NT - 02.10.1985, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 2. október 1985 19
■ Uwe Hohn með spjótið í höndunum. Hann verður að teljast öruggur sigurvegari í Canberra.
Heimsbikarkeppnin í Canberra:
Stjörnufans
- A-Þjóðverjar mæta með mjög sterkt lið - Einar ekki með
■ Um næstu helgi fer fram
síðasta stórmótið í frjálsum
íþróttum á þessu ári, en það er
Heimsbikarkeppnin í Canberra
í Ástralíu. Þar verða mætt til
leiks lið frá fimm heimsálfum og
einnig keppa landslið Sovétrikj-
anna, Bandaríkjanna og A-
Þýskalands. Þessi keppni var
upphaflega sett á stofn í þeim
tilgangi að auka veg íþrótta í
löndum þriðja heimsins og hef-
ur hún ávallt tekist vel, að
undanskildri keppninni í Mon-
treal 1979 þar sem fáir mættu til
leiks.
A-Þjóðverjar verða sjálfsagt
með firnasterkt lið í Canberra
og segja heimildir að þeir stefni
á tvöfaldan sigur þ.e. sigur bæði
í karla- og kvennaflokki. Eftir
að hafa orðið aðeins í öðru sæti
í Evrópukeppninni í Moskvu
fyrr á þessu ári hefur undirbún-
ingur A-Þjóðverja verið mikill,
markviss og meiriháttar. Eng-
inn íþróttamanna þeirra fór á
lokakeppni Grand Prix mót-
anna í Róm heldur var æft
heima af hörku. Árangur allrar
þessarar vinnu fór svo að koma
í ljós nýlega er austur-þýskir
íþróttamenn settu þrjú heims-
met á móti í Berlín.
Bandaríkjamenn verða án
sinna helstu stjarna og er fjar-
vera Karls nokkurs Lewis versta
áfallið fyrir þá. Mary Slaney
verður heldur ekki á staðnum
og það verða því íþróttamenn
eins og Willie Banks í þrístökki,
Kirk Baptiste í spretthlaupun-
um og Carol Lewis í bæði lang-
stökki og kringlukasti sem halda
uppi heiðri þeirra Bandaríkja-
manna í keppninni. Að vísu eru
þetta engir aukvisar nema síður
sé en hætta er á að Bandaríkja-
menn verði enn einu sinni að
lúta í lægra haldi fyrir A-Þýska-
landi og Sovétríkjunum.
Já, Sovétríkin verða með allt
sitt besta lið á staðnum. Nægir
að nefna Sergei Bubka í stang-
arstökkinu, en sérfræðingar
telja að heimsmet hans sem
telur 6m slétta gæti átt eftir að
vera í hættu í Canberra þar sem
vorið er nýhafið og veður þurrt
og mátulega hlýtt. Rasvilya Ag-
letdinova og Olga Bondarenko
fara einnig til Ástralíu en
Rasvilya er líklegur sigurvegari
í 1.500 m hlaupi kvenna meðan
Olga ætti að sigra í lO.OOOm
hlaupi.
Hin liðin sem keppa eru
heimsálfurnar Afríka, Eyjaálfa,
Ameríka, Asía og Evrópa. Ein-
ar Vilhjálmsson var valinn í lið
Evrópu en kemst ekki vegna
meiðsla, og þarfnast hvíldar
eigi hann að fá sig góðan. Hann
Evrópukeppnirnar í knattspyrnu í kvöld:
Iþróttir
Einar Vilhjálmsson í samtali við NT:
mun því missa af skemmtilegu
einvígi við A-Þjóðverjann Uwe
Hohn og Bandaríkjamanninn
Tom Petranoff.
Keppnin í Canberra gæti orð-
ið síðasta stórmót tékknesku
íþróttakonunnar Jarmilu Krat-
ochvilovu sem nú er orðin 34.
ára gömul. Hún lét að þessu
liggja nú fyrir skömmu og þótt
hún sé ekki í sama formi og fyrir
fáum árum á hún eftir að leiða
evrópskar konur í hlaupunum.
Þær Marita Koch og Marlies
Göhr frá A-Þýskalandi, sem
skemmt hafa unnendum frjálsra
íþrótta síðasta áratuginn eða
svo með frábærum hlaupum,
eru einnig komnar á efri ár í
sínum greinum. Síðasta einvígi
Koch og Kratochvilovu í 200m
og 400 m hlaupunum gæti því
farið fram í Canberra í Ástralíu
um næstu helgi.
