NT - 14.09.1985, Side 9

NT - 14.09.1985, Side 9
lil Starfsval kvenna Inga Þyri Kjartansdóttir: Mismunur á stöðu kynjanna kemur fyrst í Ijós þegar út í atvinnulífið er komið fyrirtækjum sem nota ■ tölvur við daglegan rekstur kom í ljós að hlutfall karla í forritun og kerfissetningu er 91%, konur 9%, í ritvinnslu og skráningu snýst þetta við, þar eru konur 90%, karlar 10%. Petta er reyndar sama hlutfall og á námskeiðum þar sem lang- stærsti hluti kvenna fer í rit- vinnsluþjálfun, meðan karlar velja sér forritun og áætlana- gerð. Hvað þá um framtíðina? Er breytinga að vænta. I Háskóla íslands voru innritaðir nýnem- ar á haustmisseri 1984 í tölvu- fræði 106, þar af 76% karlar og 24% konur. Konur almennt virðast sýna tölvufræði minni áhuga en karlar, þrátt fyrir að þær ná jafngóðum árangri og fá jafngóðar stöður að námi loknu. í bæklingi kvenréttindafé- lagsins er leitast við að skýra áhrif þessarar þróunar. Vitnað er í þýskan þjóðháttafræðing, Gunter Wiegelmann að nafni. Hann hefur fengist við að kanna verkaskiptingu kynj- anna í hinu gamla bændasamfé- lagi Skandinavíu. Hann hefur á grundveili rannsókna sinna sett fram nokkrar tilgátur um eðli og þróun verkaskiptingar kynjanna. Hann heldur því meðal ann- ars fram að þegar vélar og verkfæri sem nauðsynleg eru við framkvæmd ákveðinna verka verði flókin og tæknileg, aukist líkurnar á því að karl- menn leysi þau af hendi. Skyldi þetta vera ástæðan fyrir því að mjaltir sem áður voru hefð- bundið kvenmannsverk er nú að mestu unnið að körlum. Hvað um það, það sem blas- ir við er að konur verða að afla sér menntunar ef þær ætla að vera með á vinnumarkaði framtíðarinnar. Það er meira að segja orðið Ijóst að það dugar ekki að ná sér í einhvern sem skaffar vel, því mjög margar eiga eftir að verða einar aftur síðar á æf- inni. Samkvæmt nýrri könnun sem ég komst yfir búa 46% af konum 65-69 ára einar, af konum 70-74 ára eru 59% einstæðar og af konum 75 ára og eldri eru 78% einstæðar, þar af 54% ekkjur. Ég vil að lokum hvetja allar konur til að huga vel að námi sínu og dætra sinna um val á viðfangsefnum. Þrúður ■ Starfsval hverseinstaklings er mjög mikilvægur þáttur í lífi hans. Þó er það svo, að oft hafa tilviljanir, áhrif félaga, for- eldra og annarra í umhverti einstaklingsins meiri áhrif á starfsval hans en að hann hafi meðvitað val, þar sem hann leggur til grundvallar skapgerð sína og hæfileika. Einnig hafa kennarar og aðrir sem einstakl- ingurinn tekur sér til fyrir- myndar, áhrif á þá stefnu sem hann tekur í lífi sínu, þegar hann velur sér framtíðarstarf. Hér áður fyrr var algengt að synir tóku við starfi'föður síns, fyrirtæki gengu í arf, og fjöl- skyldan vann sameiginlega að þeim. Eins var það til sveita, sonur tók við búi föður síns. Stúlkur höfðu ekki um margt að velja þegar litið var til framtíðar, - húsmóðir og móð- ir eða þá vinnukona, ef ekki tókst að krækja sér í fyrir- vinnu, var það hlutskipti sem þeirra beið og uppeldi þeirra miðaðist við að búa þær undir það, með örfáum undantekn- ingum. Um eiginlegt val var ekki að ræða í þá daga, nema hjá einstaka fjölskyldu, þar sem efni voru nóg til að senda börn til mennta og oftast þótti nú mikilvægara að það væru piltarnir sem lærðu. Aðrir urðu bara að láta sér nægja smávegis barnaskóla- nám í lestri, skrift og reikningi og lítilsháttar tilsögn