Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.2004, Síða 7
ógnvekjandi frá sjónarhóli nútímans. Ég reyni líka að draga upp breiða mynd af manneskjum, heimsækja mörg hús, staði og hugskot. Ég vona að það skíni í gegn að mér þykir vænt um per- sónur mínar og er ekki að fella dóm yfir skoð- unum þeirra eða gjörðum, réttum eða röngum. Þær hafa veitt mér ánægju og vonandi hef ég endurgoldið þeim það með einhverjum hætti. Eins mikið og það er yfir höfuð hægt. Maður verður að einsetja sér að nálgast fortíðina á frjóan og fordómalausan hátt. Reyna að snið- ganga klisjur og gleyma því aldrei að maður horfir úr nútímanum. Það er hins vegar orðin póstmódernísk klisja að „nútímasögumaður“ stígi inn í fortíðina og valsi þar um með kald- hæðni og fyrirlitningu, vopnaður þeirri vitn- eskju sem aðskilur „tímana tvo“. Ég kaus fremur að vera samstiga persónun- um, að því marki sem það er yfirhöfuð hægt. Höfundur „sögulegs“ verks er að sjálfsögðu ávallt sprottinn upp úr öðru tímaskeiði, það er óhjákvæmilegt, og skilningur hans og sýn markast af þeirri staðsetningu. Tilgangur hans hlýtur þó að vera sá að reyna að skilja liðna at- burði nýjum skilningi. Annars er hann ekki að bæta neinu við, er aðeins þiggjandi að skilningi fyrri tíma. Sumir, sem lásu verkið á handrita- stigi, töluðu t.d. um að þar færi fram „óhefð- bundin“ söguskoðun og „afhelgun“ á hernáminu og hinni viðurkenndu afstöðu til hernámsliðs- ins. Ég er ánægður ef það tekst, þótt ekki væri nema að litlu leyti, þrátt fyrir að það sé ekki að- alviðfangsefni þessarar bókar. Sömuleiðis hafi mér tekist að skyggnast á bakvið einsleita goð- sögnina, eða þó frekar áróðursmyndina sem dregin hefur verið upp til að lýsa „ómennsku“ Þjóðverja. Aðalpersónan, Thomas, er maður, óháð þjóðerni hans, og er í heljarinnar klandri: Frelsi hans er í húfi og hann hefur verið sviptur fjórum burðarsúlum sjálfsins; tungumáli, fólki, stað og siðvenjum sem hann ólst upp við. Hann gengur í gegnum nokkurs konar endurfæðing- arferli eða andhverfu þess. Og það er heillandi að fylgjast með þeirri atburðarás.“ Hliðstæður í nútímanum „Nokkrir hafa spurt mig um hvers vegna að- alpersónan bregst við með hinum eða þessum hætti, hvað hefur gert hana að því sem raun ber vitni. Það þarf ekki að koma á óvart. Í nútíman- um gæti Thomas Lang allt eins getað heitið Mouhamed Baqir og verið múslimi á flótta und- an bandarískum her – flóttinn er tímalaus. Veldið sem nasistar byggðu upp á sér líka sögu- legar hliðstæður, gamlar og nýjar, og þá eink- um aðferðirnar sem valdhafar beita sér til fram- dráttar og til að viðhalda völdum. Nasistar þrautnýttu sér t.d. alla mögulega fjölmiðla þess tíma til að þröngva hugsun landsmanna í svip- aðan farveg. Það hefði verið athyglisvert en sennilega óskemmtilegt að vita hvað gerst hefði ef sjónvarpið hefði verið búið að ná fótfestu í heiminum í þeirra tíð. Í einræðisríkjum og ýms- um ríkjum sem kenna sig við lýðræði er ennþá stundaður markviss heilaþvottur sem brýtur smám saman niður dómgreindina og varn- armúrana utan um hið dýrslega í eðli okkar. Það er markvisst spilað á óttann