NT


NT - 24.10.1985, Side 19

NT - 24.10.1985, Side 19
' ' ' ' 8 wliil Þorgiis Óttar fór á kostum gegn Svisslendingum í gær og gerði 8 mörk. Hér skorar hann gegn Svíum í landsleik. NT-mynd: Sverrir. Evrópukeppni bikarhafa: Alltgekkaðóskum fram að lokakafla - leiks Rapid Vín og Fram - Þá skoraði Pacult tvívegis og draumurinn er líklega úti Fimmtudagur 24. október 1985 19 íþróttir Handknattleikur, Sviss A-ísland: Rölt yfir Sviss í seinni hálfleik íslenska liðið lék vel í seinni hálfleik og sigraði Sviss A-lið með 26 mörkum gegn 17 ■ Stórgóður varnarleikur ís- lenska landsliðsins í handknatt- leik ásamt góðri markvörslu og þruniuleik Þorgils Óttars tryggðu landanum öruggan sig- ur á Svisslendingum í opnunar- leiknum á handknattleiksmót- inu í Sviss. Lokatölur urðu 26-17 fyrir ísland eftir að staðan í leikhléi hafði verið 9-8 landan- um í vil. Þetta var fyrsti leikur íslands í þessu æfingamóti sem nú stendur yfir í Sviss en á því keppa A og B-lið Sviss, Svíar, Rúmenar og A-Þjóðverjar. í dag spila íslendingar við Rúm- ena. Leikurinn var jafn til að byrja með. íslendingar höfðu þó frumkvæðið mest allan tímann og var það mest að þakka þeim Atla Hilmarssyni og Þorgils Ótt- ari sem skoruðu rnikið. Svissar- ar fylgdu þó fast á eftir enda vörn íslenska liðsins ekki uppá það besta. Staðan í hléi var síðan 9-8 fyrir ísland. I síðari hálfleik byrjuðu Sviss- arar á að skora og jafnt var 12-12 en þá sögðu íslendingar hingað og ekki lengra. Vörnin tók sig saman í andlitinu og Þorgils fór á kostum. Hann skoraði þrjú mörk í röð er staðan var 13-15 og skyndilega höfðu íslendingar náð 6 marka forskoti og leikurinn var úti. Það var vörnin sem small saman ásamt Einari í markinu en hann varði allan tímann. Þorgils fór á kostum í leiknum og spilaði frábærlega. Hann gerði 8 mörk. Atli og Kristján Arason skoruðu 5 livor og Sig- urður Gunnarsson og Jakob Sig- urðsson skoruðu 3. Jakob kom inná í seinni hálfleik og lék vel. Bjarni Guðmundsson og Geir Sveinsson gerðu hvor sitt markið. Ástralar unnu ■ Knattspyrnulandslið þeirra Ástrala vann stór- sigur á Taiwan í gær. Leikurinn var liður í undankeppni heims- ineistaramótsins og end- aði 7-0 fyrir heiinamenn sem nú eiga góða mögu- leika á elsta sætinu i Eyjaálfuriðlinum. Ef svo fer inæta þeir Skotum og verður slegist um sæti í úrslitakeppninni í Mexíkó scm frani fer á næsta ári. Staðan í Eyjaálfuriðlinum er annars þessi: Ástralía 4 2 2 0 10 2 6 ísrael 4 2 1 1 13 3 5 Nýja Sjáland 3 2 1 0 10 15 Taiwan 5 0 0 5 1 28 0 Lyfjamál: Hörð gagnrýni - á Andonovu í Búlgaríu fyrir lyf janotkun ■ Líklega mun nú góður norðanbylur ekki geta hjálpað Frömurum í 8. liða úrslit Evópu- keppni bikarhafa þann 6. nóv- ember n.k. Liðið tapaði fyrri viðureign sinni gegn Rapid Vín í gærkvöldi 3-0 en leikið var á Gerhard Hanappi vellinum í Vín- arborg. Leikmenn Fram stóðu sig vel en tvö mörk á lokamínút- unum tryggðu Austurríkis- mönnunum gott veganesti í síð- ari leikinn. Rapid Vín byrjaði leikinn með miklum látum en Framarar ■ Friðrík var betrí en enginn í markinu í gær. ■ „Þetta var frekar erfiður leikur en ég er ánægður með mannskapinn í heildina þó svo frekar leiðinlegt hefði verið að fá á sig síðustu tvö mörkin," sagði Asgeir Elíasson, þjálfari og leikmaður Framara, í samtali við NT í gærkvöldi eftir leikinn við Rapid Vín. Hvernig léku þeir austur- rísku? „Svona frekar eins og við var að búast, mikið um stutt þríhyrningaspil en frekar hægur bolti í heildina. Mörk þeirra svöruðu með að þétta vörn sína fyrir utan vítateiginn. Strax á 7. mínútu átti Haliovic góðan skalla að marki en boltinn fór rétt fram hjá. Austurríska liðið lék skemmtilega í byrjun