NT - 02.10.1985, Page 17
Miðvikudagur 2. október 1985 17
■ Sagt er að söngvarnir hennar Re-Mi litlu séu
áreiðanlega áhrifameiri í þágu friðarins en hinar
endalausu samningaviðræður stjórnmálamannanna.
Re-Mi litla er komin af tónlistarfólki og hún er
aldrei ánægðari en þegar þau eru að æfa saman
fallegt lag. Hér er hún við upptöku á plötu, en
foreldrarnir hafa komið sér upp tækjum til þess í
stofu sinni í íbúðablokk á hæðunum fyrir utan
Beirut, þar sem ekki er alveg eins ófriðlegt og í
miðborginni.
■ René, pabbi Re-Mi, (hún
er skírð eftir tónstiganum!)
kennir henni nýtt lag við píanó-
ið.
■ „Ég breiði upp fyrir liöfuð
þegar farið er að skjóta eða
skríð upp í rúm til möinmu og
pabba,“ sagði Re-Mi í París,
þegar hún var spurð um stríðið
í heimaborg hennar.
Litla stúlkan í Líbanon
syngur um frið
en hún hefur aldrei upplifað hann
■ Úr hálflirundum hús-
um í Beirut má stundum
heyra barnsrödd sem syng-
ur björtum rómi fallegt lag
og ljóö sem flest hver eru
um hinn langþráða frið.
Petta er hún Re-Mi litla
Bendalay, tæplega 6 ára
telpa sem syngur. Hún
hefur sungið inn á margar
plötur, eða um 10 söngva.
Lögin hefur René, pabbi
hennar, gert við ljóð Houda
móður hennar. Eitt laga
Bendalay-fjölskyldunnar
hefur komist í toppsæti á
vinsældaiistum, og Re-Mi
hefur þegar leikið í einni
kvikmynd, „Aminée undir
regnboganum“.
Re-Mi litla söng við
hátíðahöld í forsetahöll-
inni í Beirut um síðustu
áramót, þar var boðið til
veislu sendiráðsfólk sem
enn er í landinu. Sagt var
að varla hefði verið þurrt
auga í samkvæminu þegar
Re-Mi söng um friðinn
sem allir þrá. Ljóðið var
eitthvað á þessa leið:
Ég er lítið barn og mig
langar til að leika mér,
af hverju má ég það ekki?
Brúðurnar mínar bíða mín.
Vinir mínir biðja guð um frið,
og lítil hjörtu grátbiðja,
- gefið okkur frið!
Nýlega kostuðu líbönsk
yfirvöld Re-Mi litlu í ferð
til Parísar, þar sem hún
kom fram í einum
vinsælasta sjónvarpsþætti
Frakklands „Champs El-
ysées“. 15 millj. manna
horfðu og hlustuðu á litlu
stúlkuna frá Líbanon
syngja um frið.
■ Re-Mi í heimsókn hjá líb-
anskri herdeild, en hún er
átrúnaðargoð og eftirlæti alira.
Hún fær heila póstpoka af
aðdáendabréfum, - en er lítið
farin að lesa sjálfT
ÚTSALA
Útsalaánýjum
vörubílahjólbörðum
af öllum stæröum og mörgum
viöurkenndum tegundum.
Dæmi um verö:
900x20 Nylon
verö frá kr. 8.650,00
1000x20 Nylon
verö frá kr. 9.700,00
1100x20 Nylon
verö frá kr. 10.800,00
1200x20 Nylon
verö frá kr. 11.400,00
Vörubílstjórar:
komið, skoöiö, geriö góö kaup.
Barðinn
Skútuvogi 2, sími 30501.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
BRÉFBERA
við nýja póst- og símstöð á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veitir póstútibússtjóri í
R-7 (vesturbæjarútibú) sími 26000.
Kópavogskaupstaður
- Deiliskipulag
Auglýst er deiliskipulag í Suðurhlíð, Digranes í
samræmi við grein 4.4. í Skipulagsreglugerð frá
1. ágúst 1985. Teikningar ásamt greinagerð,
skilmálum og leiðsöguteikningum fyrir reit merkt-
an A, liggja frammi á skrifstofu bæjarverkfræð-
ingsins í Kópavogi, Fannborg 2, 3. hæð frá og
með 2. október til 2. nóvember 1985. Athuga-
semdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og
berast bæjarverkfræðing fyrir 5. nóvember n.k.
Bæjarverkfræðingur
Laus staða
Staða forstjóra Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins er laus til umsóknar. Umsækjend-
ur skulu hafa lokið háskólaprófi í raunvísind-
um og vera sérmenntaðir í einhverri grein
búvísinda.
Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 31. október 1985.
Landbúnaðarráðuneytið,
30. september 1985.
Nei takk
ég er á
bílnum
UUMFEROAR
F
RÁO