NT - 02.10.1985, Page 15
Miðvikudagur 2. október 1985 15
(97
Ráð til að endurheimta hugarró
Eftir Mikjail Dmitruk
Ýmsir erfiðleikar, vandamál og sorgir svipta
okkur stundum hugarró. Sumir endurheimta
hana með þvi að taka lyf, aðrir helga sig
eftirlætis áhugamálum sínum. Enn aðrir reyna
að ná tilætluðum árangri með sérstökum
leikfimiæfingum, sem koma mönnum í gott
skap.
■ Hæfileikinn til sjálfstjórn-
ar, að skeyta ekki skapi sínu á
öðrum og að leggjast ekki í
þunglyndi, þegar erfiðleikar
steðja að, er sjaldgæfur eigin-
leiki. I flestum tilfellum er
hann áunninn með þjálfun.
En er hægt að hjálpa fólki,
sem hefur orðið fyrir að vera
geðvont og er komið yfir þann
aldur, að það „læri“ af öðrum,
til þess að ávinna sér þennan
dýrmæta eiginleika?
Það bæði getur og verður að
læra sjálfstjórn. í fyrsta lagi
vegna þess, að fljótræði tor-
veldar líf ofui tilfinninganæmra
manna og veldur öðrum sí-
felldum erfiðleikum. í öðru
lagi segja vísindamenn, að við-
brögð þeirra við óæskilegu
ástandi séu ósjaldan svo ofsa-
fengin, að þeir brenni upp
jafnmikilli taugaorku eins og
fiugmaður, sem skotið er út úr
flugvél við slys. Slíkt ofurálag
hefur óhjákvæmilega áhrif á
líkamann. Fyrr eða síðar
brotnar hinn náttúrlegi aðlög-
unarbúnaður líkamans niður.
Oft leiða reiði, langvarandi
sorg, stöðugur kvíði eða
gremja til alvarlegra sjúk-
dóma, svo sem of hás blóð-
þrýstings, kransæðaþrengsla,
maga- og skeifugarnarkrabba
og sykursýki.
f>að er bráðunauðsynlegt að
draga úr taugaspennu í tíma.
Pað hefur heppnast ágætlega
hjá leikurum. Með sérstökum
aðferðum geta þeir komið
sjálfum sér í rétt hugarástand
og framkallað réttar tilfinning-
ar. Frammi fyrir áhorfendum
þurfa þeir alltaf að vera í góðu
formi, hvort heldur þeir hafa
áhyggjur af einhverju eða eru
ekki vel fyrir kallaðir. Jógar
öðlast hugarjafnvægi og kraft
með því að spenna og slaka á
vöðvum sínum. Hvernig væri
að fá eitthvað lánað frá þeim?
Pað var þannig, sem Alexei
Bojarsjinov, fyrrverandi leik-
ari í Moskvu, bjó til óvenjulegt
þjálfunarkerfi, sem hann kall-
aði „leikfimi“ fyrir leikara í
þágu samræmdrar fullkomn-
unar“ (skammstafað LLSF).
Það er svo einfalt, að það
krefst ekki neinna sérstakra
hæfileika. LLSF klúbburinn,
sem Bojarsjinov stofnaði, var
upphaflega einvörðungu ætl-
aður leikurum, en hann hefur
fært út áhrifasvið sitt frá því
hann var stofnaður fyrir 9
árum. Nú sækjast félagar ann-
arra starfsgreina eftir að ganga
í hann. Ég sótti nokkrar
kennslustundir í klúbbnum.
Með fjaðurmagna skrefum
gengur hinn vel á sig komni
Bojarsjinov í fimleikasalinn.
Hann er kominn yfir sextugt
en sýnist 10 árum yngri.
„Byrjumlþ skipar hann og
gerir merki með hendinni.
„Leggist niður! Lokið augun-
um! Svefnbylgjur flæða um
allan líkama ykkar. Aftur, frá
höfði til fóta.“
Afbrigði sjálftilbúinnar
þjálfunar, segi ég við sjálfan
mig.
Slík byrjun á kennslustund í
fimleikum er engin tilviljun.
