Morgunblaðið - 17.08.2004, Side 19
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 19
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol 25. ágúst. Nú
getur þú notið skemmtilegasta tíma ársins á þessum vinsælasta
áfangastað Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbúnað.
Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 3 dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Flug, gisting, skattar, 7 nætur, 25. ágúst.
Netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 25. ágúst,
7 nætur. Netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Costa del Sol
25. ágúst
frá kr. 29.995
AUSTURLAND
LANDIÐ
Laxamýri | Kjálki úr konu, hest-
bein og bein úr hundi fundust í
einni gröf á Daðastaðaleiti í Þing-
eyjarsveit rétt fyrir ofan bæinn
Lyngbrekku í Reykjadal nýlega.
Kumlið er líklega frá 9. eða 10. öld
en augljóslega hefur það verið rænt,
þar sem við skoðun kom í ljós að
allt var á tjá og tundri í gröfinni.
Grafarræninginn hefur verið á und-
an gjóskulaginu sem kom um 1300
þar sem það liggur óhreyft í jarð-
veginum, en erfitt er að tímasetja
ránið nánar.
Í gröfinni fannst einnig járn-
stykki sem hugsanlega gæti verið
spjótsoddur, en erfitt er að greina
nákvæmlega hvað þarna er á ferð-
inni.
Það er Fornleifastofnun sem
stendur að þessum uppgreftri en
gömul sögn er til af því að á Daða-
staðaleiti hafi farið fram bardagi og
því voru líkurnar miklar á því að
þar hefði fólk verið grafið. Að sögn
Adolfs Friðrikssonar, forstöðu-
manns stofnunarinnar, getur stund-
um verið erfitt að átta sig á því hvar
grafirnar eru en oft má greina
dokkir ofan í jarðveginn sem benda
til þess að þar sé eitthvað að finna,
en fleiri grafir eru á þessum stað
sem eftir er að kanna.
Þetta er annar staðurinn í Suður-
Þingeyjarsýslu þar sem kuml finnst
við skipulagða leit en í fyrra fannst
kuml í Saltvík við Húsavík. Oftast
finnast þó kuml við jarðrask eða
uppblástur.
Nagaði harða fæðu
Kumlaleit er framkvæmd í þeim
tilgangi að varpa ljósi á framvindu
landnámsins og eru kumlin mikil-
væg heimild um fyrstu kynslóðir Ís-
lendinga. Þau varpa ljósi á sam-
félagið sem þá var, en af kjálka
konunnar að dæma mun hún hafa
nagað harða fæðu þar sem ein tönn-
in var mjög eydd og hinar höfðu
nagað mikið. Þá má geta þess að
bein geta verið mikilvæg heimild
um heilsufar og sjúkdóma fólks á
þessum tíma.
Í sumar hefur Fornleifastofnun
starfað í S-Þingeyjarsýslu í einn
mánuð og skoðað m.a. Sveigakot,
sem er bær frá víkingaöld í landi
Grænavatns, kirkjugarð á Hofsstöð-
um, ruslahauga við bæ sem nefndist
Hrísheimar, skammt frá Gautlönd-
um, og Höfðagerði í Aðaldal þar
sem skoðaðar eru leifar húsa frá
lokum víkingaaldar.
Um 35 manns hafa starfað að
þessum verkefnum og þ.á m. sér-
fræðingur í gjóskulögum, sérfræð-
ingur í víkingaaldargripum, beina-
sérfræðingur o.fl. Þá er margt út-
lendinga sem sækir fornleifaskóla
Fornleifastofnunar sem nú er starf-
ræktur og eru þeir nemendur að
störfum ásamt Íslendingunum.
Eilífðarverkefni
Adolf segir að auðvitað sé það ei-
lífðarverkefni að skoða líf fólks frá
þessum tíma en reynt sé að ná fram
einhverjum heildarsvip og reyndar
sé mjög fróðlegt að bera saman
stórbýli og kot eins og t.d. Hofsstaði
og Sveigakot. Allt þetta sé mjög
spennandi og á næsta ári verði
haldið áfram við verkefnin í Suður-
Þingeyjarsýslu – þau muni áreið-
anlega hjálpa til við að varpa ljósi á
sögu héraðsins og fundurinn á
Daðastaðaleiti skipti þar miklu máli.
