Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 38
38 | 14.12.2003
En þá aftur til Frakklands að nýjum árgangi af víni sem hefur áður verið
fáanlegt. Tourelles de Longueville 1999 er klassískur Bordeaux en hér er á
ferðinni „annað“ vínið frá Chateau Pichon-Longueville í Pauillac. Angan af
dökkum sólberjasafa í bland við tóbak, kaffi og snert af sveit, jafnvel hest-
húsi. Uppbygging létt, greinilega af nokkuð ungum vínvið. Tannín eru frekar
mild og vínið hefur góða sýru og lengd. Eikað í endann. Vantar helst umfang
í miðjuna. Þetta er jafnt gott villibráðarvín, t.d. með hreindýrasteik eða þá
með önd, hvort sem hún er villt eða alin. 3.090 krónur. 18/20
Suður-Frakkland er sá staður þar sem hvað mest er að gerjast í franskri
víngerð en því miður eru ekki mörg vín þaðan fáanleg í vínbúðunum. Það er
því fagnaðarefni þegar góðir fulltrúar suðursins mæta til leiks.
Domaine de la Rouréde Cotes de la Rousillon 2001 er verulega gott vín.
Rúsínur og þurrkaðir rauðir ávextir í nefi, all kryddað. Í munni nokkuð tann-
ískt, stíft, hefur gott boddí og töluverða lengd. Gæti
haft gott af umhellingu og nýtur sín best með mat.
1.480 krónur. 17/20
Loks tveir Ítalir sem sömuleiðis verða að hafa
mat til að njóta sín fulls. Castello Banfi Cum
Laude 2000 er frá Montalcino í suður-
hluta Toskana, vín þar sem Cabernet
Sauvignon, Merlot og Syrah hefur verið
blandað saman við hina ítölsku þrúgu
Sangiovese. Svört ber og nýbakaðar
möndlukökur í nefi, í munni nokkuð
sýrumikið, ungt, tannískt. Millilengd.
Þarft 1–2 ár en opnar sig betur með
mat. 1.840 krónur. 17/20
Castello Banfi Poggio Alle
Mura Brunello di Montalcino
1998, er verulega samþjappað í
nefi en fremur lokað í fyrstu, þarf
tíma til að opna sig og mæli ég
með umhellingu (og helst
geymslu í 2–3 ár). Rauð og svört
ber, töluvert sýrumikið og tann-
ískt með kaffi í lokin. 3.190
krónur. 18/20 sts@mbl.is
VÍN Það er alltaf eitthvað af virkilega góðum og fínum vínum sembætast við í vínbúðirnar. Hér eru nokkur. Fyrst hvítvín frá Búrg-
und í Mið-Frakklandi þar sem Chardonnay-þrúgan er upprunnin. Þótt hún
hafi farið víða og sé orðin að þekktustu vínþrúgu heims nýtur hún sín aldrei
betur en á heimaslóðunum í höndum góðra víngerðarmanna. Francois d’All-
aines er einn þeirra og nokkur vína hans hafa verið að tínast inn í verslanir á
árinu.
Nýjasta viðbótin er Francois d’Allaines Chassagne Montrachet 1er Cru
Les Chaumées, þungaviktarbúrgundari frá einu þekktasta og besta svæði
Bourgogne (og þar með veraldar). Þetta er ekki einfaldur og aðgengilegur
Chardonnay heldur vín sem endurspeglar jarðveg sinn og heimabæ fremur en
þrúguna og gerir miklar kröfur til neytandans. Þungt í nefi hunang, „gólf-
tuska“, reykur, þroskuð gul epli. Í munni kraftmikið og íhaldssamt, eikin stíf.
Mikið vín. Berið fram með humar eða hörpufiski,
skötusel eða þorski með mildri sósu, t.d. beurre
blanc. 4.470 krónur. 19/20
Peter Lehmann Stonewell 1997 er einn af topp-
unum frá Lehmann, vín sem hefur fest sig í sessi
sem eitt magnaðasta Shiraz-vín Ástralíu
og töluvert ódýrara en mikið af sam-
keppninni. Þetta vín hefur verið fáan-
legt um nokkurt skeið en nú er kom-
inn nýr árgangur af þessum risa. Að
lykta á víninu er eins og að ganga inn
í konfektverksmiðju, angan af lakkrís
og kókos og súkkulaði, algjört
nammi. Í munni kemur meira af
ávextinum í ljós, kraftmikill og
sætur rifsberjasafi, tannínin
mjúk, þykktin mikil. Þetta er
vínið fyrir mat þar sem einhver
sæta er til staðar, hvort sem er
grillsteik með BBQ-sósu eða
villibráð með t.d. rauðkáli eða
sultu. Eitthvað til að reyna með
skosku rjúpunni? Þetta vín ræð-
ur við allt. 3.490 krónur. 19/20
MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
GÓÐ OG FÍN VÍN
Hörkuvín frá Búrgund, Toskana, Rousillon og Barossa
L
jó
sm
yn
di
r:
G
ol
li
VÍNÞJÓNNINN Stefán Guðjónsson hefur opnað
heimasíðuna Vínsmakkarinn þar sem fjallað er um vín
frá ýmsum hliðum. Stefán hefur með góðum árangri
tekið þátt í fjölda vínþjónakeppna jafnt hér á landi
sem erlendis og er með fróðustu mönnum landsins á
þessu sviði. Slóðin er www.smakkarinn.is.
BÆKLINGURINN Vín með jóla-
matnum er nú kominn í verslanir en
hann er gefinn út á vegum ÁTVR. Í
bæklingnum er að finna fjölda vína
sem fulltrúar frá 21 víninnflutnings-
fyrirtæki hafa valið með mismun-
andi tegundum af jólamat. Vínun-
um er raðað eftir matarflokkum og
eru þeir lamb og naut, ljóst kjöt,
reykt kjöt, villibráð, fordrykkir og
eftirréttir.
LEIKUR AÐ ELDA LAMBAKJÖT Landslið mat-
reiðslumeistara hefur gefið út tölvugeisladisk
sem heitir Leikur að elda lambakjöt. Þar er að
finna tíu uppskriftir þar sem landsliðsmenn sýna
í eins konar „matreiðslusjónvarpsþætti“ hvernig
gera eigi uppskriftirnar frá grunni.
NÝTT