með köldum og útspekúleruðum hætti. Fólk er hrætt til að sam- þykkja skerðingu á persónufrelsi sínu, einkalífi og réttindum. Hugsanalögreglan er jafnvirk, kannski virkari en í tíð nasista. Það er nærtækt að horfa til Bandaríkjanna vegna hins ríkjandi ástands þar og þeirrar stöðu sem þau hafa kom- ið sér í með van hugsuðum hætti. Þessi djúpstæða falstrú sumra Bandaríkja- manna að þeir séu réttbornir handhafar hins æðsta sannleika, með drottins blessun, og þörf þeirra fyrir að þröngva þessari trú upp á óvilj- ugar þjóðir, er rót margra þeirra meina sem þeir þurfa nú að kljást við á alþjóðavettvangi. Bandaríska leiðin hentar ekki stórum hluta heimsbyggðarinnar, en þeir daufheyrast við gagnrýnisröddum og ryðjast áfram í krafti fjár- hagslegra og tæknilegra yfirburða sinna, valta yfir brothætt menningarsvæði, skilja eftir sig sviðna jörð. Eftir stjórnlausa og sjúka tækni- væðingu vígbúnaðar um áratugaskeið er hins vegar kaldhæðnislegt að þessi styrjöld fari fram með frumstæðum vopnum, að stórveldi með stjörnustríðsáform hlaupi fram og til baka eins og höfuðlaus hæna þegar nokkrir arabar með vélbyssur og dýnamít fórna sér fyrir öfgafullan málstað. Þessir hópar fundu glufu í hern- aðarmætti heimsveldis sem hefur verið skeyt- ingarlaust og hrokafullt í garð annarra menn- ingarsamfélaga. Hitler og Stalín myndu gleðjast „Heima fyrir í Bandaríkjunum er búið að sam- þykkja Föðurlandsvinalögin, lög sem hefðu glatt bæði Hitler og Stalín. Fólkið er búið að af- sala sér svo mörgu vegna þess að það veit ekki betur, og heldur að innrásin í Írak hafi verið nauðsynleg; áróðurinn er svo alltumlykjandi, al- veg eins og í Þriðja ríkinu og víðar. En þegar öll kurl koma til grafar, eftir tíu ár eða hundrað, skiptir það svo sem ekki miklu. Öll stórveldi verða eigin hroka og heimsku að bráð. Það kennir mannkynssagan okkur. Það er sorg- arsagan sem við okkur blasir nú í heiminum. En á meðan þetta ástand ríkir verða alltaf til flótta- menn og þeir sem reka flóttann.“ Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. nóvember 2004 | 7 H annes Hólmsteinn Gissurar- son hefur oft kvartað yfir því upp á síðkastið, þar á meðal í Lesbók Morgunblaðsins síð- astliðinn laugardag, að ReykjavíkurAkademían sýni tillögum hans og óskum um ráðstefnu um að- ferðir í ævisagnaritun engan áhuga. Hannes telur mikilvægt að halda slíka ráðstefnu um „textanotkun og tilvísun í heimildir“ í framhaldi af deilum sem orðið hafa um bók hans Halldór. Hannes varpaði hug- myndinni fyrst fram á fundi í janúar þar sem reyndir ævisagnaritarar sem starfa við Reykja- víkurAkademíuna spjölluðu við fjölmiðlafólk um aðferðir í ævisagnaritun og viðhorf til þeirra. Hann hefur ítrekað tillögu sína nokkr- um sinnum eftir þetta í samtölum og skeyta- skiptum við einstaklinga innan Reykjavík- urAkademíunnar. Ég verð að játa að mér er hulin ráðgáta hversvegna stofnanir á borð við Reykjavík- urAkademíuna eða heimspekideild Háskóla Ís- lands, sem Hannes nefnir líka, ættu að halda slíka ráðstefnu í tilefni af bók hans. Það er raunar stórmerkilegt að hann skuli hvað eftir annað krefjast þess