NT - 14.09.1985, Page 19

NT - 14.09.1985, Page 19
 Laugardagur 14. september 1985 19 ridur haf; Aðfarir kraftveiðimanna fremur kappdráp en stangaveiði ■ Ég var aö lesa í NT viðtal við Þórarinn Sigþórsson tann- lækni um laxveiðina í sumar. Sennilega hefir þetta viðtal átt að sýna viðleitni til að full- nægja fréttaþörf okkar áhuga- manna um stangaveiði. Slík viðtöl geta aldrei orðið til þess, enda þótt þið, sem um stanga- veiði skrifið í blöð og tímarit, virðist eiga bágt með að skilja það. Þórarinn er einn af kraft- Svívirðileg tilraun til að skaða mannorð og æru ■ Ástæða þykir mér til að vekja athygli á leiðara Alþýðu- blaðsins sem lesinn var í út- varpi 7. sept. s.l. Þar var farið svívirðilega niðrandi orðum um Magnús Friðgeirsson fram- kvæmdastjóra Afurðadeildar SÍS. Ekki var látið við sitja, að fullyrða að hann hefði ekkert gert til að leita markaða fyrir íslenskt dilkaket, heldur var fullyrt að Magnús mundi gera 'allt sem hann gæti til að bregða fæti fyrir þá tilraun, sem nú er í umtali og uppsiglingu, að vinna markað fyrir þessar afurðir í Bandaríkjunum. Hér er svo svívirðileg tilraun gerð til þess að skaða mannorð og æru þessa manns að eins- dæmi er. Það er ekki nóg að bregða honum um vanrækslu í starfi, heldur er hann stimplað- ur sem skemmdarverkamaður sem ekki skirrist við að fremja að yfirlögðu ráði níðingsverk gagnvart þjóð sinni og þjóðfé- lagsþegnum, sem eiga nú mjög í vök að verjast fyrir tilveru sinni. Það getur verið dálítið erfitt fyrir hvern sem er borinn slík- um sökum að rísa upp í eigin persónu og staðhæfa að hann sé ekki sá níðingur, sem þessi orð og ályktun Alþýðublaðsins fullyrða að hann sé. Það kemur engum á óvart þó Alþýðublaðið, blað verka- lýðs og félagshugsjónar á ís- landi, geri sig að því viðundri sem það hefur gert um áraraðir og áratugi, að leggjast gegn samvinnuhreyfingunni í land- inu. En svona persónuníð gengur út yfir allt. Alþýðuflokkurinn á íslandi mun eini flokkurinn á Norður- löndum, og þó víðar væri leit- að, sem hefur fundið köllun hjá sér til að níða samvinnu- hugsjónina í framkvæmd eins og hann hefur gert og haft að stefnumarki. Ogþar meðorðið að viðundri í hugum félags- hyggj ufólks. Guðmundur P. Valgeirsson Bæ, Trékyllisvík veiðimönnunum, sem lifa og hrærast í allt annarri veröld en við áhugamennirnir. Okkur er að jafnaði ofarlega í huga viðureign við einstaka skemmtilega laxa. Kraftveiði- maðurinn minnist hins vegar fyrst, hvar og hvenær hann fékk flesta laxa, sérstaklega þó, hvar og hvenær hann fékk miklu fleiri en aðrir. Tókstu ekki eftir, hve fljótt kom frá- sögnin urn 22 á einuni degi í Leirvogsá, þegar ekki fengust nema tveir daginn áður? Ekki var síður ánægjulegt að segja frá 30 löxum á cinum degi í Laxá í Ásum. Frásögnin af stórlaxinum, sem Þórarinn missti í Höklununt í Laxá í Kjós, lýsti frentur söknuði en minningu um merkilega viður- eign. Kraftveiðimennirnir vilja heldur veiða í litlum ám en stórum, en eigi að síður er gott að stöngin sé löng og stinn þegar staðið er í ntiðri á