Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 25
Yfir Sahara með ástina í maganum Sólveig Guðmundsdóttir er Akureyringur í húð
og hár. Norðlenski hreimurinn er enn greinanlegur eftir nær tuttugu ára búsetu í
Frakklandi. En hvað lokkaði Akureyringinn yfir hafið, var það þráin um nýtt líf eða
hin eilífa ástargyðja? Hún skellihlær og segist hafa lært frönsku í Grenoble í Frakk-
landi eftir stúdentspróf. Franskar ástarörvar hittu stúlkuna loks í hjartastað er hún
var flutt aftur til fósturjarðarinnar. Ungur Fransmaður á stuttu ferðalagi um landið
heillaði Sólveigu upp úr skónum og úr varð ljúft ástarævintýri eins og þau gerast best.
„Ég fylgdi síðan hjartanu út í heim. Við leigðum
okkur bíl, keyrðum yfir Saharaeyðimörkina og
lentum í ótrúlegum ævintýrum. Við giftum
okkur er við snerum aftur til Frakklands og eig-
um í dag dæturnar Önnu Þórdísi og Eriku sem
eru 6 og 8 ára.“
– Hvernig hefur land ástarinnar tekið ís-
lensku valkyrjunni? „Hún blómstrar, verður sí-
fellt blíðari og meiri rómantíker,“ segir Sólveig
hlæjandi og bætir við að það sé gott að búa í
Frakklandi.
– Finnst þér að konur eigi erfiðar uppdráttar
í frönsku viðskiptalífi en karlar? „Nei, sér í lagi
innan tískugeirans þar sem markaðslöndin eru
alþjóðleg. Frakkar bera mikla virðingu fyrir
konum, íslenskir karlmenn eru óheflaðir sam-
anborið við franska kynbræður þeirra. Auðvit-
að eru til klisjur um daður og dufl á Signubökk-
um.“ Daðrið er list og þegar hún er iðkuð af
þeim sem kunna er hún neistinn í samskiptum
fólks, vill Sólveig meina. Íslenska valkyrjan hef-
ur tekið ástfóstri við Frakkland og vill hvergi
annars staðar vera. Jafnvel þótt stelpurnar
hennar dreymi um norðurljós og lygnar vetrar-
nætur á landi íss og elda.
Hönnun:
Steinunn
Sigurðardóttir.
Hönnun:
Björg
Pjetursdóttir.
Hönnun:
Ragna Fróða,
Path of love.
Hönnun:
Ásta, Creative Clothes.
Með stálvilja og þrautseigju hefur henni tekist
að koma íslenskum hönnuðum á tískukortið.
Engjateigi 5, sími 581 2141.
M
arg
fald
a›u punktana flína
Punkta›u fla› hjá flér!
2M díla sem gefur 6,0 milljónir díla
4x digital a›dráttur
1,6” TFT litaskjár
16 MB skyndiminni
Myndbandsupptaka án hljó›s
AR220 FRÁ AOSTA
STAFRÆN
MYNDAVÉL
Ver› mi›a› vi› 1000 punkta:
11.900 kr.
Smásöluver›: 21.900 kr.
Ver›gildi punkta: x10
H
ám
ark
1000
punktar á hvert tilbo›
F
í t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
7
2