Morgunblaðið - 22.07.2004, Page 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 19
BÓNUS
Gildir 22.–25. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Bónus rauðvínsleginn svínahnakki ......... 659 1.078 659 kr. kg
Bónus rauðvínslegnar svínalærissneiðar 659 1.078 659 kr. kg
Bónus rauðvínslegnar kótilettur ............. 769 1.258 769 kr. kg
KF-læri, villikryddað ............................. 857 1.286 857 kr. kg
Bónus samlokur .................................. 99 Nýtt 99 kr. stk
Kók kippa ........................................... 999 1.099 91 kr. ltr
Bónus ís, 2 l ........................................ 189 289 95 kr. ltr
Bónus eplasafi, 1 l............................... 59 89 59 kr. ltr
Bónus brauð, 1 kg ............................... 89 98 89 kr. kg
11-11
Gildir 22.–28. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Móa kjúklingabringur magnpakkning ..... 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Móa appelsínulæri/leggur .................... 337 449 337 kr. kg
Móa rauðvínsl. kjúklingalæri/leggur....... 337 449 337 kr. kg
Pascual jógúrt ..................................... 159 219 318 kr. kg
Kuchen Meister kökur ........................... 159 229 397,5 kr. kg
LU Oat-bits hafrakex vanillu/súkkulaði ... 149 178 693 kr. kg
Mónu ávaxtahlaup ............................... 179 229 719 kr. kg
FJARÐARKAUP
Gildir 22.–24. júlí m. birgðir end. nú kr. áður kr. mælie.verð
FK reykt folaldakjöt .............................. 399 665 399 kr. kg
FK saltað folaldakjöt ............................ 399 665 399 kr. kg
FK lambalæri, jurtakryddað................... 863 1.438 399 kr. kg
FK blandað lambasaltkjöt ..................... 399 664 495 kr. kg
FK kindabjúgu ..................................... 399 655 698 kr. kg
Nautasirloin steik................................. 1.560 1.898 1.560 kr. kg
4 hamborgarar + kók 2 l ....................... 495 587 495 kr.
HAGKAUP
Gildir 22.–25. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Lambalæri úr kjötborði ......................... 738 1.089 738 kr. kg
Góð kaup rauðvínsl. svínalærissneiðar ... 719 1.198 719 kr. kg
Góð kaup rauðvínsl. svínahnakkasn....... 719 1.198 719 kr. kg
Góð kaup rauðvínslegnar svínakótilettur. 779 1.298 779 kr. kg
Holta kjúklingalæri/leggir í hvítlaukss. ... 359 599 359 kr. kg
Holta kjúklingalæri og leggir í texassósu. 359 599 359 kr. kg
Holta kjúklingav. í mexíkókryddl.sósu ..... 299 499 299 kr. kg
KRÓNAN
Gildir 21.–27. júlí m. birgðir endast nú kr. áður kr. mælie.verð
Krónu þurrkr. lambaframhr.sneiðar ........ 998 1.198 998 kr. kg
Tómatar .............................................. 159 219 159 kr. kg
Agúrkur íslenskar 1/1 .......................... 59 109 59 kr. kg
Sprite 2 l............................................. 99 199 49,5 kr. l
Víking pilsner 0,5 l ............................... 59 86 118 kr. l
Nóa Maltabitar .................................... 159 199 795 kr. kg
Maarud flögur, sour cream.................... 259 299 1.039 kr. kg
Maarud flögur, salt & pipar ................... 259 299 863 kr. kg
Maarud sprö mix, paprika..................... 259 299 1.295 kr. kg
NETTÓ
Gildir 22.–28. júlí m. birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. verð
Nettó lambalæri villikryddað ................. 799 1.598 799 kr. kg
Ódýrt súpukjöt..................................... 299 399 299 kr. kg
Grísabógssneiðar................................. 495 989 495 kr. kg
Grísalærissneiðar, frosnar, í poka .......... 495 989 495 kr. kg
BB kartöflusalat 300g .......................... 99 188 330 kr. kg
BB hrásalat 300g ................................ 99 147 330 kr. kg
Íslandsfugl kjúklingur 1/1, ferskur ......... 359 598 359 kr. kg
Íslandsfugl úrb. bringur án skinns.......... 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Maryland kókoshnetukex, 125g ............ 69 99 552 kr. kg
