Morgunblaðið - 17.08.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 17.08.2004, Síða 18
MINNSTAÐUR 18 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Vesturbær | Glatt var á hjalla og mikið um dýrðir við Neskirkju á föstudag, þegar börn og leiðbein- endur leikjanámskeiðs, sem staðið hefur yfir í sumar, fögnuðu vel heppnuðu sumarstarfi. Sólin lék að sjálfsögðu við hvern sinn fingur þann dag og fóru börnin ásamt leið- beinendum í gönguferð eftir Ægisíðunni auk þess sem horft var á stuttmynd sem krakkarnir höfðu gert eftir biblíusögu. Þá var farið í útileiki og að lokum sest saman í kirkjunni, þar sem viðstaddir drukku safa og mjólk og gæddu sér á súkkulaðiköku. „Við erum búin að vera með fjög- ur námskeið í sumar og þetta var síðasti dagurinn í síðasta námskeið- inu,“ segir Guðmunda Inga Gunn- arsdóttir, guðfræðingur sem starf- ar við leikjanámskeiðin í Neskirkju. Guðmunda segir fjölbreytni hafa verið í fyrirrúmi í starfi leikja- námskeiðanna. „Einn dag í viku fórum við strætóferð og einn dag í viku fórum við í grillferð, jafnvel út fyrir bæinn. Tvisvar í sumar fórum við á Langasand á Akranesi, þar á meðal á fimmtudaginn, þegar góða veðrið var í algleymingi.“ Um þrjátíu börn tóku þátt í síð- asta námskeiðinu, en í heildina voru rúmlega áttatíu börn á nám- skeiðunum í allt sumar. Guðmunda segir að þrátt fyrir að nýtt safn- aðarheimili Neskirkju væri ekki tilbúið hefði það pláss, sem var á staðnum, verið vel nýtt og einnig nágrenni kirkjunnar. „Til dæmis fórum við mikið á Ægisíðu og í Hljómskálagarðinn. Svo fórum við líka með börn af námskeiðunum í Hellisgerði í Hafnarfirði og Rúts- tún í Kópavogi,“ segir Guðmunda. „Við vorum ofboðslega heppin með veður í sumar, svo við tókum bara með okkur nesti og fórum í leiki. Börnum finnst svo gaman að leika sér sjálf, sérstaklega ef það eru leiktæki á staðnum. Í Hljóm- skálagarðinum er t.d. frábær að- staða til að klifra.“ Í gær hófst í nýju safnaðarheimili Neskirkju fermingarnámskeið, sem varir í eina viku áður en hin verð- andi fermingarbörn fara í grunn- skólann. Mun hið unga fólk eftir fyrstu daga námskeiðsins taka öfl- ugan þátt í safnaðarstarfi kirkj- unnar í vetur. Leiðbeinendur og krakkar halda upp á lok leikjanámskeiða Sumarið afar veðursælt Morgunblaðið/Ómar Blíðviðrisbörn: Börnin voru mjög ánægð með námskeiðið og nutu sín vel í góða veðrinu, sem hefur sjaldan ef nokkurn tímann verið betra hér á landi. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ DREIFING Norðurorku á raf- magni um rafstrengi, sem liggja í dælustöðvarnar í Botni í Eyja- fjarðarsveit, á Laugalandi og Hjalteyri er brot á einkarétti Raf- magnsveitna ríkisins. Þetta kem- ur fram í úrskurði sem úrskurð- arnefnd raforkumála hefur kveðið upp. Norðurorka annast dreifingu raforku á Akureyri, dreifingu á heitu vatni í bænum og að hluta til í nágrannabyggðum auk þess að annast vatnsveitu á Akureyri og hluta Hörgárbyggðar. Fyrirtæk- ið á dælustöð fyrir heitt vatn á Hjalteyri en auk vatnslagnar á fé- lagið einnig ljósleiðara og 11 kV rafstreng, en um hann fer raf- magn frá dreifiveitu Norðurorku á Akureyri sem eingöngu er not- að til að knýja dælustöðina. Strengurinn