NT - 14.09.1985, Page 1
Laugardagur 14. september 1985 - 224. tbl. 69. áig.
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7
Náttúruverndarráð:
Leggst gegn laxeldis-
stöð við Bessastaði
■ Náttúruvemdarráð hefur haft
til umsagnar umsókn um að
laxeldisstöð rísi í Selskarðslandi
á Alftanesi og niðurstaða þess
er að það sé mjög óæskilegt.
Laxeldisstöðinni var'fyrirhug-
aður staður í nágrenni Gálga-
hrauns á milli Skótjarnar og
Lambhúsatjarnar, eða í næsta
nágrenni Bessastaða. Land
þetta er á mörkum Bessastaða-
hrepps og Garðabæjar. Fjör-
urnar og tjarnirnar báðar eru á
náttúruminjaskrá.
Þóroddur Póroddsson í Nátt-
úruverndarráði sagði í samtali
við NT að afstaða þess byggðist
á því að landið sem um er að
ræða er á náttúruminjaskrá og
er stefnt að því að friðlýsa það
í framtíðinni og nota það til
útivistar. Einnig mælir það gegn
staðsetningunni að frárennslið frá
stöðinni færi út í Lambhúsa-
tjörn, sem er mjög lokuð. Verði
það hinsvegar ofaná að leyft
verði að reisa stöðina þrátt fyrir
að Náttúruverndarráð Jeggist
gegn því, er farið fram á að
leyfið verði veitt með þeim
skilyrðum að hreinsistöð verði
sett upp og frárennsli verði veitt
út fyrir stórstraumsfjöru, auk
þess sem umferð gangandi fólks
um Selskarðsfjöru verði ekki
heft.
Björn Erlendsson, tækni-
fræðingur, er aðal hvatamaður
að laxeldisstöðinni. Ekki náðist
í hann í gær þar sem hann er
staddur erlendis.
Málið verður að öllum líkind-
um afgreitt frá bæjarstjórn
Garðabæjar n.k. þriðjudag.
Ný orkuspá til 2015:
Minni raforkuþörf
til almenningsnota
:■ Minni mannfjölgun, betri 1991. Jóhann var spurður hvort staðið hefði verið við upphaflega vaxtakostnað, en ef nýir stór-
einangrun húsa, fjöígun hita- þetta þýddi ekki þar með að áætlun og svaraði hann því til að iðjusamningar kæmu til sögunn-
veitna, betri orkunýting hinna virkjunin yrði óhagkvæmari en ef þetta þýddi auðvitað aukinn ar, þá munaði litlu um eitt ár.
ýmsu raftækja; þessir og ýmsir
fleiri þættir gera það að verkum “~“““““““^“~~“““““““““—“““““^
að orkuþörf til almenningsnota
næstu áratugina verður allmiklu
minni en áður hafði verið gert ráð
fyrir. Þetta kemur fram í nýút-
kominni orkuspá fyrir ísland, sem
nær til ársins 2015.
Jóhann Már Maríusson for-
stjóri Landsvirkjunar sagði í sam-
tali við NT í gær, að þetta væri
samhljóða niðurstöðum úr orku-
spám flestra annarra þjóða.
En hvað þýðir þetta fyrir virkj-
anaáætlanir íslendinga? Óvissan
er að sjálfsögðu mest hvað stór-
iðj una varðar. Þar veltur á stefnu-
mörkun stjórnvalda á hverjum
tíma og ákvarðanir í þeim efnum
ráða úrslitum um virkjanahraða
og stærð virkjana. En Jóhann
Már benti á það að þótt skýrslan
hefði verið að koma fyrir almenn-
ingssjónir nú, hefði vitneskjan
um það sem í henni felst legið
fyrir frá áramótum og í samræmi
við það hefði verið ákveðið að
seinka virkjanaframkvæmdum
við Blöndu sl. vor. Nú er gert ráð
fyrir að seinka megi gangsetningu
Blönduvirkjunar allt til ársins
Leitað að
Helgu
Péturs
■ Leit var skipulögð í gær að
bátnum Helgu Péturs RE 4.
