Morgunblaðið - 17.08.2004, Qupperneq 20
Ásta Björk Friðberts-dóttir hefur end-urvakið þá fornu listað búa til blóma-
myndir úr mannshári. Hún
lætur ekki þar við sitja, heldur
býr til skartgripi úr hári. Við-
skiptavinir hennar biðja hana þá
gjarnan um að gera armband eða
hálsmen úr þeirra eigin hári, eða
hári ástvina. Þeir sem panta hjá
henni myndir vilja líka nota sitt eig-
ið hár og dæmi eru um að heilu
fjölskyldurnar sendi lokka, sem
Ásta Björk setur saman í eina
blómamynd.
Handverk Ástu Bjarkar hefur
farið víða og á setningarhátíð
Ólympíuleikanna í Aþenu á föstu-
dag sást að nafna hennar, Björk
Guðmundsdóttir, hafði fest grein
með blómamyndum í hár sitt. „Ég
hef sent Björk nokkrar slíkar
greinar að beiðni hönnuðar hennar
og hef séð hana með þær í hárinu á
myndum í Vogue og mynd sem tek-
in var á tónleikum fyrir nokkru.
Mér fannst mjög gaman að sjá
hana með þessi blóm í hárinu í
HÖNNUN
List úr lokkum
AP
Björk Guðmundsdóttir: Söngkonan flytur lag sitt Oceania á setningarhátíð Ólympíu-
leikanna í Aþenu um helgina. Í hárinu ber hún blóm úr hári eftir Ástu Björk.
rsv@mbl.is
Úrfesti úr hári: Ís-
lenskar stúlkur
gáfu stundum unn-
ustum sínum
slíka festi áður fyrr.
Hárskart: Hálsfesti og armband.
Morgunblaðið/Jim Smart
Blómamyndir úr hári: Hárið er fest
með vírum og því hægt að beygja
greinar til að vild, líkt og Björk
Guðmundsdóttir gerir þegar hún
festir slík blóm í hárið á sér.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hönnuðurinn og handverkskonan: Ásta Björk Friðbertsdóttir við nokkrar hármynda sinna. Listiðn-
ina nam hún m.a. í Svíþjóð gegn því loforði að láta þekkinguna aðeins í arf til niðja sinna.
Aþenu,“ segir Ásta Björk. Áhugi
Ástu Bjarkar á hannyrðum úr hári
kviknaði fyrir mörgum árum. Þá
var haldin sýning á gömlu hand-
verki á Ísafirði. Ásta Björk, sem
býr á Suðureyri við Súgandafjörð,
fór á sýninguna og sá þar stórar,
gamlar myndir, sem unnar voru úr
mannshári. „Ég skildi ekki hvernig
myndirnar voru unnar og fór að
spyrjast fyrir um hvort einhver
kynni þessa aðferð. Þá kom í ljós að
Sigríður Salvarsdóttir í Vigur hafði
lært þetta sem barn af móður sinni.