að fólk sýni bók hans áhuga og því sem hann nefnir aðferð sína við ritun hennar. Ekki fræðilega umdeilt verk Fræðilegar ráðstefnur eru iðulega haldnar um nýjungar, strauma og stefnur í fræðunum en einnig er algengt að ráðstefnur eða málþing séu haldin um deiluefni innan fræðanna. Ævisaga Hannesar, sem væntanlega yrði aðalefni ráð- stefnunnar, virðist hvorki fela í sér sérstakar nýjungar né er hún á nokkurn hátt fræðilega umdeilt verk. Þvert á móti eru sérfræðingar sem um bókina hafa fjallað á opinberum vett- vangi langflestir sammála um hana og telja meingallaða. Gagnrýnendur á borð við Helgu Kress, Pál Björnsson, Gauta Kristmannsson og nú síðast sænska sagnfræðinginn Harald Gust- afsson, sem njóta virðingar og trausts á sínum fræðasviðum, hafa bent á alvarlega hnökra í vinnubrögðum Hannesar við ritun bókarinnar. Það er mikilvægt að hafa í huga að gallarnir sem bent hefur verið á varða grundvallaratriði í fræðilegum vinnubrögðum og höfundarrétt- armál en ekki fræðileg álitamál. Réttarsalurinn eðlilegri vettvangur en fyrirlestrasalurinn Það er stundum brýnt að halda fræðilegri um- ræðu aðskildri frá pólitík og svo er í þessu til- felli. Þó að mikið hafi verið fjallað um bók Hannesar Hólmsteins Halldór í fjölmiðlum er ekki þar með sagt að bókin sé frumlegt eða veigamikið framlag til fræðilegra skrifa um Halldór Laxness né til ævisagnaritunar yf- irleitt. Þaðan af síður eru veikburða tilraunir nokkurra velviljaðra einstaklinga til að bera blak af Hannesi réttlæting á vinnubrögðum hans. Þessvegna er engin ástæða til þess að efna til sérstakrar fræðilegrar ráðstefnu um ævisögur í framhaldi af þeim deilum sem af bókinni hafa sprottið, enda eru þær þess eðlis að réttarsalurinn virðist eðlilegri vettvangur til að útkljá þær en fyrirlestrasalurinn. Höfundur er formaður ReykjavíkurAkademíunnar. Áhugaleysi um Halldór Jón Ólafsson. „Fræðilegar ráðstefnur eru iðulega haldnar um nýjungar, strauma og stefnur í fræð- unum en einnig er algengt að ráðstefnur eða mál- þing séu haldin um deiluefni innan fræðanna. Ævisaga Hannesar, sem væntanlega yrði aðalefni ráðstefnunnar, virðist hvorki fela í sér sérstakar nýjungar né er hún á nokkurn hátt fræðilega um- deilt verk. Þvert á móti eru sérfræðingar sem um bókina hafa fjallað á opinberum vettvangi lang- flestir sammála um hana og telja meingallaða.“ Eftir Jón Ólafsson jonolafs@hi.is Í Lesbók Morgunblaðsins 30. október sl. birtist skrýtin grein eftir Sigurð Gylfa Magnússon „einsögufræðing“ um það sem höfundur kallar „stóra Hannesarmálið“, þ.e. hin harkalegu viðbrögð ýmissa á vinstri væng stjórnmálanna við fyrsta bindinu í ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Í grein þessari er vikið nokkrum orðum að undirrituðum og er þar um að ræða ótrúlegar rangfærslur. Ég ætl- aði mér í fyrstu ekki að svara þessari ritsmíð einu orði, enda ekki hægt að elta ólar við allar þær vitleysur sem birtast í fjölmiðlunum, en svo fannst mér fróðlegt að vekja athygli á vinnubrögðum þessa manns sem er hafður í svo miklum hávegum hjá samherjum sínum á Morgunblaðinu að þeir birta um það baksíðu- frétt hvenær