og voru Júgóslavarnir í liðinu at- kvæðamiklir. Kranjcar ogBruc- ic stjórnuðu spilinu og reyndu, eins og góðum miðjumönnum sæmir, að breyta um takt í sóknaraðgerðum. Leikmenn liðsins voru þó helst til of tauga- strekktir og Framarar byrjuðu að losa sig úr nauðvörninni. Á 14. mínútu lék Guðmundur Steinsson á nokkra mótherja og gaf á Ómar, en skot hans geig- aði. Stuttu síðar átti Guðmund- ur Torfason þrumuskot að marki en beint á landsliðsmark- vörðinn Konsel. En á 18. mín- útu skorar Kranjcar fyrir Rapid Vín. Hann hóf sóknina og fékk síðan góðan bolta inn fyrir og sendi hann í netið, þrátt fyrir góða varnartilburði Sverris. Framarar létu ekki bugast og fóru smám saman að koma meira inn í myndina. Ómar fékk tækifæri eftir samleik við Pétur Ormslev og Guðmund- arnir voru óhræddir við að taka á sig bolta og leika á menn, hinsvegar varði Friðrik af snilld komu ekki upp úr neinum glæsi- legheitum - voru frekar afleið- ing mikillar pressu sem kom frá þeim á köflum,“ sagði Ásgeir sem taldi Júgganna í liði Rapid Vín hafa mestu áhrifin innan liðsins. „Það jákvæða við leik okkar er að við hefðum með smá heppni getað skorað eitt eða tvö mörk. Guðmundarnirvoru báð- ir í góðu formi í framlínunni og urðu sér út um tækifæri,“ bætti Ásgeir við að lokum. undir lok hálfleiksins og sá til þess að hans lið fór ánægt af velli í hvíldina. í síðari hálfleik byrjuðu Framarar af grimmd og Guð- mundur Torfason komst fljót- lega í upplagt tækifæri. Hann lék á varnarmann upp við enda- mörk en skaut hátt yfir af mark- teigshorninu. íslendingarnir héldu áfram að berjast af krafti með vörn sína geysisterka og ■ Það voru v-þýsk lið sem slógu í gegn í keppnunum í gær. Bayern Munchen lagði austur- ríska liðið Austria Vín með fjórum mörkum gegn tveimur í Bæjaralandi. Sá sem fór á kost- um í þeim leik var Reinhold Mathy en hann skoraði þrennu fyrir Bæjara. Bayern hafði yfir- burði í leiknum. Bayer Uerdingen með þá Atla og Lárus í fararbroddi Enskur bolti ■ Leikið var í Englandi í gærkvöldi. Norwich sigraði Everton mjög óvænt í Super Cup- keppni þeirra Englend- inga með einu marki gegn engu. í 3. deild gerðist það loksins að Reading tapaði stigi. Það voru Úlfarnir sem urðu fyrstir til að ná stigi gegn Read- ing. Leikurinn endaði 2- 2. Peter Mendham skor- aði fyrir Norwich í sigrin- um óvænta. vel skipulagða. Okkar menn voru sterkari í skallaboltanum og sóknir Rapid urðu nokkuð einhæfar. Allt lék í lyndi hjá okkar mönnum. En á síðustu 10. mínútunum var sem þrekið brysti og heima- menn gengu á lagið með vara- manninn Peter Pacult í broddi fylkingar. Hann skoraði tvívegis á þessum lokakafla og innsiglaði sigur síns liðs. sigraði tyrkneska liðið Galatasaray 2-0 með mörkum frá Schaefer og Bommer.Léttur leikur. Pierre Littbarski skoraði tvö mörk fyrir Kölnara er þeir rúll- uðu upp Bohemians Prag 4-0 í UEFÁ-keppninni. „Gladbach" náði jafntefli gegn Sparta Rotterdam frá Hollandi á útivelli, 1-1. Hol- lendingar höfðu yfir en Pinkall jafnaði. Verona og Juventus öttu kappi saman í Meistarakeppn- inni en tókst ekki að skora mark. Leikurinn var heldur daufur og endaði 0-0. Finnska liðið Lahti hræddi lífið úr Zenit frá Sovétríkjunum með því að ná forystu og það var ekki fyrr en á 90. mín. Zenit náði að skora sigurmarkið. Nantes, sem lagði Val að velli í fyrstu umferð, gerði jafntefli gegn Partizan Belgrade. Le Roux skoraði sjálfsmark en Halilhodzic jafnaði. Mark Hateley skoraði annað mark Mílanó gegn Lok Leipzig í 2-0 sigri þeirra ítölsku. ■ Yfirvöld í Búlgaríu hafa harðlega gagnrýnt heimsmct- hafann í hástökki kvenna Lúd- millu Andonovu og gefið í skyn að hún gæti þurft að svara til saka