Morgunblaðið - 17.08.2004, Page 17
www.thjodmenning.is
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 17
Reykjavík | Yfir 300 manns hafa
sótt námskeið þar sem kynntar eru
umgengnistakmarkanir og örygg-
isráðstafanir gegn ólögmætum að-
gerðum eins og hryðjuverkum á
Reykjavíkurflugvelli, en þátttaka á
slíku námskeiði er skilyrði til að fá
aðgangsheimild að flugvellinum eftir
1. september.
Eftir þann tíma verður öll umferð
um Reykjavíkurflugvöll háð að-
gangsheimildum frá Flugmálastjórn
Íslands og þurfa þeir aðilar sem eru
með starfsemi eða flugvél á vell-
inum, að sækja námskeið um flug-
vernd til að fá slíka heimild, segir
Árni Birgisson hjá Flugmálastjórn.
Yfir 300 manns hafa nú sótt slík
námskeið Flugmálastjórnar og fá að
því loknu afhent aðgangskort, fjar-
stýringu að hliðum eða lykla – eftir
því sem við á. Verða öll hlið alltaf
lokuð en voru lengst af opin á dag-
inn.
Undanþága sparar 800
milljónir á ári
Upphaflega kvað reglugerð Evr-
ópusambandsins um flugvernd, sem
tók gildi á EES-svæðinu í apríl sl., á
um að allir flugvellir þyrftu að koma
upp stýringu á aðgengi, bakgrunns-
skoðun starfsmanna, vopnaleit og
gegnumlýsingum farms og farang-
urs. Fyrir tilstuðlan samgöngu- og
utanríkisráðuneytisins var öryggis-
sérfræðingur ESB, sem skoðaði að-
stæður hér á landi, sannfærður um
að svo umfangsmiklar ráðstafanir
væru ekki nauðsynlegar hér á landi.
Eftir stóð að Keflavíkurflugvöllur og
flugvellir á Akureyri, Egilsstöðum
og í Reykjavík þyrftu að uppfylla
þessar kröfur. Samgönguráðuneytið
áætlar að þessi undanþága spari um
800 milljónir króna á ári.
Ráðstafanir sem þó verður ráðist í
munu kosta Flugmálastjórn tæpar
100 milljónir króna í stofnkostnað.
Eftir það verður rekstrarkostnaður
þessa kerfis um 83 milljónir á ári.
Kostnaður þeirra sem nýta flugvöll-
inn er smávægilegur.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fjölsótt flug-
verndarnámskeið
Morgunblaðið/Þorkell
Árni Birgisson hjá Flugmálastjórn prófar nýja kerfið á leið inn á völlinn.
Uppskerudagur | Næstkomandi
laugardag, 21. ágúst, verður upp-
skerudagur skólagarðanna í Hafn-
arfirði. Fram kemur á vef bæjarins
að mikilvægt sé að allir mæti til að
taka upp sitt grænmeti, og í það
minnsta einn fullorðinn þurfi að
koma með, en að sjálfsögðu sé öll
fjölskyldan velkomin. Þeir sem
stundað hafa ræktun í görðunum
þurfa að koma með poka undir upp-
skeruna, og ekki verra að koma
með áhöld eins og hníf og kartöflu-
gaffal, þar sem takmarkað magn af
verkfærum er til í görðunum.
Þeir sem ekki komast á upp-
skerudaginn geta komið einhvern
daginn í vikunni 23.–27. ágúst milli
15 og 17, en mikilvægt er að ljúka
við að taka upp fyrir 10. september,
en eftir þann tíma er öllum heimilt
að taka upp úr görðunum það sem
enn er óupptekið.
Reistu hljóðveggi | Nýir hljóð-
veggir meðfram Hafnarfjarðarvegi
þar sem hann liggur um Garðabæ við
Löngufit og vestan vegarins við
Laufás og frá Lyngási að strætis-
vagnabiðstöð á móts við Bitabæ eiga
að minnka hávaða frá umferðinni
sem berst að nærliggjandi húsum
um helming. Veggirnir eru tveggja
metra háir, og samtals 460 metrar á
lengd. Um er að ræða tréveggi sem
ungir starfsmenn þjónustumiðstöðv-
arinnar reistu í sumar, og var kostn-
aður við verkið um 12 milljónir
króna.
Sími 594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.vík
Fjöldi lita og gerða
Marley þakrennur
Sjáum einnig um uppsetningu