Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 26
MINNINGAR 26 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.mosaik.is LEGSTEINAR sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði Í þrjátíu ár bjuggum við undir sama þaki, Bauka tengdamóðir mín og við Helga dóttir hennar. Hún bjó á efri hæðinni og við á þeirri neðri að Ásvallagötu 4. Tilhugalíf okkar Helgu var snaggaralegt og ég flutti snemma inn á ættaróðalið, þar sem Bauka og Birgir bjuggu fyrir en börn og tengdabörn höfðu búið á hinum ýmsu hæðum hússins. Við giftum okkur í desember og jólin skammt undan. Það var þá sem mín fyrstu eftirminnilegu kynni af Bauku hóf- ust. Það var til siðs að bjóða öllu lið- inu til veislu á aðfangadag, já þvílík rjúpnaveisla. Ég hafði að vísu lítils háttar bragðað á rjúpu á heimili for- eldara minna en það var ekkert í lík- ingu við það sem ég átti eftir að kynnast hjá henni Bauku. Á að- fangadag byrjaði máltíðin með hrís- grjónagraut með möndlu, síðan komu gómsætar tartalettur með sjávarréttafyllingu og að lokum spekkaðar rjúpur með rjómasósu. Aldrei hafði ég borðað annað eins í einni máltíð – „Hvað borðaðir þú margar bringur?“ – tengdasynirnir báru gjarnan saman bækur sínar að kvöldverði loknum og ótrúlegustu tölur voru nefndar. Og svo fengum við rjúpnasúpu nokkrum dögum seinna – maður var saddur dögum saman. Bauka kom sem betur fer öllum munnlegu uppskriftunum að jóla- matnum til skila til Helgu og síðustu árin á Ásvallagötunni borðaði hún ævinlega hjá okkur rjúpur og von- andi á ég eftir að njóta uppskrift- anna um ókomin ár. Þá nutum við auðvitað hjálpsemi hennar við upp- eldi barnanna okkar. Bauka var gangandi söngbók, hún kunni alla texta hvort sem voru íslensk ættjarðarljóð eða sænskar vísur og hún kunni líka að spila þetta allt á gítar eða mandólín. Það SVEINBJÖRG HELGA KJARAN ✝ SveinbjörgHelga Kjaran Sophusdóttir Blön- dal fæddist á Siglu- firði 8. des. 1919. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Skógar- bæ í Reykjavík hinn 7. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkj- unni 20. júlí. litla sem ég kann á gít- ar lærði ég af tengda- móður minni. Hún hafði sem ung stúlka sungið ,,den anden stemme“ með systur sinni áður en hún flutti til Svíþjóðar og þær voru ógleymanlegar kvöldstundirnar þegar Sigga kom í heimsókn til Íslands og Bauka tók í gítarinn. Hún greip reyndar í gítar nánast fram í andlátið – en sló ekki endilega á strengina allra síðustu árin – meira eins og „luftgítar“, en hún söng og heillaði yngri kynslóð- ina með smellnum textum sem hún einhvern tíma hafði lært og kunni svo vel: Vísurnar um Adam í Para- dís, sem velti sér á hnjánum, og vís- urnar um hana Siggu á Barði sem var að búa sig til brúðkaups vöktu ómælda gleði og hlátur. Bauka vildi alltaf vita hvar allir voru niðurkomnir, alltaf. Hún var ekki í rónni fyrr en allir voru komn- ir heilir heim. Þetta kostaði mörg símtöl, já síminn var henni dýrmæt- ur, „En herlig telefón“, eins og segir í einu kvæðanna sem hún söng stundum. Til þess þurfti hún að muna símanúmer allra og núna síð- ustu árin líka öll GSM-númerin og NMT-númerin. Það klikkaði aldrei að hún hafði upp á okkur hvort sem vorum uppi á jökli eða úti í löndum. Þetta voru ekki alltaf löng símtöl, síðustu árin var þetta eins og til þess að tryggja að minnið væri nú í lagi. Í miðjum fréttatíma hringir síminn: „Er ekki hann Jón sonur hans Páls læknis?