NT - 02.10.1985, Síða 5
og Kasparov jafnaði metin
■ Fjölmargir aðdáendur
Garrí Kasparovs hér á landi
geta tekið gleði sína að nýju.
Þeirra maður jafnaði metin í
heimsmeistaraeinvíginu í gær í
skák sem stóð í aðeins 25 leiki.
Karpov lék hrottalega af sér í
lakari stöðu og lýsti sig sigraðan
þegar algert afhroð blasti við.
Fylgismenn hans, sem eru aðal-
lega ýmsir sérvitringar og gamlir
Stalínistar, geta huggað sig við
þá staðreynd að Karpov er
aldrei hættulegri en þegar blæs
á móti; hann er þrautgóður á
raunastund, hefur gífurlegan
viljakraft eða með öðrum orð-
um hinn sovéska karakter (sem
hratt atlögu nasista í Seinni
Heimsstyrjöldinni), svo ég noti
nú orðalagið í skeyti sem horf-
inn leiðtogi, Leonid Brezhnev,
sendi heimsmeistaranum eftir
skákorustuna við Baguio þar
sem föðurlandssvikarinn Kort-
snoj var ofurliði borinn. Aftur á
móti þá nutu sín hvergi áður-
nefndir eiginleikar Karpovs.
Pvert á móti virtist hann þreytt-
ur og mæddur og féll fyrir gildru
af einföldustu sortinni. Garrí
hefur undanfarið haldið uppi
skefjalausum hernaði á virkið
ósigrandi ýmist með árás úr
launsátri eða leiftursókn á ber-
svæði þar sem fjölmargir fót-
gönguliðar hafa verið sendir
beint í opinn dauðann sbr. 9.
skákina. Pað er ekki óeðlilegt
að ætla að nú hægist um. Kaspar-
ov hefur jafnað og getur litið
björtum augum fram á veginn.
Hann virðist alls óhræddur að
taka áhættu, en Karpov á hinn
bóginn sýnist dálítið haml-
aður vegna þess hversu kreddu-
fastur hann er í byrjunarvali.
Og þeirri spurningu er vita-
skuld enn ósvarað hvort Karpov
hafi úthald til að tefla jafn langt
og lýjandi einvígi sem þetta. í
fyrstu skákum einvígisins hefur
Kasparov tekið þá stefnu að
berjast til þrautar í hverri ein-
ustu skák og það hlýtur að
koma honum til góða þegar
fram í sækir. I síðasta einvígi þar
mikið á ótímabærum jafntéflis-
tilboðum hans en þá voru að-
stæður raunar aðrar eins og
margoft hefur verið minnst á:
11. einvígisskák:
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Nimzoindversk vörn
1. d4 RÍ6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. RD 0-0
5. Bg5 c5
(Hann vill ekki endurtaka
byrjunarleikina í 7. skákinni en
þá lék hann 5. -d6.)
6. e3 cxd4
7. exd4 h6
8. Bh4 d5
9. Hcl dxc4?!
(Hvítur nær að drepa á c4 í
einu stökki. Venjulega er b.eðið
með að drepa á c4 þar til
hvítreita biskupinn er kominn í
spilið. Sjá athugasemd síðar.)
10. Bxc4 Rc6
11. 0-0 Be7
12. Hel b6
13. a3
(Athyglisverður var mögu-
leikinn 13. Re5 Rxd4 14. Rb5
með hugmyndinni 14. - Rxb5
15. Rc6 eða 13. - Bb7 14. Ba6!
og stiandar 14. - Bxa6 á 15.
Rxc6 Dd7 16. Rxe7t Dxe7 17.
Rd5! og vinnur.)
13. .. Bb7
(Það athyglisverða við þessa
stöðu er að hún kemur oft upp
úr öðrum afbrigðum Nimzoind-
versku varnarinnar (með eða án
-h6 og - Bh4) en þá stendur
hvítur hrókur á al en ekki cl
eins og hér. Munurinn er greini-
lega hvítum í hag. Næsti leikur
hvíts er athyglisverður. Venju-
lega er ieikið 14. Dd3 en Kasp-
arov hefur aðrar meiningar.)
14. Bg3!? Hc8
15. Ba2 Bd6
(Svartur gat ekki hindrað
16. d5 með góðu móti t.d. 16. -
Rd5 17. Rxd5 exd5 18. Dd3!
með sterkri stöðu.)
16. d5!
(Eina leiðin til að ná frurn-
kvæði. Prátt fyrir mikil upp-
skipti er aðstaða svarts allt ann-
að en þægileg vegna yfirráða
hvíts á miðborðinu.)
