Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Blaðsíða 7
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. desember 2004 | 7 Í ljósi tengslanna við Dieter Roth segir Jess- ica eftirtektarvert hve listamenn af hans kyn- slóð féllu frá tiltölulega ungir, þó enn séu fjöl- margir á lífi sem gjörþekkja verk hans og vinnuaðferðir. „Verk hans og vinna eiga því auðvitað fullt erindi til yngri kynslóða lista- manna samtímans og þess vegna finnst mér mjög áhugavert að búa til brú þar á milli og láta verk listamanna ólíkra kynslóða kallast á í því samhengi.“ Hún bendir í því sambandi á að Lawrence Weiner taki þátt í hátíðinni og einnig Dan Graham, sem er aðeins yngri. „En á milli þeirra finnast mjög athyglisverð tengsl, ekki síst með tilliti til þess hvernig þeir hafa leitað í smiðju Dieters. Aðrir listamenn, svo sem Íslending- arnir, Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guð- mundsson, hafa skapað verk, sem hvað formið varðar, eiga lítið skylt við Dieter. Samsvörun eða vísun í hugsun þeirra og hans er þó auðvelt að finna. Ég hef einnig leyft mér að nota þeirra verk til þess að finna annarskonar tengingar við yngri kynslóðirnar, þannig að hægt er að segja að tengingin við Dieter verði þar óbein – í gegn- um þá. Þannig verður til áhugaverð kortlagning á því hvernig listin formast sem einskonar orð- rómur er berst listamanna á milli. Listamenn verða fyrir áhrifum af verkum sem þeir heyra af, en hafa kannski ekki einu sinni séð sjálfir. Þannig ferðast áhrif á milli kynslóða og mér finnst stórkostlegt að hugsa til þess að til sé einskonar tungumál sem þrífst á meðal lista- manna og er drifkrafturinn í nýrri sköpun hverrar kynslóðar.“ Jessica segir það hafa verið ljóst frá upphafi að tala þeirra listamanna sem taka þátt í sýn- ingu Listahátíðar yrði takmörkuð. Þeir koma þó víða að, í samræmi við þá hugmynd hennar að hátíðin kortleggi listheiminn að nokkru leyti. „Ég hef boðið fólki frá Bandaríkjunum, Kosta Ríka, Mexíkó, Austur-Evrópulöndum á borð við Pólland og Albaníu, og auðvitað ýmsum öðrum Evrópulöndum. Ég ákvað að einbeita mér ekki að tengslunum við hin Norðurlöndin, því í mín- um huga skiptir sú samræða sem það myndi skapa ekkert endilega meira máli en önnur – þótt augljóslega sé fremur auðvelt og átaka- laust að draga hana fram vegna þess sameig- inlega bakgrunns sem er fyrir hendi. Ég vil frekar minna á að upplýsingaflæðið nú til dags er þess eðlis að skyldleiki listamanns frá Íslandi getur alveg eins verið við einhvern frá Mexíkó þótt það sé langt í burtu. Kortlagning í margvíslegum skilningi Ég valdi þó ekki listamennina með slíka kort- lagningu í huga – það er frekar að slíkt ferli af- hjúpi hvernig ég hugsa. Ég hef alltaf ferðast mikið og geri enn, svo þeir listamenn sem ég hef áhuga á að vinna með eru þess vegna frá stóru svæði. Mér finnst breitt sjónarhorn mik- ilvægt og hafa vægi fyrir Ísland núna.“ Jessica hefur reynt að hitta eins marga ís- lenska listamenn og mögulegt er á undan- förnum misserum. „Samt sem áður vildi ég ekki gera þessa hátíð að íslenskri listsýningu. Lík- lega er um helmingur listamannanna héðan og þeir tilheyra ólíkum kynslóðum. Inn í þetta kemur að burt séð frá gæðum, eiga vitaskuld ekki verk allra erindi inn í þá hugmynda- fræðilegu orðræðu sem mig langar til að skapa í þessu tilfelli. Það gerði mér auðveldara fyrir verkum.