Morgunblaðið - 22.07.2004, Síða 16

Morgunblaðið - 22.07.2004, Síða 16
MINNSTAÐUR 16 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Djass í Deiglu | Djasskvintettinn B-Sharp leikur á fimmta Heita fimmtudeginum í Deiglunni í kvöld, 22. júlí kl. 21.30. Kvintettinn skipa Simon Jer- myn, írskur gítarleikari og upp- hafsmaður bandsins, Ólafur Jóns- son og Jóel Pálsson saxófónleikarar, Þorgrímur Jóns- son kontrabassaleikari og Erik Qvick trommuleikari. Leikin verð- ur tónlist eftir meðlimi kvintettsins sem og eftir djasstónlistarmenn af ungu kynslóðinni, m.a. Reid And- erson frá Bandaríkjunum og Per Texas Johansson frá Svíþjóð. Fjárhagsaðstoð | Á síðasta fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar var lagt fram yfirlit um veitta fjárhags- aðstoð fyrstu 6 mánuði þessa árs. Fram kemur í yfirlitinu að fjárhags- aðstoðin á fyrri helmingi ársins nem- ur 21,4 milljónum króna sem er 4,1% lægri fjárhæð en á sama tíma í fyrra. Sýning | Áslaug Anna Stefánsdóttir opnar sýningu í Deiglunni í dag, fimmtudaginn 22. júlí kl. 17. Þar sýn- ir hún svonefnt vídeóverk. Yfirskrift sýningarinnar er „Stormur í vatns- glasi“. EIN með öllu, sem er fjölskylduhá- tíð, verður haldin á Akureyri í fjórða sinn um komandi versl- unarmannahelgi. Að hátíðinni stendur hópur áhugamanna sem kallar sig Vinir Akureyrar. Mark- miðið er að byggja upp stærstu fjöl- skylduhátíð landsins þessa miklu ferðahelgi og telja menn það þegar hafa náðst en áætlað er að um 14 þúsund manns hafi tekið þátt í henni á liðnu ári. „Það er almenn ánægja með há- tíðina,“ sagði Bragi Bergmann hjá Fremri kynningarþjónustu sem annast skipulagningu og fram- kvæmd hátíðarinnar. Vísaði hann þar til könnunar sem Gallup gerði fyrir Akureyrarbæ síðastliðið haust. Þar kom m.a. fram að um 95% þeirra sem spurðir voru töldu sig lítið sem ekkert ónæði hafa haft af hátíðahöldunum. „Við teljum að þeir dagar séu liðnir að hátíðin sé umdeild, mikill meirihluti bæjarbúa er ánægður með að hér sé haldin hátíð af þessu tagi,“ sagði Bragi. Hann nefndi að hátíðin hefði þá sérstöðu að aðgangur að henni væri ókeypis. Í boði væri skemmtun á Ráðhústorgi, fjórum sinnum, á föstudagskvöld, tvisvar á laugardag og á sunnudag auk lokahátíðar á Akureyrarvelli á sunnudagskvöld, þar sem m.a yrði brekkusöngur og flugeldasýning. Þá yrði efnt til grillhátíða í hverfum bæjarins fyrir lokahátíðina. Styrktaraðilar sjá um fjármögnun að stærstum hluta, auk þess sem svonefndir hagsmuna- aðilar leggja í púkk og Akureyr- arbær leggur fram fé. Auk skemmtana á Ráðhústorgi þar sem landsþekkir skemmtikraft- ar í bland við heimamenn sjá um dagskrá verður ýmis afþreying í boði fyrir alla aldurshópa, s.s. leik- tæki, Go-Cart bílar, bátaleiga og ýmislegt fleira í þeim dúr. Sú nýbreytni verður í ár að efnt verður til fjölskylduguðsþjónustu undir berum himni í Kjarnaskógi kl. 11 á laugardeginum. Meðal hljómsveita sem leika á Akureyri þessa helgi má nefna Papa, Skítamóral, Í svörtum fötum, Á móti sól, Nýdanska, Íslenska fán- ann, Quarashi, 200.000 naglbíta, Gis and the City Band, Sixties og Úlfana. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu haldin í fjórða sinn á Akureyri Markmiðið að byggja upp stærstu fjölskylduhátíð landsins Morgunblaðið/Kristján Ein með öllu. Fulltrúar fjölskylduhátíðarinnar Ein með öllu, f.v. Sveinn Rafnsson, Bragi Bergmann og Birgir Torfason. Baldurshagi | Jón Ingi Cæsarsson, fulltrúi Samfylkingar í umhverfisráði, telur eðlilegt að ráðið boði til funda þar sem kynntar verði fullmótaðar hugmyndir verktaka um nýtt fjöl- býlishús við Baldurshaga. SS-Byggir hefur reitinn til umráða og hefur kynnt hugmyndir um að reisa þar 12 hæða fjölbýlishús með 45 íbúðum. Fjallað var um málið á fundi ráðsins nýlega, í framhaldi af því að óskað var eftir stækkun lóðarinnar um tæpa 4.000 fermetra. Ráðið lagði til að um- sækjanda yrði heimilað að fullvinna deiliskipulagstillögu og var umhverf- isdeild falið að setja fram tillögu að breytingu á aðalskipulagi í kjölfarið. Jón Ingi segir í bókun að Akureyr- ingar eigi allir að fá að segja álit sitt á hugmyndunum. „Þær eru afar stór- tækar og snerta viðkvæmt svæði í bæjarmyndinni,“ segir í bókun hans. Einnig að eðlilegt sé að umhverfisráð boði til kynningarfundar þar sem full- mótaðar hugmyndir verði kynntar og að í framhaldi af vandaðri kynningu mun svo ráðið taka ákvörðun „í sam- ræmi við viðbrögð bæjarbúa og hefur að leiðarljósi hagsmuni bæjarins og bæjarbúa eins og því ber að gera.“ Föstudagshádegi | Jón Ólafsson leikur og syngur eigin lög við texta Hallgríms Helgasonar, Ólafs Hauks Símonarsonar, Kristjáns Hreins- sonar og Steins Steinars í Ketilhús- inu í hádeginu á föstudag, 23. júlí.            ÞESSA dagana er unnið að því að mæla vatnsrennsli í lækjum í Hlíð- arfjalli. Lækirnir eru stíflaðir og yf- irborðsrennslið svo mælt með ákveð- inni aðferð. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, framkvæmda- stjóra Vetraríþróttamiðstöðvar Ís- lands, VMÍ og forstöðumanns Skíða- staða, er verið að kanna hversu mikið vatn er í fjallinu og þá hvort það er nægilega mikið til snjóframleiðslu. Þótt eitthvað sé af leysingarvatni í lækjunum lofa fyrstu mælingar góðu, enda bullandi uppsprettur víða um fjallið. Mælingum verður svo haldið áfram fram á vetur enda færi snjóframleiðsla fram á síðustu og fyrstu mánuðum árs. Enn hefur eng- in ákvörðun verið tekin um hvort hafin verði snjóframleiðsla í Hlíðar- fjalli en að sögn Guðmundar Karls er málið áfram til skoðunar. Einnig hef- ur verið unnið að því að jafna lands- lagið við skíðalyfturnar. Morgunblaðið/Kristján Stíflur: Starfsmenn Skíðastaða fylgjast með Finni Aðalbjörnssyni verktaka stífla einn lækinn í Hlíðarfjalli. F.v. Magnús Þorsteinn Sigursteinsson, Bjarni Þór Benediktsson og Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður. Vatnsmælingar í Hlíðarfjalli BRÚÐKAUP að gömlum sið verður aðalatriði starfsdags á sumri, sem haldinn verður í Laufási næsta sunnudag, 25. júlí. Dagskráin hefst kl. 14 með því að brúðurin kemur ríðandi í söðli að Gamla bænum, þar sem hún gengur til brúðarhúss og klæðist skautbúningi. Á meðan kemur brúðguminn í hlað ásamt sveinum sínum. Þegar brúðurin er tilbúin er gengin brúðarganga til kirkju, þar sem athöfnin fer fram samkvæmt handbók frá 1879. Allir eru vel- komnir til kirkju. Eftir athöfnina í kirkjunni er tekið til við veisluhöld við Gamla bæinn. Þar verður eitt og annað gert til skemmtunar, m.a. sýnd glíma. Gestum gefst tækifæri til að bragða á veislukostinum og taka þátt í veisluhöldunum, m.a. í dansi. Hluti veislukostsins verður fram- leiddur inni í Gamla bænum og geta gestir séð þá matargerð, en einnig verður sýnd tóvinna í baðstofunni. Lifandi tónlist verður leikin, og inni í Gamla prestshúsinu geta gestir keypt sér veitingar. Þetta er í ellefta skipti sem starfsdagur á sumri er haldinn hátíðlegur í Lauf- ási. Starfsdag- ur í Laufási AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.