NT - 02.10.1985, Side 3
Tekjur af Flugleiðabréfunum
til baka í skattafslætti
■ Áætla má að allar tekjur ríkis-
sjóðs af sölu hlutabréfa sinna í Flug-
leiðum næstu 3-4 árin (1985-1987 eða
’88) hverfi til baka úr ríkissjóði í
formi skattaafslátta til starfsmanna
og hluthafa Flugleiða - þ.e. ef þeir
haga kaupum sinum á bréfunum, sem
Flugleiðir bjóða þeim nú til kaups,
„skynsamlega". Komist verðbólga
næstu árin aftur á það stig sem hún
var á síðasta áratug gæti niðurstaðan
raunverulega orðið sú að ríkissjóður
hafði að lokum ekki einu sinni einfalt
nafnverð bréfanna - 7 millj. króna -
út úr sölunni á þeim.
Nær 33 millj. skattafsláttur
á 2 árum
Tekjur ríkissjóðs af sölu bréfanna
á árunum 1985-1987 eru 14.850 þús.
króna útborgun í ár og síðan tvær af
alls átta 6.394 þús. króna ársgreiðsl-
um (verðbóta- og vaxtalausum) eða
samtals um 27,6 millj. króna. Skatt-
afsláttur til kaupenda bréfanna á
næstu tveim árum (1986-’87) geta
numið 32,7 milljónum króna, eða um
5 millj. króna hærri upphæð en ríkis-
sjóður hefur þá fengið greitt af
bréfunum. Með núvirðingu allra upp-
hæða. miðað við 25% verðbólgu,
mundu tekjur og samanlagður skatt-
afsláttur þessi 3 ár nánast standast á,
þ.e. hvor upphæð væri um 22 millj.
króna.
Albert hefði geta orðið 8
milljónum í mínus næsta ár
Raunar má fjármálaráðherra hrósa
happi yfir að Flugleiðir ákváðu að
dreifa sölu bréfanna í 2 ár, helming-
inn hvort ár. Væru þau öll seld nú
hefði skattaafsláttur á næsta ári getað
numið allt að 29 millj. krónum sam-
tals eða um 8 millj. krónu hærri
upphæð en ríkissjóður væri þá búinn
að fá greidda af andvirði bréfanna.
Til að ná þeim hámarksskattafslætti
hefðu t.d. rúmlega þúsund hjón þurft
að kaupa sér hlut í félaginu. En
starfsmenn og hluthafar eru nú um 5
þús. samtals.
Frá árinu 1988 á ríkissjóður aðeins
eftir að fá 6 óverðtryggðar og vaxta-
lausar greiðslur af eftirstöðvabréfinu,
sem að núvirði væru aðeins um 7,7
■ Svo sem sjá má er húsið illa farið af völdum eldsvoðans.
Var kveikt í
barnaheimilinu?
■ Grunur leikur á að innbrot og
íkveikja hafi valdið eldsvoðanum í
barnaheimilinu Sólbrekku við Suður-
stönd á Seltjarnarnesi í gær. Málið er
nú í rannsókn hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Tilkynnt var um eldinn um klukkan
5:10 í gærmorgun og þegar slökkvilið-
ið kom á staðinn logaði eldur upp úr
þaki hússins og út um 'glugga á
austurenda þess. Ljóst var að kalla
þyrfti út aukastyrk og fóru alb fimm
reykkafarar inn í húsið til að ganga úr
skugga um að enginn væri þar inni og
vinna að slökkvistarfi. Rjúfa þurfti
þak hússins en slökkviliðinu tókst þó
fljótlega að ráða niðurlögum eldsins.
Mesta vinnan fólst þó í því, að rífa
þurfti milliloft, milliveggi ogeinangr-
un, þar sem í þau var komin mikil
glóð. Skökkvistarfi var lokið um kl. 7
í gærmorgun, en vakt var höfð við
húsið til hádegis og unnu menn við að
ganga frá rústunum í gærdag.
Húsið er mjög mikið skemmt og
vafamál hvort það taki því að gera við
það. Engin slys urðu á mönnum.
■ „Við teljum þetta mjög hagstæð kaup fyrir fólk - sérstaklega vegna
skattafsláttarins," sagði Sigurður Helgason, forstjöri Flugleiða (fyrir miðju) á
fundi með fréttamönnum í gær. „Ég lít á þetta sem jákvæð'an hlut,“ sagði Helgi
Torfason, formaður starfsmannafélags Flugleiða. Lengst til hægri er Björn
Theódórsson, fjármálastjóri félagsins.
millj. króna samkvæmt útreikningum
í dæmum Flugleiðamanna og er þá
miðað við „aðeins” 25% verðbólgu
að meðaltali allt tímabilið auk 10%
raunvaxta. Hvers virði þær afborgunir
raunverulega verða fer algerlega eftir
verðbólgu á árunurn 1985-1993.
Flugleiðir selja á sömu
kjörum og ríkið
Sem fyrr segir hafa Flugleiðir ákveð-
ið að endurselja bréfin sem félagið
keypti af ríkissjóði til starfsmanna og
hluthafa félagsins (helming bréfanna
til hvors hóps) á sömu kjörum og
félagið keypti bréfin á . Þau kjör
voru 22,5% útborgun í ár og af-
gangurinn til 8 ára, verðbóta- og
vaxtalaust.