“ gat spurningin hljóðað þegar síminn var tekinn upp – „Jú, mamma mín,“ heyrði ég Helgu segja – og lengra varð þetta símtal ekki. En þau gátu orðið ansi mörg slík á einu kvöldi, sérstaklega eftir að hún flutti á Skógarbæ fyrir um tveimur árum. En síminn var hennar ær og kýr – hvílík guðs mildi að hún ruglaðist aldrei í öllum þess- um tökkum sem fjölgaði og fjölgaði með nýrri og fullkomnari símum. Þá var Bauka ættfróð með ein- dæmum. Þau Birgir áttu marga ættfræðibókina og þar kviknaði áhugi minn á þessum fræðum. Þá fylgdist hún náið með pólitíkinni enda nokkrir í fjölskyldunni á kafi í pólitík. Svo var hún óvenju fróð um sögu lands og þjóðar. Við hjónin vorum stödd á tjaldstæði við Set- berg í Grundarfirði þremur dögum áður en hún lést og þá hringdi sím- inn: „Á Setbergi? – þar var hann Magnús, mágur hennar Lólóar, prestur“ – ættfræðin og landafræð- in voru alveg á hreinu fram á síðasta dag. Þegar Bauka flutti á Skógarbæ fluttum við Helga í Frostaskjólið. Bauka átti þar sitt athvarf, sínar myndir, málverk og bækur hjá okk- ur – því miður naut hún þess ekki nógu oft að gista hjá okkur í her- berginu sínu – en það gerði hún um síðustu jól í nokkra daga en því mið- ur var nú engar rjúpur að hafa vegna veiðibanns. Öll barnabörnin nema eitt voru búin að heimsækja hana síðasta sól- arhringinn sem hún lifði. Eitt þeirra sem dvalist hafði erlendis í nokkra daga var væntanlegt á hverri stundu; nokkrum mínútum eftir heimkomuna var eins og hún vissi að nú væri mál að kveðja – nú vissi hún hvar allir voru – allir voru komnir heim. Ólafur Sigurðsson. Enginn, fyrir utan móður mína, hafði meiri áhrif á mig í uppvext- inum en Sveinbjörg amma mín. Ég ólst upp í stórfjölskyldu, þar sem ýmist þrjár eða fjórar kynslóðir bjuggu undir sama þaki og var stundum álitamál hvort um eitt eða fleiri heimili var að ræða, þótt íbúð- irnar væru aðskildar. Amma var að sjálfsögðu miðpunktur fjölskyld- unnar, sú sem tengdi alla saman. Hún varð mér einstaklega nákomin fyrstu æviárin og tók daglegan þátt í uppeldi mínu, ekki síst vegna þess að móðir mín varð ekkja aðeins 21 árs gömul og giftist ekki aftur fyrr en nokkrum árum síðar. Ég bjó í sama húsi og amma allt fram á háskólaárin og síðan aftur um nokkurra ára skeið eftir að ég flutti að nýju í risið í fjölskylduhús- inu. Allan þann tíma var að sjálf- sögðu um daglegan samgang að ræða og jafnvel þegar ég bjó annars staðar heimsótti ég hana oft eða heyrði að minnsta kosti í henni í síma. Hún fylgdist vel með sínu fólki og notaði símann óspart til að fá fréttir af börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum, helst oft á dag. Amma hafði mikið yndi af listum og menningu. Hún var alin upp á heimili þar sem ljóðlist en þó eink- um sönglist var í hávegum höfð og deildi síðar með afa mínum miklum áhuga á bókmenntum, myndlist og íslenskri náttúru. Hún var afburða- nemandi í skóla og eftir að form- legri skólagöngu lauk hélt hún áfram að mennta sig upp á eigin spýtur, einkum með miklum bók- lestri. Hún flíkaði þó ekki þekkingu sinni heldur birtist hún með þeirri hógværð, sem henni var eiginleg. Amma hafði alla tíð mikinn áhuga á stjórnmálum. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum en tjáði þær jafnan af hófstillingu. Hún var eindreginn stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins en bjó yfir um- burðarlyndi og víðsýni til að kunna að meta það sem jákvætt var hjá stjórnmálamönnum úr öðrum flokk- um. Það var ekki hennar háttur að fella harða dóma eða hafa uppi stór- yrði en ef henni mislíkaði sérstak- lega við orð eða gjörðir einhverra tók hún yfirleitt ekki dýpra í árinni en að segja: „Mér finnst hann frek- ar leiðinlegur þessi.