Ef þú ert æstur, áhyggjufullur
eða einfaldlega þreyttur, munu
æfingarnar ekki gera þig hress-
ari. Fyrst verðurðu að róast,
fjarlægja allar vöðva- og tauga-
þvingur.ef svo má orða það,
sem eru samtengdar. Hvernig?
Gerðu þér í hugarlund tvo
bílstjóra, sem eru að deila um
það, hvor þeirra sé ábyrgur
fyrir árekstri. Líkamar þeirra
eru spenntir, andlit þeirra af-
mynduð, andardráttur þeirra
er þungur og augu þeirra virð-
aSt skjóta gneistum. ímyndaðu
þér annað svið: Fólk í sumar-
leyfi flatmagar í sólinni, liggur
í velsæld á ströndinni, líkamar
þess, andlit og taugar fullkom-
lega afslöppuð. í báðum tilfell-
um eru það merki, sem koma
frá heilanum, sem stjórna
vöðvunum, sem á hinn bóginn
senda boð til heilans, er treysta
ríkjandi ástand.
Lág, kverkmælt, svæfandi
rödd Bojarsjinovs er farin að
hafa áhrif. Andlitin óskýrast
og leysast upp eins og þau séu
böðuð innra ljósi. Pátttakend-
ur í námskeiðinu lýsa skynjun
sinni á þessu stigi með ýmsum
hætti: „Mér finnst ég undar-
lega þéttur." „Ég finn ekki
fyrir eigin líkamsþyngd “ „Ég
er alveg rólegur Allir segja,
að ástand syfjuleika og um leið
algerrar einbeitingar, sem er
nauðsynleg fyrir eftirfarandi
æfingar, hefjist samtímis.
Næst kemur nokkuð óvænt:
„Búið ykkur nú undir að
gráta! Lyftið augabrúnunum
og fitjið upp á nefið. Syngið
háa „e“ið í huganum. ímyndið
ykkur, að það myndist ein-
hvers staðar uppi í nefinu.
Hækkið tóninn og lyftið brún-
unum enn hærra! Ykkur líður
vel og þið fellið tár af einskærri
gleði!“
Ég fann innra með mér, að
þetta hafði leikræn áhrif, og ég
litaðist um með áhuga til þess
að sjá áhrif æfinganna. Flest-
um hafði vöknað um augu.
Kæri lesandi, vertu hrein-
skilinn, hve langt er síðan þú
grést síðast? Felldir tár af létti,
hrifningu eða í sigurvímu. Af
einhverjum ástæðum hefur sú
venja aflagst að sýna tilfinning-
ar sínar opinberlega. Því
miður. Leo Tolstoj ráðleggur
fullorðnum að læra af börnum
að vera hamingjusamur, en
þau geta ekki falið tilfinningar
sínar. Af þessum sökum skaltu
til þess að byrja með reyna að
framkalla gleðitár eftir geð-
þótta. Þau eru ekki aðeins
afsakanleg heldur eru þau og.
eftir því sem vísindamenn
segja, holl þar sem þau breyta
samsetningu blóðsins og veita
streituhormónunum út úr
líkamanum. Ef þú heldur
augabrúnunum upplyftum í
nokkrar mínútur fylgir því til-
finning gleði og léttir.
„Nú, þegar þú ert búinn að
gráta, þá hugsaðu um eitthvað
jarðbundið, t.d. ljúffengan,
ríkulegan miðdegisverð.
ímyndaðu þér, að fyrir framan
þig bakka með uppáhaldsrétt-
unum þínum og að sýn þeirra
og ilmur veki matarlyst þína.
Hún vex. Pú finnur það með
öilum líkamaþínum, meðfing-
urgómunum, með hárrótun-
um.“
í þessu tilfelli vildi ég skipta
um orðið „matarlyst" - tala
heldur um ánægjutilfinningu,
nautn, sprottna af ímyndun-
inni.
Þegar allir eru orðnir barma-
fullir af matarnautn, segir leið-
beinandinn: „Hugsið ykkurnú
sólbjartan sumardag. Ósjálf-
rátt færist bros á varir ykkar.
