Morgunblaðið - 17.08.2004, Síða 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 21
SÉRTILBOÐ Á CITRÉ SHINE-HÁRVÖRUM
SHINE MIRACLE:
F
A
B
R
I
K
A
N
Gljái sem róar úfið hár
Sérvalið sjampó fylgir Shine Miracle
Gefur hárinu mikinn og fallegan
gljáa og róar úfi› hár. Ver hári›
gegn umhverfisáhrifum og hita frá
hárgrei›slutækjum. Me›höndlar
slitna hárenda og gerir hári›
me›færilegra. Notist me› Citré
Shine Smooth Out-sjampói til a› ná
auknum árangri.
Allar Citré Shine vörur eru
framleiddar me› náttúrulegum
sítrusolíum og vitamínum sem
gefa hárinu gullfallegan gljáa
og heilbrigt útlit.
Citré Shine hárvörurnar
fást í verslunum Lyfju.
K
AU
PAU
K
I
K
I
SmoothOutsjampó
118 ml
580 80 80
Vilt þú auglýsa!
Þetta svæði er laust núna
hringdu í síma
midlun@midlun.is
Vilt þú komast frá amstri hversdagsleikans?
Sumarbústaðir með heitum potti, aðeins
klukkustundarakstur frá Reykjavík.
Stærra hús sem hentar fyrir
hópa og starfsmannafélög.
Stórbrotið umhverfi, hestaleiga á
Löngufjöru
s. 435 6628, 863 6628
Ferðaþjónusta Snorrastaða
s. 435 5627, 899 6627
Við höfum
svarið.
Stutt í
berjamó.Reykjavík v/ Ægisgarð • S. 555 3565 • www.elding.is
Hvalaskoðun
Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og
laugardaga kl. 13:30. Einnig sérferðir
fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi.
Sjóstangaveiði á sjó
Ævintýri
FERÐALÖG
Ferðaþjónusta Iceland Express
Sími 5 500 600, icelandexpress.is
Ljúfir dagar
í London
Eyða þeim í London Zoo, á bökkum
Thames eða Hyde Park; rölta milli
tískuverslana, sem óðum eru að fyllast
af haust- og vetrartískunni, eða njóta
drykklangrar stundar á notalegu
kaffihúsi eða ölkrá?
Hvernig væri að bæta nokkrum
góðum dögum við sumarið og
skella sér til London?
Bókaðu flug
á icelandexpress.is
Ódýrar ferðir til London á icelandexpress.is
H
im
in
n
o
g
h
af
-
9
04
05
39
NÚ MEGA George W. Bush og
John Kerry vara sig því nýr fram-
bjóðandi hefur bæst í hópinn. Og
það er kona. Hún er fönguleg og
fjölhæf, á yfir 90 ólík störf að baki
og er nafntoguð um veröld víða.
Jafnvel að því marki að nafn
hennar er nú skrásett vörumerki.
Frambjóðandinn er – að sjálf-
sögðu – Barbie.
Snjallt markaðsbragð, segja
sumir og hafa að mörgu leyti rétt
fyrir sér. Enda hefur Barbie
reglulega komið fram í nýjum
búningi eftir því sem tímarnir
breytast. Barbie® hefur m.a. birst
sem hjúkrunarkona, fyrirsæta,
kennari, sendiherra, leikkona,
hefðarfrú, skurðlæknir og dáti, en
þessi fjölbreytta starfsreynsla er
einmitt talin geta orðið henni til
framdráttar í kosningabaráttunni.
Þá er Barbie tiltölulega yngri en
hinir tveir frambjóðendurnir, fædd
árið 1959 í Wisconsin. Forsetaút-
litið nýja byggist á látlausri hár-
greiðslu, slæðu í bandarísku fána-
litunum, rauðum varalit og
almennum settlegheitum.
En að baki nýju ímyndinni ligg-
ur að þessu sinni meira en von um
söluaukningu. Ásamt framleiðand-
anum Mattel og leikfangaversl-
ununum Toys ’R Us er „fram-
boðið“ nefnilega stutt af her-
ferðinni Vote, Run, Lead sem
miðar að aukinni þátttöku kvenna
í bandarískum stjórnmálum, bæði
með nýtingu kosningaréttar og
framboði til ábyrgðarstarfa. For-
sprakkar herferðarinnar telja að
Forseta-Barbie gefi foreldrum
gott tækifæri til þess að hefja
samræður við dætur sínar um
leiðtogahæfileika stúlkna, einmitt
þegar einvígi Bush og Kerry er
alltumlykjandi í fréttum. Barbie
býður sig fram fyrir hönd
Stúlknaflokksins og telur nýráðinn
kosningastjóri hennar, Liza
Strauss, að með framtakinu verði
hún tvímælalaust jákvæð og holl
fyrirmynd allra stúlkna. Liza
Strauss er 11 ára.
