NT - 16.08.1985, Page 3

NT - 16.08.1985, Page 3
Föstudagur 16. ágúst 1985 3 Fréttir, Fræsöfnun í Heiðmörk ■ Start'shópur um Alaskalúp- ínu stendur fyrir fræsöfnun um helgina. Fræjum verður safnað í Heiðmörk, Skorradal og í Haukadal. Tilgangur nteð söfnuninni er einkurn tvíþættur. Að safna fræi til sáningar í fræakra Landgræðslunnar í Gunnarsholti og með því auð- velda frætöku með vélum. í öðru lagi að safna fræi til til- raunastarfsemi og kynbóta á lúpínu. Strætisvagnar Reykjavíkur- borgar munu aka sjálfboðaíið- um upp í Heiðntörk, á morgun og sunnudag klukkan 10, frá Rauðarárstíg, um skiptistöðina í Kópavogi klukkan 10.15. Ferðir verða til baka klukkan 16 báða daga. Þá hvetur samstarfs- hópurinn fjölskyldufólk til þess að koma á eigin bílurn og leggja lið við fræsöfnunina. ■ Af jafnöldrum þessa - Ford A 1931 - voru enn 10 á skrá hjá Bifrciöaeftirlitinu, 4 vörubílar og 6 fólksbílar. Það ár var bílaeign landsmanna samtals 1.577 bílar, þar af 968 vörubílar - eða einn bíll fyrir hverja 70 íslendinga og því eölilegt að margir þeirra væru notaðir til fólksflutninga, við sérstök tækifæri a.m.k. Þessa mynd tók Róbert á sýningu árið 1979. Bílum fjölgað jafnt og fólki frá 1945 - ca. 110 þús.: Um 200 fólksbílar af ár- gerðum 1926-45 enn á skrá Gáleysisleg matreiðsla ■ Slökkvilið Reykjavíkur þurfti í tvígang að fjarlægja potta með matarleifum af gló- andi eldarvélahellum j höfuð- borginni í gærdag. í annað skiptið gleymdist steikin á elda- vélinni í íbúð í Vcsturbergi. Seinni partinn í gær var tilkynnt um reyk sem lagði frá glugga úr íbúð við Grettisgötu. Slökkvilið fór á staðinn og slökkti á elda- vélinni og gekk frá matarleifun- um. Varðstjóri hjáslökkviliðinu sagði í samtali við NT í gær að ekkert tjón hcfði hlotist af mat- seldinni, þrátt fyrir að ntikil bræla hefði verið í íbúðunum. ■ Slökkviliðsmenn ræsta út reykinn og bræluna á Grettisgötu, þar sem hádegissteikin ofsteiktist. NT-mymi: Svcrrir. Nefnd sjálfstæðismanna um fiskveiðistefnuna: w ■ Milli 12. og 13. hver fólks- bíll sem til var hér á landi fyrir 40 árum var enn á skrá hjá Bifreiðaeftirlitinu um síðustu áramót, sem teljast verður all- góð ending. Samkvæmt skrám Bifreiðaeftirlitsins voru enn á skrá hjá þeim 197 fólksbílar af árgerðununt 1926 til 1945 um síðustu áramót af alls 2.488 fólksbílum sem til voru í landinu 1945, eða 7,9%. Langsamlega flestir þessara bíla voru af ár- gerðinni 1942, alls 122 talsins. Á árinu 1984 voru afskráðir 11 bílar af þessari 1942 árgerð og voru það einu afskráningarnar á fólksbílum af árgerðum eldri Ráða hvern sem býðst - segir formaður Hins íslenska kennarafélags ■ Á fundi stjórnar Hins ís- lenska kennarafélags í gær var ákveðið að senda öllum skóla- stjórum framhaldsskólanna í landinu bréf til að kanna ástand- ið í kennararáðningum við skól- ana. Kristján Thorlacius formaður Hins íslenska kennarafélags sagði í samtali við NT í gær að félagið teldi að ástandið í þess- um málum væri mjög slæmt. Hann sagði: „Okkur finnst að Mennta- málaráðuneytið gefi ekki alltaf réttar upplýsingar og þar með rétta mynd af kermararáðning- unum við framhaldsskólana.“ Þess vegna myndi félagið ráðast í þessa könnun. Hann sagðist telja það vera mjög erfitt að fá kennara til kennslu nú - óvenju erfitt. Félagið vissi til að það væri mjög erfitt að fá kennara til kennslu í raungreinum og við- skiptagreinum ýmiss konar. Margir skólar úti á landi og jafnvel á Reykjavíkursvæðinu, hefðu neyðst til að ráða ný- stúdenta í kennslu. Það væri svo skammt þar til skólarnir hæfu störf að nú leituðu skólameistar- arnir hvers sem byðist í stað þess að leita aðeins mennta- fólks. Kærunni vísað frá 1945 það ár. Af vörubílum yfir fertugt voru 80 með númer um síðustu áramót af alls 2.401 sem skráður var árið 1945, eða rúmlega 3,3%, þar