Morgunblaðið - 22.07.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 22.07.2004, Síða 33
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 33 Fold ehf. • Laugavegi 170 • 105 Reykjavík • Sími 552 1400 Fax 552 1405 • fold@fold.is • www.fold.is 2ja herbergja íbúðir óskast! Á Fold fasteignasölu er á skrá fjöldi áhugasamra kaupenda. Staðgreiðsla í boði fyrir réttar eignir. Í sumum tilvikum má semja um langan afhendingartíma. Nánari upplýsingar í síma 552 1400, 694 1401 eftir lokun, og á skrifstofu Foldar. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. Rf3 d5 2. b3 Bg4 3. e3 Rd7 4. Bb2 Rgf6 5. h3 Bxf3 6. Dxf3 c6 7. g4 e5 8. g5 Re4 9. h4 Bd6 10. Bh3 De7 11. d3 Rec5 12. Rd2 a5 13. e4 d4 14. Rc4 Bc7 15. Ba3 Rf8 16. c3 Hd8 17. b4 axb4 18. cxb4 b5 19. Rxe5 Dxe5 20. bxc5 Rg6 21. Bf5 Rf4 22. Bc1 g6 23. Bg4 Ha8 24. Bxf4 Dxf4 25. Dxf4 Bxf4 26. Bd1 h6 27. Hg1 hxg5 28. hxg5 Ha3 29. Bb3 Hh5 30. Ke2 Bxg5 31. Hh1 Be7 32. Hxh5 gxh5 33. Hg1 Kf8 34. Hg3 Ha7 35. Hf3 Bxc5 36. Hf5 Ba3 37. Hxh5 c5 38. Hh8+ Ke7 Fyrir skömmu var haldið atskák- einvígi milli spænska ungstirnisins Francisco Ponz Vallejo (2.679) og gamla brýnisins Viktors Kortsnojs (2.568). Sá ungi sigraði í því með þremur og hálfum vinningi gegn tveimur og hálfum en í þessari stöðu hafði öldungurinn hvítt. 39. Bxf7! Nú gengur 39. … Kxf7 ekki upp 40. Hh7+. 39. … c4? 39. … Bd6 hefði haldið taflinu gangandi. 40. Bxc4! og svartur gafst upp enda peð hans öll að falla. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Skotveiðar SKOTVEIÐAR eru mikil íþrótt og margir verðugir fuglar eru hæfir til veiða, t.d. gæsir, hvers kyns mávar og styggir fuglar. Ljóður á íslenskri skotveiðimenningu er þó sú tilhneig- ing skotveiðimanna að skjóta á end- ur og mófugla. Þetta eru fallegar og litlar skepnur sem óþarfi er að drepa. Ellilífeyrisþegi. Öfugþróun gírókerfisins Á SÍNUM tíma var hægt að greiða gíróseðla annars staðar frá Norð- urlöndunum fyrirhafnarlítið á póst- húsum hérlendis. Þetta er nú síðustu árin ekki hægt og slíkir seðlar, t.d. vegna kaupa á bókum og tímaritum, eru gagnslausir hérlendis og flókn- ari og oft dýrari aðferðir verður að nota til að koma greiðslum til skila. Það er mikil öfugþróun að Pósturinn íslenski skuli ekki lengur vera aðili að norræna gírókerfinu. Ég furða mig líka á að hafa hvergi séð kvartað yfir þessu. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Vestur-Íslendingar frá Utah VESTUR-Íslendingar, búsettir í Spanish Fork í Utah, munu heim- sækja Ísland 29. júlí næstkomandi. Þeir munu dvelja hér á landi í tíu daga og vonast margir í hópnum til þess að hitta ættingja sína hér á landi augliti til auglitis. Þeir sem telja sig eiga ættingja í Utah geta haft samband við fararstjóra hóps- ins, Lil Sheperd, en hópurinn verður á Grand Hóteli í Reykjavík frá 30. júlí til 3. ágúst og á Hótel Hjarð- arbóli á Selfossi frá 4. ágúst til 7. ágúst. Budda tapaðist 7 ÁRA hnáta tapaði buddunni sinni í A-sal Sambíóanna í Mjódd í síðustu viku. Budduna prýðir