NT - 02.10.1985, Side 14
ö Midvikudagur 2. október 1985 14 i-
l
75 ára
Halldór Kristjánsson
á Kirkjubóli
aldrei „fyrir vinskap manns að
í dag, 2. október, er Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli 75
ára. Óþarft mun að kynna af-
mælisbarnið sérstaklega fyrir
lcsendum NT eða öðrum lands-
mönnum. Það þjóðkunnur er
Halldór fyrir afskipti sín af
þjóðfélagsmálum um áratuga
skeið.
Það sem mig langar til með
línum þessum er, að senda Hall-
dóri bestu kveðjur og árnaðar-
óskir á þessum tímamótum í
ævi hans frá okkur vinum hans
og samherjum innan vébanda
góötemplara í Reykjavík. Þar
hefur Halldór verið í forustu-
sveit um langt skeið.
( bindindisstarfinu hefur
Halldór verið, sem alkunna er,
einn ötulasti talsmaður þess
málefnis á opinberum vettvangi
um langt skeið. Jafnframt hefur
hann án efa verið virkasti félagi
í IOGT hér á landi. Hann heíur
notið sérstaks trúnaðar samtak-
anna hér á Reykjavíkursvæð-
inu, þar er hann þingtemplar
eða oddviti templara í höfuð-
staðnum. Auk þess hefur Hall-
dór verið í framkvæmdanefnd
Umdæmisstúku Suðurlands um
árabil og í yfirstjórn IOGT hér
á landi átti hann sæti fyrir
nokkrum árum.
Þá hefur Halldór verið einn
starfsamasti félagi stúkunnar
Einingar langa hríð og m.a.
vcrið þar æðstitcmplar. Það var
því góður liðsauki sem bættist
stúkunni þegar þau hjón
Rebckka Eiríksdóttir og Hall-
dór Kristjánsson gengu í stúk-
una á sínum tíma. í sjálfu
stúkustarfinu hefur Halldór
m.a. miðlað öðrum með fróð-
leik og skemmtun, enda hafsjór
af þekkingu um bókmenntir,
sögu og líf og starf íslensku
þjóðarinnar fyrr og síðar. Hinn
ánægjulegi, menningarlegi og
góði bragur á verkum Halldórs
hefur átt ríkan þátt í að bæta
félagslífið og auðga það.
Eins og fyrr segir, hefur Hall-
dór Kristjánsson reynst drjúgur
liðsmaður, sívakandi og óþreyt-
andi að vinna á opinberum vett-
vangi fyrir hin jákvæðu lífsvið-
horf. Fyrir allt það mikla og
góða starf, sem Halldór hefur
lagt að mörkum og er að leggja
fram í þágu IOGT í Reykjavík
ber okkur að þakka á þessum
tímamótum hjá Halldóri. Jafn-
framt er það von mín að við
megum áfram njóta leiðsagnar
hans sem lengst.
Einar Hannesson
Fyrir meira en hálfri öld
þeysti önfirskur bóndasonur
fram á ritvöllinn. Greinilegt var
að þar var enginn aukvisi á ferð.
Skýrleiki og rökvísi einkenndu
málfutninginn. Ljóst var að
þessi ungi maður vissi hvað
hann vildi. Kjörorð við hæfi
hefði verið: „Gróandi þjóðlíf
með þverrandi tár“.
Síðan fyrsta grein vestfirska
piltsins birtist í Skinfaxa hefur
margt breyst. Þó er enn tekist á
um sömu grundvallaratriði og
fyrrum. Og enn stendur Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli í
Önundarfirði á ritvellinum
miðjum og er hvorki sár né
vígamóður. Enn er hugsunin
skýr og penninn ef til vill hvass-
ari en nokkru sinni fyrr. Svo fer
þeim sem eiga sér hugsjón,
þeim sem „áttu land, elskuðu
það og vörðu“, þeim sem aldrei
voru falir þótt hátt væri boðið í
ritleikni þeirra og snilli.
Halldór Kristjánsson er heil-
steyptur maður. Hann kann
ekki að látast. Hann vinnur það
víkja af götu sannleikans.“
Halldóri Kristjánssyni bregður
ekki við smámuni. Þrautseigja,
kjarkur og vongleði íslenskrar
alþýðu eru honum í blóð borin.
