Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Blaðsíða 16
Á ÁRUNUM 1949–1959 gaf Sögufélag Skagfirðinga út Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781– 1958. Það voru fjögur hefti í stóru broti, alls 544 bls. Einungis voru fáeinar línur um jarðirnar og myndir voru engar. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Margar byggðasögur og búendatöl hafa litið dagsins ljós; þar má nefna Húnaþing, þrjú bindi, Byggðir Eyjafjarðar í tveimum bindum, Sveitir og jarðir í Múlaþingi, Rangvellingabók, Landmannabók, Landeyingabók, svo að eitthvað sé nefnt. Allar þessar bækur eru metnaðarfull rit, myndum prýdd og vel til þeirra vandað á alla lund. En að öllum öðrum ólöstuðum sýnist mér að Byggðasaga Skagafjarðar ætli að skjóta öðrum ref fyrir rass. Það var vissulega orðið tímabært að gera nýtt jarða- og búendatal fyrir Skagafjörð. Gamla búenda- talið er fátæklegt í hópi glæsibúinna systkina sinna! Til að gera nýtt tal var fenginn Hjalti Pálsson hér- aðsskjalavörður á Sauðárkróki og leystur frá starfi sínu til þeirra hluta. Fyrsta bindið af þessu mikla verki kom út árið 1999 (352 bls.) og náði það yfir Skefilsstaðahrepp og Skarðshrepp. Annað bindið kom svo út 2001 (504 bls.) yfir Staðarhrepp og Seylu- hrepp og þriðja bindið, sem nú kemur út (527 bls.) nær yfir Lýtingsstaðahrepp einan. Er þar með lokið umfjöllun um Skagafjörð vestanverðan – eða ,,vestan Vatna“ eins og einatt er sagt. Þetta er mikið land- svæði utan frá Skagatá og suður að Hofsjökli. En all- ur austurhlutinn er þó eftir, allt frá fremstu byggð í Austurdal og að nyrstu byggð í Fljótum. Það er mik- ið svæði og mikil byggð að fornu og nýju, enda er gert ráð fyrir að bindin verði alls átta og veitir víst ekki af. Af þessu má sjá að hér er um allt annars konar verk að ræða en gamla Jarða- og búendatalið. Nú er sjálft búendatalið aðeins lítill hluti verksins, sjaldnast nema ein blaðsíða eða varla það í lok langrar umfjöll- unar um jörðina. Hér um afar metnaðarfullt verk að ræða, þar sem ritaðar heimildir eru þrautkannaðar, vettvangsrannsóknir gerðar og jafnvel fornleifa- rannsóknir. Myndir eru gríðarmargar, svo og kort og teikningar. Ekki undir ríflega 600, segir á kápu- síðu. Að sjálfsögðu er sami háttur hafður á framsetningu efnis og í fyrri bindum. Fyrst kemur sveitar- félagslýsing á rúmum 30 blaðsíðum. Hafa höfundarnir þrír skipt henni á milli sín. Rósmundur skrifar al- menna lýsingu. Þar er langt mál um fjalllendi og afréttarlönd. Er sá kafli mikil örnefnanáma. Egill Bjarnason fjallar um fólkstal, áhöfn jarðanna, hlunnindi og fleira og Hjalti um samgöngur, skólamál, sóknir og kirkjur. Hafi maður lesið þennan þéttskrifaða bókarkafla af gaum- gæfni er hann vel í stakk búinn til að taka til við sjálfar jarðirnar, sem eru aðalefni bókar. Áður en að þeim kemur eru þó birtar skrár um trúnaðarmenn og búendatöl: hrepp- stjórar frá 1780, oddvitar frá 1874, sýslunefnd- armenn frá 1874 og loks héraðsnefndarmenn (mað- ur) frá 1988. Búendatölin eru alls fimm: 1703, 1713, 1735, 1753, 1762. Þau eru að sjálfsögðu gerð eftir manntölum. Ábúendatölin, sem hverri jörð fylgja eru auðvitað annars konar. Í Lýtingsstaðahreppi hefur verið búið á 105 bú- jörðum á árabilinu 1781–2004. Um þær er allar fjallað rækilega, en auk þess um fjölmörg fornbýli. Þá hafa myndast byggðakjarnar, svo sem Varma- lækjarhverfið úr Skíðastaðalandi og byggðakjarni skammt frá Steinsstöðum og sumarbústaðabyggðir. Sá háttur er hafður á að byrjað er á jarðalýsingum og búendatölum nyrst í hreppnum og austast og er sveitar- eða byggðahlutum fylgt: Neðribyggð, Tungusveit, Dalspláss, Vesturdalur, Svartárdalur, Fremribyggð og Efribyggð. Þá hefur hringnum ver- ið lokað: frá nyrsta bæ á Neðribyggð, Krithóli, að