í öðrum greinum, en lásu sér svo til eins og bókakostur heimilis og umhverfis bauð upp á. Annað starfsnám var verklegt og til- viljanir réðu hvar fólk lenti í þessum skóla lífsins. Það fór eftir því hvar vinnu var að fá, hvað fólk lagði fyrir sig. í sveitunum unnu karl og kona saman að búskapnum. Þá var verkaskiptingu hagað þannig að það hentaði vel vegna meðgöngu og umönnun- ar barna. Konur áttu oft mörg börn og á löngu tímabili, þann- ig að a.m.k. um það bil 20 ár aí ævi þeirra fór til meðgöngu og umönnunar þeirra ásamt innan- og utanhússtörfum á heimilinu. En á flestum heimil- um var vinnufólk og margar kynslóðir bjuggu saman undir sama þaki. Þetta fólk bar sam- eiginlega ábyrgð gagnvart börnum og gamalmennum á heimilinu og hjálpaðist að við umönnun þeirra og kenndi börnunum. í bæjunum voru einnig víða stórfjölskyldur. Fólk bjó við þröngan húsakost og fleiri kyn- slóðir bjuggu saman ásamt vinnufólki. Þar bar fólk einnig ábyrgð gagnvart hvort öðru og nnaðist ungviði og gamal- menni sameiginlega. Síðan eru liðin mörg ár og þjóðfélagsgerðin, ekki bara hér á íslandi, heldur út um allan heim, hefur tekið gríðar- legum breytingum, svo mikl- um að í framtíðinni verður þetta sennilega kölluð þjóðfé- lagsbylting, þegar litið verður til baka. Fjölskyldueiningin hefur stór minnkað. Fjölskyld- an samanstendur nú aðeins af móður, föður og börnum frá 1-3, með fáum undantekning- um. Eða þá eitt foreldri og börn, sem hefur stór aukist nú á seinni árum. Einnig fer barnsfæðingum fækkandi, þannig að fjölskyldueiningarn: ar eru nú margar og smáar. í dag hafa stúlkur og drengir sömu möguleika til náms og samkvæmt könnunum ríkir jafnrétti kynjanna í skólakerf- inu. Það er fyrst þegar út í at- vinnulífið er komið, að mis- munur kemur í ljós á stöðu kynjanna til starfsvals. Aðal ástæðan virðist vera sú sama og áður. Það vantar svo mikið á að stúlkur hafi sömu stöðu í atvinnulífinu og piltar, þegar kemur að því að stofna heimili og eiga börn. Ábyrgð kvenna á rekstri heimilis og umönnun ungra barna er miklu meiri en karla. Mikið hefur verið rætt undanfarið um starfsval kvenna og kannanir gerðar á því hvernig bæði karlar og konur haga vali sínu. Hefur þar komið í ljós að val pilta virðist markvissara, þegar uin val á lífsstarfi er að ræða, þar sem þeir hafa skýrara fyrir- vinnumarkmið í framtíðinni. Stúlkur virðast enn þann dag í dag fremur velja sér lífsstarf sem hentar vel sem aukastarf með heimilis- og uppeldisstörf- um, frernur en að þær geri ráð fyrir markvissu vali á starfi sem tryggi þeim lífsviðurværi vegna eigin vinnuframlags. Þetta sést einnig á könnunum sem leitt hafa í Ijós að atvinnu- þátttaka kvenna í launuðum störfum er mest á árunum 20-24 ára, - dettur svo niður og nær aftur hámarki 45-49 ára og ntinnkar eftir það. Þetta eru tölur frá 1983. Sennilega er þátttakan meiri á s.l. ári vegna efnahagsástandsins, þ.e. fá heimili lifa í dag á einum launum. Þar sem þessi þróun er kom- in til á fáum árum, hafa konur ekki aðlagað starfsval sitt þeirri aðstöðu að treysta á eigið framlag launaðrar vinnu sér og börnum sínum til fram- færis, auk þess að bera megin- ábyrgð á heimilishaldi og barnauppeldi, því góðir hlutir gerast hægt. Konur hafa valist til þjón- ustustarfa í meirihluta sam- kvæmt könnunum. Sennilega hefur þessi þróun orðið tii, þar sem áður