Morgunblaðið - 22.07.2004, Page 38

Morgunblaðið - 22.07.2004, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 10. Bi 16. Sýnd kl. 3.50. Íslenskt tal Sýnd kl. 5.15. kl. 5.30, 8.30 og 11.30. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.40.Sýnd kl. 4 alla virka daga Norðurljósin Mynd sem byggir á nýrri íslenskri tækni til að mynda norðurljósin. Loksins er hægt að sjá þetta stórkostlega náttúrufyrirbrigði í allri sinnidýrð ákvikmyndatjaldi. lj i ir rri í l ri t i til r rlj i . i r t j tt t r tl tt r f rir ri i í llri i i r i tj l i. Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 11.  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“  ÞÞ.FBL. „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“ Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 og 10. STÆRSTA MYND ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM. STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA. STÆRSTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA.  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“  ÞÞ.FBL. „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“ 30 þúsund gestir 30 þúsund gestir 3 barnalegir menn 3 börn - 3 -falt gaman! Léttgeggjuð grínmynd HUGSAÐU STÓRT FRUMSÝND Á MORGUN TOPPMYNDIN Í USA ROKKSVEITIN Mínus hefur verið bókuð á Reading-hátíðina í Bret- landi sem fram fer dagana 27. til 29. ágúst í tveimur borgum, Leeds og Reading. Mínus verður fyrsta sveit á svið í aðaltjaldinu í báðum borgum og verður því í Leeds þann 27. en í Reading þann 29. Það er Green Day sem lokar því sviði en aðrir sem koma þar fram eru 50 Cent, Placebo og The Streets. Readinghátíðin er ein rótgrónasta tónlistarhátíð Bret- landseyja og koma þar jafnan fram stærstu nöfn dægurtónlistarheims- ins. Þungarokksvikuritið Kerrang! linnir þá ekki látum og hampar sveit- inni gríðarlega. Í síðasta blaði var nýjasta smáskífa sveitarinnar, „The Long Face“, valin smáskífa vikunnar og í nýjasta blaðinu, sem út kom í gær, er Mínus á lista yfir þær þrjátíu sveitir sem blaðið segir að fólk verði að þekkja og er mynd af Mínus á for- síðunni. Inni í blaðinu er svo opnu- viðtal við meðlimi og er sagt að þeir séu „fyrsta alvöru rokk og ról gengi aldarinnar“ („the first great rockn’ roll gang of the 21st century“). Mínus spilar á Reading Morgunblaðið/Árni Torfason þeim til framdráttar og ekki að þær eru yfirlýst stelpuband. „Fólk er yfirleitt mjög jákvætt en einstaka sinnum heyrum við ein- hverja neikvæðni og vantrú. En við látum það ekkert á okkur fá,“ segir Gugga. Hún segir jafnframt þann mis- skilning algengan að sé maður stelpa í rokkhljómsveit verði maður að vera bitur og reiður. Það þvælist þó ekki fyrir Brúðarbandinu enda standa þær í hljómsveitarbröltinu vegna skemmtanagildis. „Það er mikill húmor í textunum okkar,“ segir Gugga. „Þó að við tökum hljómsveitina auðvitað al- varlega pössum við alltaf að hafa húmor fyrir sjálfum okkur.“ BRÚÐARBANDIÐ samanstendur af sjö föngulegum konum á aldr- inum 26 til 32 ára. Þær eru alltaf íklæddar brúðarkjólum þegar þær spila á tónleikum, þær vilja bleikt vatn í allar sundlaugar landsins, vilja meira rokk og fleiri konur að rífa kjaft. Þessar viljasterku konur heita Melkorka, Katla, Unnur María, Sunna, Gugga, Eygló og Sigga. Þær voru að gefa út sína fyrstu plötu, Meira!, og í kvöld fara út- gáfutónleikarnir fram. Þær Gugga og Eygló settust niður með blaða- manni Morgunblaðsins af þessu til- efni. Öll lögin okkar eru frumsamin,“ segir Gugga. „Við semjum lögin saman á æfingum en textarnir koma meira í heilu lagi frá hverri og einni. Það er samt engin sérstök regla á þessu hjá okkur. Við notum það sem hljómar vel.“ Einkennismerki sveitarinnar eru eflaust brúðarkjólarnir. En hvernig ætli sú hugmynd hafi komið upp? „Upphaflega átti þetta að vera myndlistarverkefni hjá einni okkar, að hafa sjö stelpur í brúðarkjólum. Einhvern veginn varð þetta svo hljómsveit og við byrjuðum bara að spila,“ segir Eygló. Þótt nokkrar sjömenninganna hafi lært á hljóðfæri byrjuðu þær allar saman frá grunni í tónlist- arsköpuninni. „Við þurftum meira að segja að fá hjálp til að læra á magnara og að skipta um strengi í upphafi,“ rifjar Gugga upp. Ekki virðast þessir byrjunar- örðugleikar þó hafa háð sveitinni því nú, rúmu hálfu ári eftir stofnun hennar, eru í uppsiglingu útgáfu- tónleikar fyrstu breiðskífunnar. „Þegar maður miklar ekki hlut- ina fyrir sér og lætur ekkert stoppa sig þá gengur þetta upp,“ segir Gugga. „Kannski er hluti af velgengninni líka eftirspurn eftir stelpum að rokka,“ segir Eygló. Gugga segir það bæði hafa orðið Tónlist | Kvennahljómsveitin Brúðarbandið með útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld Það sem hljómar vel TENGLAR ................................................... www.brudarbandid.biz birta@mbl.is Útgáfutónleikar Brúðarbandsins fara fram í Þjóðleikhúskjall- aranum í kvöld. Hljómsveitin Skátar hitar upp fyrir sveitina. Húsið opnað klukkan 21. Að- gangseyrir er 500 krónur. Morgunblaðið/Þorkell Brúðarbandið í fullum skrúða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.