nyrsta bæ á Efribyggð, Kolgröf. Ekki vil ég láta hjá líða að lýsa ánægju minni yfir því að nöfnum á byggðahlutum skuli haldið vel til haga, hvorki þau né sóknanöfn (Víðimýrar-, Reykja-, Mælifells-, Goðadalasókn) mega gleymast. En hætt er við því á tímum hinna miklu sameininga. Aðalhöfundur bókarinnar, Hjalti Pálsson, hefur einskis látið ófreistað að gera hverri jörð sem best skil. Heimildir hafa verið kannaðar, rætt við fjölda manns og hver og ein jörð skoðuð og henni lýst ná- kvæmlega að fornu og nýju. Eignarhald og ábúð er rakin, jarðamat allt frá fyrstu tíð. Gömlum myndum hefur verið safnað, margar þeirra hinar merkustu og mikill fjöldi nýrra mynda tekinn, flestar af höfundi, nema myndir af núverandi ábúendum. Þær myndir tók Stefán Pedersen ljósmyndari á Sauð- árkróki. Höfundur hefur greinilega lagt sig fram um að skoða allar fornar minjar, svo sem sel, stekki, beitarhús, gamlar garðahleðslur. Þá eru ýmsar sagnir til- greindar bæði í aðalmáli og í inn- skotstextum. Er þetta allt einkar fróðlegt og oft bráðskemmtilegt. Vesturdalurinn er raunar alveg sér á parti í þessari breiðu umfjöllun. Hann hefur raunar lengi verið fræðimönnum umhugsunarefni, enda mörgum byggð- um merkilegri. Þar eru nú aðeins örfáir bæir í byggð nú. En áður fyrr var þar fjölmennt byggðarlag. En talið er að sú byggð hafi að langmestu leyti lagst af snemma á þjóðveldisöld. Nöfn á þriðja tug býla hafa varðveist í gömlum heim- ildum, en einungis fáum þeirra hefur verið hægt að finna stað. Fremsta býlið er frægast, Hraun- þúfuklaustur, aðeins um tuttugu kílómetra norðan jökuls. Um það hefur margt verið skrafað og skrifað. Nú hefur Hjalti Pálsson tekið sér fyrir hendur að kanna sjálfur og með aðstoðarmönnum allt þetta svæði, gera könnunarholur til að leita mannvist- arleifa og tekið myndir bæði úr lofti og af jörðu niðri. Vissulega hafði hann mikið upp úr því krafsi. Hafi ég lesið rétt gat hann staðsett ekki færri en átján býli. Í bókinni (bls. 329–354) er kaflinn Fornbyggð í Vest- urdal, sem er í rauninni sjálfstæð ritgerð, þar sem öllu þessu eru skil gerð. Hygg ég að að það sé merk- asti og eftirminnilegasti hlutinn í þessari bók. Þeir sem á eftir koma og halda rannsóknum áfram eiga auðveldari leik, þar sem öll fornbýlin eru staðsett með GPS- stöðuhnitum. Ekki er ég nógu kunnugur í Lýtingsstaðahreppi til að ganga úr skugga um hvort rétt er farið með all- ar staðreyndir. Hygg ég þó að litlu skakki, svo vönd- uð virðist bókin vera. Smávægilegar misfellur rak ég mig þó á. Eru ekki ,,tófuhvolpar“ venjulega kallaðir ,,yrðlingar“? Aðalmannsvatn er víst bara eitt og því eru það vafalaust pennaglöp af hafa vatnið í fleirtölu. Eitthvað kemur mér spánskt fyrir sjónir ef Stóri- sandur byrjar við Ströngukvísl og Blönduvöðin gömlu inn á þá leið hélt ég að væru horfin í lónið mikla. Þetta eru smámunir og varla við öðru að búast í jafnstóru verki. Höfundum, Lýtingum og raunar Skagfirðingum öllum óska ég til hamingju með þessa miklu og merkilegu byggðasögu. Metnaðarfull byggðasaga Sigurjón Björnsson Bækur Byggðasaga Ritstj. og aðalhöfundur: Hjalti Pálsson frá Hofi. Höfundar efnis: Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Rósmundur Ingvarsson. 527 bls. