NT - 26.06.1985, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 26. júní 1985
Á ríkisspítölunum:
Innflutningur á
hjúkrunarfræðingum
■ Níu hjúkrunarfræðingar frá
Norðurlöndum voru ráönir á
Borgarspítalann sl. haust, þar af
eru átta cnn starfandi. Fimm
erlendir hjúkrunarfræðingar
eru starfandi á Landspítalanum
en enginn crlendur hjúkrunar-
fræðingur hefur verið ráðinn
enn sem komið er á Landakots-
spítala. Flestir þessa hjúkrun-
arfræðinga eru ráðnir til allt að
eins árs.
Ráðningarnar fara fram í
gegnum Hjúkrunarfélag íslands
og viðkomandi hjúkrunarfélög
erlendis.
Ríkisspítalarnir, allir nema
Landakotsspítali sem „bjargast
með hjúkrunarfræðinga" sam-
kvæmt upplýsingum NT, greiða
fargjald erlendu hjúkrunar-
fræðinganna til landsins ef þeir
ráða sig til hálfs árs eða meira.
Fargjald fram og til baka er
greitt ef ráðningin er til eins árs
eða meira. Ríkisspítalarnirhafa
forgöngu um að útvega erlendu
hjúkrunarfæðingunum húsnæði
á leigu.
Vinnuálag er mikið á öllum
spítölunum. Skortur er á hjúkr-
unarfræðingum og launakjör
þeirra eru slæm. Það er erfitt að
fá starfsfólk á spítalana og upp-
■ Þau sýna í „Flotta galleríinu“, Grafíska meyjafélagið og
Magnús.
Samsýning í
„Flotta galleríinu“
■ Þann 27. júní næstkom-
andi verður opnuð í „Flotta
galleríinu“ samsýning fimm
ungra myndlistarmanna sem
útskrifuðust úr graíikdeild
M.H.Í. nú í vor.
Anna Líndal sýnir þarna
dúkristur, þar sem myndefn-
ið er forn og ný fjölskyldu-
drömu. Guðný Björk og
Magnús Þór sýna málaðar
myndir. Margrét Birgis verð-
ur með blandað sjónlistar-
efni og Sigrún Ögm. sýnir
málaðar grafískar manna-
myndir, auk mynda er fjalla
um samspil manns og hljóð-
færis.
Opnun sýningarinnar verð-
ur klukkan 20.00 á fimmtu-
dagskvöldið og þá munu ung
skáld lesa úr verkum sínum.
Sýningin stendur til I7.
júlí og er galleríið opið frá-
klukkan 13-18, alla daga
nema mánudaga.
Evrópusamtök auglýsingastofa:
Áhersla á gott sam-
starf við auglýsendur
■ Annand dc Mulherhe, stjórn-
arformaðnr auglýsingafyrirtækis-
ins Ted Bates Europe, var nýlega
kjörinn formaður Evrópusamtaka
auglýsingastofa á þingi þcirra í
London. Innan samtakanna eru
Leiðrétting
■ Misritun varð í síðasta
laugardagsblaði NT, í viðtali
við Reyni Pétur Ingvarsson. Það
var ekki kaupmaðurinn á
Hornafirði sem gaf Reyni striga-
skó, heldur Kaupfélag A-Skaft-
fellinga á Hornafirði, og voru
skórnir af Hummel gerð.
sagnir þeirra sem fyrir eru hafa
aukist á Landakoti.
Á Borgarspítalanum vantar
hjúkrunarfræðinga í um 30 stöð-
ur en stöðurnar þar eru alls 200.
Af 196 stöðum sjúkraliða vantar
allt að 54 sjúkraliða. Þar hefur
rúm fyrir tvo sjúklinga vantað á
lyfjadeildum upp á síðkastið og
því hefur annar þessara sjúk-
linga legið á svokölluðu undir-
Ratsjárstöðin:
Misskilning-
ur leiðréttur
■ Dálítils misskilnings gætti í
frásögn NT í gær af leigusamn-
ingi milli Bolungarvíkurbæjar
og utanríkisráðuneytisins fyrir
land undir ratsjárstöð banda-
ríska hersins. Rétt er, að fram-
kvæmdir við vegarlagningu upp
á Bolafjall verða hafnar í sumar,
en óvíst er um framkvæmdir við
sjálfa ratsjárstöðina. Ekki verð-
ur byrjað á henni fyrr en vegar-
lagningunni er lokið.
auglýsingasambönd frá 17 Evr-
ópulöndum og 20 alþjóðleg fjöl-
miðlunarfyrirtæki, sem starfa í
Evrópu. Þá starfa þau í nánum
tcngslum við samtök auglýsenda
og fclög útgefcnda í Evrópu.