Flugleiðir benda starfsmönnum
sínum og hluthöfum á að kaup á
þessum bréfum falla undir skattalög
nr. 75/1981, sem veita heimild til að
draga fjárfestingu í atvinnurekstri frá
skattskyldum tekjum að vissu marki.
Gera megi ráð fyrir það það verði
31.500 kr. fyrir einstakling og 62.500
kr. fyrir hjón miðað við hlutabréfa-
kaup og tekjur nú í ár.
Þetta ásamt greiðslukjörum bréf-
anna þýðir það, að hjón sem nú
kaupa bréf fyrir 62.500 krónur þurfa
aðeins að greiða um 14. þús. króna
útborgun í ár (má dreifast á næstu 3
mánuði) en eiga í staðinn von á nærri
tvöfaldri þeirri upphæð í skattalækk-
un á næsta ári, eða 27.500 krónum,
vegna kaupanna, þ.e. ef þau eru í
44% skattþrepinu sem í ár miðast við
400 þús. króna tckjur 1984.
Af f jórföldu nafnverði borga
kaupendur 1/4 en Albert 3/4
Fyrir þessar 62.500 kr. er hægt að
kaupa hlutabréf að nafnverði 6.600
kr. í Flugieiðum. Miðað við útreikn-
inga Flugleiðamanna er söluverð
bréfanna að núvirði um 4,4 sinnum
nafnverð þeirra, eða 28.870 kr. fyrir
6.600 króna bréf að nafnverði. Af
því borga þeir scm nýtt geta sér fullan
skattafslátt aðeins um 6.945 kr. að
núvirði á næstu 9 árum, eða 1,05
sinnum nafnverðið. Ríkissjóðurgefur
þeim á móti skattafslátt sem með
sama núvirðisreikningi nemur 22 þús.
krónum, eða rúmlega þrefalt nafn-
verðið. Auk þess kom fram hjá for-
stjóra Flugleiða í gær, að félagið
vonaðist til að geta borgað eigendum
bréfanna um næstu áramót um 10% í
arð af nafnverði þeirra.
Alltað 62 þús. kr. skattafsláttur
til hjóna á 2 árum
Sem áður segir ákváðu Flugleiðir
að skipta sölu hlutabréfanna - sern
eru 20% af heildarhlutafé Flugleiða -
á tvö ár, fyrst og fremst með það í
huga að kaupendur, þ.e. starfsfólk og
hluthafar í Flugleiðum, geti notið
skattafsláttarins tvö ár í röð. Miðað
við 25% hækkun á skattafsláttarupp-
hæðinni milli ára gætu hjónin í dæm-
inu hér að framan eignast hlutabréf í
félaginu að nafnverði uni 13 þús.
króna og fengið út á það nær 62 þús.
króna skattafslátt frá ríkissjóði á ár-
unum 1986 og ’87.
Að sögn Sigurðar Helgasonar, for-
stjóra gera Flugleiðamenn ráð fyrir
mjög góðum undirtektum, bæði með-
al sinna 1.400 starfsmanna og um
3.600 hluthafa, við þessu sölutilboði
félagsins. Áætlað er að halda fund
með starfsfólki í næstu viku þar sem
m.a. verður tekið við beiðnum um
hlutafjárkaup.
Sala á hlutabréfuin Flugleiöa.
-3,5 milli. kr. nafnverð:
Kaupvero hlutabréfa T.......................................... 33.000.000
Þ.a. staðgreitt................................................... 17.426.000
Þ.a. eftirst. til 8 ára........................................... 25.574.000
33.000.000
llámarks skattafsláttur........................................... 14.520.000
Nóvirðisreikningur:
Núv. staðgreiðslu ................................................. 7.426.000
Núv. cftirstöðva .................................................. 7.859.000
= 15.285.000
Núv. hám. skattafsl........................................... - 11,616.000
Kostnaðarverð á núv........................................... = 3.669.000
Nafnverö sömu hréfa 3.500.000.
Gengi = 1,05
■ Útreikningur miöast hér við dæmi um sölu einstakra bréfa sem Flugleiðir
hafa reiknað út til skýringar fyrir væntanlega kaupendur. Hámarksskattafsláttur
miðast við það að fólk kaupi ekki stærri hluti en það getur nýtt sér skattafslátt
fyrir. Kaupi einhver umfram það nýtist honum ekki afslátturinn frá ríkissjóði.
* ]UN\
í tilefni af ári æskunnar hefur
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
ákveðið að efna til ókeypis kynningarnámskeiðs í fjörugum og
skemmtilegum þjóðdönsum frá ýmsum löndum.
Reynt verður að sýna unglingum fram á að þjóðdansar eru ekki
minna spennandi en aðrir nýrri dansar. Kennt verður í leikfimisal
Vörðuskóla (minni salnum) áfimmtudögum kl. 20.00 og byrjað 10.
október.
Aldurstakmark er 13 árcj.
Innritun og upplýsingar fást hjá Birnu í síma 687464.