sem hann hefur upp raust sína í hinu póstmóderníska málgagni, Lesbókinni. Uppspuni og öfugmæli Sigurður Gylfi segir að ég hafi blandað mér í „stóra Hannesarmálið“ með „heiftúðugum“ skrifum í Viðskiptablaðið: „Í fjórum pistlum sem birtust í desember 2003 og janúar 2004 réðst hann [þ.e. undirritaður] að gagnrýn- endum sem fjallað höfðu um ævisöguna Hall- dór eftir Hannes Hólmstein í sama mund og hann hóf verk hans til skýjanna sem dæmi um frábært bókmenntaverk,“ skrifar Sigurður Gylfi. Þetta er hreinn uppspuni. Þrír af þeim fjór- um pistlum sem Sigurður Gylfi nefnir til sög- unnar fjalla um önnur efni en hinar hatrömmu árásir á bók Hannesar Hólmsteins. Sá pistill sem Sigurður Gylfi tekur sérstaklega fyrir í sambandi við „stóra Hannesarmálið“ fjallar alls ekkert um bók Hannesar og allt sem þar stendur er með öllu óviðkomandi „stóra Hann- esarmálinu“. Það var aðeins í einum pistli sem ég fjallaði efnislega um árásirnar á Hannes Hólmstein og nær engri átt að kalla þau skrif „heiftúðug“ eins og Sigurður Gylfi leyfir sér. Þetta var pist- illinn „Fótnótufræðingarnir og Hannes“ (Við- skiptablaðið 7. janúar 2004) þar sem ég ræddi með málefnalegum hætti þann mikla atgang sem staðið hafði um bók Hannesar í fjölmiðlum frá því fyrir jólin. Það er sannarlega athygl- isvert að Sigurður Gylfi nefnir ekki einu orði þær röksemdir sem ég færi fram í þessari einu grein sem ég skrifaði um „stóra Hann- esarmálið“. Þá virðist hann ekkert sjá at- hugavert við það að hópur manna geri skipu- lega atlögu að fræðimanni á þeirri forsendu að hann megi ekki skrifa bók um tiltekið efni af pólitískum ástæðum og svo langt sé gengið að lokað sé fyrir honum heimildum í Lands- bókasafni sem áður hafa verið færðar íslensku þjóðinni að gjöf. Ég veit ekki hvað hin háa Aka- demía á Hringbraut hugsar, en að kalla máls- vörn fyrir þolanda í þessu máli heiftúðugar árásir virðast mér vera hrein öfugmæli. Skrumskæling og rangtúlkanir Til að gera skrif mín tortryggileg skrumskælir Sigurður Gylfi það sem ég hafði gott að segja um bók Hannesar Hólmsteins. Sigurður full- yrðir að ég hafi hafið verk hans „til skýjanna sem dæmi um frábært bókmenntaverk“. Og hvað skyldi hann hafa fyrir sér í því? Jú, ég komst svo að orði að það væri auðvelt að hrífast af bók Hannesar, hún væri svo læsileg og segði svo merkilega sögu. Jafnframt lét ég þess getið að Hannes fjallaði af tilhlýðilegri virðingu og samúð um söguhetju sína. Hvernig í ósköp- unum er hægt að túlka þessi ummæli á þann veg sem Sigurður Gylfi gerir? Þá er það með miklum ólíkindum að Sig- urður Gylfi skuli sækja dæmi um mitt framlag til „stóra Hannesarmálsins“ í pistil sem fjallaði alls ekki um bók Hannesar og gagnrýnendur hans. Þetta er pistillinn „Af ritdómurum og kaldastríðsstimpli“ (Viðskiptablaðið 23. desem- ber 2003) þar sem ég fjallaði almennt um rit- dómara og tiltók sérstaklega „ritdóm“ í Kast- ljósi sjónvarpsins um bók mína Valtýr Stefánsson – Ritstjóri Morgunblaðsins (2003). Pistill þessi er málefnalegur að öðru leyti en því að eftir áralanga vinnu við verk mitt, 600 blað- síður, ofbauð mér yfirlætisfull