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki, 2004, Byggðasaga Skagafjarðar, III.bindi, Lýtingsstaðahreppur Hjalti Pálsson 16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. desember 2004 Hljóðbókin Graf- arþögn er eftir Arnald Indriða- son. Sigurður Skúlason leikari les. Mannabein finnast í grunni nýbyggingar í út- jaðri Reykjavíkur og líkur benda til að glæpur hafi ver- ið framinn. Beinin virðast nokkurra áratuga gömul og sérfræðingar eru fengnir til að grafa þau upp en sam- tímis hefur lögreglan leit að fóki sem gæti vitað eitthvað um málið. Er- lendur, Sigurður Óli og Elínborg, sem lesendur þekkja úr fyrri bókum höfundar, eiga erfitt verkefni fyrir höndum en smám saman skýrist myndin; fortíðin er grafin upp úr moldinni, upp úr gömlum pappírum, upp úr fylgsnum hugans – og brotin raðast saman í helkalda, óvænta harmsögu. Útgefandi er Hljóðbók.is. Bókin er um sjö og hálf klst. að lengd. Til- boðsverð kr. 3.490. Nýjar bækur Valin Grimms- ævintýri eru komin út á hljóðbók. Þor- steinn Thor- arensen les eig- in þýðingu. Hér kennir margra grasa eins og heiti sagnanna sýna: Froskakóngurinn eða Járn-Hinrik, Spunakerling- arnar þrjár, Slöngulaufin, Úlf- urinn og kiðlingarnir sjö, Rusl- aralýður og Garðabrúða, Rauðhetta, Undarlega átveislan, Þrastarskeggur kóngur, Brima- borgarspilararnir, Skraddarinn í himnaríki, Snillingurinn Hans, Kerlingin Gríður og Brúðkaup lafði Lágfótu. Útgefandi er Hljóðbók.is. Hljóð- bókin er um 120 mínútur að lengd. Verð kr. 1.990. Sitji Guðs englar er eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikgerð Illuga Jök- ulssonar. Í leikritinu segir frá daglegu lífi barnmargrar sjómanns- fjölskyldu í sjáv- arþorpi fyrir fimmtíu árum. Með helstu hlutverk fara: Rúrik Haralds- son, Þóra Frið- riksdóttir, Edda Heiðrún Bach- mann, Brynhildur Guðjónsdóttir, Gunnur Þórhallsdóttir, Eyþór Rúnar Eiríksson, Davíð Steinn Davíðsson, Sigríður María Egils- dóttir og Valdimar Örn Flygen- ring. Stefán S. Stefánsson samdi tónlistina. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Útgefandi er Hljóðbók.is. Hljóð- bókin er um 140 mínútur að lengd. Verð kr. 1.999. Sálmurinn um blómið er eftir Þórberg Þórð- arson, í leikgerð Jóns Hjart- arsonar. Þórbergur Þórðarson hófst handa við það upp úr 1950 að rita „sanna sögu“ um „minnstu manneskju á Íslandi“. Afraksturinn varð „Sálmurinn um blómið“; ein frumlegasta bók sem gefin hefur verið út á íslensku. Sagan varpar ljósi á samskipti Gvuðs, Sobbegga afa og Lillu Heggu, íslenskt sam- félag eftirstríðsáranna og tak- markalausa sannleiksleit persón- anna, sem er einlæg og fyndin í senn. Með helstu hlutverk fara Jón Hjartarson, Álfrún Örnólfsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson og Anna Kristín Arngrímsdóttir. Tónlistin er eftir Úlf Eldjárn og leikstjóri er María Reyndal. Útgefandi er Hljóðbók.is. Hljóðbókin er um 119 mínútur að lengd. Verð kr. 1.999. EINS og við vitum er ekki hlaupið að því að breyta uppeldi barnanna okkar. Umhverfið allt er gegnumsýrt af hinum hefðbundnu kynjahlut- verkum, í skólanum, á heimilinu, og ekki síst í sjónvarpinu og í barnabókunum. Og þótt fólk sé allt af vilja gert til að koma eins fram við öll börn- in sín, þá er eitthvað sem ósjálfrátt fær okkur til segja að stelpur séu sætar og strákar séu stórir og sterkir. Sem þeir og eru, en þeir eru líka sætir og stelpur eru líka sterkar. Kajsa, dóttir höfundar, sagði pabba sínum að prinsessur gætu ekki skylmst, bara gift sig og eignast börn. Því reyndi pabbinn að kippa í lag með þessari bók. Og þessa bók fíla ég, því hér er litlu sætu stelpunum okkar leyft að vera bleikum ef það er það sem þær vilja. Það þýðir alls ekki að smáatriðum leiða þær út fyrir frásögn- ina sjálfa, um leið og þær styrkja hana og efla. Þegar stóri drekinn er að spúa eldi felur prinsesssan sig á bakvið stein, en rekur um leið sverðið sitt fram með pylsu á endanum sem hún notar tækifærið til að grilla. Frábært! Á saurblöðunum er skærbleik mynd af prinsessunni með kórónuna á höfðinu í fullum hnefaleikabúningi, til í slaginn. Þessi mynd segir afskaplega mikið og hana ætti að hengja upp í herbergi hverrar einustu lítillar prinsessu. Svona gera prinsessur er tilvalin gjöf handa öllum litlum börnum. Hún er