Á ávarpi, sem Armand de Mal-
herbc flutti á þinginu, sagði hann,
að Evrópusamtök auglýsingafyrir-
tækja legðu áherslu á gott samstarf
auglýsenda og auglýsingastofa,
svo og eigin aðhald og siðareglur
á sem breiðustum grundvelli, til
að standust alla gagnrýni og upp-
fylla þær kröfur, sem gerðar væru
til auglýsinga og auglýsingastofa.
Síðan sagði hann:
„Þcssi liður í starfi okkar er
mikilvægari en nokkru sinni fyrr,
m.a. vegna þess að fjölmiðlarnir,
bæði þeir nýju og þeir gömlu, eru
smátt og smátt að verða alþjóð-
legri. “
búningsherbergi, sem er „gott
herbergi þó þar sé klósett," að
mati Sigurlínar Gunnarsdóttur
hjúkrunarforstjóra á spítalan-
um. Hinn sjúklingurinn hefur
legið á gangi.
Á Landspítalanum er fjórum
sjúklingum „yfir“ á einni deild
og tveimur „undir" á annarri.
Þrír þeirra, sem vantar pláss á
stofu, eru á gangi deildarinnar.
Sá fjórði er í skoðunarherbergi.
Á spítalanum vantar 30 hjúkr-
unarfræðinga auk fólks í af-
leysingar.
Þeir hjúkrunarfræðingar sem
útskrifast í vor hafa dregið að
ráða sig á spítalana. Þeir bíða
eftir að samningamál BSRB við
ríkið skýrast en forráðamenn
spítalanna vonast til að þeir ráði
sig þangað er samningar hafa
náðst.
Á öllum spítölunum verður
deildum lokað í sumar. Á Borg-
arspítalanum verður tveimur
deildum lokað hvorri um sig í
fimm vikur. Á Landakotsspítala
verður einni deild með 24 rúm-
um lokað í tvo mánuði í sumar.
Á Landspítalanum verður
a.m.k. einni lyflæknisdeild
lokað.
Léleg veiði í
Haffjarðará
Haffjarðará hefur ekki
verið söm við sig frekar en
margar aðrar ár á Vestur-
landi. Inga Óladóttir sagði í
samtali við Veiðihornið í gær
að laxarnir sem hefðu veiðst
væru í kringum 60. Veitt er á
sex stangir í ánni, og hlýtur
þetta því að teljast mjög
lélegt. Stærsti fiskurinn sem
veiðst hefur vó 15 pund, en
Inga sagði að algeng stærð
væri 6-8 pund. Veðrið hefur
verið gott hjá okkur sagði
Inga, en líklega helst til gott
fyrir veiðimennina. „Við
reynum að elda góðan mat
handa þeim í staðinn." Inga
bætti því við að stórstreymt
væri um mánaðamótin og
þá býst hún við að þetta fari
að ganga.
Laxá á Ásum á
uppleið
Mikill lax er nú kominn
um alla á í Laxá á Ásum.
Kristján bóndi á Húnastöð-
um sagði í samtali við Veiði-
hornið í gær að veiði væri nú
á réttri leið, og í gærmorgun
hefðu fimm laxar verið teknir
á einu bretti. Þá hefur lax
sést allt upp undir Mánafoss,
og þótti Kristjáni það vera
góðs viti.
Umsjón:
Eggert Skulason
Smálaxinn kom-
inn í Þverá
„Veiði er að glæðast hérna
í Þverá,“ sagði Halldór Vil-
hjálmsson í veiðihúsinu þeg-
ar Veiðihornið hafði sam-
band í gærkvöldi. Fimm lax-
ar höfðu veiðst í gær, og
hollið sem var þar á undan
fékk 17 og var talsvert af
smálaxi þar innan um. Hall-
dór vissi ekki um neinn stór-
fisk, fyrirutan þann 18punda
sem veiddist í byrjun. Alls
hafa veiðst 123 laxar frá því
veiði hófst. Meðalstærðin er
9-10 pund. Halldór sagði
veiði í Kjarrá ekki góða, en
það myndi lagast fljótlega ef
vatnsmagn myndi aukast í
Nýr viðskiptasamningur við Sovétríkin
Aukin sala á f reð
fiski og saltsíld
■ Nýr fimm ára viðskipta-
samningur milli íslands og Sov-
étríkjanna var undirritaður
austur í Moskvu í gær af þeim
Matthíasi Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra og Nikolai S.