“ Hún var afar næm á fólk og því sögðu ummæli af þessu tagi allt sem segja þurfti um viðkomandi. Fyrir ungan mann, sem snemma fékk áhuga á stjórnmálum, var ómetanlegt að geta leitað í smiðju til ömmu sinnar til að fræðast um at- burði og einstaklinga í stjórnmála- átökum fyrri tíðar. Mörgum þeirra hafði hún kynnst vel af eigin raun, ekki síst í gegnum stjórnmálaþátt- töku afa. Hún var hins vegar ekki bara vel að sér um fortíðina heldur fylgdist vel með innlendum og er- lendum viðburðum allt til síðasta dags. Það brást ekki að um leið og greint hafði verið í fréttum frá ein- hverjum sviptingum á stjórnmála- sviðinu hringdi hún til að spyrja nánar út í atburðarásina eða til að láta álit sitt í ljós. Ég lærði margt af ömmu minni en auðvitað var hún mér fyrst og fremst blíð og góð amma. Hún hvatti mig til að gera mitt besta, gladdist með mér þegar vel gekk og studdi þegar á bjátaði. Hún var líka vinur, sem alltaf var hægt að leita til og alltaf var gaman að umgangast. Hennar mun ég sárt sakna. Birgir Ármannsson. Það er sárt að hugsa til þess að elsku amma Bauka sé farin. Amma, sem svo lengi hefur verið svo stór hluti af lífi manns, fastur punktur í tilverunni. Upp í hugann koma óteljandi minningar sem eru dýr- mætari en ég hafði nokkrun tíma gert mér grein fyrir. Ásvallagatan var eins og annað heimili og dyrnar stóðu alltaf opnar, bæði á táknrænan hátt og í bókstaf- legri merkingu. Ég minnist þess aldrei að hafa verið hrædd um að læsa mig úti, það var alltaf hægt að hlaupa til ömmu sem tók manni opn- um örmum. Hún passaði til dæmis okkur bróður minn þá morgna sem mamma var að kenna. Við hlökk- uðum alltaf til þessara morgna. Hún gætti þess að maður færi ekki svangur í skólann og enginn sauð betri egg en amma, hjá henni voru þau alltaf brosandi. Dýrgripirnir í fínu stofunni heilluðu okkur barna- börnin, og síðar barnabarnabörnin, enda af nógu að taka. Og aldrei var okkur bannað að leika með neitt, hvort sem um var að ræða dýrindis postulínsstyttur, silfuröskjur eða útskorna fílstönn. Síðustu árin var hugur ömmu far- inn að leita meira til baka og ég naut þess að hlusta á hana segja frá, til dæmis frá því þegar hún og afi settu upp hringana uppi á lofti á Hóla- torgi á gamlárskvöld og frá brúð- kaupinu á Siglufirði, þar sem óvænt var slegið upp veislu og sungið og dansað fram á nótt. Þegar amma var veik og of þreytt til að tala var líka bara gott að sitja hjá henni og halda í höndina á henni, það þurfti engin orð. Samskipti ömmu við fjölskylduna lýsa henni betur en nokkuð annað. Meiri fjölskyldumanneskja fyrir- fannst ekki, amma vildi alltaf að dætur hennar og aðrir í fjölskyld- unni hefðu það sem allra best og skorti ekkert. Þegar ég hugsa um hið vikulega kaffi hjá ömmu á sunnudögum koma samstundis upp í hugann setningar eins og „Það vantar stól handa Óla,“, „Vill Pálmi meira kaffi?“ eða „Hilmar sagðist ætla að koma, ætli það hafi nokkuð komið fyrir hann?“ Þar sem amma gat ekki verið á fleiri en einum stað í einu notaði hún símann óspart til þess að fylgjast með hvar allir voru og hvort það væri ekki örugglega allt í lagi með alla. Það tók yfirleitt ekki langan tíma að komast að því hvar aðrir í fjölskyldunni voru, það var einfaldlega hringt í ömmu Bauku. Ég held ég tali fyrir munn allra í fjölskyldunni þegar ég segi að við munum minnast hennar í hvert skipti sem síminn hringir. Betri, fallegri og klárari mann- eskja en amma Bauka er ekki til. Amma, sem vildi alltaf vera vel til höfð. Amma, sem alltaf var hægt að treysta á. Enginn var betur að sér í þjóð- og heimsmálum, hún þekkti alla íþróttamenn, innlenda sem er- lenda, kunni öll kvæði og vísur og síðast en ekki síst hafði hún hlýjan faðm sem var alltaf opinn. Það var stórt skarð höggvið í fjölskylduna þegar amma Bauka féll frá en þegar ég horfi á mömmu og frænkurnar mínar tvær, Ólöfu og Helgu, sé ég að amma hefur reist sér minnis- varða í þeim og afkomendum þeirra, því hún lifir áfram í okkur. Ég vona að amma hafi vitað hversu mikils virði hún var og er okkur öllum og hversu sárt hennar er saknað. Hvíldu í friði, elsku amma. Heiða Björg. Við systur vorum svo heppnar að alast upp í sama húsi og amma Bauka. Það var alltaf gaman í heim- sókn hjá henni. Íbúðin full af spenn- andi hlutum sem þau afi höfðu safn- að í gegnum árin. Best var að við barnabörnin máttum leika okkur með alla munina þegar við vildum. Meira