fyndin og skemmtileg, um leið og hún vekur þau til meðvitundar um það að þau megi vera eins og þeim sýnist og að hlut- irnir þurfi alls ekki að vera eins og þeir hafa alltaf verið. Það eru góð og þörf skilaboð. þær geti ekki verið sterkar, staðið á sínu og gert nákvæmlega allt það sem bláklæddu strákarnir okkar gera. Í stað þess að steypa bæði kynin í sama mót, eigum við að leyfa þeim að njóta sín um leið og við hvetjum þau til sömu dáða. Undirtónninn í bókinni er ynd- islegur. Það skín svo sterkt í gegn af hve mikilli væntumþykju hún er skrifuð, ást og skilningi á lífi og hugarheimi lítilla stelpna enda er hún tileinkuð litlu prinsessum höf- undar, þeim Kajsu og Minnu. Bókin er eins konar hvatning og gott veganesti fyrir þær út í lífið skrifuð á þeirra eigin forsendum. Í bleiku fötunum sínum með skartgripina og kór- ónuna, eru þær mikilvægar, framsæknar, hug- rakkar, ógnvaldar, bardagasnillingar, góðar og sigurvegarar. Myndirnar eru sérstaklega skemmtilegar og mikill húmor í þeim. Með ýmsum vel til fundnum Á sínum eigin forsendum BÆKUR Börn Höfundur texta og mynda: Per Gustavsson. Þýðing: Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir. 25 bls. Bjartur 2004. Svona gera prinsessur Hildur Loftsdóttir BIRTA er tólf ára, að verða þrettán, og hefur nýlega eignast marga nýja vini sem hún vill alltaf vera með. Hún er nýbyrjuð með strák en er grútfeimin við hann, hún er réttsýn og greind en þorir ekki að standa á sannfæringu sinni gagnvart vinahópnum þegar þau lenda í vandræðum. En þó að vinirnir séu mikilvægir er skrýtinn og skemmtilegur afi hennar besti vinur hennar og til hans getur hún leitað í vand- ræðum sínum. Með hans hjálp kemst hún að því að best sé að vera sönn og sjálfri sér samkvæm. Þessi megin efnistök skáldsögunnar eru vel gerð auk þess sem sagan er spennandi og kafað er í tilfinningar að- alpersónunnar í einlægni sem fær aukna dýpt með innskotum úr dagbók hennar. Draumey Aradóttir hefur áður gefið út bókina Þjófur og ekki þjófur þar sem sömu persónur voru á ferð, aðeins nokkrum mánuðum fyrir at- burðina sem gerast í þessari bók. Þar var Birta bernskumegin við mörk unglingsáranna því að þótt leysa þyrfti vandamál sveif leikur og áhyggjuleysi yfir vötnum. Í nýju bókinni ber svo við að áhyggjur og einmanaleiki unglingsáranna eru sterkasta aflið og meira reynir á stelpuna að leysa málin með hugviti sínu og innsæi. Krakkahópnum er treyst til þess að fara í útilegu á Vestfjörðum í þrjár nætur án eftir- lits og er sú ferð þroskastökk fyrir Birtu. Hún er eðli- leg og raunsæ en í lok nokkurra daga ævintýris verð- ur hún þó of fær í að greina tilfinningar sínar miðað við ungan aldur. Þetta tengist öðrum galla á sögunni; höfundur tekst á við það vandasama verk að setja sig inn í síbreytilegan hugarheim unglingsins en tekst ekki alls kostar að halda sig við hin viðkvæmu mörk æsku og unglingsára. Að sumu leyti er Birta óvenju þroskuð og ábyrgðarfull en að öðru leyti er hópurinn í heild sinni óvenju saklaus þegar þau fara ein í útileguna. Til viðbótar er aukapersónan Saga heldur ótrúverðug þar sem hún er of einsleit til að vekja nokkra samúð og skrýtið að hafa undirtitilinn helgaðan henni, jafnvel þótt hún valdi svo miklu róti á ferðalagi vina- hópsins. Ofangreindir gallar eru samt sem áður minni háttar þegar bókin er skoðuð í heild því upp úr stendur góð persónusköpun aðalpersónunnar og vina hennar og spennandi at- burðarás sem líklegast heldur föngnum um það bil tíu til þrettán ára krökkum. Leit að sjálfsmynd BÆKUR Unglingaskáldsaga eftir Draumeyju Aradóttur. Myndir eftir Halldór Baldursson. 203 bls. Fjölvi, Reykjavík 2004 Birta draugasaga Hrund Ólafsdóttir Draumey Aradóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.