NT - 02.10.1985, Page 6
auglýsingar
varahlutir ■ varahlutir
Hedd hf.
Skemmuvegi M-20 Kópavogi
Varahlutir - ábyrgð - viðskipti
Höfum fyrirliggjandi varahluti í flestar
tegundir bifreiða, m.a.
Galant 1600 árg 79
Subaru 1600 árg 79
Honda Civic árg 79
Datsun 120 Aárg 79
Mazda 929 árg 77..
Mazda 323 árg 79
Mazda 626 árg 79
Mazda 616 árg 75
Mazda818árg76
Toyota M II árg 77
Toyota Cressida 79
Toyota Corolla árg 79_
Toyota Carina árg 74
Toyota Celica árg 74
; Datsun Diesel árg 79
Datsun 120 árg 77,
Datsun 180 B árg 76
Datsun 200 árg 75
Datsun 140 J. árg 75
Datsun 100 Aárg 75
Daihatsu
Carmant árg 79
Audi 100 LS árg 76
Passat árg 75
Opel Record árg 74
VW 1303 árg 75
C Vega árg 75
Volvo 343 árg 79 ' •
Range Rover árg '75
Bronco árg 74
Wagoner árg 75
Scout II árg 74
Cherokee árg 75
Land Rover árg 74
Villis árg '66
Ford Fiesta árg ’80
Wartburg árg ’80
Lada Safir árg '82
Lada Combi árg '82
1 Lada Sport árg '80
Lada 1600 árg '81
Volvo 142 árg 74
Saab 99 árg 76 !
Saab 96 árg 75
Cortina 2000 árg 79 ,
Scout árg 75
V-Chevelle árg 79 ;
A-Alegro árg '80
Transit árg 75
Skodi 120 árg ’82
Fiat 132 árg 79
Fiat 125 P árg’82
F-Fermont árg 79 j,
.F-Granada^árg 78
Mini árg 78
Ábyrgð á öllu, allt inni þjöppumælt’
og gufuþvegið. Vélar yfirfarnar eða
uppteknar með allt að 6 mánaða
ábyrgð. ísetning ef óskað er.
Kaupum nýlega bíla til niðurrifs og
jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka
daga frá kl. 9-19 laugardaga kl.
10-16. Sendum um land allt.
Hedd h.f. síma 77551 og 78030
Reynið viðskiptin
ökukennsla
Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur
geta byrjað strax og greiða aðeins
tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst
réttindi. Æfing í borgarakstri. Lærið
þar sem reynslan er mest. Greiðslu-
kjör, ennfremur Visa og Eurocard.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
Aðalpartasalan
Simi 23560
Autobianci'77 Buick Appalo’74
AMCHornet'75 HondaCivic’76
AustinAllegro'78 Datsun 100 A'76
AustinMini’74 Simca1306’77
•Chevy Van 77 ' Simca 1100 77
Chevrolet Malibu’74 Saab 99 73
Chevrolet Nova 74
Dodge Dart '72
DodgeCoronet '72
Ford Mustang 72
Ford Pinto'76
Ford Cortina'74
Ford Escort '74
Fiat 131 77
Fiat 132 76
Fiat 125 P '78
Lada1600 '82
Lada1500 78
Lada1200 '80
Mazda323 77
Mazda929'74
Volvo145'74
VW1300-1303 7-
VW Passat 74
MercuryComet’7
Skoda120L 78
Subaru4WD '77
Trabant’79
Wartburg'79
ToyotaCarina'75
ToyotaCorolla'74
Renault4’77
Renault5'75
Renault12'74
Peugout504 '74
Jeppar
Wagoneer'75
RangeRover’72
Scout 74
Ford Bronco 74
Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til
niðurrifs, sendum um land allt.
Opið virka daga frá kl. 9-19,
laugardaga frá kl. 10-16. Aðal-
partasalan Höfðatúni 10, sími
23560.
