NT - 02.10.1985, Blaðsíða 23
— sjónvarp
Sjónvarp kl. 20.40:
Frá fegurðarsam-
keppni Norðurlanda
- þar sem íslensk stúlka sigraði
■ í kvöld 'kl. 20.40 verður
sýnd mvnd frá fegurðarsam-
keppninni um titilinn ungfrú
Skandinavía. Keppni þessi var
haldin í Helsinki í Finnlandi
þann 15. september síðastlið-
inn.
Sigurvegarinn í keppninni
var enginn annar en fulltrúi
íslands, Sif Sigfúsdóttir en hún
hafði fyrr á þessu ári tekið þátt
í fegurðarsamkeppni íslands,
þar sem hún hreppti þriðja
sætið.
Eflaust verður spennandi að
fylgjast með keppninni í kvöld
og gaman að sjá góða Islands-
kynningu á erlendri grund.
Rúvak, Rás 1 kl. 15.15:
Sveitin mín
- spjallað við bændur
■ Sif Sigfúsdóttir, sem hlaut titilinn ungfrú Skandinavía, fyrr í
þessuin inánuði.
s2kl. 18.
■ í dag kl. 15.15, mun hefja
göngu sína nýr þáttur frá
Ríkisútvarpinu á Akureyri,
sem ber nafnið „Sveitin mín",
og er í umsjá Hildu Torladótt-
ur.
„í þáttunum stefni ég að því
að fá í heimsókn til mín ein-
hverja góða sveitamenn hverju
sinni sem ég spjalla þá við um
sveitina þeirra", sagði Hilda
Torfadóttir aðspurð um
þáttinn. „Síðan vcrða flutt Ijóð
eða söngvar um þá sveit sem á
við hverju sinni.
Pessi fyrsti þáttur verður
hins vegar nokkuð frábrugðinn
þeint sem eftir koma, í
honum ætla ég eingöngu að
taka fyrir ljóð og söngva eftir
norðlensk skáld, ogþá í tengsl-
um við landið, „Landið mitt",
væri því raunar réttnefni fyrir
þennan fyrsta þátt."
Knattspyrnulýsingar
- frá leikjum á Evrópumótum
■ í dag kl. 18.00-21.30 verð- Evrópumótum í knattspyrnu.
ur aukaútsending frá Rás 2 Ingólfur Hannesson,-
vegna leikja íslenskra liða á íþróttafréttamaður lýsir leik
■ Frá fyrrí leik Fram og Glentoran sem fór fram á Laugardal-
svelli í september s.l. Myndin sýnir Viðar Þorkelsson skora 2.
mark Fram, en leikurinn fór 3-1 fyrir Fram.
Frani og Glentoran í Evrópu-
keppni bikarhafa í Belfast á
Norður-írlandi. Hilmir Elís-
son segir tíðindi af viðureign
Nantes og Vals í Evrópu-
keppni félagsliða í Frakklandi
og Jón Gunnlaugsson verður á
leik Aberdeen og í A í Evrópu-
keppni meistaraliða í Skot-
landi og segir fréttir af þeim
leik.
Þá fara fram sama kvöld, á
milli 70 og 80 leikir á Evrópu-
mótum og mun Samúel Orn
Erlingsson, íþróttafréttamað-
ur tíunda úrslit urn leið og þau
berast til Fréttastofunnar.
Stjórnandi í hljóðstofu Rás-
ar 2 verður Þorgeir Ástvalds-
son.
■ Hilda Torfadóttir stjórn-
andi hins nýja þáttar sem ber
nafnið „Sveitin mín“.
Miðvikudagur 2. október 1985 23
Hinn fallni
engill
Fallen Angel^^H
Aðalhlutverk: Dana Hill,
Mclinda Dillon, Richard Masur,
Ronny Cox.
Leikstjóri: Robert Lewis
Lengd: 91 niínúta
Bandaríkin, 1981
■ Aðalsöguhetja myndarinnar
er hin 12 ára gamla Jennifer
Philips (Dana Hill). Hún er á
hinu svokallaða gelgjuskeiði og
þolir illa við hjá fjölskyldu sinni
sem samanstendur af móðurinni
Sherry (Melinda Dillon) og nýja
manninum hennar Frank (Ronny
Cox). Sherry vinnur myrkranna
á milli á matsölustað og hefur
lítinn tíma til að sinna barninu. Frank reynir að vinna vináttu
stúlkunnar, en hún bægir honum frá sér á þeirri forsendu að hann hafi
stolið móður sinni frá sér.