fyrr unnu konur við þjónustustörf tengd heimilun- um, þó að töluverð framleiðsla hafi farið fram þar líka. Nú blasir það við í næstu framtíð að mörg af þessum störfum verða leyst af hendi með tölvum. Sem betur fer er mikið af þessum störfum ein- hæf og leiðinleg, sem þurfti þó að vinna, en tölvurnar geta gert hraðar og betur. Einnig þessi þróun flýtir fyrir því að stúlkur þurfa að endurskoða starfsval sitt og konur að endurmennta sig til að aðlaga sig þessum breytingum. Allflest þessara þjónustu- starfa eru lágt launuð og svo virðist sem dæntigerð kvenna- störf séu það oftast. Við getum því velt því fyrir okkur hvort ekki muni enda á því að enginn fáist til að mennta sig til þess- arastarfa má spyrja: Hver á að vinna þau? Hver á að hjúkra sjúkum? - Við komum senni- lega til með:að hafa nóga lækna vegna launanna. Hverjir eiga að taka að sér fóstrustörf, þegar stúlkur sækja ekki leng- ur fósturskólann? Hver á að kenna börnunum? Hver á að ræsta, svo að fólk geti hafst við á vinnustöðum? Við skulum hugsa okkur nú að við snerum tímanum til baka. Hættum að reka þessi dýru dagheimili og leikskóla og kannski bara barnaskóla líka. Sendum konurnar heim og þar með væru málin leyst. Að vísu liéngu fáeinir karlar á spýtunni. Það eru nefnilega til einstæðir feður sem fyrirfund- ust varla í gamla daga. Smá- vandamál að vísu. Á hverju ættu þeir að lifa - og svo einstæðu mæðurnar, en við leysum það. Hvernig yrði þá umhorfs? Hver hugsaði unt sjúklingana á sjúkrahúsunum? Hver afgreiddi í verslununum? Hver afgreiddi í bönkunum? Hver afgreiddi á veitinga- stöðunum? Hver hreinsaði all- ar þessar stofnanir og verslan- ir? Hver ynni á skrifstofunum? Ef til vill tölvur. Nei ekki geta þær nú allt og einhver þarf að stjórna þeim. Karlar ef til vill? Jú eflaust gætu þeir þetta allt. En ekki fyrir þau Iaun sem nú bjóðast. Ónei, enda ekki hægt að framfleyta heimili á þeim. Svo væri sjálf- sagt til í dæminu að einhverjir þeirra teldu að börnin þeirra hefðu ávinning af því að vera í leikskóla, barnaskóla o.s.frv. Við snúum því hjólinu ekki við, vegna þess að það er ekki hægt. Það eina sem við getum gert er að aðlaga okkur breyt- ingunum og njóta góðs af 14. september 1985 9 þeim. Þjóðfélagið verður sam- eiginlega að taka ábyrgð á börnunum sem fæðast í stað stórfjölskyldunnar áður. Þau geta ekki lengur verið einka- mál mæðra sinna og feðra. í staðinn fyrir þær kröfur sem þjóðfélagið gerir í dag til vinnuframlags kvenna, verður það á móti að gera þeim kleift að vinna án þess að setja börnin á guð og gaddinn. Ef það gerist ekki, þá gerist að- eins eitt. Það hætta að fæðast börn. Er það það sem við viljum? Ályktun um starfsval kvenna ■ 2. þing L.F.K. haldið á Laugarvatni 31. ágúst til l. september 1985 skorar á stjórnvöld að bæta sem t’yrst úr skorti á dagvistun fyrir börn. Augljóst er að eftir- spurn er eftir vinnufram- lagi kvenna og stúlkur haga starfsvali sínu með tilliti til móðurhlutverks síns. Einnig mundu stúlkur haga starfsvali sínu öðru- vísi ef jafnari ábyrgö kynj- anna á uppeldis- og heim- ilisstörfum næðist. Með sveigjanlegum vinnutíma hefðu foreldrar fremur möguleika til að skipta með sér vinnu utan heimil- is sem innan. Þingið bendir á að þar á landinu sem næg atvinna hefur verið fyrir ungt fólk, fara stúlkur síður í starfsnám. Þar af leiðandi mun