NT - 02.10.1985, Blaðsíða 7
w
Miðvikudagur 2. október 1985
Útlönd
Sovéskt
geimsalat
Moskva-Reuler:
■ Sovéskir geimfarar
hafa aö undanförnu rækt-
að salat og aörar jurtir um
borð í geimstöð sinni, Sa-
lyut-7.
Að sögn Tass-fréttastof-
unnar óx geimgróðurinn
fullkomlega eðlilega í 200
daga og var vöxtur hans
ekki síðri en jarðbundins
gróöurs. Plönturnar báru
meira að segja fræ sem
voru tekin aftur til jarðar-
innar og sáð þar með ágæt-
um árangri.
Náttúrufræðingar hafa
haldið því fram að að-
dráttarafl sé nauðsynlegt
til þess að jurtir geti vaxið
eðlilega og myndað rætur,
stilk og blöð.
Sovéski vísindamaður-
inn, sem sá um ræktun
jurtanna, Alfonsas
Merkis, sagði í viðtali við
Tass-fréttastofuna að
geimgrænmetiö gæti kom-
ið sér vel fyrir geimfara í
löngum geimferðum þar
sem þeir gætu fengið
vítamín út grænmetinu
auk þess sem það endur-
nýjaði súefnisbirgðir
geimfaranna.
Botha forseti:
S-Afríkustjórn
annt um UNITA
Jóhannesarborg-Reuter
■ Botha forseti S-Afríku hélt
ræðu í gær þar sem hann varði
stefnu stjórnar sinnar hvað
varðar afskipti af innanlandsá-
tökum í Angóla. Þar að auki
varaði hann stjórnvöld þarlend-
is við því að reyna að ganga
milli bols og höfuðs á UNITA-
hreyfingunni.
Pessi ræða forsetans fylgir í
kjölfarið á miklum árásum
stjórnarhersins í Angóla á
Líbanon:
Sovétmenn fórnar
lömb hryðjuverka
stöðvar UNITA. Eins og oft
áður eru sovéskir og kúbanskir
hermenn og ráðgjafar sagðir
taka þátt í herferðinni. Botha
vísaði á bug ásökunum Angóla-
stjórnar þess efnis að flugher
S-Afríku hefði gert loftárásir til
stuðnings UNITA. Hann lagði
áherslu á það að S-Afríkumenn
gætu ekki setið aðgerðalausir cf
gersigra ætti UNITA, þar sem
slíkt nryndi kalla á meðfylgj-
andi hernaðaraðgerðir Sovét-
manna í Namibíu. Botswana og
S-Afríkulýðveldinu sjálfu.
Magnús Malan, varnarmálaráð-
herra S-Afríku, hefur áður
viðurkennt opinberlega að UN-
ITA hafi verið veitt almennur
stuðningur.
Botha gat þess í ræðu sinni að
ásakanir Mósambik-stjórnar
unt að S-Afríkuntenn hafi ekki
farið eftir samkomulagi ríkj-
anna unr afskiptaleysi um innan-
ríkismál hvers annars, væru úr
lausu lofti gripnar. Hertekin
skjöl sem Mósambik-stjórn vís-
ar til máli sínu til stuðnings'
benda til þess að náin samskipti
hafi verið með skæruliðunr þar
í landi og s-afrískum hershöfð-
ingjum. Botha kvaðst hafa feng-
ið drcngskaparorð viðkomandi
hershöfðingja þess efnis að svo
hefði aldrei verið.
Moskva-Reutcr
■ Sovétmenn eru nú orðnir
fórnarlömb hryðjuverka í Líb-
anon ekki síður en vestrænar
þjóðir. Öfgasinnaður hryðju-
verkahópur múslíma hefur enn
í haldi fjóra Sovétmenn sern var
rænt í fyrradag í Beirút og hóta
því að drepa þá ef Sovétmenn
hætta ekki stuðningi við lið
Sýrlendinga sem hefur umkringt
Tripoli þar senr andstæðar fylk-
ingar múslfma berjast.