hjarta. Hún innihélt ferðapeninga litlu telpunnar en hún er gestkomandi frá Noregi. Hjartahlýr finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 565 3996 eða 699 8848. Fundarlaun í boði. Sólarrafhlöðuspjald tapaðist SÓLARRAFHLÖÐUSPJALD í pappakassa tapaðist við tjaldstæðið á Þingvöllum hinn 17. júlí sl. Finn- andi vinsamlega hringi í síma 896 5811. Giftingarhringur fannst ÞYKK gleraugu fundust í upplýs- ingarútunni í Landmannalaugum og í lauginni fannst giftingarhringur og í honum stendur Þín Ágústa 2002. Upplýsingar í síma 853 7828. Stormur strauk úr gæslu STORMUR strauk nýlega úr gæslu frá Kattholti, Stangarhyl 2. Hann er steingrár, eyrnamerktur og mjög gæfur. Þeir sem sjá Storm eru vin- samlega beðnir að láta Sigríði vita í síma 899 4038. SÍLDARÆVINTÝRI á Siglufirði verður viða- meira í ár en áður en Siglfirðingar hafa boðið til síldarævintýris hverja verslunarmannahelgi síðan árið 1991. Að þessu sinni verður fagnað tvær helgar í röð; nú um helgina og um versl- unarmannahelgina. Hvers vegna er ævintýrið tvær helgar í ár? „Það er raunverulega verið að halda upp á að síldarævintýri Íslendinga hófst upp úr aldamót- unum eða 1903. Áður höfðu Norðmenn veitt síld við landið en við fórum í rauninni ekki að græða peninga á þessu fyrr en upp úr aldamót- unum. Þetta var stór hluti af útflutningstekjum þjóðarinnar í áratugi og er að mínu mati þess valdandi að við erum þetta rík í dag. Síðan var síldin ofveidd og hvarf alveg árið 1966.“ Hvert var umfang síldveiða á Siglufirði? „Þetta var langstærsta síldarhöfn landsins og Siglufjörður stækkaði óhemju hratt. Hér voru örfá hús og nokkrar hræður árið 1903 en bær- inn fékk svo kaupstaðarréttindi árið 1918. Fram til 1966 var umfang síldveiða við landið mjög mikið. Á ákveðnum tíma var talað um þetta sem höfuðstað heimsins í síldveiðum. Siglfirð- ingar tala því oft um tvö landnám Norðmanna. Hið fyrra var þegar Þormóður rammi nam hér land árið 900. Síðan er talað um hið síðara land- nám Norðmanna 1903 og þá hófust hinar miklu síldveiðar og Siglufjörður varð frægasti síld- arbær í heimi.“ Hver verður hápunkturinn nú um helgina? „Ég veit nú varla hvað rís hæst. Við verðum með mikið af gestum hér um helgina. Ólafur Ragnar Grímsson [forseti Íslands] kemur í op- inbera heimsókn og nokkrir ráðherrar. Auk þess kemur norski sjávarútvegsráðherrann og fullt af Norðmönnum sem koma til að minnast þessara tíma. Þeir settu þetta náttúrlega í gang hér á landi, fluttu hingað og settu upp fyrstu síldarstöðvarnar og ílengdust hér á Siglufirði. Við erum í raun að minnast þessa tíma með Norðmönnum og vildum gera það á öðrum tíma en um verslunarmannahelgina. Við gerum ráð fyrir mikilli aðsókn í Síldarminjasafnið og nýja bátahúsið. Safnið er orðið svo stórkostlegt. Svo erum við með alls konar sýningar. T.a.m. sýnir Grímur Karlsson bátslíkön gerð eftir norskum og íslenskum skipum. Þá erum við með mynd- listarsýningu, leiklistarsýningu og fleira. Við sýnum m.a. málverk eftir siglfirska málara og fengum að auki ýmis málverk lánuð hjá Lista- safni Íslands, t.d. eftir Mugg, Gunnlaug Stef- ánsson og fleiri sem komu hingað á sínum tíma og máluðu. Aðaldagskráin er á laugardag en þá spilar m.a. norska þjóðlagahljómsveitin, Löv- stakken.