Brosið breiðar! Hlæið innra
með ykkur eins og þið hafið
rifjað upp eitthvað skemmti-
legt.“
Brosviprur sjást. Brosin
stafa af ánægju og í samræmi
við gagnvirknisregluna auka
þau hana að sínu leyti, bæta
líkamlegt ástand mannanna og
láta þá finna til einhvers, sem
líkist auknum þrótti. Égskynja
líkama minn með nýjum hætti:
Allt virðist léttara en áður -
höfuð, handleggir, fætur.
Holl áhrif vingjarnlegs bross
og hláturs hafa lengi verið
þekkt. Á okkar tímum hafa
lífeðlisfræðingar og lífefna-
fræðingar uppgötvað leyndar-
dóminn: Heili einstaídings,
sem er glaður, fær róandi efni,
sem kallast endorphine.
Eitthvað svipað á sér stað,
þegar maður skokkar.
Næsta viðfangsefni gerir
byrjanda ruglaðan.
„Þér finnst þú þurfa að
geispa. Þú teygir út handlegg-
ina, lokar augunum og opnar
munninn upp á gátt, er þú
andar að þér. Kyrr, ekki að
anda!“
Allir líta kátlega út. Eftir
fáeinar sekúndur kemur út-
öndunin en henni fylgir lágt,
langdregið hljóð „u-u-u“, sem
kemur neðan úr maga. Allir
þátttakendur fylgja þessu eftir
með ánægjulegum andar-
drætti. Aftur og aftur gerir
hver og einn sér upp djúpan
geispa.
Hvers vegna? Hvers vegna
geispa menn yfirleitt? Lang-
dregin innöndun skiptist á við
snögga útöndun, vöðvar and-
lits og barka ýmist teygjast
mjög eða slappa alveg af. Súr-
efnisríkt blóðið streymir inn í
æðarnar í höfðinu og fjarlægir
þreytu og taugaspennu. Ef til
vill er þetta ástæðan fyrir
„hressandi" geispa fyrir
svefninn? Náttúran sér til þess,
að áhrif og tilfinningaleg
reynsla dagsins komi ekki í veg
fyrir að við föllum í rólegan
svefn.
En það er ekki nóg að ná
hugarjafnvægi. Nauðsynlegter
að varðveita það, festa það og
þjálfa. Þess vegna er allt
endurtekið aftur, en nú í
tengslum við hreinar líkams-
æfingar. Best fallnareru ýmsar
kyrrstöðustellingar, m.a.
„hatha-joga".
Þegar ég reyni að líkja eftir
því, sem allir aðrir voru að
gera, þá náði ég engu af því -
hvorki tilfinningunum né æf-
ingunum. Ég fór að efast um.
að það tæki því að koma aftur.
Engu að síður, kynti það undir
áhuga mínum, að allir nema ég
höfðu greinilega ánægju af
tímanum og héldu heim geisl-
andi og glaðir.
Augsýnilega var það efa-
hyggja mín, sem stóð í vegin-
um. Líkt og allir byrjendur
þurfti ég áð gæta varúðar.
Loks, í þriðja tíma, fann ég til
ánægjulegrar syfj utilfinningar.
Brátt „fékk“ ég matarlystina.
Og innra brosið birtist. Og ég
skildi, hvers vegna leiðbein-
andinn sagði okkur að fitja
upp á nefið. Það gerði andar-
dráttinn frjálsari, léttari, meira
hressari. Mín eigin reynsla
sannaði mér, að með því að
líkja eftir geispa, getur maður
róað sig, og að fagnaðartár
friða sálina.
Að ráðleggingu þjálfarans
einbeiti ég mér nú að því að
varðveita góða skapið,
ánægjutilfinninguna, fremur
en að leikfimiæfingunum
sjálfum.
Eftir áreynslu kyrrstæðra
stellinga virtist hlaup á staðn-
um auðvelt, það var líkast því
að líkami minn væri orðinn
þyngdarlaus. Að lokum átti ég
í vændum að ég færi að fljúga.
í sannleíka sagt, þá tyllti ég
mér á tær, lokaði augunum,
baðaði höndunum. Mér fannst
eins og barni, sem dreymir, að
ég mæddist af flughraðanum.
Eftir æfingatíma svíf ég bók-
staflega. Höfuðið er hreint og
býður heim vingjarnlegum og
ánægjulegum hugsunum. Eg
fór að sofa skemur en dýpri
svefni en áður.