„Verö ekki með
- í heimsbikarkeppninni í Canberra vegna meiðsla“ - Síðasta keppnin
með núverandi spjóti
■ „Ég sé mér því miður ekki
fært að mæta þar sem ég hefði
ekki getað beitt mér af neinu
viti í spjótkastinu,“ sagði Einar
Vilhjálmsson í samtali við NT í
gær en eins og fram kemur á
öðrum stað á íþróttasíðunum
kemst Einar ekki á Heimsbikar-
mótið í Canberra í Ástralíu
vegna meiðsla.
Á fréttaskeytum í gær var
rætt um væntanlega spjótkasts-
keppni og var þar gert ráð fyrir
Einari sem keppanda. Voru
hann og Tom Petranoff frá
Bandaríkjunum taldir þeir einu
er ógnað gætu sigri A-Þjóðverj-
ans Uwe Hohns. Tilkynning
þess efnis að Einar komist ekki
hefur aftur á móti þegar verið
send út þannig að Evrópubúar
verða að velj a sér annan fulltrúa
í spjótkastið.
Uwe Hohn er þegar kominn
til Ástralíu og henti þar spjóti
70 m án atrennu - virkar hann
hinn sprækasti og gæti heimsmet
þess vegna fallið. Ray Rose,
aðstoðarþjálfari Eyjaálfuliðs-
ins, fylgdist með Hohn í gær og
hafði litlar skýringar á kastlengd
hans. „Tækni hans er ekkert
sérstök miðað við okkar kastara
en einhvern veginn er hann þó í
sérflokki,“ sagði gáttaður Rose.
Keppnin í Canberra er líklega
sú síðasta þar sem venjulega
800 gramma spjótið er notað
því framvegis mun spjótið hafa
þyngdarpunkt sinn örlitiö
framar. Verður kastlengdin því
mun styttri - alla vega til að
byrja með - og er það einmitt
tilgangurinn því Alþjóða frjáls-
íþróttasambandið var farið að
hafa af því mestu áhyggjur, að
saklausir áhorfendur færu að fá
spjót í gegn um sig miðja -
verður að teljast vafasamt að
aðsókn að frjálsíþróttamótum
hefði aukist við það. Hohn var
ekki ánægður með nýja spjótið.
„Þetta þýðir að ég verð að læra
nýja tækni, í raun að byrja alveg
upp á nýtt. Ég hef kastað nýja
spjótinu aðeins 86m sem er
fáranlega stutt miðað við hvað
ég kasta með venjulega spjót-
inu,“ sagði Hohn við frétta-
menn í Canberra.
Einar Vilhjálmsson hefur eitt
slíkt spjót undir höndum en
sagði í samtali við NT að hann
he'fði rneira verið að leika sér
með það en kastað af alvöru þar
sem hvíld er nauðsynleg í hans
tilfelli. Það. verður gaman að sjá
hvernig Einari gengur með nýja
spjótið þegar hann hefur keppni
á nýjan leik. Það er full ástæða
til að vera bjartsýnn því Einar
býr yfir snjallri tækni sem
íþróttamaður.
■ Einar Vilhjálmsson er hér á tali við Svíann Wennlund. Einar
kemst ekki til Canberra NT-mynd: Arni Bjama
V-Þýskaland • handknattleikur:
Alfreð bestur
- er Essen gjörsigraði Handerwitt 24-15 - Essen efst
Knattspyrnumolar
■ I gær var leikið í
ensku knattspyrnunni.
Einn leikur var í 1. deild.
Luton sigraði Ipswich á
heimavelli sínum með
einu marki gegn engu. Þá
voru tveir leikir í 2. deild.
Crystal Palace tapaði
heima gegn Ilull 0-2 og
Sheff. Utd. og Charlton
skildu jöfn 2-2.
Þá var leikur í Evrópu-
kcppni félagsliða í gær.
Linz frá Austurríki sigr-
aði Banik Ostrava frá
Tékkó á heimavelli þeirra
síðarnefndu 1-0. Samtals
sigraöi Linz 3-0 og fer
áfram.
Frá Guömundir Kurlssyni fréttaritara NT í
Þýskalandi:
■ Essen sigraði Handerwitt
auðveldlega í 1. dcild þýska
handknattleiksins í gær. Leikur-
inn endaði 24-15. Alfreð Gísla-
son og félagar hjá Essen áttu
léttan leik og eru nú orðnir
efstir í I. dcildinni. Essen settu
strax á fulla ferð og var staðan
14-5 í leikhléi. Eftir hlé var
hinum óreyndari skipt inná en
þrátt fyrir það hélst forskotið til
enda lciksins. Alfreð átti stór-
leik og var besti maður Essen.
