Morgunblaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 35
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 35
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
Vei›ima›urinnJÚLÍ 2004 NR. 174 · VER‹ 899, - M/VSK
fiINGVALLAVATN: LEI‹SÖGN A‹ LEYNDARDÓMUNUM!
NÚ LÆRIR fiÚ A‹ ,,STRIPPA“ LAXINN UPP Í SUMAR!EYfiÓR KOKKUR, STÓRLAXAR OG ÖNNUR ÆVINT†RSVARTÁ Í HÚNAfiINGILEYFI‹ BÖRNUNUM A‹ VEI‹ATÉKKNYMFAN UNDIR SMÁSJÁNNIOPNUN NOR‹URÁRHVENÆR GENGUR LAXINN OG HVERNIG ER BEST A‹ HITTA Á’ANN?
V
ei›im
a›
u
rin
n
Júli 2004
N E T L A U N A S E ‹ L A R Í Ö
L L U M N E T B Ö N K U M
10
áhrifam
estu
konur viðskiptalífsins
5. TBL. 2004 – VERÐ 899
,- M/VSK – ISSN 1017-35
44
5. tbl. 2004
ÁHRIFAMESTU
KONURNAR
í viðskiptalífinu70
HÁLEND
ISHAND
BÓKIN
ÖKUL
EIÐIR
, GÖN
GULE
IÐIR O
G ÁFA
NGAS
TAÐIR
Á HÁ
LEND
I ÍSLA
NDS
Ö
N
N
U
R
Ú
TÁ
FA
20
04
PÁLL
ÁSGE
IR ÁS
GEIRS
SON
HÁLENDISHANDBÓKIN
Á
S
G
EIR
S
S
O
N
I
S
B
N
9
9
7
9
9
6
3
9
3
NÝJAR
LEIÐI
R OG
FERSK
AR UP
PLÝSI
NGAR
NÝJAR
LJÓS
MYND
IR
GEISL
ADISK
UR M
EÐ M
YNDS
KEIÐU
M AF
80 VÖ
ÐUM
Á HÁL
ENDIN
U FYL
GIR
Þrír góðir ferðafélagar
T
ónlistarhátíð í Reykholti verður
haldin í Reykholtskirkju dagana
23.–25. júlí 2004. Hátíðin hefst á
opnunartónleikum föstudaginn 25.
júlí kl. 20, þar sem flutt verður
tónlist eftir Wolfang Amadeus Mozart. Á tón-
leikunum koma fram Auður Hafsteinsóttir
fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó-
leikari og Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleik-
ari. Auk þess mun Trio Polskie frá Varsjá
flytja píanótríó eftir meistarann. Á laugardag
kl. 15 verða söngtónleikar þar sem Elín Ósk
Óskarsdóttir sópran mun flytja íslensk og nor-
ræn lög og þekktar óperuaríur ásamt Stein-
unni Birnu. Að kvöldi laugardags mun Trio
Polskie leika píanótríó eftir Haydn, Beethoven
og Schubert. Tríóið skipa Tomasz Bartoszek
píanóleikari, Sebastian Gugala fiðluleikari og
Arkadiusz Dobrowolski sellóleikari.
Sigur á sigur ofan
Pólverjarnir koma hingað gagngert til að
leika á Reykholtshátíðinni. Hljóðfæraleik-
ararnir þrír stunda allir kennslu, en eru jafn-
framt allir margverðlaunaðir sem einleikarar.
Þeir hafa leikið saman frá 1999 og hlotið fjölda
viðurkenninga, pólskra og erlendra, sem fram-
úrskarandi kammerhópur. „Við unnum til
fyrstu verðlauna í alþjóðlegu Brahms-
keppninni í Gdansk ári eftir að tríóið var stofn-
að,“ segir sellóleikari hópsins, Arkadiusz
Dobrowolski, en sú viðurkenning átti eftir að
verða þeim happafengur á fleiri vegu. „Þar
hittum við Henry Mayer úr La Salle-kvartett-
inum, sem bauð okkur að taka þátt í Isaac
Stern Music Workshop í Carnegie Hall í New
York. Við tókum því boði og dvöldum í New
York í þrjár vikur og nutum á meðan leiðsagn-
ar mjög flinkra kammermúsíkmeistara úr
Guarnieri-kvartettinum og fleiri. Mánuði eftir
að við unnum í Brahms-keppninni unnum við
svo aftur í Lantier-keppninni í París, og svo
síðar í fleiri keppnum. Í dag leikum við á tón-
listarhátíðum og tónleikum um allan heim.“
Arkadiusz Dobrowolski segir reynsluna úr
Carnegie Hall hafa verið Polskie-tríóinu mjög
mikilvæga og leiðsögn reyndu mannanna í fag-
inu mjög góða. Auk þess hafi námskeiðið skap-
að gagnleg tengsl við aðra kammermúsíkhópa.
