Morgunblaðið - 22.07.2004, Page 1
M
B
-2
2-
07
-2
00
4-
1-
1-
F
O
R
S-
1-
ha
ra
ld
-
ur
- C
M
Y
K
STOFNAÐ 1913 198. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Líður best á
Íslandi
Selma Baldursson er leikari í Bonn
í Þýskalandi | Menning 36
Íþróttir, Viðskipti og Úr verinu
Íþróttir | Spennandi að leika gegn bestu þjóðum heims Alltaf fjölgar í hópi
afreksmanna Viðskipti |Sársaukafullur tanndrátturSvipmynd af Þórði Má
Jóhannessyni Úr verinu | Segir Íslendinga njóta ríkisstyrkja Bryggjuspjall
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
fréttafundi í ráðuneyti sínu í gær, að
árásir og mannrán síðustu daga í
Írak myndu ekki hafa áhrif á aðgerð-
ir Bandaríkjastjórnar þar í landi.
Sagði Rumsfeld að það byði hætt-
unni heim að f́ara að kröfum hryðju-
verkamanna þegar hann var spurður
um afstöðu sína til þess að filipps-
eysk stjórnvöld kölluðu aftur herlið
sitt í Írak fyrr í vikunni til þess að
bjarga lífi gíslsins Angelo dela Cruz.
Sex mönnum til viðbótar var rænt í
Írak í gær.
Óþekktur, herskár hópur hafði til-
kynnt síðdegis í gær að hann hefði
sex vörubílstjóra í haldi, tvo Kenýu-
menn, þrjá Indverja og einn Egypta,
og hótaði að hálshöggva þá með
þriggja sólarhringa millibili ef
heimalönd þeirra hættu ekki stuðn-
ingi sínum við innrásarherinn í Írak.
Mannræningjarnir sögðust hafa
varað alla þá við sem ættu viðskipti
við „bandaríska kúreka-hersetulið-
ið“, eins og segir í yfirlýsingu sem
þeir sendu frá sér í gær.
Heimalönd mannanna eru ekki í
hópi þeirra sem mynduðu innrásar-
herinn í Írak í fyrra.
Sex gíslar teknir í Írak
Hernaðarmikilvægi/12
Washington. Bagdad. AP, AFP.
BREYTINGATILLÖGUR allsherjarnefndar
við frumvarp ríkisstjórnarinnar um eignarhald
fjölmiðla voru samþykktar með 32 atkvæðum
við aðra umræðu á Alþingi í gærkvöld. Fela
breytingarnar í sér að engin lög um fjölmiðla
verða sett á sumarþinginu og núgildandi lög
falla brott. Þingmenn stjórnarandstöðunnar
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Þriðja og síð-
asta umræðan fer fram í dag og er gert ráð fyr-
ir að frumvarpið verði afgreitt sem lög frá Al-
þingi fyrir hádegi. Verður það þá sent forseta
Íslands til staðfestingar.
Bjarni Benediktsson, formaður allsherjar-
nefndar, mælti fyrir meirihlutaáliti nefndarinn-
ar. Lagði hann áherslu á í máli sínu að sú sátt,
sem ríkisstjórnin hefði stefnt að, náðist ekki og
því hefði þetta orðið niðurstaðan. Meirihlutinn
teldi samt sem áður engan vafa leika á því að
Alþingi væri heimilt að setja ný lög samhliða
því að fella niður lögin um fjölmiðla frá liðnu
vori. Með hliðsjón af þeim stjórnskipulega
ágreiningi sem hefði skapast um valdheimildir
handhafa ríkisvaldsins legði meirihlutinn þetta
til.
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa tapað sínu
100 daga stríði gagnvart þjóðinni þegar hann
mælti fyrir áliti minnihluta allsherjarnefndar.
„Það var órofa samstaða stjórnarandstöðunn-
ar, sem studdist við alls kyns ólík öfl úti í sam-
félaginu, sem knúði þessa ríkisstjórn til und-
anhalds. Og undanhaldið mun halda áfram,“
sagði hann. Kraftaverk þyrfti svo ríkisstjórn-
arsamstarfið lifði af kjörtímabilið.
Forsetinn milligöngumaður
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna, sagði að með viðbrögðum ríkisstjórn-
arinnar, að láta þjóðaratkvæðagreiðslu ekki
fara fram, væri verið að færa forseta Íslands-
meiri völd en ætlast var til með stjórnar-
skránni. Hann hefði eingöngu átt að vera milli-
göngumaður milli þings og þjóðar. Þessi
málsmeðferð gengi gegn þeirri hugsun sem
hefði verið alveg kristaltær árið 1944.