“ Markmið Jessicu er að hennar sögn einnig að rekja tengsl listamanna utan landsteinanna sem hún vissi að höfðu áhuga á Íslandi. „Eða jafnvel bara á því samhengi sem hér fyrirfinnst. Sem dæmi um það má nefna kanadíska lista- manninn Brian Young, sem á ættir sínar að rekja til amerískra indíána. Hann hefur mikinn áhuga því sem tengist norðurslóðum; efnahag, loftslagi og öðru sem einkennir svæðið. Verk Brians, sem tilheyra yfirleitt hefð höggmynda- eða umhverfislistar, snúast um það hvernig litið er á hversdagslega hluti og hvernig hægt er að umbreyta þeim með vísun í loftslag og að- stæður á hverjum stað fyrir sig. Það má því finna tengsl á milli hans og Dieters í viðhorfum til efnisins auk landfræðilegar tengingar.“ Hún nefnir einnig listamenn sem hafa orðið fyrir beinum áhrifum af Dieter hvað viðhorf til framleiðslu varðar, svo sem Thomas Hirshorn. „Hann hefur beinlínis tekið hugmyndir Dieters um ofhlæðið yfir í sínum verkum, en þau eru mjög pólitísk í meðvitaðri tilraun til að afhjúpa ofgnóttina sem við horfum stöðugt upp á allt í kringum okkur. Þau vísa til hugmyndarinnar um að „meira sé meira“, og draga áhorfandann inn í gagnrýna umræðu um offramleiðslu og tengsl okkar sem einstaklinga við allskonar „hluti“ – þarfa og óþarfa. List þýska lista- mannsins John Bock á rætur sínar í gjörn- ingum, en verk hans lúta að því hvernig maður reynir að vinna sýningu á gefnum stað og stund en þróar hana síðan á þeim tíma sem hún tekur með tilliti til staðsetningarinnar. Hann vinnur með flókið hugmyndakerfi sem byggist á hans eigin tilfinningu fyrir heiminum, en þær lúta innri lögmálum sem eru í stöðugri endur- skoðun, og er náskylt hugmyndafræði Dieters. Af öðrum listamönnum sem ég get nefnt og mig langaði til að hafa með, má telja Ólaf Elías- son. Hann er líklega þekktasti listamaður sem hægt er að tengja Íslandi. Hugmyndin var að láta þá listamenn sem eru betur þekktir sýna utan Reykjavíkur – m.a. til þess að auka vægi landsbyggðarinnar í heildinni. Matthew Barney mun t.d. sýna á Akureyri og vinna með Gabríelu Friðriksdóttur, en mig langaði til að leiða þau saman undir ákveðnum kringumstæðum. Þar á það við sem ég sagði áðan um að hver sýning verði að standa undir nafni ein og sér og í stað- inn fyrir að láta Barney sýna einan fannst mér mun áhugaverðara að sjá hvað kæmi út úr því að láta aðferðafræði þeirra og verk skarast í að- stæðum þar sem þau þurfa að spyrja sig og hvort annað af hverju þau geri hlutina á þennan hátt frekar en einhvernveginn öðruvísi. Ólafur mun að sama skapi sýna utan hefð- bundinna sýningarstaða í Reykjavík og verk hans felur í sér þátttöku áhorfenda frekar en að hann framleiði einhverskonar hlut eða skúlptúr. Enda veit ég að listamennirnir hafa mun meiri áhuga á slíkri vinnu en því að sýna sig sjálfa – ef þannig má að orði komast – á fyrirsjáanlegan hátt. Ef Thomas Hirschhorn vinnur með ofgnótt- ina vinnur listamaðurinn Gabriel Kuri með and- stæðu hennar. Verk hans fjalla nánast um hverfulleikann, viðfangsefnin eru hversdagsleg og leitast við að skoða heim efnishyggjunnar með því að snúa lítillega upp á hann. Kuri skoð- ar t.d. hönnun umbúða, hverfulleika ákveðinna hluta í byggingum og afhjúpar skammvinnt gildi hlutanna.