Morgunblaðið - 22.07.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 22.07.2004, Qupperneq 34
DAGBÓK 34 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Sólin er að fara inn í ljónsmerkið og því ættirðu smám saman að verða fé- lagslyndari en þú hefur verið að und- anförnu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Heimilið, fjölskyldan og hugsnleg fast- eignaviðskipti eru í brennidepli hjá þér þessa dagna. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú átt annríkan mánuð fyrir höndum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að einbeita þér að fjárhags- stöðu þinni og endurskoða bæði hvernig þú verð tekjum þínum og aflar þeirra. Þetta er hluti af endurskoðun þinni á því hvað skiptir þig raunverulegu máli í líf- inu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sólin er að koma inn í merkið þitt í fyrsta skipti í ellefu mánuði. Sólin hefur alltaf mikil áhrif á fólk sem er fætt í ljónsmerkinu og því líður þér ein- staklega vel þessa dagana. Láttu það eft- ir þér að setja sjálfa/n þig í fyrsta sætið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Reyndu að gefa þér tíma til aukinnar einveru á næstunni. Þú þarft á henni að halda til að melta hlutina. Það eru ákveð- in mál sem þú þarft að gera upp við þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin er félagslynt merki og því muntu njóta þín næstu fjórar til sex vikurnar. Heimboðunum mun hreinlega rigna yfir þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Afstaða sólarinnar veldur því að þú nýt- ur mikillar athygli þessa dagana. Ef þú verður beðin/n um að taka á þig aukna ábyrgð ættirðu ekki að hika við að gera það. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú munt fá spennandi tækifæri til ferða- laga og framhaldsmenntunar á næstu fjórum til sex vikum. Gríptu tækifærin þegar þau gefast. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að ganga frá smáatriðum sem tengjast skatta- og tryggingamálum. Ekki láta þetta sitja lengur á hakanum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú getur lært margt af nánustu sam- böndum þínum næsta mánuðinn. Reyndu að horfa gagnrýnum augum á sjálfa/n þig og framkomu þína. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú finnur allt í einu fyrir mikilli þörf fyr- ir að skipuleggja þig. Þú vilt hafa hlutina á hreinu og gengur því berserksgang í tiltekt, viðgerðum og þrifum. Stjörnuspá Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Eru kraftmikil og úrræðagóð og sætta sig ekki við annað en að ná árangri í því sem þau taka sér fyrir hendur. Komandi ár mun að öllum líkindum reynast þeim mjög farsælt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 háskalegt, 8 heiðursmerkjum, 9 ófræg- ir, 10 ótta, 11 gegnsæar, 13 fífl, 15 vinna, 18 sýður, 21 hrós, 22 skaða, 23 nið- urlúta, 24 málfæris. Lóðrétt | 2 atriði, 3 vesæll, 4 þrá, 5 vænan, 6 raup, 7 konur, 12 peningur, 14 andi, 15 heiður, 16 stritinu, 17 fáni, 18 margt, 19 bókleg fræði, 20 sefar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skops, 4 þveng, 7 játar, 8 ellin, 9 ger, 11 rauk, 13 erta, 14 ólgan, 15 karp, 17 nema, 20 orm, 22 pokar, 23 ynd- ið, 24 niðji, 25 torga. Lóðrétt: 1 skjár, 2 ostru, 3 sorg, 4 þver, 5 eflir, 6 gunga, 10 elgur, 12 kóp, 13 enn, 15 kæpan, 16 rykið, 18 endar, 19 auðna, 20 orri, 21 mynt. 100 ÁRA afmæli.Á morgun, föstudaginn 23. júlí, verður 100 ára Guð- rún Jónsdóttir frá Nesi á Rangárvöllum. Hún tekur á móti ætt- ingjum og vinum á dvalarheimilinu Lundi á Hellu klukkan 16–17.30 á af- mælisdaginn. 80 ÁRA afmæli. Ídag, fimmtu- daginn 22. júlí, er átt- ræðisafmæli Elíasar Marar, rithöfundar, Birkimel 6a, Reykja- vík. Hann tekur á móti gestum í veitingahúsinu Næsta bar, Ingólfsstræti 1b, milli kl. 17 og 20 í dag. 80 ÁRA afmæli. Ídag, fimmtu- daginn 22. júlí, er átt- ræður Ásbjörn Björnsson, fyrrver- andi forstjóri, Hæð- argarði 29, Reykja- vík. Hann og eiginkona hans, Bjarney Sigurðardóttir, halda upp á daginn með fjölskyldunni í sumarbústað dótt- ur og tengdasonar í Skorradal. