NT - 02.10.1985, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 2. október 1985 13
Laus úr
fangelsi
■ Islenski sjómaðurinn
sem setið hefur í fangelsi í
Cuxhaven í tæpan rmínuð
vegna kæru fyrir ofbeldis-
rán er nú laus úr prísund-
inni.
Réttarhöld voru í máli
hans í gær og var hann
sýknaður af kærunni en
gert að greiða um 450
marka sekt en það sam-
svarar um 7200 íslenskum
krónum.
Konsúllinn í Cuxhaven
sagði að sjómanninum liði
vel og væri mjög ánægður
með að vera laus úr þessu.
Hann sagði að sjómað-
urinn væri nú á heimleið.
■ Á myndinni sjást þrír úr stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar. Frá vinstri: Haukur Flosi Hannesson
Hákon Sigurgrímsson formaður stjórnarínnar og Haukur Helgason. Á mvndina vantar Guðmund
Jónsson og Jón Þórarinsson. NT-mynd Árni Bjama.
ar.
Hægt er að kaupa áskrift að
öllum þessum þremur gerðum
tónleika og vildu stjórnarmenn
í Sinfóníuhljómsveitinni leggja
áherslu á að menn væru ekki
bundnir að því að fara sjálfir á
alla tónleikana meðal annars
væri upplagt að lána skírteinin
vinum og vandamönnum.
Nær 2 þús. húsbyggjendur sóttu um greiðsluerf iðleðkalán:
Atvinnurekendur um 40%
tekjulægri en launþegar
launin hafði - 300 þús. að með-
altali 1984. Meðaltekjur karla
sem unnu hjá öðrum voru 40%
hærri, eða 440 þús. M.a.s. ein-
stæðu mæðurnar í hópi umsækj-
enda voru mun betur launaðar
en sjálfstæðu atvinnurekend-
urnir með 340 þús. króna laun
að meðaltali. Meðaltekjur
tveggja fyrirvinnu fjöldkyldna
voru 625 þús. en einnar fyrir-
vinnufjölskyldna 440 þús.
krónur. Meðaltekjur einnar
fyrirvinnufjölskyldna voru þó
mjög misjafnar eftir kjördæm-
unr t.d. 565 þús. á Vestfjörðum
og 510 þús. í Reykjavík á móti'
aðeins 345 þús. á Norðurlandi
vestra og 395 þús. á Suðurlandi.
Flestar umsóknir
af Reykjanesi
Þótt meðaltekjur urnsækj-
enda væru hlutfallslega lægstar
á Norðurlandi vestra koniu það-
an hlutfallslega lang fæstar um-
sóknir eða aðeins 1,8%, en
íbúafjöldinn þar er 4,5 % af
þjóðinni. Hlutfallslega lang
flcstar umsóknir komu frá
Reykjanesi, 29,1% á móti
23,4% íbúafjöldans. Af öllum
umsóknum voru 67,3% úr
Reykjavík og Reykjanesi.
Um 240 íbúðir yfir 200 fm
Meðalíbúðin sem sótt var urn
lán út á var um 130 fermetrar að
stærð. Tæplega þriðjungurinn
var undir 100 ferni., en rösklega
þriðjungur (35,3%) 141 fer-
metri eða stærri, þar af 11,4%
eða 239 íbúðir sem voru yfir 200
fermetrar að stærð. Um
þriðjungur umsókna kom frá
4ra manna fjölskyldum. En alls
voru unr 3 af hverjum 4 umsókn-
um frá 3ja til 5 manna fjölskyld-
um. Rúmur helmingur umsækj-
enda er 25-34 ára.
Munur á meðalskuldum um-
sækjenda var ekki mikill eftir
landshlutum - um 1.240-1.250
þús. í Reykjavík og á Reykja-
nesi en lægstar 1.050 þús. á
Vest- og Austfjörðum. Vanskil-
in voru mest hjá Reyknesing-
urn, um 230 þús. að meðaltali,
en minnst á Norðurlandi eystra,
165 þús.
Skuldir ekki meiri á
1. íbúðinni en 4.
Athygli vekur að enginn mun-
ur er á skuldum eftir því hve
margar íbúðir umsækjendur
liafa átt. Skuldir þeirra sem búa
í sinni fyrstu íbúð eru svipaðar
og skuldir þeirra sem átt hafa
eina eða fleiri íbúðir áður. Al-
gengt er að unr fjórðungur
skuldanna sé við Húsnæðis-
stofnun, annar fjórðungur sé
lífeyrissjóðslán og síðan helrn-
ingur skammtímalán ýmisskon-
ar, sem vafalaust valda mun
stærri hluta greiðslubyrðarinn-
ar.