“ Jessica álítur einnig mikilvægt að hafa full- trúa þeirra sem hafa verið í andstöðu við það sem Dieter stóð fyrir í íslenskum myndlist- arheimi og bendir á að það liggi í hlutarins eðli að einhverjir hafi verið honum ósammála og reynt að forðast þau gildi sem hann stóð fyrir. „Anna Líndal er listamaður sem hefur gagn- rýnt kynhlutverk í íslenskum myndlistarheimi, sem auðvitað var mjög karllægur. En allt eru þetta bara dæmi sem lýsa því hvernig val mitt hefur átt sér stað, því að baki hvers einasta listamanns er einhver tenging inn í hug- myndafræði hátíðarinnar sem ég álít skipta máli og eiga erindi til listheimsins. Um framtíðina fremur en óbreytt ástand Í ljósi þess að þetta er í fyrsta sinn sem myndlist- arsýning af þessari stærðargráðu er haldin hér á landi – í tilraun til að sýna Ísland í samhengi við hinn alþjóðlega listheim er freistandi að álykta sem svo að hátíðin gefi tækifæri til að kanna stöðu myndlistarinnar og stofnana hennar. Jess- ica segir verkefni af þessu tagi alltaf hafa áhrif inn á við með þeirri umræðu sem óhjákvæmilega fer af stað. „En svo afhjúpa þau einnig út á við hvað þegar er fyrir hendi. Gagnvirknin á milli þessara tveggja þátta er mikil. Fólk erlendis þarf vitaskuld að fá tækifæri til að kynnast því sem er að gerast hér. Og það er auðvitað ein ástæða þess að ég vildi velja listamenn af fleiri en einni kynslóð. Maður vill ekki að umheimurinn fái þá flugu í höfuðið að myndlist hafi fyrst komið hér fram á sjónarsviðið á síðustu þremur árum eða svo – með einstaklingum sem skotið hefur upp á stjörnuhimininn. Mig langaði til að sýna að myndlistin hefur þvert á móti verði að þróast í áratugi á Íslandi; leyfa öðrum að uppgötva það sem ég hef sjálf reynt. Ég hef því lagt áherslu á að vinna persónulega með þeim sem eru í for- svari fyrir stofnanirnar sem starfa með okkur, ekki bara til þess að allt gangi vel fyrir sig, held- ur einnig til þess að allir sjái möguleikana sem í hátíðinni felast. Allir verða að hafa sama metnað. Mikilvægast af öllu er þó að allar þessar myndlistarstofnanir og menningaryfirvöld á Ís- landi átti sig á því hvaða þýðingu sýningin getur haft og hvert þeirra hlutverk er í því að láta hana ganga upp. Og þá ekki síður hvernig fram- tíðin getur litið út; hverju er hægt að breyta og hvernig er hægt að skilgreina sig og þróa á næstu árum. Í raun fjallar sýningin um framtíð- ina í þeim skilningi, fremur en óbreytt ástand.“ Undirliggjandi þema í vinnunni fram að þessu með einstökum listamönnum hefur að sögn Jessicu verið áhugi á rýmunum sjálfum, hvatning til að þeir velti þeim fyrir sér. „Ég hef hvatt þá alla, bæði íslensku listamennina og þá erlendu, til að ræða hvað þá langi til að gera. Það gefur nasasjón af því hverjar þeirra hug- myndir um það hvernig málum gæti verið hátt- að í framtíðinni eru, umfram það sem núverandi staða býður uppá. Mig langar að vita hvaða hugmyndir listamennirnir hafa um framtíð- arhlutverk stofnananna ef reynt er að brjótast út úr þeim