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Evrópumótið í Málmey. Norður ♠G4 ♥8753 ♦43 ♣108762 Vestur Austur ♠102 ♠D98753 ♥KG964 ♥D102 ♦95 ♦6 ♣Á543 ♣DG9 Suður ♠ÁK6 ♥Á ♦ÁKDG10872 ♣K Suður horfir sjálfur á ellefu slagi og þarf ekki mikla hjálp frá makker til að ná þeim tólfta. Því er sjálfsagt mál að keyra í slemmu. Í leik Íslands og Wal- es stökk Bjarni Einarsson beint í sex tígla yfir multi-opnun austurs á tveim- ur tíglum. Útspilið var spaðatía. Bjarni spilaði beint af augum: tók einu sinni tromp og reyndi svo að stinga þriðja spaðann í borði. En vestur átti níuna í trompi og slemman fór einn niður. Hið sama gerðist víðast hvar í öðrum leik- um, en þó ekki á hinu borðinu í leiknum við Walesbúa. Þar tók Tony Ratcliff kostulega stefnu í úrspilinu, sem bar óvæntan ávöxt. Sagnir gengu þannig: Norður gefur; AV á hættu. Vestur Norður Austur Suður Magnús Jourdain Matthías Ratcliff – Pass Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Matthías Þorvaldsson passaði í byrj- un og Ratcliff opnaði á ásaspurningu og sagði svo hálfslemmuna. Magnús Magnússon trompaði út. Nú virðist fátt eðlilegra en að reyna að stinga þriðja spaðann, en Ratcliff virtist vera sleg- inn einhverri blindu því hann tók strax annað tromp. Og síðan öll hin í hend- ingskasti. Vörnin þurfti að fara niður á fjögur spil án þess að vita mikið um hliðarspil sagnhafa, en í ljósi þess að Ratcliff hafði ekki reynt að trompa spaða taldi Matthías alla vega öruggt að fara niður á tvo spaða! En það var ekki aldeilis öruggt og Ratcliff fékk heldur óverðskuldaðan slag á spaða- sexuna í lokin og 920 fyrir spilið. Upplýsingar í síma 552 2028 og 552 2607 www.graennkostur.is Sendum grænmetisrétti til fyrirtækja í hádeginu • Magnafsláttur Staðurogstund idag@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa og bað kl. 9, boccia kl. 10. Hárgreiðsla, fótaaðgerð. Árskógar 4 | Bað kl. 9–12, boccia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leikfimi kl. 11, hjólreiða- hópur kl. 13.30, pútt kl. 10–16. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla kl. 8–16, bað kl. 8.30–14.30, handavinna kl. 9–16, fótaað- gerð kl. 9–17. Dalbraut 18–20 | Hárgreiðsla kl. 9–16.45, bað kl. 9–14, söngstund kl. 14–15, pútt. Dalbraut 27 | Handavinnustofan kl. 8–16. Gerðuberg | Lokað vegna sumarleyfa til 17. ágúst. Gjábakki | Fannborg 8. Handavinna kl. 9–15. Hraunbær 105 | Hjúkrunarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10, félagsvist kl. 14. Hraunsel | Flatahrauni 3. Kl. 14–16 pútt á Hrafnistuvelli. Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 10–11, fé- lagsvist kl. 13.30–16. Fótaaðgerð, hár- greiðsla. Hæðargarður | Vinnustofa og bað kl. 9– 16.30, pútt, kl. 10 ganga, hárgreiðsla. Langahlíð 3 | Fótaaðgerð kl. 9, hárgreiðsla kl. 10, föndur og handavinna kl. 13. Norðurbrún 1 | Vinnustofur lokaðar í júlí. Vesturgata | Fótaaðgerð og hárgreiðsla kl. 9–16, bað kl. 9.15–14, hannyrðir kl. 9.15– 15.30, leikfimi kl.13–14. Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár- greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9.30–10, handmennt kl. 9.30–16, fótaaðgerð kl. 10–16, bridge kl. 13–16. Sléttuvegur 11 | Opið í júlí kl. 10–14. Mannamót Íþróttahúsið á Vopnafirði | „Með íslensk- una að vopni“, hagyrðingakvöld kl. 20. Að- gangseyrir kr. 1.500. Stjórnandi: Kristján Magnússon. Þátttakendur eru margir af helstu hagyrðingum þjóðarinnar. Fundir Farfuglaheimilið | í Reykjavík, Sundlaug- arvegi 34. Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta- fræðingur heldur fyrirlestur sem heitir ,,Hamskipti ímyndunaraflsins: ímyndir Bjarkar“. Úlfhildur ræðir um tónlistar- myndbönd við lög Bjarkar, með áherslu á þætti sem snerta tækni og náttúru. Fyr- irlesturinn er kl. 20 og fer fram á ensku. Norræna húsið | Denis MacShane, ráðherra Evrópumála í Bretlandi, heldur fyrirlestur sem nefnist: „Hin nýja stjórnarskrá Evrópu – álitamál og áhrif á EES-löndin. Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarsonar. Fundurinn er kl. 12–13.30. Breska sendiráðið, utanríkisráðu- neytið og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands standa að fyrirlestrinum. NA (Ónefndir fíklar) | Opinn fundur kl. 21 í KFUM&K, Austurstræti. GA – Samtök | spilafíkla. Fundur kl. 20.30 í Síðumúla 3–5. Kirkjustarf Háteigskirkja | Taizé-messa kl. 20. For- eldramorgnar kl. 10–12. Vinaheimsóknir til þeirra sem þess óska. Upplýsingar í síma 511 5405. Landspítali | – háskólasjúkrahús, Arnarholt: guðþjónusta kl. 15. Birgir Ásgeirsson. Vídalínskirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 22. Bænarefnum er hægt að koma til prestsins fyrir stundina. Landakirkja | í Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn, kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun. Þorlákskirkja | Bænastund kl. 9.30. For- eldramorgnar kl. 10. Myndlist Hrafnista í Hafnarfirði | Alþjóðleg samsýn- ing ungra myndlistarmanna í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði opnuð kl. 14. Sýn- endur koma víðs vegar að en á sýningunni eru til sýnis ljósmyndir, teikningar og graf- íkverk. Sýningarstjóri er Ingibjörg Böðv- arsdóttir. Sýningunni lýkur 17. ágúst. Deiglan á Akureyri | Opnun kl. 17: „Stormur í vatnsglasi“ Áslaug Arna Stefánsdóttir sýn- ir vídeóverk. Skemmtanir Ari í Ögri | Miles from nowhwre skemmta. Dátinn | Akureyri. Dj. Lilja. Gaukur | á Stöng. Dúndurfréttir spila. Glaumbar | Búðarbandið. Græni hatturinn | Akureyri. Mannakorn með tónleika. Kaffi List | Tenderfoot. Tónlist Víkurbær Bolungarvík | Sigrún Pálmadóttir óperusöngkona og Florian Pestell flytja söngdagskrá. Óperuaríur, ítölsk sönglög og fleira. Hefst kl. 20.30. Hótel Borg | Björgvin Franz Gíslason syngur með Seth Sharp sem er bandarískur leikari og söngvari sem kom hingað til lands í fyrra og setti upp sýninguna Ain’t misbehaving í Loftkastalanum. Hann er nú kominn aftur og ætlar að setja upp aðra söngsýningu sem mun kallast Harlem Sophisticated. Tón- leikarnir eru kl. 20. Klink & Bank | Tónleikar í Tónleikaröð Klink & Bank kl. 21. Þeir sem koma fram eru: HOD, Flís, Mega Lúðrasveit Klink & Bank, pönk- bandið Forhúð Forsetans og Perculator. Kynnir er Lilli Api. Iðnó | Lokatónleikar Kammershópsins Krumma kl. 20. Deiglan á Akureyri | B-sharp kvintett kl. 21. Hallgrímskirkja | Hádegistónleikar kl. 12. Nicole Cariglia, selló og Eyþór Ingi Jónsson, orgel. Útivist Útivistarræktin | gengur frá Skógrækt- arfélagi Reykjavíkur í Fossvogi kl. 18. Mosfellsdalur | Bjarki Bjarnason verður með leiðsögn um skáldaslóðir í Mosfellsdal kl. 19.30 frá Gljúfrasteini. Gengið er um slóðir Halldórs Laxness og Egils Skalla- grímssonar og leirverkstæði Þóru Sig- urþórsdóttur á Hvirfli skoðað. Þingvellir | Guðmundur Hálfdánarson sagn- fræðingur leiðir göngu um Þingvelli og fjallar um Þingvelli í þjóðarvitund Íslendinga á 19. og 20. öld. Gangan hefst við útsýn- isskífuna við Hakið kl. 20 og lýkur kl. 22 við Þingvallakirkju. Meira á mbl.is. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Stað og stund á forsíðu mbl.is. Skógarganga Skógræktarfélaganna er að þessu sinni í umsjá Skógræktarfélags Kjal- arness. Mæting er við Arnhamar á Kjalarnesi en boðið er upp á ókeypis rútuferð frá húsi Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 19.30. Frá Arnhamri er farið með rútunni að Blikadal. Þaðan er gengið yfir í Arnhamar og boðið upp á létta grillmáltíð í göngulok. Gangan tekur um klukkustund. Skógargöngurnar á fimmtudögum eru léttar, við allra hæfi, öllum opnar og ókeypis. Skógarganga í Blikadal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.