stjórnvalda til að bæta hag sjávarút- vegsins er það ljóst, segir í nefndarálitinu, að niður- stöður liggja fyrir um mörg þau atriði sem lagt er til í tillögunni að athug- uð séu. Bent er á að ríkis- stjórnin hafi vanda sjávar- útvegsins til athugunar og meðferðar og hafi reyndar þegar, frá því tillagan var flutt, gert ráðstafanir í þágu hans. Því leggur meirihlutinn til að tillög- unni verði vísað til ríkis- stjórnarinnar. Húsnæðis- og byggingarmái Lögð hefur verið fram í sameinuðu þingi tillaga til þingsályktunar um upplýs- ingamiðlun um húsnæðis- og byggingarmál. Flutn- ingsmenn eru Guðmundur Einarsson, Eiður Guðna- son, Davíð.Aðalsteinsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Geir Gunnarsson og Birg- ir ísleifur Gunnarsson. Tillaga þessi var flutt á síðasta þingi en hlaut þá ekki fullnaðarafgreiðslu en í greinargerð með henni er sagt að eitt af einkennum nútímans sé hið mikla magn upplýs- inga sem til sé á flestum sviðum. Er því lagt til að skipuð verði sjö manna nefnd til að efla upplýs- ingamiðlun með útgáfu handbóka, námskeiða- haldi, uppbyggingu tölvu- tækra gagna og öðrum að- ferðum sem hentugar þykja og er lagt til að verkið njóti stuðnings úr ríkissjóði í þrjú ár. Bræður á þingi Páll Dagbjartsson, bróðir Björns Dagbjarts- sonar, tók sæti Pálma Jónssonar á þingi á mánu- daginn þar sem Pálmi er erlendis í opinberum er- indagjörðum. Páll er skólastjóri í Varmahlíð í Skagafirði. Miðvikudagur 27. mars 1985 5 Rannsókn Flugslysanefndar á þyrluslysinu í Jökulfjörðum lokið: Rennihurð hefur líklega rekist í skrúfublöðin ■ F.v. Karl Eiríksson, Birgi'r Guðjónsson og Skúli J. Sigurðsson kynna niðurstöður rannsóknarinnar á flugslysinu þegar þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Rán, fórst í Jökulfjörðum 1983. ■ Flugslysanefnd og Flug- málastjórn hafa lokið sameigin- legri skýrslu um rannsókn flug- slyssins í Jökulfjörðum 8. nóv. 1983, þegar TF-Rán, þyrla Landhelgisgæslunnar fórst þar í æfíngaflugi. Rannsóknin var mjög yfirgripsmikil og voru margar tilgátur sem fram komu kannaðar ýtarlega í samvinnu við National Transportation Safety Board en það er ríkis- stofnun sem kannar öll alvarleg j slys. Niðurstaða skýrslunnar er sú að ekki séu fyrir hendi nægar sannanir til þess að unnt sé að ákveða með fullri vissu hver hafi verið orsök slyssins, en miklar líkur séu á, að rennihurð á hægri hlið þyrlunnar hafi opn- ast og losnað að neðanverðu með þeim afleiðingum að hún hafi sveiflast upp í aðalþyrilinn og skemmt þyrilblöðin svo mikið að litlir möguleikar hafi verið á að stjórna þyrlunni. Líklegt er talið að flugmennirnir hafi orðið að stöðva framskrið þyrlunnar tafarlaust og nauð- lenda henni en það er gert m.a. með því að reisa nef hennar skyndilega. Vegna titrings og hve hröð atburðarásin var, en talið er að innan við mínúta hafi liðið frá flugtaki og þar til þyrlan var horfin, hafi flugmenn ekki náð til viðbúnaðrrofans fyrir neyðarflot hennar og hún því sokkið samstundis. f skýrslunni kemur fram að líkur bendi til þess að renni- brautin, sem hurðin gekk eftir, hafi verið gölluð þar sem ekki sjást merki eftir 8 af 12 stálkúl- um sem eiga að gefa henni styrk. Ekkert kom fram sem benti til þess að rennibrautin hafi verið tekin í sundur eftir að þyrlan kom hingað til lands. Hurðin, sem er tæplega 30 kg og flýtur ekki hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla leit, en skemmdir á hreyfilhlífunum, skrokknum sjálfum og á vindu- gálga fyrir ofan dyrnar koma heim og saman við stærð og lögun hurðarinnar og útreikn- aðan feril hennar. Þyrlan var tilltölulega lítið skemmd eftir að lenda á sjónum og engir áverkar voru á flugvirkj- unum tveimur