Hver verður forsetamaki?
Að baki herferðinni Vote, Run,
Lead stendur kvennahreyfingin
The White House Project, eða
Hvíta húss-áætlunin, sem vill
„skapa þannig aðstæður og and-
rúmsloft í Bandaríkjunum að eðli-
legt verði að sjá konur í embætti
ríkisstjóra, forstjóra stórfyr-
irtækja og forseta landsins“. Og
kannski ekki vanþörf á. Engin
kona hefur gegnt forsetaembætti í
Bandaríkjunum. Engin blökku-
kona hefur orðið ríkisstjóri vestan
hafs og í sögu Bandaríkjaþings
hafa alls 12 þúsund þingmenn ver-
ið kjörnir, þar af 215 konur. Af
180 ríkjum heims er aðeins tólf
stjórnað af konum, eftir því sem
fram kemur á vefsíðu hreyfing-
arinnar.
Barbie er nú í kosningaferð um
landið og ungir aðdáendur hennar
geta fræðst um bandarískt kosn-
ingakerfi og konur í stjórnmálum
á barbie.com. Síðast en ekki síst
geta þeir/þær sent inn tillögur að
stefnumálum, því það er „aldrei of
snemmt að láta til sín heyra“. Ein-
mitt þannig má móta (kven)
leiðtoga framtíðarinnar.
Í ljósi nýlegra frétta af sam-
bandsslitum Barbie og Ken – kær-
asta hennar til 40 ára – spyrja
hins vegar margir vestra hver
muni gegna stöðu eiginmanns for-
setans, ígildi „First Lady“, fari
svo að Barbie sigri í kosningunum.
Snúið? Varla. Íslensk sam-
tímasaga kennir að Barbie geti
sem best verið einhleyp í embætti,
eins og Vigdís Finnbogadóttir,
fyrsti þjóðkjörni kvenleiðtogi lýð-
veldis, gaf glæsilegt fordæmi um
árin 1980–1996.
STJÓRNMÁL
Barbie í forsetaframboð
Forseta-Barbie: Hún er vel til höfð
og líka með háleit markmið.
TENGLAR
..............................................
www.voterunlead.org
www.thewhitehouseproject.org
www.barbie.com
MIKILVÆGT er að eyða þeirri
flökkusögu að sykurlausar gosvörur
séu skaðlegar heilsunni, segja aðilar
á vegum norska heilbrigðisráðu-
neytisins, en stofnunin sendi nýlega
frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er
áhyggjum yfir vaxandi sykurneyslu
norskra barna, sem m.a. á rætur að
rekja til mikillar neyslu sætinda og
sykraðra gosdrykkja.
Í nýlegu viðtali á P4-útvarpsstöð-
inni vísaði Bjørn Inge Larsen hjá
norska heilbrigðisráðuneytinu til
þess að börn á Vesturlöndum neyti
allt of mikils sykurs er hann hvatti
foreldra til þess að gefa börnum sín-
um sykurlausa gosdrykki, sé verið
að gefa börnum gos á annað borð.
„Það er mikilvægt að fólk átti sig á
því að óhætt er að drekka sykur-
lausa gosdrykki í stað þeirra sykr-
uðu. Efnin sem notuð eru við fram-
leiðslu sykurlausu drykkjanna eru
algerlega óskaðleg í því magni sem
þau er að finna í venjulegum gos-
skömmtum.“ Á vefsíðu norska fé-
lags- og heilbrigðissráðuneytisins er
þó minnt á að hátt sýrumagn í bæði
sykruðum og ósykruðum gos-
drykkjum hafi skaðleg áhrif á tenn-
ur. Þá er ekki mælt með að börnum
undir þriggja ára aldri séu gefnir
sykurskertir gosdrykkir.
HEILSA
Sykurskert gos
fremur en sykrað
Morgunblaðið/Sverrir
TENGLAR
..............................................
www.shdir.no
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111