Hann byrjaði leikinn með
tveimur til þremur skotum í
vinklana á markinu sitt hvoru
megin og þcgar upp var staðið
hafði hann gert 7 mörk á 40
núnútum. Hann var síðan bara
að horfa á þá óreyndari eftir
það.
■ ...Danir hafa valið 16
manna hóp fyrir landsleik sinn í
knattspyrnu gegn Sviss í Kaup-
mannahöfn í næstu viku. Leikur
þessi er liður í undankeppni
HM. Hópurinn er þessi: Ole
Ovist, Troels Rasmussen, Mort-
en Olsen, Sören Busk, Ivan
Nielsen. John Sivebæk, Klaus
Berggreen, Jens Jörn Bertels-
en, Per Frimann, Frank Arnes-
en, .lan Mölby, Sören Lerby,
Allan Simonsen, Preben
Elkjær, Michael Laudrup,
Flemming Christensen...
...Irakar og Sýrlendingar spila á
næstunni til úrslita um það hvort
ríkið kemst til Mexíkó á HM í
knattspyrnu. írak sigraði Sam-
einuðu furstadæmin um síðustu
hclgi en Sýrlendingar unnu Ba-
hrain fyrir stuttu síðan...
...Að minnsta kosti 150 manns
slösuðust í ólátum á knatt-
spyrnuleik í Bangladesh um
helgina. Talið er að 50 þeirra
hafi slasast illa. Ólætin brutust
út á meðan á leik Abahani Krira
Chakra og Mohammedan
Sporting Club stóð. Leikurinn
var úrslitaleikur í 1. dcildinni
'par í latidi. Alls voru 80 þúsund
áhorfendur á leiknum. Hann
endaði 0-0 cn Abahani vann
meistarakeppnina með einu
stigi...
Bremen hyggst veita vín
- á leik sínum við Odessa þrátt fyrir bann UEFA
■ Werder Bremen sem nú
leiða þýsku Búndeslíguna leika
í kvöld við sovéska liðið Chern-
omorets Odessa í Evrópu-
keppninni og verður leikið á
heimavelli Brernen. Þessi leikur
er sosum ekki merkilegri en
margar aðrar viðureignir er eiga
sér stað á knattspymuvöllum
Evrópu í kvöld utan að á þessum
leik einum gæti áfengi verið
haft um hönd á áhorfendapöU-
um.
Knattspyrnusamband
Evrópu (UEFA) tók upp á
því, eftir harmleikinn í Brússel
er úrslitaleikur Liverpool og
Juventus fór fram en þá létu 39
manns lífið, að banna sölu á
áfengi þegar Evrópuleikir færu
fram. Leikjum er nú skipt í tvo
flokka. Sá fyrri hefur að gera
með leiki sem haldið er að skapi
ekki verulegt hættuástand en
þann síðari fylla leikir sem gætu
vel ollið vandræðum s.s. undan-
úrslitaleikir eða úrslitaleikir í
Evrópukeppnunum.
Nú vilja forráðamenn Brem-
en halda að þeirra leikur verði
hinn friðsamasti og sala á áfengi
því ekki nema sjálfsögð. Þeir
hafa líklega rétt fyrir sér með
fyrra atriðið en sá galli er á gjöf
Njarðar að samkvæmt splunku-
nýjum bæklingi frá UEFA er
bannað að selja áfengi, hvort
sem leikir bera mikla ellegar
litla hættu í för með sér.
Willi Lemke, framkvæmda-
stjóri Bremen, hefur hinsvegar
skilið málið allt öðruvísi og nú
er bara að sjá hvað skeður í
kvöld- verða drukknir Úkraínu-
menn á pöllunum í Bremen
ellegar verður pilsner hafður
um hönd?
Handbolti
■ Fjórir leikir verða í 1.
dcild íslandsmótsins í
handknattleik. Á Akureyri
spila KA og Valur og hefst
sá leikur kl. 19:30 en ekki
kl. 20:00 eins og upphaf-
lega var gert ráð fyrir. Þá
spila í Hafnarfirði FH og
Fram kl. 20:00 og á sama
tíma hefjast tveir leikir í
Laugardalshöll. Þar spila
fyrst Víkingur og Stjarnan
og síðan Þróttur og KR.
Fimleikar:
Tvær stúlkur til Belgíu
■ Um næstu helgi fer fram í
Belgíu 15 landa keppni í fim-
leikum. Tvær íslenskar stúlkur
fara til keppninnar. Þær erú
Hanna Lóa Friðjónsdóttir og
Hlín Bjarnadóttir báðar úr
Gerplu í Kópavogi. Þjálfari
stúlknanna Valdimar Karlsson
fer út með þeim svo og Bima
Björnsdóttir sem verður farar-
stjóri og dómari.