Svipuð gagnrýni kom fram í máli Guðjóns
Arnars Kristjánssonar, formanns Frjálslynda
flokksins. Þessi leið væri valin vegna þess að
stjórnarflokkarnir gætu ekki hugsað sér að
þjóðin felldi frumvarpið í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Sú stjórnlagakreppa sem stjórnar-
meirihlutinn teldi nú vera uppi, eins og kæmi
fram í nefndaráliti meirihluta allsherjarnefnd-
ar, væri algjörlega heimatilbúinn. Þingmenn
hefðu hengt sig á mismunandi túlkanir þess
efnis að vandi væri að fara eftir 26. grein stjórn-
arskrárinnar. Svo væri ekki.
Fjölmiðla-
frumvarpið
afgreitt frá
Alþingi í dag
Forsetanum/10
ÓMAR Ragnarsson fréttamaður kynnti nýja bók
sína, Kárahnjúkar – með og á móti, blaða- og frétta-
mönnum á allnýstárlegan hátt í gær. Flogið var á
virkjunarsvæði Kárahnjúka og lent á rennisléttri
flugbraut frá náttúrunnar hendi, við Sauðármel.
Þaðan var fólk ferjað á flugvélum yfir á svonefndan
Kringilsárrana sem annars er með öllu ófær en
hann markast af Brúarjökli, Jökulsárdal og hinni
vatnsmiklu Kringilsá. Í Kringilsárrana, sem var
friðlýstur árið 1975, er varplendi heiðagæsar og
þar er eitt stærsta hreindýrstarfastóð landsins sam-
an komið, yfir 100 tarfar. Fjórðungur friðlandsins
fer á kaf þegar vatni verður hleypt á Hálslón í
tengslum við Kárahnjúkavirkjun í ágúst 2006.
Þess má geta að „flugbrautin“, sem lent var á í
friðlandinu, verður þá á 80 metra dýpi.
Þessi hópur heiðagæsar sást við Kringilsárrana í
gær en gæsin er í sárum um þessar mundir.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Heiðagæs í Kringilsárrana
PÓLITÍSKUR leiðtogi skæruliða-
hreyfingar tamíla á Sri Lanka var-
ar við því að landið „rambi nú á
barmi stríðs“ en ummælin eru til
marks um að til beggja vona geti
brugðið um vopnahlé stjórnvalda og
tamíl-tígranna svokölluðu, sem nú
hefur verið í gildi í þrjú ár.
„Sri Lanka rambar á barmi
stríðs. Bæði ríkisstjórnin og tamíl-
tígrar búa sig nú undir átök.
Spurningin er hver lætur til skarar
skríða fyrst og hvenær,“ höfðu
fulltrúar tamíla eftir S.P. Thamil-
selvan, pólitískum leiðtoga skæru-
liðahreyfingarinnar.
Sri Lanka
„rambar á
barmi stríðs“
Colombo. AP.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
var í fyrrinótt fluttur á Landspítala –
háskólasjúkrahús við Hringbraut
vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn
kom í ljós staðbundið æxli í hægra
nýra. Forsætis-
ráðherra gekkst
undir aðgerð í
gær þar sem gall-
blaðra og hægra
nýra voru fjar-
lægð og gekk að-
gerðin að óskum.
Davíð Oddsson
mun ekki gegna
þingstörfum
næstu daga, en
Halldór Ásgrímsson gegnir starfi
forsætisráðherra í fjarveru hans.
Við upphaf þingfundar í gær
greindi Halldór Blöndal, forseti Al-
þingis, frá því að að Davíd Oddsson
hefði óvænt verið fluttur í sjúkrahús
og kvaðst hann fyrir hönd þingheims
senda Davíð og fjölskyldu hans hlýj-
ar kveðjur og óskir um góðan og
skjótan bata. Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar, vék
einnig að veikindum Davíðs í upphafi
máls síns er hann mælti fyrir minni-
hlutaáliti allsherjarnefndar vegna
fjölmiðlalaganna og sagðist vonast
til þess að forsætisráðherra næði
fullri heilsu hið allra fyrsta á ný og að
hann talaði í því sambandi fyrir hönd
þingsins alls.
Æxli
fjarlægt
Davíð Oddsson
Forsætisráðherra
fluttur í sjúkrahús
♦♦♦