mótum sem þær eru steyptar í. Við undirbúning allra sýninga af þessari stærð- argráðu verður að velta því fyrir sér af fullri al- vöru, hvernig hægt er að útfæra sýning- arhaldið, hvernig hægt er að breyta stofnununum og stuðla þannig að framþróun. Stofnanir festast í sama farinu Það er sama hvert maður fer; stofnanir hafa alltaf tilhneigingu til að festast í sama farinu og gleyma því hreinlega að eitt hlutverk slíkra þeirra – ekki síst ef þær eru styrktar af al- mannafé – er að ögra niðurnjörvuðum hlut- verkum. Upprunalega voru slíkar stofnanir myndaðar til að sporna við stöðnun.“ Jessica segist alltaf vera jafnundrandi á því hversu auðveldlega menn hafa sætt sig við þá hugmynd sem býr að baki myndlistarsafna og sýningarsala. „Ekki síst með tilliti til þess hversu nýtt af nálinni það módel er. Það hefur ekki verið við lýði á Vesturlöndum nema í um það bil hundrað ár, sem hinn almennt við- urkenndi farvegur fyrir myndlistarfsemi. Hversvegna skyldum við því sætta okkur við það sem fyrirkomulag til framtíðar og láta stað- ar numið í þróunarvinnunni. Auðvitað hafa ver- ið rof í þeirri hugmyndafræði sem fólk hefur viljað fella söfnin undir, ekki síst í þeim löndum þar sem saga myndlistarstofnana er ekki svo ýkja löng, eins og hér á landi. Í þeirri staðreynd felast því tækifæri fyrir stjórnendur til að vera framsýnni en annars staðar og leita nýrra leiða til að þjóna myndlistinni sem best. Íslenskar stofnanir ættu að leita fanga í aðferðum og hug- myndasmíði myndlistarmannanna sjálfra í því sambandi á hverjum tíma fyrir sig – því auðvit- að eru það myndlistarmennirnir sem stöðugt eru að velta áhorfandanum fyrir sér; hvernig hægt er að láta rýmið vinna með sér og hver er rétti vettvangurinn fyrir verkin sjálf.“ Þegar hugleiðingar um innlegg Listahátíðar í Reykjavík til alþjóðlegrar umræðu ber á góma rifjar Jessica upp feril listamannanna Elmgren og Dragset, sem sýndu hér árið 1998 vegum i8 og Listasafns Reykjavíkur. Verkið sem þeir sýndu var liður í verkefninu „Powerless Struct- ures“, en í því sköpuðu þeir gallerírými sem héngu í lausu lofti, annað sem sökkt var ofan í jörðina (við Kjarvalsstaði) og enn eitt sem snúið var á hvolf. „Vinnuaðferðir þeirra eru mjög gagnrýnar á myndlistarheiminn og stofnanir hans,“ segir hún. „Þau snúast um sýningarhald, hlutverk áhorfandans og hagkerfið sem þrífst í kringum þennan heim og í stærra samhengi ut- an hans. Þeir beina m.a. athygli sinni að þeim sem mála veggina í söfnunum, til þess að brjóta niður þá hugmynd að listin snúist einungis um sig sjálfa og ekkert annað. Verkið sem þeir gerðu hér; galleríið sem var grafið ofan í jörðina og fáir sáu hér, er samt sem áður heimsþekkt – það vita allir af því í mínu vinnuumhverfi. Þeir afhjúpa það átak sem hver og ein sýning er – allri vinnunni sem liggur þar að baki. Sömuleið- is að allir verða að standa sig í hlutverkum sín- um ef sýning á að heppnast, hvort sem þeir þrífa sýningarrýmið eða prenta bækling. Með þessum hætti beina þeir athyglinni frá hlut- gervingu listarinnar, „hlutunum“ sem allir vilja sjá og mynda þess í stað vettvang fyrir ein- hverskonar viðburð – af fremur leikrænum toga. Þeir skella áhorfendum inn á sviðið og