Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 32
Víkverji er hér meðhættur að aka fyr- ir Hvalfjörðinn eftir að rannsóknir hafa sýnt að það er sex sinnum öruggara að fara göngin. Víkverji hefur yndi af því að aka fyrir Hvalfjörðinn ef veðrið er fallegt og tíminn nógur. Það er hins vegar ástæða til að at- huga sinn gang eft- irleiðis, þótt ekki sé beinlínis skemmtilegt að aka göngin. Það bregst ekki að bíllinn fyllist af útblæstri annarra bíla og svo er þetta þreyt- andi fyrir augun líka. En fólkið í gjaldskýlinu er til fyrirmyndar í alla staði og lipurt. Hvernig skyldi ann- ars dagurinn líða hjá því? Eru marg- ir sem biðja um lán, eða eru með eitthvert vesen? Það kom einu sinni fyrir Víkverja að gleyma veskinu í bænum og fékk þá fyrirtaksúrlausn sinna mála hjá gjaldverðinum. En varðandi öryggi í göngunum skiptir gríðarlegu máli að halda hraðanum niðri og segja má að hraðamyndavélarnar hafi skikkað langflesta til að halda sér á mottunni í þeim efnum. Hraðinn var nefnilega allt of mikill fyrstu árin. Það þarf ekki nema eitt sprung- ið dekk til að bíll kast- ist út í vegg eða fram- an á bíl á móti og þá er illt í efni ef hraðinn er um og yfir 100 km á klst. x x x Það er bannað aðklappa í Skál- holtskirkju að því er í fréttum hermir. Vígslubiskupinn árétt- aði þessa hefð í vik- unni, en eftir situr spurningin hvað verði gert ef einhver brýtur þessa reglu. Er eftirlitsmaður í kirkjunni sem sér um að hasta á kirkjugesti eða reka það út? Úr því að minnst er á Skálholt verður Víkverji að mæla með tveim- ur fantagóðum skáldsögum. Þetta eru auðvitað bækur þeirra Gunnars Gunnarssonar (Jón Arason frá 1948) og Ólafs Gunnarssonar (Öxin og jörðin frá 2003). Víkverji er að lesa þær samhliða, ætlaði reyndar að geyma bók Gunnars uns lestri hinn- ar væri lokið, en leit á fyrstu síðuna fyrir forvitni og gat ekki hætt. Þótt hann eigi 400 síður eftir ólesnar finnst honum strax fúlt að eiga ekki meira eftir. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is            Grettir Smáfólk Smáfólk ÉG VÆRI ALVEG TIL Í AÐ FÁ MÉR 57 RÉTTA MÁLTÍÐ ÉG HELD AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ FARA Í MEGRUN 56? RIGNING ER SVO RÓMÓ... ALLAR STELPUR HLAKKA TIL ÞESS AÐ VERA KYSSTAR Í RIGNINGU Í FYRSTA SKIPTI HVAÐ VAR ÞETTA?!? KOSS! NÚNA ÆTLAR FLUGMAÐUR ÚR FYRRA STRÍÐINU AÐ TAKA Á LOFT Í FRAKKLANDI KOMDU! ÞÚ GETUR EKKI FLOGIÐ Í ÞESSU VEÐRI! KOMDU HEIM SN00PY! EINHVER VERÐUR AÐ GERA EITTHVAÐ Í ÞESSUM MANNI, HANN ER AÐ VERÐA BRJÁLAÐUR! SEGÐU HONUM AÐ ÉG KOMI UM JÓLIN... Beini © LE LOMBARD ÞAÐ ER ALLTAF SAMA SAGAN. ÉG HEF HEYRT ÞETTA ALLT SAMAN MILLJÓN SINNUM. ÞÚ GLEYMDIR AÐ NEFNA NORÐURLJÓSIN EN ÞAU EIGA EFTIR AÐ KOMA EINHVERN TÍMANN SUMIR VERÐA ÞUNGLYNDIR Á VETURNA EN ÞÚ VERÐUR ÞUNGLYNDUR AF ÞVÍ AÐ SITJA Í SÓFANUM HEFUR ÞÚ EINHVERN TÍMAN VEITT MÉR ATHYGLI JÁ ÞAÐ HEF ÉG VEISTU ÞAÐ, AÐ ÞAÐ ER EKKI TIL NEITT SEM ER JAFN SPENNANDI OG ÉG!! OG ÞAÐ ÆTTI AÐ DUGA ÞÉR! ÞAÐ STENDUR MEIRA AÐ SEGJA Á SKILRÍKJUNUM MÍNUM! OG EF ÞÚ SKOÐAR ALLAR MYNDIRNAR AF MÉR ÞÁ SÉRÐU ÞAÐ GREINILEGA KANNSKI! Í EINU ORÐI SAGT, MIKILVÆGUR! NÚ JÆJA! FRÁ HVAÐA LANDI KEM ÉG? FRÁ ÁSTRALÍU, MEÐ ÞESSA POKA! EKKI MÓÐGA LANGÖMMU MÍNA. ÉG VAR SVO VITLAUS AÐ SEGJA FRÁ ÞVÍ AÐ HÚN HAFI KYNNST KENGÚRU OG ÞAÐ ER ENGIN ÁSTÆÐA TIL ÞESS AÐ RIFJA ÞAÐ UPP! EKKI SPYR ÉG HVORT ÞÚ SÉRT KOMINN AF SELAÆTTUM? NEI! ÞÚ VEIST VEL HVAÐ ÉG ER GÓÐUR Í ÞVÍ AÐ BÚA TIL KÍNVERSKAN MAT. SKO! VISSIRÐU AÐ Í FYRRA LÍFI VAR ÉG KOKKUR FYRIR MING FJÖLSKYLDUNA VIRÐULEGI HERRA Dagbók Í dag er fimmtudagur 22. júlí, 204. dagur ársins 2004 Tónlist | Sumarhópur á vegum Hins Hússins, heldur lokatónleika sína í Iðnó í kvöld kl. 20. Hópinn skipa: Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari, Gyða Valtýsdóttir sellóleikari, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Á efnisskránni má finna íslenska rímnadansa og þjóðlög ásamt austur-evrópskum tregatónum. Leikin verða verk eftir Ibert, Kodalý, Gubaidalina, Jón Leifs/Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgis- son og Shostakovitch undir kaffi og kertaljósum. Aðgangur er ókeypis. Kammerhópurinn Krummi MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2.Tím. 3, 15.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.