og ná þarf til fiska á sent stærstu svæði niður afveiðimanninum. Atlögunni er beint að einstök- unt fiski. Maðkinunt er lætt beint undan straumi og hann stöðvaður rétt við höfuð laxins. Ekki verður unt það sagt, hvort tif ntaðkendanna dáleiðir laxinn eða að hann ætlar aðeins að taka þennan óþvcrra og leggja til hliðar svo að hann geti flotið framhjá. Um leið og maðkurinn hverfur tekur veiðintaðurinn við og krækir la.xinn innan vara. Und- ir eins og laxinn liggur beint við er bonum vippað á land. enda Iínan afar sterk. í landi er oftast aðstoðarmaður, sem tekur við laxinum, rotar hann og beitir að nýju, en veiðintað- urinn skyggnir ána á nteðan og velur næsta fórnardýr. Okkur áhugamönnunum virðist nær að kalla aðfarir kraftveiðimannanna kappdráp en stangaveiði. Sú var tíð, að haustlömb voru aflífuð í slátur- húsum með kindabyssu. Þávar lambinu haldið föstu, byssu- hlaupinu beint að höfði þess og hleypt af. Ég minnist ekki að hafa heyrt þetta nefnt skotveiði. Gunnlaugur Pétursson Athugasemd ■ Rétt þykir að benda á það að þegar viðtal er unnið, er það nokkuð háð fréttamati blaðamanns, hvernig hann set- ur það upp. Þar er kontin ástæðan fyrir því að fljótlega í viðtalinu við Þórarin . Sigþórs- son var minnst á veiðina í Leirvogsá. Þá er líka rétt að geta þess að undirritaður vissi þessa veiði, og spurði því Þór- arin umhanaaðfyrrabragði. ES Oxzmá plánetan og Sjúgðu mig Nína: Þrælfjörugur neðanjarðarf ílingur Regnboginn/F salur ■ Húmor, hugmyndaauðgi, neðan- jarðarfílingur og flottar senur. (Þið sem eruð viðkvæm, fyrirgefið slett- urnar!) Ég segi nú bara eins og hann Steini vinur minn, loksins, loksins fær maður að berja augum þessar kvik- myndir Óskars Jónassonar og Ox- zmástrákanna. Myndirnar eru báðar teknar á 8 millimetra filmu og gerðar fyrir aðeins 70 þúsund krónur sem á kvikmyndavísu þykir sprenghlægilega lítil upphæð. En þær eru líka báðar tæknilega ófullkomnar og kvik- myndatökumaðurinn hefur t.d. oft flaskað á birtuskilyrðum hvort sem það er viljandi eða ekki. Oxzmástrák- arnir eru líka meðvitaðir um þessa tæknigalla og gera oft grín að þeim og hefur tekist að gera alveg ótrúlega góða hluti fyrir þessar fáu krónur. Allir Oxzmáaðdáendur og kvik- myndaunnendur ættu endilega að drífa sig í Regnbogann meðan færi gefst að sjá þessar myndir. Oxzmá plánetan Stjórn: Óskar Jónasson. Handrit: Oxzmá. Aðalhlutverk: Hrafnkell Sig- urðsson. 8 mm, 30 mínútur í lit. Ésú 55 býr á einhverri plánetu þar sem mengun er svo mikil að menn þurfa að ganga með grímur og er svo hræðileg að menn eru þar ýmist fársjúkir, geðveikir, fáráðlingar eða þaðan af verra. Heima í holunni sinni fylgist Ésú 55 með sjónvarpsfréttum þar sem sagt er frá Oxzmáplánetunni og vinur okkar ákveður að fara til plánetunnar og hefja nýtt líf meðal frumbyggjanna. Lífið á plánetunni er hins vegar öðruvísi en hann hugði, ekki það að hann sé neitt óánægður með það og margt fer öðruvísi en ætlað er. Myndin er mjög skemmtileg og í henni eru margar stórgóðar senur og ef ég ætti að telja þær