spyrja síðan hvað hann sé að gera þar. Þetta mætti kalla rof – eða skil – í því ferli sem mjög auðveldlega staðnar innan stofnana. Þeir hafa vakið upp vitund fyrir því hvað hefðbundnar og stofnanavæddar sýningar geta verið fárán- legar, jafnvel þótt í þær sé lögð töluverð hugs- un. Slíkar gryfjur verða allar stofnanir sem vilja þjóna listinni að forðast; það er ekki nóg að þjóna kerfinu, stofnunum sjálfum, hugmyndum stjórnvalda um lýðræði eða einhverju þvíum- líku – við verðum að spyrja okkur hvaða til- gangi allar sýningar þjóni hverju sinni.“ Listamenn í eðli sínu mjög ólýðræðislegir Jessica bendir á að listamenn séu í eðli sínu mjög ólýðræðislegir; „jafnvel þótt þeir vinni með hugtök á borð við lýðræði, þá gera þeir bara nákvæmlega það sem þeim sýnist. Og það er þeirri helsta hlutverk að mínu mati. Þeir eiga ekki að hlýða neinum öðrum en sjálfum sér, þeir eiga að vera einræðisherrar. En ekki að vinna samkvæmt almenningsálitinu eða vænt- ingum samfélagsins um útlit eða stíl. Og það er þessi þáttur í listsköpun sem mér finnst mik- ilvægt að horfa til þegar við reynum að end- urskilgreina og endurskoða liststofnanir. Við megum ekki vinna samkvæmt almennu áliti manna á því hvernig eigi að horfa á heiminn. Það þjónar ekki listinni“. Hún vísar til breytinga sem eru í vændum hér svo sem á Kjarvalsstöðum þar sem núver- andi forstöðumaður er að fara frá. „Sú stofnun hefur verið leiðandi í samtímalistum, ræður yfir miklu sýningarrými og um leið ótrúlegum möguleikum. Á slíkum tímamótum verður að huga að því hvaða möguleikar eru í stöðunni. Í staðinn fyrir að búa til eftirmynd af þeim mód- elum sem önnur söfn, eða aðrir stjórnendur hafa þróað erlendis, ætti að spyrja; hvernig safn getum við búið til hér? Hvernig viljum við hafa það öðruvísi?“ Á þessum orðum Jessicu Morgan lauk sam- talinu um Listahátíð í Reykjavík vorið 2005 – að sinni. Sú umræða sem sýningin, undirbúningur hennar og framkvæmd skapar er þó langt í frá til lykta leidd, enda eitt markmiðið að efla skoð- anaskiptin, koma nýjum hugmyndum á fram- færi og búa listinni þannig það umhverfi sem hún þarf til að blómstra sem einn mikilvægra máttarstólpa menningarinnar. ra Morgunblaðið/Eggert Jessica Morgan segir sýninguna á verkum Dieters Roth gegna lykilhlutverki á Listahá- tíð í vor. „Hún svarar í raun þeim brýnu spurningum sem ætíð eru aðalvandinn í svona umsvifamiklu sýningarhaldi; þ.e.a.s. hver tilgangur sýningarinnar sé og hvað eigi að vera þar í brennipunkti.“ Jennifer Allora og Guillermo Calzadilla  Micol Assael  Matth- ew Barney  Margrét Blöndal  John Bock  Jeremy Deller og Alan Kane  Ólafur Elíasson Fischli og Weiss  Hreinn Friðfinnsson  Gabríela Friðriksdóttir Dan Gra- ham  Kristján Guðmundsson  Elín Hansdóttir  Thomas Hirsch- horn  Hekla Jónsdóttir  Haraldur Jónsson  Brian Jungen  On Kaw- ara  Ragnar Kjartansson  Anna Líndal  Jonathan Meese Libia Pérez de Siles de Castro og Ólafur Árni Ólafsson  Dieter RothAnri Sala  Bojan Sarcevic  Wilhelm Sasnal  Lawrence Weiner. Eftirfarandi listi nær til þeirra myndlistarmanna sem þegar hefur verið ákveðið að taki þátt í Listahátíð í Reykjavík vorið 2005.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.