í þessari ringuireið kynnist Jennifer Howie Nichols (Richard Masur)
og vingast við hann. Howie er skemmtilegur, hælir henni á hvert reipi
og dekrar við hana á allan hátt. Hann þjálfar stúlkur í hornabolta auk
þess sem hann stundar þá vafasömu iðju að útvega börn í klámmyndir.
Honum tckst að koma þeirri skoðun inn hjá Jennifer að allir foreldrar
séu illgjarnir og vilji ekkert með börn sín hafa. Jennifer trúir honum
og strýkur að heiman.
Howie tekur henni opnum örmum og fær hana til að láta mynda sig
í ástarleikjum við önnur börn. Jennifer er að vonum treg til í fyrstu,
en hún elskar Howie og hann elskar hana.
Sherry leitar að Jennifer og finnur hana að lokum hjá Howie, en
hvort henni hefur tekist að bjarga sálarheill bamsins skal ósagt látið.
Þegar myndin var sýnd árið 1981 vakti hún fólk til umhugsunar um
hið svokallaða barnaklám, þ.e. þegar börn eru pínd til ástarleikja án
líkamlegs eða andlegs þroska, öfuguggum til fróunar. Eflaust hafa
flestir gert sér grein fyrir að slíkt er stundað í stórum stíl, en með
tilkomu myndarinnar og umræðu í kjölfarið fór fólk að líta sér nær og
hugleiða að slíkur harmleikur gæti einnig hent þeirra eigin börn.
Þegar fjalla á um svo viðkvæmt mál sem þetta verður úrvinnsla að
vera varfærnislcg. Það hefur tekist í þessari mynd, því aldrei falla
aðstandendur í gryfju lágkúrunnar.
Sálarstríð litlu stúlkunnar er túlkað afar vel af Dönu llill og
persónan Howie er sannfærandi í höndum Richard Masur.
Menn hafagott af því að sjá þessa mynd, því hún hefur boðskap að
færa og þá ekki einungis í samiiandi viö misnotkun á börnum heldur
vekur hún til umhugsunar um samskipti foreldra og barna á þessum
erfiöu unglingsárum. Hitt er svo annað mál að myndin er daufleg á
köflum, einsog oft er raunin á með sjónvarpsmyndir, en á móti kemur
að skapgerðarleikarar fá að njóa sín og sagan líka.
MJA
Vidbjóður í vönd
uðum umbúðum
Miðvikudagur
2. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Leikfimi. Tilkynningar.
8.00 Fréttir Tilkynningar
8.15 Veðurlregnir.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sætukoppur“ eftir Judy Blume
Bryndís Víglundsdóttir les þýðingu
sina (5)
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál Endurtekinn þátt-
ur Sigurðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veöurfregnir
10.30 Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna.
10.40 Land og saga Umsjón: Ragnar
Ágústsson
11.10 Úr atvinnulífinu - Sjávarút-
vegur og fiskvinnsla Umsjón:
Gísli Jón Kristjánsson.
11.30 Morguntónleikar a. Konsert í
C-dúr op 7. nr. 3 fyrir óbó og
strengjasveit eftir Jean Marie
Leclair. Heinz Holliger leikur með
Ríkishljómsveitinni í Dresden. Vitt-
orio Negri stjórnar. b. Branden-
borgarkonsert nr. 31 Gdúr eftir J.S.
Bach. Hljómsveitin „The English
Consert" leikur. Trevor Pinnock
stjórnar.
12.00 Dagskrá Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar
13.30 Inn og út um gluggann
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
14.00 „Á ströndinni“ eftir Nevil
Shute Njörður P. Njarðvík les
þýðingu sina (9).
14.30 Óperettutónleikar a. „Skáld
og bóndi“, forleikur eftir Franz von
Suppé. Sinfóníuhljómsveitin í Fíla-
delfíu leikur Eugene Ormandy
stjórnar. b. Dúett úr „Die Czardas-
furstin" eftir Emmerich Kálman.
Fritz Wunderlich og Renate Holm
syngja með hljómsveit undir stjórn
Franz Marszaleks. c. Þættir úr
óperettunni „Kátu konurnar frá
Windsor" eftir Otto Nicolai. Edith
Mathis, Kurt Moll o.fl syngja með
hljómsveit Ríkisóperunnar í
Berlín. Bernard Klee stjórnar.
15.15 Sveitin min Umsjón: Hilda
Torfadóttir. RúvAk.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.15 Veöurfregnir
16.20 Síðdegistónleikar Fiölukons-
ert í D-dúr op. 77 eftir Johannes
Brahms. Zino Francescatti leikur
með Fílharmoniusveitinni í New
York. Leonard Bernstein stjórnar.