og léttvæg um- fjöllun ritdómarans og þáttarstjórnandans og lét nokkur reiðiorð falla um þau í hita augna- bliksins. Sigurður Gylfi heldur því fram að ég hafi tekið Kastljósfólkið á beinið vegna þess að rit- dómari Kastljóss hafði tveimur árum áður skrifað óvandaðan og illorðan ritdóm um bók Björns Bjarnasonar Í hita kalda stríðsins sem ég hafði annast útgáfu á. Um þetta veit Sig- urður Gylfi ekki neitt, en það þykir ekki til- tökumál í hinum póstmódernísku fræðum. Það er með öllu fráleitt að setja þessa grein mína í eitthvert dularfullt samhengi við gamla rit- dóma um bækur annarra höfunda, greinin er skýr og blátt áfram og fer ekki á milli mála um hvað hún er og hverju er verið að svara. Póstmódernískir reimleikar Í þessu sambandi víkur Sigurður Gylfi jafn- framt að skrifum mínum um póstmódernism- ann og telur að ég hafi í þeim sótt „mikinn and- legan innblástur“ í netpistla Björns Bjarnasonar á heimasíðu hans (sem virðist eiga að vera til vitnis um eitthvert allsherjar sam- særi tengt Davíð Oddssyni). Um þetta veit Sig- urður Gylfi heldur ekki neitt. Skrif mín um póstmódernismann fyrr og síðar tengjast Birni Bjarnasyni ekki á nokkurn hátt og þaðan af síð- ur „stóra Hannesarmálinu“. Ég vék fyrst að póstmódernismanum á Íslandi í grein í Morg- unblaðinu vorið 1998 sem bar yfirskriftina „Ókennilegur draugur og orðsins list“. Þar vakti ég athygli á hinum póstmóderníska draugagangi á Morgunblaðinu sem síðan hefur ágerst, sbr. hina kostulegu umfjöllun Lesbók- arinnar um spámanninn Derrida. Andstaða mín við þessa nýju kreddu, sem hafnar í raun vestrænni fræða- og vísindahugsun en á sér fylgismenn sem boða hana af trúarhita (sbr. Lesbókina, Víðsjá ríkisútvarpsins og Reykja- víkurAkademíuna), kemur Birni Bjarnasyni og netpistlum hans nákvæmlega ekkert við, hvað þá þeim viðtökum sem bók Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar um Halldór Laxness fékk í vinstri herbúðum veturinn 2003–2004. Það er svo enn ein rangfærslan hjá Sigurði Gylfa að ég hafi sakað „póstmódernista á Ís- landi“ um að standa „að baki gagnrýninni á Hannesi Hólmstein“. Hvar hef ég gert það? Svari hann því, eða dragi orð sín til baka. Það hefur aldrei hvarflað að mér að halda slíkri firru fram, enda vita allir hverjir hófu atlöguna að Hannesi áður en bók hans birtist á prenti. ,,Einsögufræðingurinn“ þarf að gæta að aka- demískum vinnubrögðum. Eða er sannleik- urinn honum jafn afstæður og fræðikenning hans kveður á um? Rangfærslur Sigurðar Gylfa Magnússonar Eftir Jakob F. Ásgeirsson jfa@simnet.is Jakob F. Ásgeirsson. „Það er sannarlega athygl- isvert að Sigurður Gylfi nefnir ekki einu orði þær röksemdir sem ég færi fram í þessari einu grein sem ég skrifaði um „stóra Hannesar- málið“. Þá virðist hann ekkert sjá athugavert við það að hópur manna geri skipulega atlögu að fræðimanni á þeirri forsendu að hann megi ekki skrifa bók um tiltekið efni af pólitískum ástæð- um og svo langt sé gengið að lokaðar séu fyrir honum heimildir í Landsbókasafni sem áður hafa verið færðar íslensku þjóðinni að gjöf.“ Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.