Egils Mix 2 l......................................... 99 197 50 kr. l
NÓATÚN
Gildir 22.–28. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Ferskur lax í heilu................................. 399 599 399 kr. kg
Fersk laxaflök ...................................... 899 1.199 899 kr. kg
Ferskar laxasneiðar .............................. 599 899 599 kr. kg
Ferskur Móa kjúklingur 1/1................... 399 598 399 kr. kg
Íslenskt kínakál ................................... 299 389 299 kr. kg
Ferskjur, 1 kg öskjur ............................. 149 259 149 kr. kg
Nektarínur, 1 kg öskjur ......................... 149 259 149 kr. kg
Kjörís Mjúkís 1 l, allar tegundir .............. 299 499 299 kr. l
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir frá 22.–26. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Ekta lambalæri, þurrkr. ......................... 979 1.398 979 kr. kg
Ekta grísalærissn., þurrkr. ..................... 658 1.098 658 kr. kg
Gourmet grísakótil., léttr. hunangs. ........ 1.148 1.435 1.148 kr. kg
Gourmet lambalærissneiðar .................. 1.243 1.776 1.243 kr. kg
Matf. kjúkllæri m/legg, magnkaup......... 399 499 399 kr. kg
Matf. kjúkllæri, magnkaup .................... 399 499 399 kr. kg
Matf. kjúklvængir, magnkaup ................ 299 399 299 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir til 27. júlí nú kr. áður kr. Mælie.verð
Grísakótilettur úr kjötborði .................... 748 998 748 kr. kg
Fjallalamb bógsteik, krydduð ................ 1.089 1.398 1.089 kr. kg
Fjallalamb Einbúi, lambafille................. 1.998 2.674 1.998 kr. kg
Roka ostakex, 75g ............................... 89 167 1.187 kr. kg
Don Juan 100% appelsínusafi, 1 l......... 249 298 249 kr. ltr
Mills kavíar, 190 g ............................... 176 238 926 kr. kg
Móna Jazz, 3x40 g myntusúkkulaði........ 159 188 53 kr. stk
Doritos Nacho Cheese, 200g ................ 129 259 645 kr. kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 22.–28. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
1944 Lasagne..................................... 342 428 342 kr. pk
1944 Indverskt lambakjöt .................... 390 488 390 kr. pk
Vínarsnitsel ......................................... 359 449 1.005 kr. kg
Gevalia kaffi, 500 g.............................. 299 359 598 kr. kg
Nescafé Gull, 100 g ............................. 459 529 4590 kr. kg
Frón appelsínu/súkkulaði kex, 300 g..... 198 249 653 kr. kg
Maryland kex, 150 g ............................ 89 105 587 kr. kg
Freyju Draumur, 2 stk., 100 g ............... 159 198 79 kr. stk
Kjúklingur, lax og folaldakjöt á tilboði
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Grænmeti, salöt, snakk, kex, sætindi og drykkjarvörur eru meðal þeirra vöruflokka sem finna má á tilboðsverði í verslunum.
Ég hef gaman af því að versla ímatinn og fer oft í mat-vörubúðir þegar ég er er-
lendis, svona til að forvitnast um úr-
valið,“ segir Guðrún Geirsdóttir,
lektor í uppeldis- og kennslufræðum
við Háskóla Íslands. „Ég reyni að
fara einu sinni í viku í Bónus og auð-
vitað ætla ég alltaf að vera skynsöm
og halda mig við innkaupalistana og
kaupa allt þar en það dettur oft um
sjálft sig. Þetta er eins og með hrís-
grjónagrautinn og kindakæfuna, sem
ég ákveð að hafa í hvert mál í upphafi
mánaðar þegar reikningarnir koma
og ég átta mig á hversu stór hluti
launanna fer í matarinnkaup.“
Æfir langhlaup
Guðrún býr ásamt 18 ára dóttur
sinni, Ragnheiði Láru, og skammt
undan er kærastinn Hannes sem sér
yfirleitt um fiskmáltíðirnar einu sinni
til þrisvar í viku. Guðrún æfir hlaup
og var í öðru sæti í Mývatnsmaraþon-
inu í ár en í ár hljóp hún hálfmaraþon
í Íslandsmeistaramótinu eftir að hafa
náð öðru sæti í fyrra. Þessa dagana
er hún að undirbúa sex daga göngu
með bakpoka og tjald um Kjalveg
hinn forna eins og sjá má af því sem
ratar í innkaupakörfuna.