Frá ritstjóra Spútniks
í heimsstyrjöldinni síðari
særðist Alexei Bojarsjinov illa:
Hann fékk 14 sprengjubrot í
sig í grennd við hjartað og
vinstri handleggurinn lamað-
ist. Læknarnir urðu að berjast
harðri baráttu, fyrst fyrir lífi
hans, síðan fyrir heilbrigði
hans. Alexei barðist einnig.
Viljastyrkur hans, sársauka-
fullar æfingar og staðföst trú
hans á víðtæka getu manns-
líkamans hjálpuðu honum til
þess að ná árangri. Hann lifði
ekki aðeins af, hann endur-
heimti aftur not af handleggn-
um. Með tímanum tók Bojar-
sjinov meira að segja að leika
sundknattleik og knattspyrnu
hjá íþróttaklúbbi áhuga-
manna. Smám saman bjó hann
til eigið æfingakerfi og prófaði
verkanir þess á sjálfum sér.
Samtímis óx sú sannfæring
hans, að æfingarnar myndu
verða öðrum til hjálpar, að
þær myndu hjálpa til þess að
leiða í ljós hinn mikla vara-
forða og varnarmátt, sem nátt-
úran hefur gætt manninn.
Úr dagblaðinu Moskovskí
Komsomolets
1 já K
'
&
■ Teikningar eftir Vladimir Sviridov
flokksstarf
Norðurland - eystra
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og
Guðmundur Bjarnason, halda almenna stjórnmálafundi sem
hér seqir:
Miðvikudaginn 2. október kl. 21.00 Bergþórshvoll, Dalvík.
Fimmtudaginn 3. október kl. 14.00, Samkomuhúsið, Grímsey
Fimmtudaginn 3. október kl. 21.00, Tjarnarborg, Ólafsfirði
Föstudagur 4. október kl. 21.00, Samkomuhúsið, Grenivík
Laugardagur 5. október kl. 21.00, Melar, Hörgárdal
Sunnudagur 6. október kl. 14.00, Sólgarður, Saurbæjar-
hreppi.
Fimmtudaginn 3. október kl. 21.00 Tjarnarborg, Ólafsfirði.
Föstudagur 4. október kl. 21.00 Samkomuhúsið, Grenivík.
Framsóknarflokkurinn
Þjóðmálanefnd Sambands
ungra framsóknarmanna
Áríðandi fundur verður haldinn niánudaginn 7. október að
Rauðarárstíg 18, kl. 20.30. Fundurinn eröllum opinn.
Framkvæmdastjorn SUF.
Mosfellssveit - Kjalarnes - Kjós
Aðalfundur Framsónarfélags Kjósarsýslu verður haldinn
fimmtudaginn 3. október kl. 20.30 í Hlégarði. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Hjartans þakkir færum viö börnum okkar og
fjölskyldum þeirra, ættingjum og vinum sem
minntust okkar með heimsóknum, gjöfum og
hlýjum kveðjum á merkisafmælum okkar í
sumar.
Ingibjörg og Jóhannes
frá Flóðatanga.
t
Eiginmaður minn
Jóhann Eiríksson
Háteigsvegi 9, Reykjavík
lést á Elliheimilinu Grund sunnudaginn 29. september.
Helga Björnsdóttir
t
Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu
og systur,
Ingibjargar Örnólfsdóttur
Droplaugarstöðum
Reykjavík
Laufey Magnúsdóttir, Ólafur Sæmundsson
Helga Magnúsdóttir, Þórður Þórðarson
Sigrún Magnúsdóttir, Trausti Magnússon
Hrefna Lúthersdottir, barnabörn, barnabarnabörn og
systkini hinnar látnu.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður, afa og
langafa.
Áma Ögmundssonar
Galtafelli, Hrunamannahreppi
Guðrún Guðmundsdóttir
Áslaug Árnadóttir og Agnar Haraldsson
Herdís Árnadóttir og Hannes Bjarnason
Margrét Árnadóttir
Svavar J. Árnason og Hrafnhildur Magnúsdóttir
Hjalti Árnason og Guðrún Hermannsdóttir
Jónfna G. Ögmundsdóttir
Magnús Ögmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.