Hann velkist ekki í vafa um að
fiskimaðurinn og bóndinn eru
síður en svo baggar á þjóðarbú-
inu. Aftur á móti kynni að
hvarfla að honurn að þeir sem
starfa að innflutningi á karmell-
um og kexi, tóbaki og áfengi
væru enginn hvalreki, hvorki
fyrir þjóðarhaginn né þjóðarsál-
ina. Ög ekki held ég honum
þyki öðru brýnna að niður-
greiða áfengi svo ríflega til vín-
sölulýðs og drykkjumanna að
við skattborgararnir greiðum
þrjár til fimm krónur með hverri
einni sem í ríkiskassann kemur
fyrir þann vökva. Það þættu
sumunr drjúgar niðurgreiðslur
og þjóðhættulegar ef verið væri
að borga nteð lambakjöti eða
smjöri. Og kátlegt má þaö heita
að fjármálasnillingar vorir skuli
skylda Halldór Kristjánsson til
að taka þátt í að greiða drykkinn
ofan í Pétur og Pál úti um allar
þorpagrundir.
Halldór Kristjánsson þekkir
það lögmál að því víðar sem
vara er á boðstólum þeim mun
meira er keypt af henni að öðru
jöfnu. Þess vegna skilur hann
vel harmagrát vínsölumanna
yfir því að fá ekki að selja
varning sinn hvar sem er, hve-
nær sem er og hverjum sem er.
Ekki er ég þó viss um að hann
hafi mikla samúð með þeim sem
virðast ekki eiga sér háleitari
markmið en bera mönnum gör-
ótta drykki og þiggja fé fyrir.
Seint mundi Halldór Kristj-
ánsson henda sú rökvilla að
halda að drykkjumein þjóðar
verði læknuð með fræðslu einni
eða því að þurrka einstaklinga,
svo gott og blessað sem það nú
er. Jafnvel þótt öll þjóðin „færi
í meðferð" mundi ekki alls böl
batna. Ölvaðir ökumenn héldu
til að mynda áfram að slasa
sjálfa sig og aðra og drukknir
ofbeldismenn færu sínu fram.
Gamlir bændur vita að sulla-
veiki var ekki landræk ger með
lækningum einum saman heldur
með því að brenna sulli. Þegar
menn skildu að með því mátti \ á
að ósi stemma var auðveldur
eftirleikurinn. Sullasala var eng-
um gróðalind og þess vegna var
ekki ausið út fé til að villa um
fyrir fólki.
Þeir sem hafa hag af að villa
um fyrir fólki í umræðum um
vímuefnamál, málpípur þeirra
og aftaníossar bregða Halldóri
Kristjánssyni stundum um of-
stæki. Við nákvæman lestur
greina hans um áfengismál
undanfarna mánuði hef ég
hvergi rekist á að hann gangi í
berhögg við niðurstöður Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
og þeirra vísindamanna sem nú
er helst tekið mark á í fræðum
þessum hér og erlendis. Það er
meira en sagt verður um ýmsa
andstæðinga hans. Sumir heims-
þekktir rannsóknamenn, svo
sem Ketil Bruun, Per Sundby
og Hans Olav Fekjær, hljóta að
vera meira en litlir ofstækis-
menn ef Halldór Kristjánsson á
þá nafngift skilda því að þeir
ganga feti framar en hann í
staðhæfingum um áfengi, selj-
endur þess og áróðursmenn.
Halldór er þar sem sé í góðum
félagsskap.
En ef til vill skiptir það Hall-
dór Kristjánsson litlu eða engu.
Heilbrigð skynsemi, sannleiks-
ást og samkennd með alþýðu
hafa verið honum leiðarljós.
Harin hræðist ekki stertimenni.
Orður og titlar eru honum úrelt
þing. Hátignum svarar hann
upp í hástert eins og Skagfirð-
ingar sögðu í gamla daga. Og
kvaöst ekki Jón Marteinsson
flauta á kónginn?
Halldór Kristjánsson man vel
þá tíð þegar doktor einn þýskur
tryllti fjölda fólks, jafnvel sæmi-
legustu menn, til óhæfuverka.