Um 3% eiga
ekkert laust veð
í ljós kom að 55 af þeim sem
samþykkt var að veita lán gætu
ekki leyst þau út vegna of hárra
veðsetninga á íbúðum sínum,
sem miðaðist við 90% af bruna-
bótamati verkamannabústaða
og 75% aföðrum íbúðum. Voru
þeim gefnir möguleikar á að
útvega veð í öðrum íbúðum eða
sjálfskuldarábyrgð 3ja ábyrgð-
armanna. Enn eiga 29 umsækj-
endur eftir að ganga frá þessum
atriðum og er búist við að
nokkur hluti þeirra muni ekki
geta leyst út sín lán.
Fjöldauppsagnir
rafeindavirkja
hjá hinu opinbera
■ RafeindavirkjarhjáPóstiog
síma og Ríkisútvarpinu sjón-
varpi sendu í gær inn uppsagna-
bréf. Taka uppsagnir þeirra
gildi um áramótin. Með þessu
eru rafeindavirkjarnir að þrýsta
á stjórnvöld til að fallast á að
Sveinafélag rafeindavirkja fari
með samningsrétt þeirra.
Að sögn Helga Rúnars Gunn-
arssonar, starfsmanns og raf-
eindavirkja, voru það tvenns-
lags bréf sem yfirmönnum Póst
og síma og Útvarpsins bárust í
gær, annarsvegar bréf þar sem
óskað er eftir að teknar verði
upp viðræður við Sveinafélag
rafeindavirkja, en rafeinda-
virkjar í opinbetri þjónustu
gengu í félagið í upphafi ársins
1985. Er farið fram á að ráðn-
ingasamningi þeirra verði breytt
í samræmi við það. Alls bárust
yfirmönnum stofnananna bréf frá
I20 manns þess eðlis. Auk þess
tilkynntu 75 manns að verði
ekki orðið við þessum óskum
segi þeir upp frá og með áramót-
um.
Sagði Helgi Rúnar að reynt
hefði verið að leysa þetta mál
með því að ræða beint við
ráðhcrra samgönguráðuneytis
og menntamálaráðuneytis. Þeir
hefðu vísað málinu til fjármála-
ráðherra og hann svo aftur til
fagráðuneytanna.
- og töluvert slakari en einstæðar mæður
■ Um 930 þús. króna tekjur
árið 1984 var meðaltalið hjá
þeim útivinnandi (bæði) hjón-
um í Reykjavík sem fengu synj-
un við umsóknum sínum um lán
Húsnæðisstofnunar vegna
greiðsluerfiðleika vegna kaupa
á íbúðarhúsnæði s.l. vor. Virðist
því ljóst að fólk með tekjur allt
upp í 1 milljón króna hafi sótt
um slíka aðstoð. Meðaltekjur
þeirra hjóna í sömu aðstöðu
sem fyrirgreiðslu hlutu voru 625
þús. Alls voru þeir 2096 sem
sóttu um slík lán. Samþykkt
voru 1.852 lán að upphæð urn
241 millj. króna eða um 130
þús. krónur að meðaltali, en
244 umsóknum var synjað.
Atvinnurekendur lang
launalægstir
Karlar í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri voru sá hópur umsækj-
enda sem langsamlega lægstu
Glæsilegar nýjungar auk
fimmtudagstónleika
Fjöldi frægra einleikara og stjórnenda kemur við sögu
■ Vetrarstarf Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands hefst á fimmtu-
daginn með tónleikum í
Háskólabíói. Sinfóníuhljóm-
sveitin bryddar upp á ýmsum
nýjungum í vetur og starfsárið
verur glæsilegra en nokkru sinni
því auk 16 fimmtudagstón-
leika verða 4 helgartónleikar og
6 viðhafnartónleikar þar sem
margir heimsfrægir einleikarar
koma fram.