atvinnuleysi vegna samdráttar eða tölvu- væðingar fyrirtækja bitna harðast á þeim. Mikilvægt er því að konur bregðist við með því að tileinka sér tölvutæknina. Vegna þeirrar þjóðfé- lagsbreytinga sem átt hafa sér stað undanfarin ár er mikilvægt að stúlkur geri sér Ijóst að þær verða að geta framfleytt sér og börnum sínum á eigin launurn og haga starfsvali sínu eftir því. Þingið leggur áherslu á að áfram verði unnið að uppbyggingu fullorðins- fræðslu. En bendir á þörf fyrir endurmenntun kvenna sem vilja komast út á vinnumarkaðinn eftir ■fjarveru vegna uppeldis- og heimilisstarfa. ógleymdum veiðiferðum sem telst vera einkahobbí stór- efnamanna eða þeirra sem geta látið fyrirtæki eða opinberar stofnanir borga túrinn. Á eftir þessum niðurskurði á „Iúxus“ er tekið til við að spara „óþarfa mjólkurþamb“ barna, kaup á betra kjöti, vasapening barnanna og kaup á fatnaði nema brýnustu nauð- syn beri til. Þá er annar þáttur þessa ástands sem ætíð fylgir en það er ófhófleg vinna hvort heldur er á sama vinnustaðnum eða á fleirum. Ef þess er nokkur kostur þá vinna allir í fjölskyld- unni svo sem hægt er. Eigin- maðurinn kemur heim seint á kvöldin, konan vinnur eins mikið og hún getur við komið, unglingarnir vinna með skólanum ef þeir þá hafa möguleika á að sækja hann og þeim yngstu er annað hvort komið í pössun eða látin axla ábyrgð heimilisins miklu fyrr en æskilegt er. Af þessu leiðir gífurleg streita sem brýst út á margan hátt. Fjöldi hjónaskilnaða eykst, mótþrói gerir vart við sig hjá börnum og heimilislíf fer úr skorðum. Allt væri þetta nú sök sér ef þetta sama fólk horfði ekki upp á það daglega að fjöldi annarra leyfir sér hvað sem er, vinnur við hliðina á því án þess að skila sjáanlega meiri eða betri afköstum hvorki fyrir þjóðarbúið eða viðkomandi fyrirtæki, borgar ekki skatta sem nokkur maður trúir að séu í samræmi við tekjur þeirra og í þokkabót gerir svo góðlátlegt grín af afkomu hinna. í þessari umræðu má svo ekki gleyma marg umræddum meðalmanninum sem við telj- um okkur flest vera. Hann reynir að halda í horfinu og mætir útgjöldum með vaxandi vinnu og reynir að veita sér nokkurn munað á einn eða annan máta. Fer út að borða þó pyngjan leyfi það ekki, tekur eina til tvær vikur í sumarfrí, og til að vera eins og aðrir bregður hann sér til sólarlanda fyrir pening sem hann tekur að láni eða sem hann hefur önglað saman í sérstakan sjóð allt árið. Þá má ekki gleyma því að umfram aðra hefur meðalmað- urinn þau sérréttindi að á hann eru lagðir skattar í samræmi við tekjur sem hann stendur skil á. Ti! að allt sé sem sléttast og felldast á yfirborðinu leggur hann á sig ómælt álag og kannski er eftirfarandi saga algengari en við höldum. í skóla einum átti að fara í ferðalag til útlanda til að fagna loknum áfanga. Og til þess að sonurinn gæti farið með „eins og aðrir“ lagði móðirin á sig 18 stundavinnu á ,dag|í tvo mánuði Sjálf hafði hún aldrei látið sig dreyma um að gera slíkt. Þessi mál eru viðkvæm fyrir marga og enn fleiri vilja ekki vita af þeim, en umræðna er þörf. Við megum ekki gefast upp fyrir óréttlætinu og láta líf okkar snúast um það að hafa í okkur og á dag frá degi. Ég hvet sem flesta til að stinga niður penna og tjá sig. Þeirra skoðunum verður komið á framfæri í blaðinu. Níels Árni Lund

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.