BIIAUI6A
REYKJAVÍK: 91-31815/686915
AKUREYRI: 96-21715/23515
BORGARNES: 93-7618
VÍÐIGERÐl V-HÚN.: 95-1591
BLÖNDUÓS: 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: 95-5884/5969
SIGLUFJÖRÐUR: 96-71498
HÚSAVÍK: 96-41940/41594
EGILSTAÐIR: 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: 97-3145/3121
SEYÐISFJÖRÐUR: 97-2312/2204
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: 97-8303
interRent
skipaafgreiösla
jes zimsen hf
Bjóðum eftirtalda þjónustu:
- frágangur innflutningsskjala
- frágangur útflutningsskjala
- bankaþjónusta og ferðir í toll
- umsjón með endursendingum tollafgreiddra og ótollafgr. vara
- verðútreikningar
- pökkun og umsjón búslóða til flutnings
- transit vöruafgreiðsla
- telexþjónusta
- vélritunar og Ijósritunarþjónusta
- erlendar bréfaskriftir, viðskiptabréf.
Öll almenn flutningsmiðlun.
f STAÐARNEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
T [' Miðvikudagur 2. október 1985 6
út 1 öncfl
Afganistan:
Sovétmenn eltast við
fimm franska lækna
Læknisaðstoð við afganska uppreisnarmenn litin hornauga
Islamabad-Reuter:
■ Sovéski herinn í Afganistan leitar
nú ákaft fimm evrópskra lækna sem
sagðir eru vera í landinu. Mikil harka
hefur einkennt leitina og eru 34
Afganar taldir hafa verið drepnir af
sovéskum hermönnum vegna
hennar.
Þess eru mörg dæmi að evrópskir
eða bandarískir borgarar hafi farið
inn í Afganistan með uppreisnar-
mönnum til þess að fylgjast með þeim
eða aðstoða þá. Flestir hafa verið
blaðamenn eða læknar. Samtökin
„Medicins Sans Frontieres" eða
„Læknar án landamæra" eru heims-
þekkt vegna starfs í Afganistan.
Læknarnir fimm teljast til þeirra og
eru sagðir hafa komið scr upp aðstöðu
í Mazar-I-Sharif.
Unr leið og .fréttir bárust af hinni
sovésku læknaleit tilkynnti hópur
uppreisnarmanna að ungur banda-
rískur blaðamaður hefði fallið í
nágrenni við borgina Kandahar. Að
sögn var hann þar á ferð ásamt
tveimur bandarískum læknum og
fréttamanni. Eldflaugaárás var gerð á
vörubifreið sem þeir voru í og blaða-
maðurinn var grafinn á staðnum án
þess að kunnugt sé hver hann var.
Félagar hans þrír eru enn sagðir vera
í Áfganistan.
Undanfarnar vikur hafa geisað
hörð átök víða í landinu og hafa
Sovétmenn gripið til þess úrræðis að
hefna fyrir árásir uppreisnarmanna
með stórfelldum loftárásum á þá staði
þar sem stjórnarhermenn eða sovésk-
ir hermenn eru vegnir.
En stjórnvöld í Kabúl virðast ekki
láta blóðsúthellingarnar á sig fá.
Dagblað kommúnistastjórnarinnar
birti fyrir skömmu grein þar sem
fjallað var um hina ýmsu ferða-
mannastaði í Afganistan sem ættu sér
enga hliðstæðu. Að auki var skorað á
erlenda ferðamenn að kynna sér þá af
eigin raun. Pað sem vakti furðu var
að flestir þeirra staða sem nefndir
voru í greininni eru ekki á valdi
Karmal-stjórnarinnar eða á alræmdum
átakasvæðum. Þannig nefndi greinar-
höfundur t.d. Nuristan-hérað sem
„sérstaklega athyglisvert fyrir ferða-
rnenn og veiðimenn". Þangað hefur
enginn afganskur eða sovéskur her-
maður komið síðan Sovétmenn réð-
ust inn í landið árið 1979. Héraðið
hefur frá þeim tíma algerlega verið á
valdi uppreisnarmanna.
Palme biður um
efnahagseiningu
Stokkhólmur-Keuler
■ Olof Palme forsætisráðherra Svía
óskaði í gær eftir þjóðareiningu við
lausn efnahagsvandamála sænsku
þjóðarinnar. Hann sagði í opnunar-
ræðu sinni á þinginu að allir stjórn-
málaflokkar bæru ábyrgð á framtíð
ríkisins og bað stjórnarandstöðuna
urn að hafa samvinnu við stjórnina
um lausn efnahagsvandans.
Palme sagði að stjórnin myndi
fylgja aðhaldsstefnu til að draga úr
verðbólgu. Reynt yrði að halda skatta-
byrðinni sem næst óbreyttri en ríkis-
útgjöld yrðu minnkuð til að draga úr
hallanum á fjárlögum sem hefur neytt
Svía til að taka mikil lán erlendis.