var tekinn í notkun í desember á liðnu ári. Hvað hinn rafstrenginn varðar er forsaga máls sú að Norðurorka gerði samning við Fallorku sem reisti vatnsaflsstöð í Djúpadal og tekin var í notkun nú í vor. Kaupir Norðurorka allt rafmagn sem virkjunin framleiðir, en það er af- hent í spennistöð við Botn í Eyja- firði. Samkomulag náðist ekki Rafmagnsveitur ríkisins telja dreifingu rafmagns um rafstrengi Norðurorku frá Botni og Hjalt- eyri brjóta í bága við einkarétt sinn til að dreifa rafmagni á þessu svæði, enda sé það utan dreifi- veitusvæði Norðurorku, sem ein- göngu er innan bæjarmarka á Akureyri. Rarik mótmælti fram- kvæmdum Norðurorku við lagn- ingu dreifistrengjanna bæði til Hjalteyrar og í átt að virkjun í Djúpadal, en Norðurorka féllst ekki á mótmælin. Ágreiningur um málið hefur staðið yfir alllengi, allt síðasta ár og hafa bréf farið á milli Rafmagnsveitna ríkisins, Norðurorku og iðnaðarráðuneyt- isins vegna þess. Reynt var að ná samkomulagi en það tókst ekki. Málið barst því að lokum inn á borð úrskurðarnefndar raforku- mála sem nú hefur komist að nið- urstöðu. Þar segir að deila aðila snúist um það fyrst og fremst hvort Norðurorka noti strengina tvo, sem liggja að Botni og Hjalt- eyri með þeim hætti að um þá sé dreift rafmagni til neytenda í skilningi laganna á dreifiveitu- svæði Rafmagnsveitna ríkisins og gangi með því gegn þeim einka- rétti sem þær hafa til að dreifa rafmagni á svæðinu. Í hnotskurn snúist því deilan um það hvort rafmagnið sem fer í að knýja dælustöðvarnar á Hjalteyri, Laugalandi og Botni sé notað af neytanda í skilningi raforkulaga. Heldur Norðurorka því fram að dælustöðvarnar séu hluti af hita- veitunni sem fyrirtækið á og rek- ur og að þær séu ekki notandi í skilningi raforkulaga. Í úrskurð- inum kemur fram að þó því verði ekki á móti mælt að dælustöðv- arnar séu hluti hitaveitunnar sé ekki hægt að líta öðru vísi á þær en notanda í skilningi raforkulaga á dreifiveitusvæði Rafmagns- veitna ríkisins og þar með sé með dreifingu rafmagns til þeirra um rafstrengina tvo brotið gegn einkarétti Rafmagnsveitna ríkis- ins. „Ljóst má telja að lagning rafstrengs einnar rafmagnsveitu yfir dreifiveitusvæði annarrar rafmagnsveitu getur ein út af fyr- ir sig ekki talist brot á einkarétti svo lengi sem það rafmagn sem um strenginn fer er ekki notað á dreifiveitusvæðinu í skilningi raf- orkulaganna. Það er því dreifing- in en ekki mannvirkið sem hefur ólögmæti í för með sér,“ segir í úrskurði úrskurðarnefndar raf- orkumála. Fram kemur einnig að um sé að ræða ólögmætt ástand sem kalli á breytingar. Þykir nefndinni hæfilegt að Norðurorka fái 6 mánuði til að koma breyt- ingum í framkvæmd, en greiði 75 þúsund krónur í dagsektir hafi breyting ekki orðið á til batnaðar fyrir þann tíma. Norðurorka brýtur gegn einkarétti Raf- magnsveitna ríkisins ÞAÐ var allt á útopnu í nýja fjöl- býlishúsinu við Tröllagil í blíð- viðrinu í gærdag og léttklæddir iðnaðarmenn af öllu tagi á hlaup- um um bygginguna sem alls er á níu hæðum. Enda alveg að bresta á að það verði tekið í notkun. Félagsstofnun stúdenta á Ak- ureyri hafði forgöngu um að reisa húsið, en þar verður leikskóli rekin á neðstu hæðum og