Mannræningjarnir sendu al-
þjóðlegri fréttastofu Ijósmyndir
af þremur Sovétmannanna þar
sem byssu var haldið að höfði
þeirra. Engin mynd var send af
fjórða Sovétmanninum og er
ekki vitað hvort hann er á lífi.
í frétt um mannránið í sov-
éska sjónvarpinu í gær segir að
öfgasinnaðir hægriglæpamenn
hafi tekið Sovétmennina fjóra í
gíslingu.
Sovétmenn hafa gefið í skyn
að þeir muni ekki breyta stefnu
sinni í málefnum Líbanon og að
þeir geti því ekki fallist á kröfur
mannræningjanna. Þeir segjast
samt ekki hafa misst vonina um
að gíslunum verði sleppt.
■ Suður-afrískir hermenn eru ekki aðeins notaðir til að bæla niður
andstöðu svartra Suður-Afríkubúa við kynþáttastefnu stjórnarinn-
ar. Þeir eru líka notaðir til að styðja hægrisinnaða skæruliða í
nágrannalöndunum, jafnvel þótt þeir séu svartir.
Alan Garcia forseti Perú:
S-Ameríka getur valið
skuldirnar eða lýðræðið
■ Matmálstími í Perú: Örbirgðin þar í landi er svo mikil
að hætt er við hungursneyð ef ríkið verður neytt til að greiða
allar skuldir sínar við erlendar lánastofnanir.
New York-Reuler
■ Alan Garcia forseti Perú
segir í viðtali við alþjóðatíma-
ritið Newsweek að Perúmenn
og aðrar skuldugar þjóðir í
Suður-Ameríku verði að velja á
milli skuldanna og lýðræðis.
Garcia ræðst á Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn sem hann segir að
krefjist harkalegra aðhaldsað-
gerða og harðræðis af fátækum
þjóðum og dragi taum voldugra
þjóða. Garcia hótaði því nýlega
að beita sér fyrir því að Perú-
menn gangi úr Alþjóðagjaldeyr-
issióðnum.
I viðtalinu við Newsweek seg-
irhannm.a.: „Hungur og fátækt
eru uppspretta ofbeldis.. og
hungur og ofbeldi aukast þegar
alþýðan verður að berjast við
harkalegar aðhaldsaðgerðir...
þess vegna er valið greinilegt:
Annað hvort skuldir eða
lýðræði."
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur krafist strangra aðhalds-
aðgerða af skuldugum þjóðum
sem skilyrðis fyrir frekari lánum
frá sjóðnum.
Garcia hefur lýst því yfir að
Perúmenn muni aðeins verja
10% af útflutningstekjum sín-
um til að greiða erlendar skuldir
sem þýðir að þeir munu komast
í vanskil með greiðslur til
flestra skuldunauta sinna. Hann
segir að erlendir bankar hafi
enn ekki þrýst á stjórnvöld í
Perú til að breyta þessari stefnu.
En hann viðurkennir að það sé
eðlilegt að bankarnir verji hags-
muni sína: „Ef ég væri banka-
maður myndi ég gera hið sama.
Þess vegna bíðum við núna.“
Alsír:
Fórnarlömb Frakka
finnast að lokum
Alsírborg-Reuter
■ Er alsírskir verkamenn
hrófluðu við jarðvegi, fyrir
nokkru, þar sem bækistöð
frönsku útlendingahersveitar-
innar stóð eitt sinn, fundu þeir
beinagrindur 67 manna. íbúar í
nærliggjandi þorpi telja að þetta
séu líkamsleifar nokkurra
þeirra alsírsku uppreisnar-
manna sem voru teknir höndum
af frönskum yfirvöldum í hinu
svokallaða Alsírstríði er lauk
árið 1962.
Beinin fundust er unnið var
að undirbúningi byggingar nys
þorps um 350 km fyrir sunnan
Alsírborg. Þau báru þess merki
að hafa verið brennd ásamt
ýmsu rusli. Á sama stað fundust
byssukúlur og skothylki.