Fimmtudagstónleikar hafa
verið haldnir í 22 ár og að sögn
Gunnars Egilssonar starfs-
mannastjóra hljómsveitarinnar
hefur mjög tryggur hópur fólks
sótt tónleikana en sá hópur sé
alltaf að vaxa. „Fjölbreytnin
verður meiri í vetur en endra-
nær og helgartónleikarnir og
viðhafnartónleikarnir eru við-
leitni til að ná til stærri hóps.“
Og það kennir svo sannarlega
margra grasa á efnisskrá hljóm-
sveitarinnar í vetur. Fyrstu helg-
artónleikarnir verða laugardag-
inn 9. nóvember og þá verður
flutt leikhústónlist. Á öðrum
helgartónleikunum verður flutt
tónlist úr austri og vestri, á þeim
þriðju verður flutt rússnesk
tónlist og á fjórðu tónleikunum
verður flutt norræn tónlist.
Frægir einleikarar koma fram á
þessum helgartónleikum m.a.
gríska undrabarnið Dimtri Sgo-
uros sem er aðeins 16 ára og
leikur píanókonsert nr. 1 í b-
■ Einleikarar úr Blásarakvintett Reykjavíkur leika á fyrstu fimmtudagstónleikunum í Háskólabíói -
fimmtudaginn 3. október. Þar verða flutt „Pastoral“ sinfónían eftir Beethoven, Mandaríninn makalausi
eftir Béla Bartók og konsert fyrir fjóra tréblásara og hljómsveit eftir J. Francaix.
moll eftir Tjaíkovsky og James
Barbagallo sem vann brons-
verðlaun í hinni frægu Tjaíkov-
skykeppni píanóleikara í
Moskvu 1982 en síðan þá hefur
hróður hans farið vaxandi.
Hann leikur einleik í Rhapsody
in Blue eftir George Gershwin.
Fyrstu viðhafnartónleikarnir
eða stjörnutónleikarnir verða
laugardaginn 16. nóvember. Þá
kemur fram Anna-Sophie Mutt-
er sem er liðlega tvítugur fiðlu-
snillingur sem hefur heillað
áheyrendur um allan heim frá
því að sá frægi hljómsveitar-
stjóri Herbert von Karajan upp-
götvaði hana 13 ára gamla árið
1977. Hún leikur einleikshlut-
verkið í Árstíðakonsertum eftir
Vivaldi en meðal annarra við-
fangsefna á þessum tónleikum
verður sinfónía nr. 104 í D-dúr
eftir Joseph Haydn. Amadeus-
tónleikar verða svo í desember
þar sem leikin verður tónlist
eftir W.A. Mozart. í janúar
verða Vínartónleikar sem að
hluta til verða helgaðir minn-
ingu tónskáldsins Roberts
Stoltz. í apríl verður flutt verkið
Stabat Mater eftir A. Dvorak í
samvinnu við Söngsveitina Fíl-
harmóníu og á sumardaginn
fyrsta verða tónleikar fyrir alla
fjölskylduna og þar verður flutt
verkið Pétur og úlfurinn eftir
Sergei Prokofief og fleira
skemmtilegt.
Fyrstu fimmtudagstón-
leikarnir verða núna á fimmtu-
dag. Þá verður flutt sinfónía nr.
6 í F-dúr op. 68 eftir L.v.
Beethoven, konsert fyrir fjóra
tréblásara og hljómsveit eftir
Jean Francaix og Mandaríninn
makalausi eftir Béla Bartók.
Stjórnandi verður grísk-þýski
hljómsveitarstjórinn Miltiades
Caridis og einleikarar úr Blásar-
akvintett Reykjavíkurleika. Að
sögn Hauks Flosa Hannessonar
sem situr í stjórn sinfóníunnar
en Mandaríninn makalausi gíf-
urlega krefjandi verk og verkið
á meðal annars að lýsa miklu
ofbeldi og morði. Verkið var
upphaflega samið sem ballett
og það spratt upp mikil örvænt-
ing þegar verkið var frumflutt
árið 1926 en verkið er nú talið
vera eitt af öndvegisverkum 20.
aldarinnar. Þeir Haukur og
Gunnar töldu það lýsa miklum
gæðum hljómsveitarinnar að
geta tekist á við þetta erfiða
verk. Síðustu fimmtudagstón-
leikarnir verða í lok mafmánað-
Leiðrétting
■ Vegna fréttar í blaðinu 1. október s.l. um grafíska myndavél
sem ACO hf. afhenli auglýsingastofunni, Svona gerum við, skal
það leiðrétt að ACO hafi gefíð vélina. Auglýsingastofan greiddi
fyrir hana fullt verð.
Þessi mistök settu leiöinlegan blæ á fréttina sem NT vill
biðjast afsökunar á hér með.