16... Rxd5
17. Rxd5 Bxg3
18. hxg3 exd5
19. Bxd5 Df6
lAlfl 1111 jgj!|#|! i|BI!
11 Mi JJlllllll 11 |i|
V mm
i bi
(Ekki 19. - Ra5 vegna 20.
Hxc8 Dxc8 21. Re5! og svartur
á við mikla erfiðleika að rjá).
20. Da4 Hfd8
21. Hcdl!
(21. De4 hefur ekkert uppá
sig vegna 21. - Hd6 ásamt 22. -
Hcd8. En nú erum við komin að
hinum krítíska punkti skákar-
innar. Hvítur. stendur betur
vegna ýmissa hótana tengda f7
- reitnum og jafnvel máti í borði
en það þarf stóran afleik af
hálfu svarts til að útkljá skákina
i aðeins fimm leikjum).
21. .. Hd7?
(Hann vill hafa gott vald á 17
- reitnum en leikurinn hefur
meinlegan galla sem Kasparov
er fljótur að koma auga á. 21.
- Hd6 er betra en e.t.v. hefur
Karpov ekki geðjast að 22. He4
sem hótar 23. Hf4. Þá dugar 22.
- Dd8 ekki vegna 23. Bxf7t
Kxf7 24. Dc4t ásamt 25. Hf4t
og vinnur. 22. - g5 er næstum
þvingað, leikur sem Karpov er
ekki gefinn mikið fyrir. Og
kannski hefur hann óttast 23.
Bxf7t!? Kxf7 24. Db3t Kg7 25.
Hxd6 Dxd6 26. He6 Dd7 27.
Dc3t Kh7 28. Df6 Dg7 29. Df5t
Kh8 30. Hg6 Hf8 31. Hxg7 Hxf5
32. Hxb7 og hvítur ætti að vinna
endataflið. 24. - Kf8 er betri
leikur því staðan sem kemur
upp eftir 25. Hxdó Dxd6 26.
He6 Rd4! er svörtum í hag.)
22. Dg4!
(Geysisterkur leikursem set -
ur svartan í alvarlegari vanda.)
22... Hcd8??
(Karpov gerir sig sekan um
ótrúlega yfirsjón. í svipinn man
ég ekki eftir grófari afleik af
hans hálfu. Kemur þó upp í
hugann 21. einvígisskák hans
við Kortsnoj 1974 sem hann
tapaði í aðeins 19 leikjum. 111-
skást var 22. - Hdc7 og það er
ekki víst að 23. He4 hafi svo
mikið upp úr krafsinu. 23. - Ra5
dugar þá ekki vegna 24. Hf4
Dxb2 25. Bxf7t Hxf7 26. Hxf7
Kxf7 27. Hd7t Kg8 28. Rd4! og
vinnur. t.d. 28. - Dblt29. Kh2
Dh7 30. Rf5 og vinnur. Betra er
23. - Dxb2 strax og ekki er að
sjá rakinn vinning í stööunni
t.d. 24. Hdel Df6! 25. He6!?
Dd8! o.s.frv. í stað 23. He4
virðist 23. b4! betra. Hvítur
heldur uppi miklum þrýstingi á
stöðu svarts og fyrr eða síðar
hlýtur eitthvað undan að láta.)
| 1 11111
iU±ll||||I IlllllilHI
11114111 |f§’ i
lllllllJ
11 11011
01 III SIIIIIIII^IHI
II 1 1101A '1111
11 .IIBII Bl
23. Dxd7! Hxd7
24. He8t Kh7
25. Be4t
- Karpov gat'st upp. Staða
hans er gersamlega vonlaus eftir
25. - g6 26. Hxd7.
Staðan: Karpov 5 Vi
Kasparov 5 Vi
12. einvígisskákin er á
dagskrá á morgun og hefur
Karpov hvítt. Enn skal minnt á
skákskýringar í húsakynnum
Skáksambands íslands. í gær
skýrði Gunnar Gunnarsson
skákina og lögðu fjölmargir leið
sína á Laugaveg 71 þar sem
Skáksambandið er til húsa.
Helgi Ólafsson stórmeistari skrifar um skák
Óvenjulegt
lamb
Frá fréttaritara NT á Hellissandi:
■ Heldur óvenjulega sjón var
að sjá í Hraunskarðsrétt hér
fyrir ofan Hellissand á laugar-
dag.
Þar var lamb sem leit út eins
og nashyrningur og muna elstu
menn ekki eftir slíku atviki.
Eigandi þessa merkilega
lambs er Guðbjartur Þorvarðar-
son en hann er jafnframt réttar-
stjóri í ár.
