Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 42
42 | 14.12.2003
Ung kona hafði samband ogsagðist vera í standandi vand-ræðum með hvar hún ætti að
verja jólunum.
„Ég er í sambúð og er nýbúin að
eiga mitt fyrsta barn. Hingað til hef ég
alltaf verið heima hjá mömmu minni,
sem er einstæð, á aðfangadagskvöld en
maðurinn minn heima hjá fjölskyldu
sinni, svo höfum við hist seinna um
kvöldið. En nú eigum við fjögurra
mánaða barn og bæði mamma og
tengdaforeldrar mínir vilja hafa barnið
hjá sér á aðfangadagskvöld (þetta er
eina barnabarnið á báðum stöðunum).
Mér finnst raunar að barnið, sem er
brjóstabarn, sé svo lítið að það eigi að
fylgja mér, móður sinni. Maðurinn
minn segir hins vegar að konan eigi að
fylgja manni sínum – en ég vil ekki að
mamma sé ein á jólunum, og hún vill
vera heima hjá sér. Um þetta erum við
að þrasa af og til, engin niðurstaða
komin í málið og jólin nálgast.“
Ekki er það efnilegt! Og þó, ýmsir
möguleikar eru fyrir hendi. Í fyrsta lagi
getið þið skipst á að fara með barnið
til fjölskyldnanna sín hvor jólin. Í öðru
lagi getið þið farið saman og heimsótt
bæði heimilin á aðfangadagskvöld –
borðað á öðru heimilinu en tekið upp
pakkana á hinu. Einnig er til fræðilega
sá möguleiki að mamma þín, þið og
tengdafjölskyldan sláið ykkur saman á
aðfangadagskvöld og þetta verði reglu-
leg stórfjölskyldujól, til skiptis á heim-
ilunum. Þið getið líka ákveðið að vera
tvö ein heima með barnið ykkar á jól-
unum og loks getið þið pantað ykkur
miða til Kanaríeyja og varið þar jól-
unum og losnað þannig við að velja. –
Hinn frægi dómur Salómons var sögu-
leg og táknræn lausn, dæmisaga um
hvernig á að taka af allan vafa, en
hræðilegur var hann. (Tvær konur
sögðust eiga sama barnið. Salómon
vildi helminga barnið en þá gaf önnur
eftir og þeirri konu dæmdi hann barn-
ið). Jólin eiga ekki að vera vettvangur
til að láta reyna á hverjum þyki vænst
um hvern – þó sú verði stundum nið-
urstaðan. Þá er hætt við að hlutaðeig-
andi aðilar eigi ekki sérlega gleðileg
jól.
Auðvitað verður að finna lausn á
þessu jólamáli sem dugir til langframa,
annað býður upp á leiðindi. Ef hvor-
ugur aðilinn vill gefa eftir þá verður að
semja um lausn. Það er greinilegt að
þið hafið bæði verið svo lánsöm að
eiga gleðileg jól á æskuheimilum ykkar
– annars mynduð þið varla sækja
svona fast að halda þessum sið áfram.
En einhvern tíma hafið þið verið lítil
börn og foreldrar ykkar staðið í sömu
sporum og þið nú. Væri óeðlilegt að
horfast í augu við þá staðreynd að þið
eruð ekki lengur bara sambýlisfólk?
Þið eruð orðin þrjú og þar með fjöl-
skylda. Lítill kjarni sem er að brjótast
út úr gamla fjölskyldumynstrinu, tilbú-
inn til að lifa sjálfstæðu lífi. Barnið
ykkar mun vonandi í fyllingu tímans
minnast jólanna sinna heima – kannski
er því tímabært að þið slítið „jóla-
böndin“ við æskuheimili ykkar og
myndið sameiginleg jól með ykkar
barni. En huga má að því að gleðja
foreldra ykkar með heimsóknum
seinna um kvöldið eða fá þá í heim-
sókn til ykkar.
Guðrún
Guðlaugsdóttir
Álitamál
Hvar eigum við að vera um jólin, elskan mín?
Stendur þú andspænis erfiðum aðstæðum? Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp möguleikum í stöðunni | gudrung@mbl.is
Þetta er einkar fljótlegur réttur, sem hittir alltaf í mark. Líka góður sem forréttur.
Setjið bara nokkrar skálar með vatni á borðið svo félagar ykkar geti skolað puttana.
Ég set alltaf aðeins meira chili og passa upp á að hafa svo líka nóg af góðu, köldu
hvítvíni í umferð.
Handa 4
Góð ólífuolía
biti af nýju engiferi á stærð við þumal, afhýddur og fínsaxaður
2 hvítlauksrif, afhýdd og fínt sneidd
2–3 ný rauð chili, fræin fjarlægð og belgirnir fínt sneiddir
450 g rækja í skel, skiljið endann eftir ef ykkur sýnist svo, eða um 250 g af skelflettri
rækju
1–2 sítrónur, eftir smekk
1 hnefi flatblaða steinselja, gróft söxuð
sjávarsalt og svartur, nýmalaður pipar
4 langar sneiðar af ciabattabrauði, ristaðar
Setjið um 4 matskeiðar af ólífuolíunni á stóra, heita pönnu, ásamt engiferi, hvít-
lauk, chili og rækjum. Látið stikna í um 3 mínútur, lækkið síðan hitann og kreistið
safann úr sítrónu yfir. Bætið í steinselju og nokkrum skvettum af ólífuolíu. Hrærið
saman og takið pönnuna af hitanum. Nú á að vera komin góð og bragðmikil sósa –
smakkið á. Kannski þarf að bæta meiri sítrónusafa í. Saltið og piprið að smekk.
Berið fram á brauðinu sem dregur í sig sósuna.
Sæludagar með Jamie Oliver, PP-Forlag, 2003.
Jamie Oliver
Rækjur á ristuðu brauði