Helga er 6 tonna bátur, og var
leit ákveðin þegar báturinn
hafði ekki staðið við fyrirhugað-
ar fjarskiptasendingar. Skip-
verji á Helgu hafði ákveðið að
tala við skipstjórann á Frigg B A
um hádegisbilið í gær, þar sem
bátarnir voru staddir á Breiða-
firði. Helga svaraði ekki köllum
Friggjar.
Tilkynningaskyldan kallaði
eftir bátnum án árangurs. Að
sögn Þorvalds Axelssonar hjá
Slysavarnafélaginu var TF-SÝN
Fokkervél Gæslunnar kölluð út
til leitar í eftirmiðdaginn og
fann hún bátinn þar sem hann
átti eftir rúmar sex mílur í
Öndverðarnes á Snæfellsnesi.
Þaðan var haft samband við
bátsverjann og hugðist hann
vera undir jökli í nótt. Allt var
með felldu um borð.
Strandgæslu-
skip í heimsókn
■ Strandgæsluskipið afloknum sameiginlegum
USCGC DALLAS kom til flotaæfingum og verður til
Reykjavíkur í gærkvöldi í1 sýnis almenningi í dag,
kurteisisheimsólin og verð- sunnudag og mánudag á
ur það í Reykjavíkurhöfn millikl. 12oglódaghvern.
þar til á þriðjudag.
Skipið kemur hingað að
Hrossa-
flug
■ Til Danmerkur voru í gær flutt
7 hross með Flugleiðum. Flugleið-
ir hafa gert samning við Samsons
Transport en það er danskt fyrir-
tæki sem sérhæft hefur sig í dýra-
flutningum.
Að sögn Bjarna Hákonarsonar
umboðsmanns Samsons Transport
hér á landi byrjuðu þessir flutning-
ar fyrir ári, en þá voru flutt út 3
hross.
Bjarni sagði að þcir hefðu leitað
lengi að hcntugum gámum og nú
væru þeir komnir. Hann sagðist
vonast til aö þessir flutningar haldi
áfram þar sem Flugleiðir hafi boð-
ið pláss fyrir þá með fragtflugi
einu sinni í viku í vetur.
Samsons Transport taka við
hrossunum þegar út er komið,
ganga frá tolli og öðru slíku og
koma hrossunum síðan til réttra
kaupenda
■ Hvort þessir gæðingar ferð-
uðust á SAGA class með Flug-
leiðum skal ósagt látið, en þeir
voru í það minnsta á leið til
Danmerkur með flugvél í gær.
NT mynd Ámi Bjarna.
Þingflokkarnir fá fjárlagafrumvarpið til skoðunar eftir helgi:
Skattadæmið er enn óleyst
- aðeins tekin erlend lán fyrir afborgunum
■ Eftir tvo ríkisstjórnar-
fundi í gær er samstaða um
það hvernig fjármálaráð-
herra leggur fjárlagafrum-
varp sitt fyrir þingflokka
stjórnarflokkanna. Það er
niðurstaðan eftir seinni fund
ríkisstjórnarinnar sem lauk
um kl. 20.30 í gærkvöldi.
„Þingflokkarnir eiga svo
auðvitað eftir að fjaila um
frumvarpið og það kann að
vera að það verði einhverjar
breytingar þar,“ sagði
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í samtali við
NT í gærkvöldi. Hann mun
funda með fjármálaráðherra
yfír helgina, en ríkisstjórnin
og þingflokkar stjórnar-
flokkanna eiga frí að nafninu
til.
Það er samkomulag um
það innan ríkisstjórnarinnar
að það verða ekki tekin er-
lend lán umfram það sem
nemur afborgunum af er-
lendum lánum og það er
mjög mikilvægt,“ sagði
Steingrímur Hermannsson.
En hve stórt er bilið sem þarf
að brúa? Þrír milljarðar eða
tveir? „Nær lægri tölunni,“
sagði forsætisráðherra.
„Við framsóknarmenn
viljum hækkun skatta á stór-
eignir, það hefur lengi verið
ljóst og kemur engum á
óvart, en það vilja sjálf-
stæðismenn ekki,“ sagði
forsætisráðherra. Hann sagði
að það yrði unnið að því yfir
helgina að útfæra skatta-
dæmið, og að ekki væri unnt
að segja um það nú hvernig
gengi að ná samstöðu þar um
innan ríkisstjórnarinnar.