Annars er allt gott að frétta
héðan frá Hellissandi, einmuna-
tíð var hér í sumar og berja-
spretta var með allra besta móti,
víða svo að móar voru svartir á
að líta. Snæfell
Konur í arkitektastétt:
Gamli bærinn og
Vesturgata 3
kynningarfundir í kvöld og annað kvöld
■ Konur í arkitektastétt halda
tvo kynningarfundi í vikunni
samhliða sýningum þeirra á
Listahátíð kvenna.
Fyrri kynningarfundurinn
verður í Ásmundarsal við Freyju-
götu í kvöld kl. 20.30. Þar sem
Guðrún Jónsdóttir arkitekt
heldur fyrirlestur um kosti og
galla gömlu hverfanna í Reykja-
vík. í Ásmundarsal eru ennfrem-
ur sýnd verk 13 íslenskra kven-
arkitekta auk litskyggnusýninga
um finnskar konur í arkitekta-
stétt.
Síðari kynningarfundurinn
verður í Kjallaraleikhúsinu,
Vesturgötu 3 fimrntudaginn 3.
október kl. 20.30. Þar kynna
konur úr arkitektastétt sýningu
sem nú er haldin í Hlaðvarpan-
um, Vesturgötu 3 og fjallar
bæði um sögu húsanna og hug-
myndir 5 arkitekta um framtíð-
arnotkun þeirra.
Tillögur þessar eru einmitt
settar fram til að hvetja konur
úr öllum stéttum og flokkum til
að taka þátt í og hafa áhrif á
mótun þeirrar starfsemi í húsun-
um sem konur hafa nýlega keypt
er ætlað að hýsa.
Allir eru velkomnir á fund-
ina.
■ Rafn Birgisson heldur hér á hinu nashyrningslega lambi en
það er í eigu Guðbjarts Þorvarðarsonar.
Mynd: Snæfell, Hellissandi.
Hommi og lesbía bannorð:
Einsdæmi af
ríkisfjölmiðli
- segir Þorvaldur Kristins-
son hjá Samtökum 78
■ „Það er einsdæmi að ríkis-
fjölmiðill skuli standa svona
að málum eins og hér er gcrt,
því þar sem ég þekki best til til
dæmis á Norðurlöndum njóta
hommar og lesbíur fulls réttar
til auglýsingamiðlunar með
þeim rétti að fá að nefna sig
sínum eigin nöfnum," sagði
Þorvaldur Kristinsson hjá
Samtökum 78 - félagi lesbía
og homma á íslandi í samtali
við NT. Útvarpsráð ákvað á
föstudag að staðfesta fyrri
ákvörðun um að samtökin
mættu ekki notaorðin „hommi
og Iesbía“ í auglýsingum í
útvarpi og sjónvarpi og vísar til
reglugerðar þar sem kveðið er
á um að auglýsingar megi ekki
fara í bága við smekk og
almennt velsæmi.
„Það er auðvitað fyrst og
fremst þeirra vandamál hvað
þau telja að fari í bága við
smekk og almennt velsæmi.
Hins vegar stríðir þeirra skiln-
ingur á smekk og almennu
velsæmi illilega gegn skilningi
upplýsts fólks í nágrannalöndum
okkar í dag því nú er svo
komið að Norðmenn sem
standa fremst á lagalegum
vettvangi hvað varðar afstöðu
til homma og iesbía töldu
ástæðu til að setja verndar-
ákvæði inn í norsk hegningarlög
1981 þar sem talið er refsivert
að mismuna hommum og lesbí-
um á almennum vettvangi og
meina þeiin að njóta þjónustu
sem almennir borgarar hafa
rétt á.“ Þorvaldur bætti því við
að þetta verndarákvæði væri
einsdæmi í heiminum en aðrar
Norðurlandaþjóðir hefðu síð-
an hafið umræðu um nauðsyn
þess að setja slík ákvæði inn í
eigin hegningarlög. Þing-
mannanefnd Evrópuráðsins
hefði samþykkt árið 1981 að
krefjast þess af aðildarlöndum
sfnum að þau endurskoðuðu
og létu kanna stöðu homma og
lesbía í löndum sínum og bæta
rétt þeirra þar sem ástæða væri
til.
Að lokum sagði Þorvaldur
að Samtökin 78 væru alfarið í
auglýsingabanni í DY og þar
væri einkamáladálkurinn með-
talinn. Ekki hefði reynt á aug-
lýsingamál homma og lesbía í
Morgunblaðinu en blaðið
hefði þar til í ár neitað að birta
fréttatilkynningar frá sam-
tökunum. Samtökin hefðu
hins vegar ekkert út á önnur
dagblöð að setja.