„Þetta verða ekki dæmigerð inn-
kaup í dag,“ segir hún. „Fyrir utan
gönguferðina verð ég með gesti í mat
og þá fer ég í Hagkaup, annað hvort í
Kringlunni eða á Eiðistorgi.
Gestunum ætla ég að bjóða upp á
salatblöndu með fetaosti og ristuðum
furuhnetum, hunangsmarineraðar
kjúklingabringur með sesamfræi á
grillið, blöndu af bökuðum sætum
kartöflum og venjulegum kartöflum
krydduðum með timjan og melónur í
eftirmat en melónur eru á sértilboði
núna. Svo er gott að vera með gott
kaffi og súkkulaðibita í lokin.“
Guðrún segir að yfirleitt borði þau
frekar léttan mat yfir sumarið, fisk
einu sinni til tvisvar í viku, sem
Hannes sér um, en sjálf er hún meira
fyrir grænmeti og vildi gjarnan vera
hollustan uppmáluð og borða meira
af lífrænt ræktuðu grænmeti. „En
það er helmingi dýrara en annað
grænmeti sem er í boði og þá tími ég
hreinlega ekki að kaupa það,“ segir
hún. „Það er aðeins munur á vetr-
armatseðlinum þegar dagskráin er
þrengri,“ segir hún. „Ég æfi hlaup
þrisvar til fjórum sinnum í viku milli
sex og átta á kvöldin og kem oft seint
heim og finnst þá of seint að elda eitt-
hvað flókið. Þá er gott að grípa í ein-
faldari matseld. Eitthvað sem stinga
má í ofninn eða pastarétti og annað
fljótlegt. Á sumrin gerir minna til að
elda seinna. Þá verður matseðillinn
líka fjölbreyttari þegar tíminn er
nægur. Þá grillum við oft fisk og svo
eru það kjúklingabringurnar. Þær
eru alltaf vinsælar. Reyndar tengi ég
sumarið meira við sukk í matargerð
og býð oftar í mat enda auðveldara að
ná til fólks þegar vinnuálagið er
minna.“
Samloka og þurrfóður
Guðrún segir að eitt það skemmti-
legasta sem hún geri á sumrin sé að
fara í lautarferð með smurt brauð og
kaffi á brúsa. „Samloka með harð-
soðnum eggjum, tómötum, beikoni,
rúkolasalati og graslauk er alveg
ómissandi,“ segir hún. „Svona sam-
loka verður í boði fyrsta daginn í
gönguferðinni en svo verður alveg
skipt um gír. Við verðum að vikta allt
í mátulega skammta í plastpoka, 80-
100 g af múslí í morgunmat á dag,
pakkasúpu í hádeginu, döðlur, grá-
fíkjur, rúsínur í skömmtum til að
nasla á yfir daginn. Persónulega finn-
ast mér hnetur með súkkulaðihjúp
betri en þjálfarinn minn er
ekki alveg á sama máli.
Svo er það sérstakt þurrfóður úr úti-
vistarbúðum í kvöldmat sem er alveg
fullkomin máltíð. Ég tek líka með
mér orkudrykk á brúsa og svo er gott
að vera með flatkökur og hangikjöt
en lúxusinn finnst mér vera að taka
með einhvern mjúkost, td. Gullost
eða Camembert, þeir halda sér vel og
verða bara betri þegar þeir klessast í
bakpokanum í nokkra daga. Sama er
að segja um matarkex eða kremkex,
það er líka gott að vera með það.
Verðlaunin eftir göngu dagsins er
heitt Swiss Miss með
skvettu af
Captain
Morgan út í.
Það er topp-
urinn á til-
verunni á
svona
göngu.“
HVAÐ ER Í MATINN?| Guðrún Geirsdóttir
Létt yfir sumarið
„Ég æfi hlaup þrisvar til fjórum sinnum í viku milli
sex og átta á kvöldin og kem oft seint heim og
finnst þá of seint að elda eitthvað flókið.“
Guðrún
Geirsdóttir:
Duglegri að
halda mat-
arboð á
sumrin.
Morgunblaðið/Ásdís
Ferðakarfan: Sviss Miss kakó í
bland við hollmeti.
Jarðvegsþjöppur, hopparar
og keflavaltarar
Sími 594 6000
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
sd
ís