Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Page 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. nóvember 2004 | 5
F
yrsta einkasýning Þórdísar hjá
Stefan Stux galleríi í Chelsea,
sem haldin var haustið eftir
að hún útskrifaðist frá the
School of Visual Arts, gekk
mjög vel og var henni boðið
að halda aðra sýningu strax að ári. Stux hafði
kynnst verkum Þórdísar á vinnustofusýningu
meistaranámsdeildar skólans, boðið henni
þátttöku í samsýningu gallerísins þá þegar og
síðan einkasýningu. Banda-
ríski listgagnrýnandinn
Gregory Volk skrifaði dóm
um sýninguna sem birtist í
tímaritinu Art in America í
vor, þar sem hann segir Þórdísi áhrifamikinn
íslenskan málara.
Það að halda tvær einkasýningar með árs
millibili telst óvenjulegt því alla jafna líða að
minnsta kosti 2 ár á milli sýninga listamanna
hjá galleríum sínum.
Sýning Þórdísar nú í nóvember verður
jafnframt vígslusýning gallerísins í nýjum og
stærri húsakynnum á 25. stræti. Þar sýnir
hún bæði málverk og myndbandsverk. Í sum-
ar tók hún þátt í 4 samsýningum; 2 í New
York og einni í Los Angeles, auk þess sem
hún var ein 6 listamanna sem valdir voru til
að vinna útilistaverk á vegum Art Omi lista-
miðstöðvarinnar; stærðar skilti sem sett voru
upp í skógi upp með Hudson-ánni, norðan við
New York.
Á næsta ári stendur til að Þórdís haldi sína
fyrstu einkasýningu á Íslandi, hjá Galleríi
101, auk þess sem hún tekur þátt í samsýn-
ingum í Kanada, Danmörku og Austurríki.
Þórdís hefur því mátt hafa sig alla við að
vinna verk sín frá því að hún lauk námi en er
hógvær og segist varla hafa gefið sér tíma til
að velta fyrir sér árangrinum.
Á mörkum veruleika og furðusagna
Málverk Þórdísar er í senn persónuleg um
leið og þau vísa til frásagna úr ýmsum áttum,
jafnt skáldsögum sem fréttum og sögulegum
heimildum. Þó frásagnir verkanna séu af ólík-
um toga má finna ákveðin þemu í þeim öllum;
persónurnar eru oftar en ekki útaf liggjandi í
óræðu rými, starandi fram eins í hálfgerðu
móki, gjarnan í félagsskap katta og hunda.
Hún segist aldrei skissa en að hugmyndirnar
séu frekar fullmótaðar þegar hún hefjist
handa við verkin. „Ég vil ekki einu sinni
segja frá hugmyndinni að næsta verki fyr-
irfram, hvað þá skissa hana, því þá myndi ég
hreinlega missa áhugann á að vinna verkið,“
segir Þórdís.
Síðasta árið hefur Þórdís til dæmis verið að
lesa sér til í Gamla testamentinu þar sem hún
segist hafa hrifist af furðusagnakenndum
heimi. „Þessi texti er svo fallega skrifaður og
mannlegum tilfinningum lýst svo vel, bæði
einlægri góðmennsku og hrárri grimmd,“
segir Þórdís. „Það er hins vegar sérkennilegt
til þess að hugsa að fólk skuli taka þessum
sögum svo bókstaflega og líta á sem skýrar
leiðbeiningar í hegðun. Það sem vakti því
meðal annars fyrir mér þegar ég ákvað að
mála 12 mynda seríu sem byggist á völdum
frásögnum úr Biblíunni var að benda á að þar
er fræði og skemmtigildi svo miklu fremur
einhverjum sannleik sem hægt er að leggja
lífsreglur með.“
Það sem einkennir verk Þórdísar í heild er
hversu vel henni tekst að tengja saman
þyngd og léttleika, setja fram persónur sem
eru í senn einmana og ámátlegar, grimmar
og góðlegar, kynferðislegar og fyndnar.
Myndbyggingin er einföld og myndflöt-
urinn vísvitandi sneyddur allri dýpt. Litir
verkanna byggjast á samspili þyngri, oft
grágruggugra tóna og ljósra lita; húðbleikra,
myntugrænna og hvítgulra.
Í verkinu „Sofandi kona“ liggur kona neð-
an við tómlegan hvítan múrsteinsvegg í
dæmigerðri sumarmollu stórborgarinnar.