Kuml frá 9. eða 10. öld grafið upp á Daðastaðaleiti
Kjálki úr konu og
dýrabein fundust
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Adolf Friðriksson fornleifafræð-
ingur að störfum á Daðastaðaleiti.
Greina má hestbein í gröfinni.
Egilsstaðir | Héraðs-, bæjar- og
uppskeruhátíðin Ormsteiti 2004
stendur nú yfir á Egilsstöðum og á
Héraði. Lagarfljótsormurinn hefur
þegar farið um Egilsstaði, í fylgd
krakkanna í Smiðju Ormsins í
Fljótinu. Lára Vilbergsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ormsteitis, dró ein-
kennisfána hátíðarinnar að húni í
fyrsta sinn föstudaginn 13. ágúst.
Ormsteitisfáninn er afrakstur
„fánasjóðs“ þar sem fyrirtæki og
íbúar á Héraði hafa lagt sitt af
mörkum til kaupa á sérprentuðum
fánum sem flaggað er vítt og breitt
um Héraðið á meðan Ormsteiti
stendur yfir. Ormsteiti er nú haldið
í tólfta sinn en hátíðin stendur yfir í
tíu daga samfleytt, frá 13. til 22.
ágúst, og verður eitthvað um að
vera á hverjum degi vítt og breitt
um Fljótsdalshérað.
Ormsteiti, sem haldið er til
heiðurs Lagarfljótsorminum, hefur
skipað sér fastan sess meðal
Héraðsbúa og hefur aðsóknin auk-
ist ár frá ári. Hátíðin hófst á hverf-
ahátíð, þar sem íbúar hverfanna
hittust og grilluðu saman og öttu
síðan kappi í ýmsum greinum á Vil-
hjálmsvelli.
Afslappaðar uppákomur
á fallegum stöðum
Markmiðið er að Ormsteiti höfði
til sem flestra, skemmti heima-
mönnum og lokki til sín brottflutta
Héraðsbúa, innlenda og erlenda
ferðamenn. Þar er uppskeru
jarðarinnar og andlegum verð-
mætum gerð skil, lögð er áhersla á
menningu, náttúru og ferðaþjón-
ustu á Héraði og kappkostað að
halda notalegar og afslappaðar
uppákomur á fallegum stöðum hér
og þar um Héraðið.
Á þriðjudeginum 16. ágúst var
haldin fegurðarsamkeppni gælu-
dýra, þar sem frumlegasta gælu-
dýrið var meðal annars valið,
dverghamstur frá Hafrafelli. Einn-
ig voru veitt verðlaun í flokki
hunda, katta og fiðurfjár. Það vakti
athygli að sigurvegarinn frá því í
fyrra var fjarri góðu gamni, en um
er að ræða kind í eigu tónlistar-
mannsins Charles Ross. Charles
sagði Morgunblaðinu að kindin
væri uppi í fjalli með vinum sínum
og hefði ekki tíma fyrir þessa
keppni.
Ýmislegt er í boði á Ormsteiti.
Hinn 18. ágúst er nýbúadagur þar
sem nýir íbúar eru boðnir velkomn-
ir, um kvöldið er sagnakvöld á Café
Nielsen. Laugardaginn 21. ágúst er
bæjarhátíð í Fellabæ og á Egils-
stöðum og um kvöldið er hrein-
dýraveisla á Egilsstöðum. Litríkir
Postular troða upp á sunnudeg-
inum. Ormsteitinu er síðan form-
lega slitið í Skriðuklaustri á sunnu-
dagskvöldinu.
Ormsteiti er árviss viðburður og
dregur til sín fólk að austan og víð-
ar að. Lára Vilbergsdóttir hefur
virkjað unga sem aldna með ýmsum
uppákomum, og þar er fegurð-
arsamkeppni gæludýra gott dæmi.
Það var áberandi hversu ungviðið
og þeir sem eldri voru höfðu gaman
af þessari óformlegu keppni, þar
sem krakkar teymdu gæludýrin sín
inn á svið eða báru þau í búrum.
Ormsteitið á Héraði hafið
Heiðrún Anna Eyjólfsdóttir, 4 ára, sýndi gestum dverghamsturinn sinn.
Ljósmynd/Sigurður Ingólfsson
Krakkarnir hafa gaman af því að taka þátt í viðburðunum.