“ Siglufjörður |Síldarævintýri með óvanalegu sniði Tvö landnám Norðmanna  Theodór Júlíusson er fæddur árið 1949 og uppalinn á Siglufirði þar sem hann nam bak- araiðn. Nítján ára gam- all fór hann til Noregs í nám og starfaði svo sem bakari fram til árs- ins 1974. Þá gegndi hann stöðu æskulýðs- og íþróttafulltrúa Siglufjarðar en varð leikari hjá Leikfélagi Akureyrar árið 1978. Í framhaldi af því fór hann í leiklistarnám í Bretlandi og hefur verið leikari hjá Borgarleikhúsinu frá árinu 1989. Theodór býr með konu sinni og fjórum dætrum í Kópavogi en dvelur á Siglufirði á sumrin. TEKIN hefur verið upp sú nýbreytni á vefsíðunni uppbod.is, sem opnuð var hinn 17. júní síðastliðinn, að bjóða myndlist og leirlist til sölu. Eigendur vefjarins eru Ari Magn- ússon antikkaupmaður og Guðrún Þórisdóttir, grafískur hönnuður. Guðrún hefur séð um útlit og hönnun vefjarins. Að sögn Ara nýtur vef- urinn nú þegar nokkurra vinsælda og fær rúmlega 500 heimsóknir á degi hverjum. „Fjöldi heimsókna fer stigvaxandi og þetta er heldur meira en maður reiknaði með,“ segir Ari. Guðfinna Hjálmarsdóttir, sem rekið hefur Gallerí Reykjavík frá árinu 1999 og er auk þess myndlist- armaður að mennt, er umsjón- armaður myndlistardeildar vefjarins. „Þetta hefur farið vel af stað og það hafa margir áhuga fyrir þessu,“ segir Guðfinna. „Öll verkin eru eftir ís- lenska listamenn og við bjóðum upp á myndlist, leirlist og postulínsverk. Þetta lækkar talsvert þann kostnað sem listamenn þurfa að greiða til þess að selja sín verk ef eftirspurnin er til staðar. Við viljum hafa góða breidd í þeim verkum sem við bjóð- um upp á og höfum bæði dýr og ódýr verk,“ segir Guðfinna og bætir því við að mörg boð hafi nú þegar borist í nokkur verkanna. Öll uppboðs- verkin á vefnum eru til sýnis í Gall- eríi Reykjavík. Upplýsingar um uppboðsskilmála og framkvæmd uppboða er að finna á vefsíðunni www.uppbod.is. Myndlist og leir- list á uppbod.is UM ÞESSAR mundir eru þrjár sýningar í Safnaskálanum í Görð- um á Akranesi. Þetta er í fyrsta sinn sem þrjár sýningar eru þar í gangi í einu. Páll Guðmundsson, listamaður á Húsafelli, sýnir 28 verk, bæði stór og smá. Páll kallar listaverk sín samlokur unnar úr líparíti og höggmyndir á gólfi. Sýning Páls stendur til 15. september. Jó- hanna Sveinsdóttir, Heiðarskóla, sýnir 28 verk í Safnaskálanum en hún hefur áður haldið fjölda einkasýninga og samsýninga. Þá heldur Þórarinn Helgason ham- skeri sýningu á uppstoppuðum dýrum. Gripirnir á sýningunni eru flestir frá því að hann var í námi í Bandaríkjunum 1997 og eftir það. Áður hafði hann numið hamskurð í Edinborg. Þórarinn er með fjöldann allan af dýrum á sýningu sinni í Safnaskálanum. Þrjár sýningar í Safnaskálanum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.