íbúðir leigðar út til stúdenta við Háskól- ann á Akureyri á hæðunum þar fyrir ofan. Leikskólinn Tröllagil verður starfandi á tveimur neðstu hæð- um hússins og er allt að verða klárt fyrir komu barnanna, loka- sprettur lóðaframkvæmda stóð yfir í gær og von á leiktækjum í dag. Leikskólinn er fjögurra deilda og væntanlega rými þar fyrir allt að 90 börn. Íbúðir eru á sjö hæðum húss- ins, alls 36 íbúðir, tveggja og þriggja herbergja. Nýja stúd- entagarðinum við Tröllagil er ætlað að svara síaukinni eft- irspurn stúdenta við háskólann eftir hagstæðu leiguhúsnæði, en nemendum við háskólann hefur ekki fjölgað ört á liðnum árum. Skólaárið hefst senn hjá há- skólanemum og nemarnir eru farnir að láta sjá sig, þannig mátti sjá fyrstu búslóðina utan við Tröllagilið í gær, en gera má ráð fyrir að handagangur verði í öskjunni nú í lok vikunnar þegar nemar fara að streyma að úr öll- um áttum. Framkvæmdir við bygginguna hófust um miðjan júní í fyrra en P. Alfreðsson var bygging- arverktaki. Kostnaður við verk- efnið var rúmlega hálfur millj- arður króna. Allt á út- opnu í Tröllagili Morgunblaðið/Margrét Þóra Lokasprettur: Unnið er að lokafrá- gangi nýrra stúdentagarða og leik- skóla við Tröllagil á Akureyri. Morgunblaðið/Margrét Þóra Framkvæmdir eru í fullum gangi við lóð nýja leikskólans í Tröllagili. LÍKT og annars staðar á norðanverðu landinu hafa Ólafsfirðingar ekki farið varhluta af þurrki í sumar, nánast ekkert hefur rignt síð- ustu sjö til átta vikur ut- an örlitla skúri af og til. Gras er því víða brunnið og brugðust bæjaryf- irvöld í Ólafsfirði við með því að fá knáa liðs- menn slökkviliðsins á staðnum í lið með sér til að vökva opnu svæðin í bænum nú um liðna helgi. Þeir sáust víða á ferð með tæki sín og tól og stóð bunan út úr slöngunum. Og jörðin tók vel við frískandi sopanum. Slökkvilið vökvar Ljósmynd/Kamilla Mjöll Haraldsdóttir Kópavogur | Vinnuhópar á vegum Kópavegsbæjar starfa nú rösklega að lagningu gervigrassparkvalla við þrjá skóla í Kópavogi; Digranes- skóla, Smáraskóla og Kársnesskóla, en vinnan er lengst komin við Digra- nesskóla. Að sögn Jóns Júlíussonar, íþrótta- fulltrúa Kópavogsbæjar er nú búið að leggja gras á völlinn við Digra- nesskóla og vinnan við graslagningu hafin á hinum tveim. „Þetta er gert með stuðningi KSÍ, sem leggur til grasið og sandinn, en bærinn sér um undirbyggingu, starfsmenn, girð- ingu og lýsingu kringum vellina og viðhald á völlunum,“ segir Jón. Kópavogsbæ var úthlutað þremur af þeim sextíu völlum sem KSÍ út- hlutaði í ár. Bæjarráð Kópavogs hef- ur ákveðið að byggja þrjá í ár en stefnt er að því að byggja þrjá árið 2005 og tvo 2006, en þá verða komnir gervigrassparkvellir við alla grunn- skóla bæjarins. Jón segir yfirvöld binda vonir við að völlurinn verði jafnt notaður af al- menningi og skólabörnum, því þarna sé um að ræða afar góða aðstöðu. Gert er ráð fyrir að vinna við girð- ingu umhverfis Digranesvöllinn hefjist í dag eða á morgun og stefnt er að því að henni verði lokið fyrir mánudag. Morgunblaðið/Árni Torfason Á lokastigi: Nú vantar aðeins að girða umhverfis sparkvöllinn í Digranesi. Sparkvellir í Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.