að segja „fína stofan“ var okkar leikvöllur. Hún var hlaðin glæsilegum húsgögnum, málverk- um, fjölskyldumyndum, styttum og öðrum smáhlutum. Rókókó-stólarn- ir voru trampolín, rennibraut eða eitthvað enn æsilegra, til dæmis trjáhýsi. Persneska teppið var upp- lögð þrautabraut þar sem hoppa varð á milli blóma og ekki mátti snerta „hvítt“. Mest spennandi var þó „klósettstóllinn“. Önnur her- bergi voru ekki síður spennandi. Inni í borðstofu leyndist Aladin- lampi, nauðsynlegur í ævintýraleik, beyglaður trompet og ógrynnin öll af bollastelli og glösum. Inni á kon- tor var stærðarinnar veggfastur bókaskápur sem var hin besta klif- urgrind, í fataherberginu rokkur sem oftar en ekki var í hlutverki stýris á sjóræningjaskipi. Meðan á leik stóð sat amma sallaróleg inni á kontor í stólnum sínum, leysandi krossgátur, með kaffibolla og suðu- súkkulaði sér við hlið. Slíkt var jafn- aðargeðið. Hún amma var fyrst og fremst alsæl að barnabörnin voru í heimsókn því fjölskyldan var henni allt. Þegar við urðum eldri breytt- ust heimsóknirnar. Við færðum okkur inn á kontor, sötruðum kók, borðuðum Prince Lu kex og spjöll- uðum við ömmu, oftar en ekki í fé- lagskap annarra ættingja. Við minnumst ömmu okkar sem einstaklega hlýrrar og góðrar konu. Hún var fróð um liðna hluti og fylgdist með öllu því sem var að ger- ast þá stundina. Til dæmis þekkti hún alla helstu íþróttamenn og gat eflaust rakið ættir þeirra íslensku. Amma var alltaf hlý og góð og sér- staklega gjafmild og heiðarleg kona. Við söknum hennar sárt en gleðjumst yfir því að núna er hún með afa, Siggu frænku, Soffíu litlu og öðrum sem hún saknaði. Vafa- laust situr hún með gítarinn, syngur lög og kvæði sem enginn annar kann milli þess sem hún hefur auga með okkur sem eftir sitjum. Björg og Ólöf. Mig langar í örstuttu máli að minnast Sveinbjargar Kjaran, eða ömmu Bauku eins og fjölskyldan var vön að kalla hana. Ég kynntist henni fyrir tæplega fjórum árum þegar ég varð hluti af fjölskyldunni á Ásvallagötu 4 og raunar var hún sú fyrsta sem ég hitti af ættingjum mannsins míns. Við bjuggum saman í fjölskylduhúsinu þangað til í nóv- ember 2002 þegar hún flutti í Skóg- arbæ. Ég tengdist ömmu Bauku mjög fljótt þar sem við hittumst nánast daglega og stundum oft á dag. Fljótlega varð hún eins og amma mín og fannst mér það yndislegt þar sem ég átti hvorki ömmur né afa á lífi. Mér eru sérstaklega minnisstæð- ar margar notalegar stundir sem við áttum saman síðla hausts 2002, en þá fór ég oft niður til hennar og fékk kók og súkkulaði og við horfð- um á sjónvarpið saman. Þá var ég ólétt að fyrsta barni okkar Birgis og var hún mjög spennt og fylgdist með meðgöngunni frá degi til dags. Amma Bauka hafði einstaklega góða nærveru og var greind og vönduð kona. Hún hafði mikinn lífs- vilja og sýndi það sig best í veik- indum hennar síðustu árin. Svo mik- ill var viljastyrkur hennar að jafnvel þegar búist var við að hún næði sér ekki var eins og hún fyndi alltaf nýj- an kraft og eitthvað nýtt til að hlakka til. Hún hafði alltaf fylgst einstaklega vel með atburðum líð- andi stundar, jafnt innanlands sem utan, og varðveitti hún þann áhuga allt fram á síðasta dag. Það var henni samt mikilvægast að fylgjast með afkomendum sínum takast á við hin ýmsu viðfangsefni lífsins og styðja þá og aðstoða eftir því sem henni var unnt. Ég var lánsöm að kynnast ömmu Bauku. Ragnhildur H. Lövdahl. Við lát vinkonu minnar þyrlast upp minningarnar. Bauka eins og hún var kölluð meðal vina kom 15 ára frá Siglufirði í heimsókn til ömmu sinnar Sigríðar og dætra hennar Kristjönu og Sigríðar en þær bjuggu í Skólastræti 3. Í Skóla- strætinu vorum við oft fjórar hress- ar stelpur og vorum við beðnar að kynna ungu stúlkunni frá Siglufirði borgarlífið og var þá haldið á rúnt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.