fyrir dómstólum. Andonova fékk lífstíðarbann frá íþróttakeppnum eftir aö hafa verið fundin sek um lyfja- notkun á Grand Prix móti í London í júlí síðastliðnum. Blað búlgarska kommúnista- flokksins, Rabotnichesko Delo sagði Andonovu og þjálfara hennar hafa gert sig sek um „stórsvik við allan íþróttaanda“ og að framkoma þeirra væri með öllu óafsakanleg. Blaðið hélt því fram að Ándonova hefði notað amfetamín en þetta var í fyrsta sinn sem fjallað var opinberlega um mál Andonovu í Búlgaríu. í þessari gagnrýni var einnig gefið í skyn að ekki yrði sótt um náðun til handa Andónóvu en vaninn er að íþróttamenn geti aftur byrjað að keppa eftir 18 mánuði ef þeir sækja um náðun hjá sínum alþjóðasamböndum. Karfa í kvöld ■ í kvöld leika Haukar og K.R. í úrvalsdeildinni í körfu og hefst leikurinn kl. 20.00 í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Úrslit í Evrópukeppnunum: Evrópukeppni meistaraliða: Anderlecht, Belgíu-Omonia, Kýpur...................................... 1-0 Barcelona, Spáni-Porto, Portúgal...................................... 2-0 Bayern Múnchen, V-Þýskal.-Austria Vín, Austurr......................... 4-2 Honved, Ungverjal-Steaua, Rúmeníu .................................... 1-0 Gautaborg, Svíþjóð-Fenerbache, Tyrklandi............................... 4-0 Verona, Ítalíu-Juventus, Ítalíu.............................. ........ 0-0 Zenet Leningrad, Sovótr.-Lahti, Finnlandi.............................. 2-1 Servette, Sviss-Aberdeen, Skotlandi................................... 0-0 Evrópukeppni bikarhafa: Dukla Prag, Tókkóslóvakíu-AIK, Svíþjóð ............................... 1-0 Benfica, Portúgal-Sampdoria, ítaliu .................................. 2-0 Rapid Vín, Austurr-Fram, íslandi ..................................... 3-0 Lyngby, Danmörku-Red Star, Júgóslavíu................................. 2-2 Craiova, Rúmeníu-Dynamo Kiev, Sovótr.................................. 2-2 Bangor, Wales-Atletico Madrid, Spáni.................................. 0-2 Helsinki, Finnlandi-Dynamo Dresden, A-Þýskal ......................... 1-0 Uerdingen, V-Þýskalandi-Galatasaray, Tyrklandi........................ 2-0 UEFA-keppnin: PSV, Hollandi-Dnepropetrovsk, Sovótr.................................. 2-2 Waregem, Belgíu-Osasuna, Spáni........................................ 2-0 AC Milanó, Ítalíu-Lok Leizig, A-Þýskal................................ 2-0 Partizan Belgrad, Júgóslavíu-Nantes, Frakklandi....................... 1-1 Linz, Austurr-Inter Mílanó, Ítalíu/................................... 1-0 Köln, V-Þýskal-Bohemians Prag, Tókkó.................................. 4-0 Dundee Utd, Skotlandi-Vardar Skopje, Júgósl........................... 2-0 Spartak Moskva, Sovótr-Brugge, Belgíu................................. 1-0 Real Madrid, Spáni-Odessa, Sovótr..................................... 2-1 Videoton, Ungverjal-Legía Varsjá, Póllandi............................ 0-1 Hammarby, Svíþjóð-St. Mirren, Skotlandi ........ ..................... 3-3 Sparta, Hollandi-„Gladbach“, V-Þýskal ................................ 1-1 Lokomotiv Sofía, Búlgaríu-Neuchatel, Sviss............................. 1-1 Liege, Belgíu-Athletico Bilbao, Spáni.................................. 0-1 Tóríno, Ítalíu-Hajduk Split, Júgósl .................................. 1-1 Dynamo Tirana, Albaníu-Sporting, Portúgal ............................ 0-0 „Gátum skorað“ - sagði Ásgeir Elíasson þjálfari Fram eftir leikinn í gærkvöldi Evrópukeppnirnar í knattspyrnu: V-þýsku liðin áttu góðan dag - Uerdingen, Köln og Bayern sigruðu öil - Jafnt í Italíuslagnum

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.