Hann hét Jósep Göbbels og
var ekki orð að marka sem sá
doktor sagði. Slíkir ofstækis-
menn, þó að doktorarséu, raska
ekki ró og lífsgleði hins heil-
brigða alþýðumanns frá Kirkju-
bóli. Hann þorir að bera sann-
leikanum vitni. Þeim frelsara
afneitar hann aldrei. Þess vegna
ber honum virðing og þökk.
Vinir hans fjölmargiróska hon-
um langra lífdaga, gleðilegra
stunda á ritvellinum og margra,
góðra vinafunda.
Ólafur Haukur Árnason
■ Á uppvaxtarárum okkar
síðborinna aldamótamanna,
heyrðust aldrei ýms orð í mál-
inu, sem nú óma daglega í
eyrum. Halldór Laxness nefnir
einhvers staðar í þessu sam-
bandi orðið „vandamál" og gott
ef ekki „erfiði" líka. Grundvöll-
ur að þeim hugtökum var þó
vissulega fyrir hendi áður fyrr,
en þótti bara svo sjálfsagður og
eðlilegur, að ekki væri umtals
verður.
Ég held að orðið „félags-
hyggjumaður" hafi lítið heyrzt
framanaf þessari öld. Samt er
það svo, að trúlega hafa aldrei
jafn lifandi og heið samfélagsleg
lífsviðhorf bært á sér í brjóstum
landsins barna eins og í lok 19.
og upphafi 20. aldarinnar. Hér
á ég að sjálfsögðu við hugsjónir
samvinnuhreyfingar, ung-
mennafélagsskapar og góð-
templarareglu, og síðar jafnað-
armennsku, sem allar gengu út
á „ræktun lands og lýðs“ og
framköllun samábyrgðar þjóð-
félagsþegnanna til jöfnunar lífs-
kjara - allt í anda gamalla og
nývakinna kristilegra lífsvið-
horfa.
Hinn 2. okt. n.k. verður 75
ára þjóðkunnur Vestfirðingur,
sem gert hefur garð sinn frægan:
Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli. Hann er einn þeirra
nú öldnu manna, sem sjálfir
persónulega upplifðu í sinni
sveit hughrif og athafnasemi,
sem byggðust á „aldamótahug-
sjónunum“.
Ekki þarfnast þessi umdeildi
maður mikillar kynningar á
þessum tímamótum í lífi sínu,
svo samgróinn sinni tíð á opin-
berum vettvangi sem hann hefur
orðið fyrir rás viðburðanna.
Ósjaldan hefur andstæðing-
um Halldórs-einkum í áfengis-
og bindindismálum - fundizt
hann alltof einstrengingslegur
og harður í horn að taka. Oft
hefur andúðin gengið svo langt,
að sumum þeim hefur þótt hann
leiðinlegur og jafnvel óþolandi.
Sannleikurinn er þó sá, hvað
sem bardagagleði Halldórs
líður, að hann er manna
skemmtilegastur á góðra vina
fundum, húmoristi góður, sögu-
maður með afbrigðum, víðles-
inn og næmur á fyrirbrigði lífs-
ins og því hafsjór af fróðleik,
svo stálminnugur sem hann er.
Skapmaður er Halldór, eins
og að líkum lætur, og öllum
betra að eiga hann með sér en
móti. Og ekki hefur hann skort
kjark eða áræði, ef því var að
skipta. Óragur gekk hann á
hólm gegn ekki minni mönnum
en Ásgeiri forseta og Jónasi frá
Hriflu, og þurfti ekki að fyrir-
verða sig fyrir frammistöðuna,
enda óbrigðull mælskumaður í
ræðu og riti, þegar honum svall
móður.
Einlægni Halldórs, áhuga og
alvöru í málflutningi, hefur
aldrei neinn þurft að velkjast í
vafa um. Órofa tryggð hans og
staðfesta gagnvart hugsjóna- og
áhugamálum hefir alla tíð verið
einstæð.
•
Svo vill til, að við Gróa kona
mín erum stödd erlendis, þegar
þessi orð um æskuvin okkar
Halldór Kristjánsson eru
hripuð. Mig skortir því heimild-
ir til hvers konar ívitnana, sem
æskilegar hefðu verið til stuðn-
ings þessari afmælisgrein minni.