„Moskítófluga sýgur blóð úr vör ungu kon-
unnar sem dreymir kossa á meðan,“ útskýrir
Þórdís. Þyngri tón kveður við í verkinu
„Kona, fugl og eggjastokkar.“ Það sem úr
fjarska virðist trjágrein í fuglsmunni reynist
vera eggjastokkar konu sem horfir í angist á
eftir fuglinum.
Myndefnið er henni heillandi en Þórdís
hafði áður málað verk sem sýndi hrút færa
konu eggjastokka og konu skríðandi á eftir
hlaupandi fugli með eggjastokka. Litirnir í
verkinu eru mjúkir og aðlaðandi, sem ásamt
ýktum skelfingarsvip konunnar, ljær verkinu
léttleika sem kallast á við alvarleika viðfangs-
efnisins og virðist vera dæmigert fyrir nálgun
Þórdísar í flestum verkum sínum.
Varð persónulegri
í fjölmenninu
Stóreygðar fígúrurnar með kræklóttu útlim-
ina hefur hún verið að þróa frá því að þær
hófu fyrst að skjóta upp kollinum í Barce-
lóna, þar sem Þórdís dvaldi sem skiptinemi
síðasta veturinn sinn við MHÍ. Síðan þá segir
hún frásögnina hafa orðið bæði skýrari og
persónulegri. „Ég kom til New York rúmu
ári áður en ég hóf framhaldsnám hér og fann
þá hvað einveran hafði góð áhrif á mig. Hér
var enginn að fylgjast með því sem ég var að
gera sem varð til þess að ég fór að þora að
verða persónulegri í verkum mínum,“ segir
Þórdís.
„Hins vegar fór ég ekki að taka viðfangs-
efnið alvarlega fyrr en ég byrjaði í skólanum
og það var mjög erfitt til að byrja með því
allt í einu var ég farin að vinna fyrir augum
svo margra aftur. Smám saman lærðist mér
að ég þyrfti að standa með verkum mínum.“
Dagbókartexti vafinn lygum
Kveikjan að myndbandsverkunum, sem verða
á sýningu Þórdísar nú ásamt málverkunum,
voru sendibréf í myndbandsformi til vinkonu
heima á Íslandi. Þau sýna hversdagsleg brot
úr degi undir flutningi texta sem saminn er
af Þórdísi. Þar eins og í málverkunum bland-
ast saman persónulegar vangaveltur, frá-
sagnir úr ýmsum áttum og svartur húmor.
„Það má segja að þetta sé dagbókartexti vaf-
inn lygum, þar sem erfitt er að greina á
milli,“ segir Þórdís. „Ég lýsi því hvernig mér
líður á milli þess sem ég spinn upp sögur.“
Í öðru verkinu situr Þórdís í baði og hreyf-
ir munninn í takt við dimma karlmannsrödd
sem stautar sig fram úr íslenskum texta,
greinilega ómælandi á íslenska tungu.
Fyrir þá sem á annað borð skilja íslensku
verða orðin því stundum að óskiljanlegu
babli, fyrir enskumælandi verður upplifunin
væntanlega slík að öllu leyti. Í hinu verkinu
dregur hún upp mynd af efa og eirðarleysi
listamannsins á grátbroslegan hátt, þar sem
hún stendur uppi í sófa og hoppar. Tengsl
þessara verka við málverkin felast í lýsingum
á einmanakennd manneskja sem virðast lok-
aðar inni í eigin hugarheimi en alltaf með
mátulegum skammti af húmor fyrir þessari í
raun dekurlegu eymd.
Sannleikur vafinn lygum
Þórdís Aðalsteinsdóttir lauk framhaldsnámi í
myndlist í New York fyrir einu og hálfu ári
og opnar sína aðra einkasýningu ytra nú í
nóvember, nokkuð sem verður að teljast
merkilega skjót framganga í svo hörðu sam-
keppnisumhverfi sem borgin reynist lista-
mönnum. Greinarhöfundur heimsótti Þórdísi
í vinnustofu hennar í Chelsea.
Eftir Huldu
Stefánsdóttur
huldastefansdott-
ir@yahoo.com
„Tveir menn slást um það sem veitir þeim
ánægju“ er nú til sýnis í New York. Þórdís Aðalsteinsdóttir myndlistarmaður.
Höfundur er myndlistarmaður, búsett í New York.
Morgunblaðið/Hulda Stefánsdóttir
Úr vinnustofu Þórdísar þar sem m.a. má sjá 9 af 12 mynda röð sporöskjulaga verka sem byggja á frásögnum úr Gamla textamentinu.
„Cynthia“, verk á sýningu Þórdísar hjá Stux Gall-
eríi á síðasta ári.