NT - 02.10.1985, Qupperneq 1
Sjávarútvegsráðherra á fundi með Vestfirðingum - Sjá bis. 4
■ Ríkissjóður mun að öllum
líkindum tapa, í beinhörðum
peningum, á sölu hlutabréfa
ríkisins í Flugleiðum á næstu 3
árum. Tapið er vegna þess að
skattafsláttur sem veittur er
þcim sem kaupa hlutabréf,
verður að öllum líkindum hærri
en sú upphæð sem greidd verður
í ríkissjóð fyrir bréfin á þcssum
tíma.
Ofangreint miðar við að
hlutabréfin, sem Flugleiðir hafa
nú boðið starfsmönnum sínum
og hluthöfum til kaups. dreifist
á 500-1000 aðila, en fjöldi hlut-
hafa og starfsmanna er um 5000.
Flugleiðir hafa boðið helming
þeirra hlutabréfa sem þeir
keyptu nú í haust til kaups, á
sama verði og kjörunt, og fyrir
tækið greiddi sjálft. Flinn helni-
ingurinn verður til sölu á næsta
ári.
Ef skattafsláttur kaupenda
bréfanna cr borinn saman við
kaupverð bréfanna á núvirði er
aðeins um 1,04 nafnverð, í stað
9.4 falds nafnverðs, eins og
talað var um í útboðinu.
Sjá nánar bls. 3.
Túnis:
ísraelsmenn
gera loft-
árás á PLO
NEWS SUMMARYIN ENGLISHfj SEE P. 7
Viðskiptavit?:
Tapar ríkið á sölu
Flugleiðabréfanna?
Skattafsláttur kaupenda næstu þrjú ár hærri en nemur greiðslum í ríkissjóð
Túnis-Lúxemborg-Washington-Reuter:
■ Átta ísraelskar flugvélar
steyptu sér inn yfir búðir Palest-
ínuaraba í Túnis í gærmorgun
eftir 2400 km flug og létu flug-
skeytum og 500 kg sprengjum
rigna yfir þær. Svo virðist sem
markmið árásarinnar hafi veriö
að rnyrða Yasser Arafat leið-
toga PLO sem var staddur í
búðunum. Hann slapp en 156
stuðningsmenn hans létu lífið
eða særðust.
Fimm hæða höfuðbækistöðv-
ar PLO í Túnis þurrkuðust út í
árásinni og tvær aðrar byggingar
aðauki. PLOfluttu bækistöövar
sínar til Túnis eftir innrás ísra-
elsmanna í Líbanon árið 1982.
Þar liafa þeir fengið að vera í
friði hingað til.
Israelsmenn hafa viðurkennt
að þeir vissu að Yasser Arafat
yrði í höfuðbækistöðvum sínunr
þegar þeir gerðu árásina. En
morðið á honum mistókst þar
sem hann ákvað á seinustu
stundu að ganga til höfuðbæki-
stöðvanna í staðinn fyrir að aka
þangað.
ísraelsmenn halda því fram
að þeir hafi gert árásina í
hefndarskyni fyrir morð þriggja
ísraelskra borgara í Kýpur í
seinustu viku. En PLO harð-
neitar því að samtökin beri
ábyrgð á þessum morðum.
Ríki heims hafa nær einróma
fordæmt árásina. Egyptar, sem
eru eina arabaþjóðin nreð
stjórnmálasamband við ísraels-
menn, voru fyrstir til að for-
dærna hana sem glæp sent ógni
friði við Miðjarðarhaf. Utanrík-
isráðherrar EBE, sem nú funda
í Lúxemborg, fordæmdu líka
allir árásina sem einn maður.
Bandaríkjamenn hafa hins
vegar varið árásina og sagt hana
lögmætt svar við hryðjuverka-
árás. Stjórnvöld í túnis hafa
hingað til haft mjög góð sam-
skipti við vestræn ríki, þ.á m.
Bandaríkin.
Alþjóðleg tónlistarhátíð í Hollandi:
Sérstakir
íslenskir
tónleikar
■ íslenskum tónskáldum
hefur verið boðið að halda
sérstaka íslenska tónleika á
alþjóðlegu ISCM-hátíðinni í
Hollandi sem er stærsta hátíð
samtímatónlistar sem haldin
er. Að þessu sinni verða flutt
tónverk eftir sámtímatón-
skáld frá 30 löndum.
Á íslensku tónleikunum
verða leikin verk eftir Guð-
rnund Hafsteinsson, Hjálmar
H. Ragnarsson og Snorra
Sigfús Birgisson og þau Nora
Kornblueh sellóleikari, Ósk-
ar Ingólfsson klarinettuleik-
ari og Snorri Sigfús Birgisson
píanóleikari og tónskáld
leika á tónleikunum sem
verða í Amsterdam 8. okt-
óber næstkomandi.
Borgarstarfsmenn og
hjúkrunarfræðingar:
Segja upp
samningum
Semjum ekki
svona aftur, segir
Haraldur Hannesson
■ Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar og Hjúkrunarfé-
lag íslands hafa sagt upp kjara-
samningum sínum frá og með 1.
janúar 1986.
„Við erum orðin langþreytt á
þessu samningastreði og von-
umst einfaldlega til þess að það
verði gerðir einhverjir samning-
ar af viti og tryggðir með ein-
hverju öðru en einhverjunr lof-'
orðunr og yfirlýsingunr sern
menn víkja sér svo undan að
standa við,“ sagði Haraldur
Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborg-
ar í samtali við NT. „Mergurinn
málsins er að samningur eins og
gerður var síðast verður ekki
gerður aftur.“
Strætisvagnar
Kópavogs:
Miðinn
í 25 kr.
■ Gjaldskrá strætis-
vagna Kópavogs hækkaði
um 13,6% 25. september
sl. Kostar venjulegur far-
nriði nú 25 krónur í stað
22ja áður. Þá er hægt að
kaupa kort með 8 farmið-
um á tvö hundruð krónur
og kort með 44 farmiðum
á eitt þúsund krónur. Far-
gjald fyrir barn er sjö
krónur en var áður sex. Þá
eru til kort með svo
kölluðum elli- og öryrkja-
miðum, en þar kosta 20
farmiðar 140 krónur.
Minnihluti bæjarstjórn-
ar, sem Sjálfstæðisflokks-
menn skipa, var andvígur
því að afsláttarkort yrðu
seld. Ástæðan fyrir því er
sú að venjuleg fargjöld
eru ekki seld á kostnaðar-
verði heldur niðurgreidd
af bænum.
Rétt er að geta þess að
;allir þeir sem eru 67 ára
og eldri og með lögheimili
í Kópavogi geta fengið
kort hjá Félagsmálastofn-
un og geta þeir ferðast
frítt með strætisvögnunum
með því að sýna kortið.