En það verður að hafa það.
Ekki sízt eru mér hugstæð
æskuljóð Halldórs, og hefði ég
nú viljað hafa tiltækt „Hall-
dórskver - ljóðabók hans - sem
geymir þau mörg hver. Ungur
Zelig ★ ★ ★
Bandarísk, byggð á sannsögu-
legum atburðum. Handrit,
leikstjórn og aðalhutverk,
Woody Allen. Meðleikari,
Mia Farrovv.
Framleiðendur: Jack Rollins
og Charles H. Jaffe.
■ f Austurbæjarbíói er
áhorfendum nú boðið að kynn-
ast þriðja og fjórða áratug
aldarinnar í spéspegli Woodys
Allen. Tákngervingur tímans
er furðufuglinn Zelig, leikinn
af Woody Allen, en kvikmynd-
in fjallar fyrst og fremst um
manninn sem tákn þessa
tímabils milli tveggja stríða.
Zelig er mannlegt kamel-
ljón. Hann tekur stöðugum
breytingum, allt eftir því
hverja hann umgengst hverju
sinni. Hann er haldinn þeirri
áráttu að vilja vera öllum til
hæfis, yfirýktur tækifærissinni.
Stór hluti mannskynsins hef-
ur snert af þessum sama sjúk-
dómi, bregður sér í mismun-
andi hlutverk eftir aðstæðum;
á heimilinu er eitt hlutverkið
leikið, í vinnunni annað og
þegar slappað er af frá amstri
hversdagsins er beislinu sleppt
fram af sér og allar hömlur
bresta; það er ekki sama hvort
rætt er við séra Jón eða Jón;
sérhvert tilfelli kallar á sín
sérstöku viðbrögð. Okkur er
það þó flestum sammerkt að
við gerum okkur nokkurn veg-
inn grein fyrir hvenær grímu-
dansleiknum lýkur og könn-
hreif hann mig ungan, því svo
augljóslega sýna þau kvæði hug
skáldsins og hjartalag; - þessa
síðar svo harðskeytta og óvægna
baráttumanns, sem margir ætla
allt annan en hann er. Mér
hefur alltaf þótt það miður, að
Halldór skyldi ekki leggja meiri
rækt við ljóðagerð sína, og heföi
feginn viljað skipta á því og
sumu öðru, sem eftir hann
liggur, þótt gott sé.
Ég lít héðan í anda Kirkjuból
þeirra bræðra: Ólafs Þ., Guð-
mundar Inga og Halldórs, sem
allir voru svo vel af guði gerðir,
að þeir urðu þjóðkunnir menn,
hver á sínu sviði. Og ekki má ég
gleyma systurinni Jóhönnu, sem
vissulega bjó yfir sínum sérleik,
þótt áhrif hennar yrðu ekki
útávið slik sem bræðranna.
Kirkjubólin í landi okkar eru
mörg, en þeirra systkina í
Bjarnardal í Önundarfirði.
Þjóðvegurinn liggur um suður-
hlíð dalsins og áleiðis þangað
eða þaðan, sem „öll vötn falla
til Dýrafjarðar" eins og segir í
Gísla sögu Súrssonar.
Gegnt Kirkjubóli blasir við
hátt og tignarlegt fjall, Kaldbak-
ur;
„Hans klappir og vindhljóð og
snjóskriðufall
og fegurð um standberg
og stall"
eins og Guðm. Ingi yrkir um
Kaldbak og vitnar í sama kvæði:
umst við andlitið sem birtist
okkur í speglinum er gríman
fellur. En svo er ekki með
Zelig.
Zelig veit ekki lengur hver
hann er. Hann þekkir ekki
sjálfan sig. Hann er sá sem
hann býst við að aðrir vilji að
hann sé. Svo rammt kveður að
þessu, að það nægir honum
ekki að breyta innri persónu
sinni heldur tekur ytra útlitið
einnig breytingum. Hörunds-
liturinn dregur dám af hörunds-
lit þeirra, sem hann umgengst
í það og það skiptið, hvort sem
þeir eru gulir, rauðir eða
svartir. Sé hann staddur í írskri
krá gerist hann rauðhærður,
meðal gyðinglegra rabbía vex
honum ótrúlega hratt skegg og
séu samvistarmenn hans óeðli-
legir að holdarfari, tútnar hann
út eða breytist í horrenglu.