Patolichev utanríkisviðskipta-
ráðherra Sovétríkjanna. Samn-
ingurinn tekur gildi í ársbyrjun
1986 og mun hann rétta enn
frekar af hallann á viðskiptum
okkar við Sovétmenn.
Samningurinn er samhljóða
núgildandi samningi og fylgja
honum tveir listar yfir þær
vörur, íslenskar og sovéskar
sem gert er ráð fyrir að viðskipt-
in nái til á samningstímabilinu.
Árlegir sölusamningar verða
svo gerðir á grundvelli vörulist-
anna.
Nýi samningurinn gerir ráð
fyrir aukinni sölu á freðfiskflök-
um og saltsíld. Freðfiskafla-
kvótinn verður nú 20-25 þúsund
tonn. í stað 12-17 þúsund tonn
áður. Saltsíldarkvótinn verður
einnig 20-25 þúsund tonn, en
var áður 15-20 þúsund tonn.
Ullarvörukvótinn hækkar úr 4-
4,9 milljónum dollar í 5-6,5
milljónir. Lagmetiskvótinn er
4-5,5 milljónir dollara, með
mögulegri aukningu. Málning-
arkvótinn verður óbreyttur,
1500-2000 tonn.
íslendingar kaupa aðallega
olíuvörur frá Sovétríkjunum og
samningurinn gerir ráð fyrir
svipuðum viðskiptum og verið
hefur undanfarin ár. Bensín-
kvótinn verður hinn sami, eða
allt að 100 þúsund tonn. Gas-
olíukvótinn verður 110-150 þús-
und tonn í stað 100-190 þúsund
tonna. Keypt verður allt að 180
þúsund tonnum af svartolíu í
stað 110-180 þúsund tonna
áður. Aðrir kvótar eru óbreytt-
ir, þ.á m. fyrir timbur, vélar og
tæki.
Jafnframt undirrituninni,
fóru fram árlegar viðskiptavið-
ræður landanna. Af hálfu ís-
iands var þar farið fram á, að
utanríkisviðskiptaráðuneyti
Sovétríkjanna beitti sér fyrir
því, að fyrirtækið Prodintorg
gerði sem fyrst viðbótarsamn-
inga um kaup á lagmeti og
heilfrystum fiski á þessu ári.
Lofuðu Sovétmenn, að mögu-
leikar á viðbótarviðskiptum
yrðu athugaðir.
Auk Matthíasar Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra, tóku þátt
í viðræðunum þeir Þórhallur
Ásgeirsson ráðuneytisstjóri,
Páll Ásgeir Tryggvason sendi-
herra, Jón Ögmundur Þormóðs-
son deildarstjóri og Benedikt
Jónsson sendiráðsritari. For-
maður sovésku viðræðunefnd-
arinnar var A.N. Manzhulo
aðstoðarutanríkisviðskiptaráð-
herra.
■ Jónas Ingimundarson píanóleikari flytur tónleika í kirkjunni í
Borgarnesi fimmtudagskvöld klukkan 21.
Tónleikar í
Borgarnesi
■ Tónlistarfélag Borgarfjarð-
ar gengst fyrir tónleikum í kirkj-
unni í Borgarnesi á morgun -
fimmtudag 27. júní klukkan 21.
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari kemur og flytur verk
eftir B. Galuppi, J.S. Bach,
L.v. Beethoven, F. Liszt og nýtt
verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. Að ósk tónlistarfélagsins
mun flytjandinn kynna verkin.
Jónas lék þessa sömu efnis-
skrá fyrr í þessum mánuði fyrir
þátttakendur á organistanám-
skeiði á vegum söngmálastjórn-
ar þjóðkirkjunnar.
Leiðrétting
■ Friðrik Halldórsson,
framkvæmdastjóri Orku-
tækni hf., hafði samband
við NT og árétti hann að
hann væri ekki einn eig-
andi fyrirtækisins, heldur
einn af fimm. Ennfremur
vildi hann taka fram að
hagstæðu kjörin sem boð-
ið er upp á núna hjá fyrir-
tækinu væru á landbúnað-
arvélum, ekki vinnuvél-
um. Hann tók einnig fram
að fyrirtækið legði mikið
upp úr góðri varahluta- og
viðgerðarþjónustu og að
öllum dráttarvélunum sem
það seldi fylgdi tveggja
ára ábyrgð.