Krabbamein sendir
Kínverja í gröfina
Peking-Reuter
■ Krabbamein er nú
mannskæðasti sjúkdómur-
inn í Shangai að sögn kín-
verska vikuritsins Beijing
Review. Um fjórðungur
allra dauðsfalla í þessari
stærstu borg Kína er vegna
krabbameins en næst al-
gengasta dánarorsökin eru
hjartasjúkdómar.
„Menningarsjúkdóm-
arnir“, krabbamein og
hjartasjúkdómar hafa
þannig tekið við af hefð-
bundnum sjúkdómum
eins og malaríu, berklum
og gulu sem helstu fjör-
tjónssjúkdómarnir í Kína.
Kínverjar segja að þetta
stafi m.a. af bættum lífs-
kjörum og betri heils-
ugæslu sem hefur nær út-
rýmt mörgum sjúkdómum
sem áður voru mannskæð-
ir. En þeir viðurkenna að
fjölgun krabbameinssjúkl-
inga og hjartasjúklinga
stafar einnig af óheil-
brigðu mataræði, reyking-
um, aukinni iðnaðar-
mengun og streitu.
Algengustu krabba-
meinssjúkdómarnir í Kína
eru krabbamein í maga og
meltingarfærum, lungna-
krabbi og krabbamein í
lifur.
NEWSIN BRIEF
October 1.1985
TUNIS - Israeli planes,
in a dramatic sortie up the
Mediterranean, hit the he
adquarters in Tunisia of
the Palestine Liberation
Organization (PLO) with
rockets and bombs, killing
up to 50 people.
•
WASHINGTON - The
White House called Isra-
el’s raid on Palestine Li-
beration Organization he-
adquarters in Tunis „a leg-
itimate response and an
expression of self def-
ence“.
•
CAIRO - Egypt cond-
emned Israel’s attack on
the Tunis headquarters of
the Palestine Liberation
Organization, calling it a
„Criminal act against the
Palestinian people."
•
BEIRUT - A Moslem
group holding four Soviet
embassy olficials hostage
[Jj issued photographs of the
g four men with pistols at
Cq their heads and threaten-
^ ed to kill one of them
"*• shortlv. #
g£ WASHINGTON - A
^ Czechoslovak military
^ plane lired at least two
rockets at a United States
army helicopter over West
Germany on Saturday but
the rockets missed, thc
Defence Department
said.
•
JOHANNESBURG -
Jailed South African black
nationalist leader Nelson
Mandela is having medical
tests and wili undergo sur-
gery within two weeks, his
lawyer said.
•
BRUSSELS - Western
leaders are likely to urge
President Reagan to com-
promise on his space def-
cnce plan in exchange for
big cuts in Soviet nuclear
arms when they nieet this
month, dipiomats said.
•
WARSAW - Poland’s
next parliament would
decide whether to amn-
esty political prisoners
after a general election on
October 13. government
spokesman Jerzy Urban
said.
•
LONDON - The dollar
fell further against other
currencies on foreign exc-
hanges, dcpressed by
speculative selling that
European traders attribut-
ed to fears central banks
will soon move jointly to
attack the U.S. unit.
•
PARIS - President Fra-
ncois Mitterrand is likely
to resist pressure for a
joint condemnation of
space-based defensive we-
apons during a visit this
week by Soviet Leader
Mikhail Gorbachev, his
spokesman indicated.
•
FRANKFURT, WEST
GERMANY - Fragile pe-
ace reigned in Frankfurt
following two nights of
serious clashes ahead of a
rally called in protest at
the death of an anti-Nazi
demonstrator.
•
LUXEMBOURG -
Foreign Ministers of the
European Community
began talks expected to
focus on fears that France
might delay the entry of
Spain and Portugal unless
a special deal is agreed for
other Mediterranean
states.
NEWSIN BRIEFA