sem fundust. Þetta þykir benda til þess að þyrlunni hafi verið flogið undir stjórn, en hún ekki lent harka- lega í sjónum. Einnig er tekið fram að ytri aðstæður s.s. nátt- myrkur, og dökkt umhverfi, vindhvörf í firðinum og langur vinnudagur flugliðanna hafi gert þeim erfiðara að bregðast við skyndilegum og óvæntum vanda. Þá er þess getið að ýmsu hafi verið ábótavant í þyrlurekstri Landhelgisgæslunar og eru gerðar tillögur til úrbóta í ör- yggisátt. Tillögur þessar varða m.a. flugrekstur Landhelgis- gæslunnar og tæknileg atriði sem snerta þyrlur af gerðinni S-76A. Hjálparsveit skáta í Reykjavík fær gjöf: Fengu tölvu, prentara og hugbúnað ■ HjálparsveitskátaíReykja- vík eignaðist á dögunum full- komna tölvu og prentara sem er gjöf frá fyrirtækinu Gísli J. Johnsen. Einnig gaf íslensk forritaþróun sf. sveitinni hug- búnað til að nota með þessu hjálpargagni. ■ Frá afltendingu gjafanna: Vigfús Pálsson, Jón Baldursson sveitarforingi, Vilhjálmur Þor- steinsson frá Islenskri forritaþró- un sf. og Gunnar Ólafsson og Erlingur Ásgeirsson frá Gísla J. Johnsen. Norræni iðnþróunarsjóðurinn fyrir ísland: Lánskjörunum verði breytt - stjórn FÍI skal beita sér fyrir því ■ Stjórn Félags íslenskra iðnrekenda hefur verið falið að beita sér fyrir því að láns- kjörum úr Norræna iðnþróun- arsjóðnum fyrir Island verði breytt á þann hátt, að þau verði ekki miðuð við gengi dollarans. Tillaga þess efnis var sam- þykkt samhljóða á 51. ársþingi FÍI á föstudag. Flutningsmað- ur tillögunnar benti á, að skuldir hitaveitu Akraness, eftir 4 ára starfrækslu, væru 500 milljónum krónum hærri en þær myndu vera, ef lán fyrirtækisins hefðu verið bund- in lánskjaravísitölu, en ekki Bandaríkjadal. Eurocard með öryggiskort ■ Kreditkort sf. býður nú Eurocard korthöfum aðgang að þjónustu alþjóðlegs að- stoðarfyrirtækis, GESA. Ör- yggiskortið veitir korthöfum rétt til að kalla á aðstoð GESA, ef óvænt óhöpp eða fjárútlát henda þá á ferða- lagi utan íslands. Aðstoðin er aðallega fólg- in í því að útvega lækn- ishjálp, en greiðir ekki læknis- og sjúkrakostnað. Þá gefur GESA ráð símleiðis ef vanda ber að höndum og veitir tímabundið peninga- lán til greiðslu sjúkra- eða lögfræðikostnaðar. Einnig annast það og greiðir fyrir sjúkraflutningum, flutningi vandamanna, og flutningi heim ef korthafi lætur lífið erlendis. Gildi þessara öryggiskorta er háð því að Eurocard kred- itkort handhafans sé í gildi. Auk öryggiskortsins geta Eurocard korthafar einnig fengið slysaábyrgð ferða- langa. Slysaábyrgðin bætir afleiðingar af slysi sem bóta- þegi verður fyrir sem farþegi í almenningsfarartæki eða bíl frá bílaleigu. Lestunar- áætlun Hull/Goole: Dísarfell . 8/4 Dísarfell 22/4 Dísarfell . 6/5 Dísarfell 20/5 Rotterdam: Dísarfell . 9/4 Dísarfell 23/4 Dísarfell . 7/5 ' Dísarfell 21/5 Antwerpen: Dísarfell 10/4 Dísarfell 24/4 Dísarfell . 8/5 Dísarfell 22/5 Hamborg: Dísarfell 29/3 Dísarfell 12/4 Dísarfell 26/4 Dísarfell 10/5 Dísarfell 24/5 Helsinki/Turku: Arnarfell . 9/4 Hvassafell 22/4 Oslo: Hvassafell . 1/4 Mælifell 17/4 Falkenberg: Arnarfell 26/4 Larvik: Jan . 4/4 Jan 15/4 Jan 29/4 Jan 13/5 Gautaborg: Jan . 3/4 Jan 16/4 Jan 30/4 Jan 14/5 Kaupmannahöfn: Jan . 2/4 Jan 17/4 Jan . 1/5 Jan 15/5 Svendborg: Jan . 1/4 Jan 18/4 Jan . 2/5. Jan 16/5 Aarhus: Jan . 1/4 Jan Jan Jan 18/4 . 2/5 16/5 Gloucester, Mass.: Jökulfell............. 13/4 Halifax, Canada: Jökulfell.............14/4 m SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth 180 121 Reyk)avik Simi 28200 Telex 2101 Lyt sem hafa áhrif á athyglisgáfu og viðbragðsflýti eru merkt með RAUÐUM VIÐVÖRUNAR- ÞRÍHYRNINGI II^eww,

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.