af 37 af árgerð 1942. Þessum gömlu vörubílum hafði fækkað um 5 frá árinu 1983, þ.e. 5 verið afskráðir í fyrra. Allar árgerðir fólksbíla milli 1926 og 1945 áttu enn sína fulltrúa á númerum um síðustu áramót að árgerðunum 1933 og 1935 undanskildum. Fyrra árið hafði fólksbílum í landinu að- eins fjölgað um 18 (talan komist í 637 fólksbíla) en síðara árið um 77. Árið 1945 voru íslendingar rétt rúmlega 130 þús. talsins og því unt 27 manns um hvern af þessum 4.881 bíl sem þá var til í landinu. Síðan hefur fólki og bílum fjölgað álíka mikið, eða um 110 þús. Um síðustu áramót voru bílar orðnir 113.356 og íslendingar rösklega 240 þús., eða rétt rúmlega 2 um hvern bíl. Nú er líka talið að um 6. hluti heildarútgjalda heimilanna í landinu fari í rekstur fjölskyldu- bílanna - stór útgjaldaliöur sem flestir hafa greinilega verið laus- ir við fyrir 40 árum og áður. Af glæsivögnum á aldrinum 30-40 ára (fólksbílum af árgerð- um 1946-1955) voru enn 1.205 á skrá um síðustu áramót og fólksbílar á 30. aldursárinu og eldri því samtals 1.402 enn á númerum í landinu. Árið 1955 komst fólksbílaeign íslendinga upp í 10.140 (þ.e bíll á hverja 16 íslendinga). Tvö ár áttu lang mestan þátt í þessari fjölgun, árið 1947 þeg- ar bílunr fjölgaði um 2.283 (66% á einu ári) og 1955 þegar 2.632 bættust við (35% fjölgun á ári). Af þeim fólksbílum sem til voru 1955 er því samkvæmt framansögðu enn nær 7. hver bíll á skrá, eða tæpT4%. ■ „Kæru Rainbow Navigation á ameríska flotamálaráðuneytið hefur verið vísað frá, í bili að minnsta kosti," sagði Gcir Hall- grímsson utanríkisráðherra í samtali við NT í gær. Geir sagði aö ástæðan fyrir brottvísun kærunnar væri sú að Rainbow hafi ckki orðið fyrir neinum skaða að svo stöddu, enda er talið að Rainbow hafi tekið allt of mikið fyrir þessa flutninga sína. Ekki vildi Geir spá ncinu um gang ntála ef flotamálaráðu- neytið Fapaði þessu ntáli, en hann sagði þetta allt á góðum vegi og gerði frekar ráð fyrir því að af útboðinu yrði. „Astæðulaust að stökkva á flótta vegna gagnrýni“ - segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra Fljúgandi furðuhluturi ■ Torkennilegur gulur eldhnöttur hefur sést á lofti yfir Akureyri síðustu daga. Eftir að spökustu menn höfðu virt undrið fyrir sér urn stund komust þeir að þeirri niðuistöðu að hér væri um sólina að ræða. En þvílík endemis leiðindatíð hefur verið hér norðan heiðar, bróðurpartinn af sumri, að minningin um sólina blessaða var tekin að mást úr huganum. En nú lætur hún sjá sig á ný og munnvikin skjótast á sveig upp í augnakrókana, berir leggir í stuttbuxum tipla um stræti og sundlaugin fyllist af kátum krökkum og sóldýrkendum. Góðu vcðri er spáð fram yfir helgina svo allt bendir til þess að „rennblautir" Norðlendingar nái að „þurrka" líkama og sál. Haraldur Ingi/Akureyri. ■ Þingflokkur sjálfstæðis- ntanna hefur skipað sérstaka nefnd, sem Matthías Bjarna- son, heilbrigðisráðherra, leiðir til að fjalla um fiskveiðistefn- una. í nefndinni munuskiptar skoðanir um ágæti þeirrar stefnu sem nú er fylgt og munu einstakir þingmenn vilja knýja á um að henni verði breytt. „Ég sé ekkert óeðlilegt við það að þingflokkurinn vilji búa sig undir að stefna í sjávarútvegi verði tekin til endurskoðunar cins og aðrir þingflokkar. Ég hef margoft sagt að það sé eðlilegt að móta stefnuna til þriggja ára í senn og nú cr ekki svo langt í að sú stefna scm nú er fylgt þurfi gagngera endur- skoðun," sagöi Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráð- herra, í samtali við NT í gær. Halldór sagði að það væri eðlilegt þegar erfiðlega gengi að einhverjar óánægjuraddir heyrðust, jafnvel innan stjórn- arflokkanna. „Þaðerhins vegar engin ástæða til að stökkva á flótta vegna slíkrar gagnrýni."

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.