Hún rifjaði aðferðina upp og kenndi
mér.“
Ásta Björk og Sigríður sýndu
verk sín á sýningu hand-
verksmiðstöðva landsfjórð-
unga, Íðir, í Perlunni í Reykja-
vík árið 1995. „Myndirnar
vöktu athygli og margir vildu
læra aðferðina. Sigríður hefur ver-
ið búsett í Reykjavík að vetr-
arlagi og hún hefur kennt
nokkrum konum.“
Sjálf hélt Ásta Björk áfram
að vinna myndir úr hári vestur á
Suðureyri, en hún hefur sýnt þær
víða, nú síðast í Árbæjarsafni. Að
auki á hún hlut að rekstri hand-
verkshússins „Á milli fjalla“ á Suð-
ureyri og selur verk sín þar. „Fólk
sem sá blómamyndirnar kom
stundum að máli við mig og spurði
hvort ég kynni að gera úrfestar eða
hálsmen eins og erfðagripina sem
það átti. Þessi bönd voru unnin með
allt annarri aðferð en myndirnar,
en líka úr mannshári. Sumir halda
því fram að svona úrfestar eða háls-
men hafi verið unnin hér á landi, en
ég hef ekki fengið það staðfest. Ég
veit hins vegar að áður fyrr sendu
íslenskar stúlkur hár af sér til Dan-
merkur og Svíþjóðar og létu vinna
það í skartgripi, sem þær gáfu svo
heitmönnum sínum sem tryggða-
bönd, til dæmis sem úrfestar.“
Persónulegt skart
Ásta Björk hafði uppi á hópi
handverkskvenna í Svíþjóð og þær
féllust á að kenna henni þessa
fornu aðferð, með því skilyrði að
hún kenndi engum nema afkom-
endum sínum. Böndin eru unnin á
svipaðan hátt og kniplingar, þar
sem hárin eru talin og mæld í
flokka eftir mynstri og haldið í
skefjum með lóðum á meðan unnið
er. Ásta Björk notar svo böndin í
hálsmen, armbönd, eyrnalokka, úr-
festar og fleira. „Ég fæ gefins hár
sem ég nota í sýningargripi og til
sölu, en þegar fólk pantar hjá mér
skartgripi sendir það mér gjarnan
hárið sem á að nota. Ég get gengið
sjálf frá skartgripnum, en fólk get-
ur líka fengið gullsmið til þess, ef
það vill til dæmis láta smíða sér-
staka hólka og festingar.“
Hún segir að sumum hrylli við
þeirri tilhugsun að ganga með
skartgripi úr hári. „Ég get reyndar
skilið að fólk vilji ekki ganga með
skartgripi úr hári ókunnugra, en
hvers vegna fólk ætti ekki að vilja
ganga með bönd úr eigin hári eða
hári ástvina skil ég síður. Þetta
ákveður auðvitað hver og einn og
þeir eru margir sem telja þetta per-
sónulegt og skemmtilegt.“
Tímafrek nákvæmni
Gerð blómamynda og skartgripa
úr hári er afar tímafrek iðja. „Þetta
er mikil nákvæmnisvinna og bæði
undirbúningurinn, þar sem ég þarf
að velja saman jafn löng hár og
telja þau, og frágangurinn taka
mikinn tíma. Myndirnar taka ekki
jafn langan tíma og böndin og
stundum vinn ég smámynd á einu
kvöldi. Oftast tekur sú vinna þó
töluvert lengri tíma. Ég gríp í þetta
þegar ég hef lausa stund, en sit
ekki við allan daginn.“
Hún er ekki í nokkrum vandræð-
um með að verða sér úti um hár.
„Ættingjar, vinir og kunningjar vita
af þessari iðju minni og senda mér
hár. Ég hvet stundum stelpur til að
safna hári, svo ég fái nógu sítt hár
til að vinna bönd þegar kemur að
því að þær klippi sig. Hárið endist
að eilífu og er ótrúlega sterkt.“
DAGLEGT LÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FAGRIHJALLI - GLÆSILEGT RAÐHÚS
Í SUÐURHLÍÐUM KÓPAVOGS
Vorum að fá í sölu mjög fallegt og fullbúið 218 fm raðhús með mikilli lofthæð og innb.
bílskúr. Húsið hefur að mestu verið innréttað á s.l. 3 árum. Á jarðhæð er innbyggður
bílskúr, forstofa, sjónvarpsherb., þvottahús, geymsla og baðherbergi. Miðhæð: Stofa,
sólskáli, eldhús, borðstofa og tvö svefnherbergi. Ris: Baðherbergi með mikilli lofthæð og
hornbaðkari ásamt stóru svefnherbergi. Vandaðar innréttingar. Verð 26,9 millj. 4414
Handverk Ástu Bjarkar Friðbertsdóttur úr mannshári hefur farið víða
og setti nú síðast svip sinn á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Aþenu.
Þegar sjóða á egg er gott að
stinga gat á „mjórri endann“ með
kartöflugaflinum til þess að þau
springi ekki.
Aðrir segja að ef vatnið er vel
salt þegar sjóða á egg þá fylli
saltið í sprungurnar og eggið
haldist heilt.
Að halda eggj-
unum heilum
HÚSRÁÐ