Palme lagði áherslu á mikilvægi
þess að gera heildarsamninga um
launakjör seni sköðuðu ekki við-
skiptahagsmuni Svía. Stærsti banki
Svía, Skandinaviska Enskilda
Banken, spáir tveggja ára kreppu í
Svíþjóð ef stjórninni tekst ekki að
halda launum niðri í landinu.
■ Palme biður stjórnarandstæðinga
um að hjálpa sér til að leysa efnahags-
vanda sænsku þjóðarinnar.
Gorbachev í París
■ Gorbachev þarf ekki að hafa áhyggjur af mannréttindagagnrýni Frakka þar
sem hann þarf ekki annað en að minna þá á frönsku leyniþjónustuna sem sökkvir
skipum í fjarlægum löndum samkvæmt fyrirskipun franskra stjórnvalda.
París-Moskva-Reutcr
■ MikhailGorbachevkemurtilPar-
ísar í dag í fyrstu opinberu heimsókn
sína til Vesturlanda eftir að hann
varð æðsti leiðtogi Sovétríkjanna fyr-
ir hálfu ári.
Hinn nýi utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, Eduard Shevardnadze,
mun ásamt fleiri háttsettum sovésk-
um leiðtogum koma með Gorbachev
til Frakklands. Almennt er búist við
því að þeir félagar muni nota heim-
sóknina til Frakklands til að koma á
framfæri andstöðu Sovétmanna við
áætlanir Bandaríkjamanna um víg-
væðingu úti í geimnum.
Samskipti Sovétmanna og Frakka
hafa verið einstaklega stirð frá því að
sósíalistar kþmust til valda í Frakk-
landi 1981. Áður en Mitterrand varð
forseti höfðu franskir forsetar haft
þann sið að hitta sovéska leiðtoga
einu sinni á hverju ári og gefa út með
þeim sameiginlegar yfirlýsingar um
ýmis mál.
Istanhul-Rcuter:
■ Norrænir víkingar eru nú
aftur farnir að sigla fleyjum
sínum til verslunarborgarinnar
frægu Konstantínópels í Aust-
urvegi. Sænska víkingaskipið
Krampmacken sigldi í höfn
tyrknesku borgarinnar Istanb-
úls nú um helgina en hún var til
forna þekkt undir nafninu Kon-
stantínópel.
Skipið lagði af stað frá Got-
landi í Eystrasalti fyrir tveimur
árum. Víkingarnir þræddu ár
og skipaskurði þar sem slíkt var
mögulegt en drógu stundum
skip sittyfir þurrlendi á milli
vatnsfalla. Á vetrum höfðu þeir
vetursetu á hótelum og í heima-
húsum.
Upphatlega var ætlunin að
sigla sömu leið og norrænir
víkingar í fornöld fóru með
skinn og raf til höfuðborgar
Ottomansveldisins í Tyrklandi
þar sem þeir keyptú gull og
gimsteina fyrir heimferðina.
Víkingarnir neyddust samt til
að hætta við að sigla um Rúss-
land þar sem frumbyggjarnir
reyndust fjandsamlegir og neit-
uðu að opna landamæri sín fyrir
víkingainnrás. Þeir urðu því að
sigla þess í stað í gegnum
Pólland. Tékkóslóvakíu, Ung-
verjaland. Júgóslavíu, Rúmen-
íu og Búlgaríu þar sem íbúarnir
voru vinsamlegri.
Frumkvöðull fararinnar.
fornleifafræðingurinn Erik
Nylen. lét gera skipið sam-
kvæmt teikningum og rissi frá
elleftu öld. Hann var samt ekki
í hópi þeirra níu víkinga sem I
mönnuðu skipið heldur kaus
hann frekar að aka á fjórhjóla |
farartæki til Istanbúls.
Mitterrand heimsótti Sovétríkin í
júní á seinasta ári og fann þá að því
við Sovétmenn hvernig þeir færu með
eðlisfræðinginn Andrei Sakharov sem
þekktur er fyrir andstöðu sína við
mannréttindabrot í Sovétríkjunum.
Ólíklegt er talið að Mitterrand muni
ræða mikið um mannréttindabrot
Sovétmanna að þessu sinni þar sent
mjög stutt er síðan komst upp um
sprengjuárás frönsku leyniþjónust-
unnar á skip grænfriðunga í höfn á
Nýja Sjálandi.