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Kristín Helgadóttir.
17.40 Síðdegisútvarp Sverrir Gauti
Diego. Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur Sigrún
Helgadóttir flytur.
19.50 Tónleikar.
20.00 Popphólfið
20.30 íþróttir Umsjón: Ingólfur Hann-
esson.
20.50 Hljómplöturabb
21.30 Flakkað um italíu Thor Vil-
hjálmsson flytur frumsamda ferða-
þætti (5).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Bókaþáttur. Umsjón: Njörðúr
P. NJarðvík.
23.05 A óperusviðinu. Umsjón: Leif-
ur Þórarinsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
2. október
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson
14.00-15.00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón
Axel Ólafsson
15.00-16.00 Nú er lag Gömul og ný
úrvalslög að hætti hússins. Stjórn-
andi: Gunnar Salvarsson
.16.00-17.00 Chicago, Chicago,
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
17.00-18.00 Úr kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin af
konum. Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja minútna fréttir sagöar
klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00
Miðvikudagur
2. október
19.25 Aftanstund Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni. i Sögu-
horni segir Anna Sigríður Árna-
dóttir norskt ævintýri um Drenginn
og norðanvindinn. Myndskreyt-
ing er eftir Svend Otto S., Maður
er manns gaman og Forðum
okkur háska frá - teiknimynda-
flokkur frá Tékkóslóvakíu um það
sem ekki má I umferðinni. Þýðandi
Baldur Sigurðsson, sögumaður:
Sigrún Edda Björnsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Fegurðardrottning Norður-
landa Mynd frá fegurðarsam-
keppni um titilinn Ungfrú Skandi-
navía. Keppnin var haldin I Hel-
sinki í Finnlandi þann 15. septem-
ber síðastliðinn.
21.30 Dallas Elsku mamma Banda-
riskur framhaldsmyndaflokkur.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.20 Þjóðverjar og heimsstyrjöld-
in síðari (Die Deutschen im Zweit-
en Weltkrieg) 4. Undanhald á
öllum vígstöðvum. Nýr þýskur
heimildamyndaflokkur i sex þátt-
um sem lýsir gangi heimsstyrjald-
arinnar 1939-1945 af sjónarhóli
Þjóðverja. Þýðandi Veturliði
Guðnason. Þulir: Guðmundur Ingi
Kristjánsson og Maria Mariusdótt-
ir.
23.50 Fréttir í dagskrárlok.
Chained Heat ★
Aðalhlutverk: Linda Blair, John
Vernon, Sybil Danning, Tamara
Dobson, Stella Stevens
Leikstjóri: Paul Nicholas
Lengd: u.þ.b. 100 mínútur
■ Þessi mynd fjallar um dvöl
fanga í stóru kvennafangelsi.
Flestar hafa konurnar hlotið
langa dóma fyrir alvarlega glæpi.
í fangelsinu ræður ofbeldið
ríkjum, en spillingunni er stjórn-
að af fangelsisstjóranum sjálfum
og starfsmönnum hans. Fylgst er
með nýliðanum i hópnum, sem
leikin er af Lindu Blair. Hún er
venjuleg stúlka í fyrstu og lítur á fangelsisvistina sem martröð, sem
hún og er. Þegar fram í sækir verður þessi stúlka eins og hinar,
hörkukvendi sem svífst einskis í þessum harða hcimi.
Myndin fjallar sem sagt um eiturlyf, nauðganir, morð og ýmiss konar
ónáttúru. Hún gerir það aukinheldur á mjög sánnfærandi hátt, þannig
að áhorfandi verður agndofa um stund og spyr sig hvað hefur vakað
fyrir kvikmyndagerðarmönnunum.
Myndin er tæknilega afbragðsgóð, en það gerir viðfangsefnið enn
óhugnanlegra.
Þeir sem hafa ánægju af því að horfa á varnarlausar konur
niðurlægðar og myrtar finna hér svo sannarlega eitthvað viö sitt hæfi,
en hinir ættu að láta þessa mynd fram hjá sér fara. Því að kynlíf og
ofbeldi hafa hvert um sig hlutverki að gegna í kvimyndum við
ákveönar aðstæður, en þegar þetta tvennt fer saman þá verður
útkoman versta tegund af klámi.
Að vísu rísa konurnar upp að lokum og drepa nokkra karla á hinn
hroðalegasta hátt, en það gerir myndina ekki á nokkurn hátt geðslegri.
Sem sagt, hér er á ferðinni viðbjóður í vönduðum umbúðum.
MJA