Hann segir það líka mikilvægt að þótt með-
limir tríósins stundi sjálfir kennslu leiti þeir
líka leiðsagnar sér reyndari tónlistarmanna.
„Allir tónlistarmenn ættu stöðugt að reyna að
læra meira og leita nýrra leiða í þeim efnum.
Þetta starf krefst ævilangrar endurnýjunar og
stöðugs lærdóms.“
Dobrowolski segir Polskie-tríóið hafa sér-
hæft sig nokkuð í tónlist klassíska tímans, sér-
staklega Haydn og Beethoven, en leiki nýrri
verk. Tríóið hefur gefið út geisladisk með
verkum Haydns, annar, með tríóum eftir
Mauricio Kagel, kemur út síðar á þessu ári. Þá
hafa þeir einnig gefið út disk með Kvartett um
endalok tímans eftir Messiaen, með öðrum
tónlistarmönnum.
Gott að spila nýja tónlist
Löng kammermúsíkhefð er í Póllandi, og
þar eru tónskáld enn að semja fyrir þessa sí-
gildu hljóðfæraskipan. „Við eigum bæði góða
kammermúsíkhópa og góð verk eftir góð tón-
skáld. Ég nefni þar bara sem dæmi tríóin eftir
Panufnik og Malawski. Við erum enn að bíða
eftir að fyrir okkur verði samið, en við eigum
vinkonu – mjög gott tónskáld – sem við von-
umst til að semji verk fyrir okkur. Það er
nefnilega gott að spila nýja tónlist, þótt klass-
íkin sé auðvitað mjög mikilvæg fyrir svona
hóp. Í svona hóp þarf maður í raun að geta
spilað hvað sem er, – alls konar tónlist frá öll-
um tímum.“
Lokatónleikar hátíðarinnar verða svo á
sunnudaginn kl. 16 og verða þar flutt verk eftir
Beethoven, Grieg og Schumann auk þess sem
frumflutt verður verk eftir Þórð Magnússon
fyrir sópran, píanó og selló við texta Snorra
Sturlusonar. Þórður var nýlega tilnefndur til
Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Flytj-
endur á lokatónleikunum verða allir þátttak-
endur hátíðarinnar. Listrænn stjórnandi
Reykholtshátíðar er Steinunn Birna Ragnars-
dóttir.
Tónlist | Polskie-tríóið og Elín Ósk meðal gesta á Reykholtshátíð
Starfið krefst ævilangrar
endurnýjunar
Morgunblaðið/Eggert
Polskie-tríóið verður meðal gesta á Reyk-
holtshátíð um helgina: Tomasz Bartoszek pí-
anóleikari, Arkadiusz Dobrowolski sellóleik-
ari og Sebastian Gugala fiðluleikari.
RITHÖFUNDUNUM Sally Magnusson og
Ólafi Jóhanni Ólafssyni hefur verið boðið að
koma fram á alþjóðlegu Bókmenntahátíðinni
í Edinborg sem haldin er 14.–30. ágúst ár
hvert í tengslum við hina þekktu listahátíð
sem haldin er á sama tíma. Bókahátíðin í
Edinborg er hin stærsta sinnar tegundar sem
haldin er í heiminum.
Áður hefur komið fram að Matthías
Johannessen skáld mun verða kynntur á há-
tíðinni í sérstöku pallborðsviðtali við sjón-
varpsmanninn Magnús Magnússon hinn 25.
ágúst. Matthías mun einnig lesa úr verkum
sínum og ensk útgáfa ljóða hans verður gefin
út af þessu tilefni.
Sally Magnusson er dóttir Magnúsar Magn-
ússonar og fyrr á þessu ári kom út í Bretlandi
bók hennar Dreaming of Iceland þar sem hún
segir frá ferðum sínum um Ísland ásamt föð-
ur sínum er hún var barn að aldri. Sally kem-
ur fram á hátíðinni hinn 25. ágúst.
Skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar Höll
minninganna kom út í enskri þýðingu fyrr á
þessu ári undir titlinum Walking into the
Night og Ólafur mun koma fram hinn 29.
ágúst ásamt rithöfundunum Alan Furst og
Allan Massie.
www.edbookfest.co.uk.
Bókmenntir|Bóka-
hátíðin í Edinborg
Ísland
vel kynnt
Matthías
Johannessen
Sally
Magnússon
Ólafur Jóhann
Ólafsson