NT - 24.10.1985, Page 16

NT - 24.10.1985, Page 16
flokksstarf Fimmtudagur 24. október 1985 16 Aðalfundur framsóknarfélaganna á Snæfellsnesi veröur haldinn í Safnaðarheimilinu Grundar- firöi föstudaginn 25. október kl. 21.00 Stjórnin Vestur Húnvetningar Stefán Guömundsson, alþingismaöur veröur til viðtals í Félagsheimili Hvammstanga föstudaginn 25. þ.m. kl. 16-19. Suðurnes Svæöisráö framsóknarmanna á Suöurnesjum verður með hádegisveröarfund á Glóöinni Keflavík sunnudaginn 27. okt. n.k. kl. 12-14. Guðmundur Bjarnason alþingismaöur mætir. Allir velkomnir. S.F.S. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Heldur afmælisgleöi 31. október n.k. aö Hótel Heklu kl. 19.00. Heitur réttur - kaffi. Skemmtiatriöi úr ýmsum áttum, glens og gaman. Mætum allar. Tilkynniö þátttöku til Þórunnar í síma 24480. S.U.F. - Miðstjórn Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna, haldinn á Blönduósi 2. og 3. nóvember 1985. Dagskrá: Laugardagur: 1. Kl. 13:00 - Setning. Formaður S.U.F., Finnur Ingólfsson. 2. Kl. 13:10 - Kosnir starfsmenn þingsins. a) Fundarstjóri. b) Fundarritari. 3. Kl. 13:15 - Skýrsla stjórnar og umræöa um hana. 4. Kl. 13:45- Framsögur. a) Jafnrétti milli landshluta. Þóröur Ingvi Guðmundsson. b) Heilbrigðis- og tryggingamál. Magnús Ólafsson. c) Menntamál. Bolli Héðinsson. 5. Kl. 14:30 - Umræður og fyrirspurnir. 6. Kl. 15:30 - Nefndarstörf. 7. Kl. 18:00 - Fundi frestað. Sunnudagur: 1. Kl. 10:00 - Nefndir skila áliti. 2. Kl. 12:00 - Önnur mál. Húnvetningar - miðstjórnargestir FUF A-Hún. heldur upp á 45 ára afmæli sitt laugardaginn 2. nóvember kl. 21 í Félagsheimilinu Blönduósi, dagskrá: 1. Kaffiveitingar 2. Ávörp, Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólísson formaöur SUF. 3. Jóhann Már Jóhannsson syngur við undirleik Sigurðar Daníelssonar 4. Óvæntar uppákomur o.fl. Veislustjóri veröur Björn Magnússon, bóndi Hólabakka, hljómsveitin Rót frá Sauðárkróki leikur fyrir dansi. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Stjórn FUF A-Hún. Viðtalstímar Halldór E. Sigurðsson verður til viðtals á skrifstofu félagsins að Rauðarárstíg 18, mánudaga til fimmtudags kl. 13.30- 15.30, fyrst um sinn. Jt Framsóknarfélag Reykjavíkur. iVi Konur víða um heim: Fara að dæmi ís- lenskra kvenna og ætla að leggja niður vinnu 24. október Borgarnes í lok kvennaáratugar: Opið hús í Hótelinu 24. október ■ Konur og kvennasamtök hafa hrifist mjög af samstöðu íslenskra kvenna 24. október fyrir 10 árum er þær lögöu niður vinnu og héldu 25 þúsund manna fund á Lækjartorgi. Samtök kvenna í Bretlandi, konur sem eru sjálfstæðir at- vinnurekendur á Indlandi, bændakonur í Hollandi, iðn- verkakonur í Trinidad, blaða- konur í Ghana og fleiri hafa ákvcðið að gera slíkt hið sama og leggja niður vinnu á degi Sameinuðu þjóðanna. „Gerum störf kvenna sýnileg, Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóöanna vinna konur 2/3 starfa í heiminum, fá aðeins 5% allra tekna í heiminum og eiga minna en 1% af eignum heims- ins. Tökum okkur frí 24. októ- ber til að þrýsta ríkisstjórnir allra landa til að telja vinnu kvenna með í tölum um þjóðar- tekjur, bæði launaða vinnu kvenna og ólaunaða. Tökum okkur frí til að halda upp á 10 ára afmæli kvennafrídagsins á íslandi. Slagorð íslenskra kvenna voru: „Þegar konur leggja niöur vinnu, leggst allt atvinnulíf niður“ og ajlt atvinnulíf lagðist niður á Islandi. Tökum okkur frí til að efla mátt jafnréttisbar- áttunnar," segir í hvatningar- bréfi frá alþjóðlegum kvenna- samtökum „International Wag- es for Housework Gampaign" sem hafa meðal annars aðsetur í London. Samtök þessi hafa einnig farið af stað með undirskriftasöfnun frá konum alls staðar að í heim- inum til ríkisstjórna allra landa þar sem þess er krafist að launuð og ólaunuð vinna kvenna verði tekin inn í dæmið þegar þjóðar- tekjur hvers lands eru reiknaðar út. - almenn þátttaka kvenna í að leggja niður vinnu ■ Samtök kvenna á vinnumarkaðinum vilja eindregið hvetja allar konur til að fjölmenna á útifundinn á Lækjartorgi og gera daginn jafn eftirminnilegan og 1975. í tilefni 24. október ■ Selfoss. Konur á Selfossi ætla að fjölmenna til Reykja- víkur á útifundinn á Lækjartorgi 24. október. Rútuferð verður frá Selfossi kl. 12.45 og eru allar konur á Selfossi og í nágrenni eindregið hvatt- ar til að taka þátt. Hjúkrunarfélag íslands og Félag háskólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga. Ofangreind félög hvetja félaga sína til að taka þátt í dagskrá kvenna 24. októ- ber, eftir því sem ástæður leyfa. Hjúkrunarfræðing- ar eru líka hvattir til að hagræða störfum sínum þannig að sem flestir j þeirra geti mætt á útifund- inn á Lækjartorgi. Samtök kvenna á vinnumarkaði: Hvetja konur til kvennaverkfalls Jon Agnar Kj>(>ertsson - frcllaritari NT í Hor|>urnesi. ■ I tilefni loka kvennaára- tugar Sameinuðu þjóðanna, 24. október n.k. ætlar jafnrétt- isnefndin í Borgarnesi að standa fyrir opnu húsi kl. 20.30 í Hótcl Borgarnesi. Dagskráin verður hin fjöl- breyttasta, bæði gaman og al- vara. Að henni hafa starfað félagar úr Kvenfélagi Borgar- ness. leikdeild Ungmennafé- lagsins Skallagríms, félagar úr Tónlistarskólanum, Kvenna- listanum og konur víða úr héraðinu. Einnig er ætlunin að sýna ýmis listaverk eftir 10-12 konur um kvöldið. Að sögn MargrétarTryggva- dóttur, formanns Jafnréttis- nefndar Borgarness virðist ætla að verða almenn þátttaka hjá konum á svæðinu að leggja niður vinnu í Borgarnesi þann 24. októbcr. ■ Samtök kvenna á vinnu- markápinum vilja eindregið hvetja allar konur til að leggja niður vinnu 24. október í lok kvennaáratugarins. Samtökin telja ekki síður nauðsynlegt nú en fyrir tíu árum segir í frétt frá þeim að konur berjist fyrir kjörum sínum og réttindum og þau benda á að konur vinni í langflestum tilfell- um láglaunastörf þrátt fyrir sí- auknar kröfur um menntun. Þá vilja Samtökin einnig hvetja allar konur segir í frétt- inni að halda vöku sinni þó hinum svokallaða kvennaáratug sé að Ijúka og standa saman að öllum hagsmunamálum kvenna og þau vilja einnig setja það á oddinn nú að það séu mannrétt- indi að konurgeti framfleytt sér af launum sínum. Framkvæmdanefnd um launamál kvenna hvetur einnig allar konur til að leggja niður vinnu þann 24. október til að mótmæla vanmati á hinum liefð- bundnu kvennastörfum og er einnig hinum gífurlega launa- mismun karla og kvenna segir í frétt frá nefndinni. Nefndin vill einnig hvetja all- ar konur til að mæta á útifund- inn á Lækjartorgi og svo á sýningu '85 nefndarinnar á störfum kvenna í nýja Seðla- bankahúsinu sem verður haldin 24.-31. október. Nýskipaðir sendiherrar ■ Nýskipaður sendiherra Ví- etnam, hr. Luu Quy Tan og nýskipaöur sendiherra Venez- uela dr. Fernando Baez Duar- te, afhentu forseta íslands trúnaðarbréf sín þann 8. október síðastliðinn, að við- stöddum Geir Hallgrímssyni utanríkisráðherra. Sendiherra Víetnam hefur aðsetur í Stokk- hólmi en sendiherra Venez- uela í Osló. Ljósm: Cunnar Vigfússon

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.