allar upp gæti ég farið í 10 síður. Geimskipið sem Ésú ferðast í til Oxzmásælunnar er snilld og með því er gert stólpagrín að geimskipum í bandarískum science- fiction bíómyndum. Grísku heim- spekingarnir á Oxzmá plánetunni eru líka bráðfyndnir og Óskar og félagar hafa leitað uppi allar súlur í Reykja- vík til að nota sem tilhlýðilegan bakgrunn. Og partýið, sérstaklega þegar partýgestirnir hakka í sig pill- urnar og hoppa um. Og áfram og áfram... Hrafnkell Sigurðsson sem leikur Ésú 55 er efnilegur leikari og Óskar efnilegur leikstjóri og kvik- myndagerðarmaður. Sjúgðu mig Nína Stjórn: Óskar Jónasson. Handrit: Oxzmá. Tónlist: Oxzmá og fleiri. Aðalhlutverk: Kormákur Geirharðs- son og Halla Margrét Árnadóttir. 8 mm, 75 mínútur, í lit. ísland 1983-85. „Sjúgðu mig Nína“ er ekki klám- mynd heldur hröð, skemmtileg og spennandi glæpamynd sem gerist í Reykjavík árið 1973 þegar hippar og blómatímabilið er í algleymingi. Myndin lítur út fyrir að vera 10 ára gömul enda var filman sett í háfjalla- sól til að ná fram þeirri áferð. Myndin er þrælskemmtileg en ég ætla ekki að rekja söguþráðinn, ekki langar mig að spilla fyrir ykkur ánægj- unni en í myndinni gerist margt: Morð, tryggingarsvik, mannrán, sparimerkjagiftingar, 2 sjálfsmorð, LSD-ofskynjanir o.fl. Persónusköpunin er góð, sérstak- lega Trausti sem er sá álappalegasti lúði sem ég hef nokkurn tíma augum barið og búningarnir sem bæði hann og hinar persónurnar klæðast hefðu ekki getað verið hallærislegri. Hjörtur er líka skondinn þó Kormákur hafi kannski ekki fundið sig alveg í hlut- verkinu og er oft of meðvitaður um návist kvikmyndatökuvélarinnar. Móðir hans og bróðir eru ógleyman- legar týpur og frábær senan þegar þau þrjú eru að borða kvöldmat, soðinn fisk, hvítar kartöflur og rúgbrauð við undirleik veðurfregnanna í útvarpinu. Partýin eru nánari útfærsla á partýinu í Oxzmá plánetunni og þau eru skrautleg svo ekki sé meira sagt. Nú verð ég að fara að passa mig á lýsingarorðunum en LSD ofskynjan- irnar hans Hjartar og eltingarleikur- inn í lokin er með því fyndnara sem ég hef séð. Og hér er hugmyndaauðgin, húm- orinn og góð tónlist á fullu og áhorf- endur veltast um af hlátri. Kvik- myndatökuvélinni er oftast beitt í þágu frásagnarinnar en stundum er hún eins og „augu“ Hjartar eins og í lok myndarinnar. (Það er leyndó hvað þá gerist) En stundum er henni beitt í listrænum tilgangi og mörg skot eru skemmtilega sérkennileg, eins og þeg- ar kvikmyndatökuvélinni er hallað á sitthvora hliðina, þegar tekin er mynd af Hirti út í náttúrunni. Margrét Rún Guðmundsdóttir Til FISKVERKENDA og ÚTGERÐARMANNA Höfum áhuga á kaupum á öllum rauðsprettuflökum sem þér getið framleitt, dökka hliðin af. Einnig smáþorski, heilfrystum, slægðum með haus á. Sendist vikulega með íslenskum skipum til Bandaríkja N-Ameríku (Austurströnd) Vinsamlega tjáið oss hve mikið magn er hægt að fá ÓLAFUR JOHNSON 40 WALL STREET, SUITE 2124 SÍMI: 212 344 6676, 718 622 0615 TELEX: 4945457

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.