Hann gerist óskabarn þjóð-
arinnar, að minnsta kosti fjöl-
miðlanna, sem selja grimmt
fréttir af honum. Ekki eru
samt allir jafn hrifnir, því fyrir-
bærið Zelig má túlka á ótal
vegu. Kommarnir sjá í honum
holdtekningu auðvaldsins. Það
að hann getur breytt litarafti
sínu er nóg til að Klu Klux
Klan útnefnir hann sem óvin
hvíta kynstofnsins no. 1.
Eina stundina er Zelig elsk-
aður en þá næstu hataður. Á
meðan hægt er að græða á
afbrigðilegri hegðan hans eru
að minnsta kosti þeir sem
græða, í sjöunda himni. Þegar
„Því þekki ég fjallanna áhrif
og afl
á ómótað skapferli vaxandi
manns
og vald þcirra í hugsunum
hans".
Mun ekki umræddur bróðir
hans geta tekið undir þau orð,
og eins hin; „ber ég í sál minni
Kaldbaksins kinn“. Því trúi ég
og finnst allur æviferill Halldórs
benda til þess.
Þarna í dalnum uxu þau upp
þessi óvenju vel gerðu systkin -
á annan veginn árum saman við
rúmstokk sjúks föður síns, unz
yfir lauk, en á hinn undir hand-
arjaðri og verndarvæng mikil-
hæfrar móður. Veraldleg efni
voru ekki mikil, en því meira
var um þann auðinn, sem hvorki
mölur né ryð fær grandað. í
samskiptum sínum við foreldr-
ana, drukku börnin í sig „guðs-
ótta og góða siði“ og ást á „landi
og fólki og feðra tungu". Þess-
ara uppeldisáhrifa hefur gætt
ævilangt í lífi þeirra og starfi,
sjálfum þeim og öðrum til
heilla.
Við sendum afmælisbarninu
sjálfu, Rebekku konu hans og
börnum þeirra hugheilar af-
mæliskveðjur og óskum Hall-
dóri góðra og frjórra lífdaga svo
lengi sem honum auðnast að
vera eins og hann hefur alltaf
verið - ekkert síður en Hergils-
eyjarbóndinn - „í lífinu sjálfum
sér trúr".
Daun Eifel, 28. sept. 1985
Baldvin Þ. Kristjánsson
hamingjuhjólið snýst á hinn
verri veg og snúa allir vió
honum baki.
Allir nema bjargvætturinn,
dr. Fletcher, leikinn af Miu
Farrow og auðvitað er ástin
með í spili.
Þessa sögu segir Woody All-
en með því að færa hana í
búning heimildamyndar.
Blandar hann saman ekta
heimildamyndum og leiknum
atriðum í sama stíl. Á þann
hátt tekst honum að gefa grein-
argóða mynd af því upplausn-
arástandi, sem ríkti í Banda-
ríkjunum á þessu tímabili.
Auk þess er skotið inn viðtöl-
um við núlifandi fólk. t.d.
rithöfundana Saul Bellow og
Susan Sontag, sem leggja út af
fyrirbærinu á heimspekilegan
hátt.
Útkoman úr þessu er hin
þokkalegasta skemmtan, því
eins og endranær er Woody
Allen fundvís á skopleg atriði
í mannlegu atferli. Hér er þó
ekki um hreinræktaða grín-
mynd að ræða því undirtónn-
inn er grafalvarlegur.
Það er nú svo að annaðhvort
elska menn Woody Allen eða
hata, alveg eins og með Zelig
forðum. Við því er ekkert
annað að gera, en að ráðleggja
öðrum hópnum að sitja heima
en hinum að skunda í Austur-
bæjarbíó til að velta vöngum
yfir hinu kostulega manneðli,
samtímis og þeir brosa út í
annað. Sáf
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmæiis- og eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær
þurfá að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingar-
dag. Þær þurfa að vera vélritaðar.
Kamelljónið Zelig