Morgunblaðið - 17.08.2004, Síða 24

Morgunblaðið - 17.08.2004, Síða 24
LANDSSAMBAND íslenskra útvegsmanna fagnar þeirri ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja undirbúning að því látið verði reyna á rétt Íslendinga til að stunda veiðar á Svalbarða- svæðinu fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Alls hafa fimm íslensk skip stundað síldveiðar á Svalbarðasvæðinu síðustu daga. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að bræla hafi verið á síldarmiðunum á Svalbarða- svæðinu í gær og því engin skip þar á veiðum, auk þess sem svo virðist sem síldin hafi gengið út af svæðinu. Hann segir að skipin séu nú að leita að síld á alþjóðlegu hafsvæði, í Síldarsmug- unni svokölluðu, og þar hafi orðið vart við síld þó ekki hafi hún veiðst. Hann segir að ekki liggi fyrir hvort íslensk skip haldi til veiða innan Svalbarðasvæðisins gangi síldin inn á svæðið á ný. Í tilkynningu frá LÍÚ kemur fram að und- anfarin ár hafi komið til árekstra á milli Íslend- inga og Norðmanna vegna veiða íslenskra skipa á svæðinu og hafi Norðmönnum tekist að hindra veiðar Íslendinga á svæðinu tímabundið. „Að mati LÍÚ hefði verið óskandi að hægt hefði verið að semja við Norðmenn um veiðar okkar á Svalbarðasvæðinu á grundvelli Sval- barðasáttmálans, en það hefur ekki verið unnt. Því er nauðsynlegt að láta reyna á rétt Íslend- inga fyrir Alþjóðadómstólnum. Telja takmarkanir ekki standast LÍÚ telur að þær reglur sem Norðmenn hafa einhliða sett um veiðar á svonefndu „fiskvernd- arsvæði“ eigi sér enga stoð í Svalbarðasáttmál- anum og feli í sér brot á hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og almennum reglum þjóðaréttar. Ísland sé því óbundið af umrædd- um reglum. Telur LÍÚ að Svalbarðasáttmálinn sé eini lagalegi grundvöllur fullveldisréttinda Noregs á hafsvæðinu við Svalbarða. Þær tak- markanir á veiðiheimildum og veiðisvæðum, sem mælt er fyrir um í reglugerð Norðmanna frá 14. júní 2004, þar sem Norðmenn ákváðu einhliða 80.000 tonna aflahámark á svæðinu, fari í bága við samninginn um Svalbarða og standist ekki, enda séu þær ekki byggðar á vís- indalegum grunni,“ segir í tilkynningu LÍÚ. LÍÚ fagnar ákvörðun íslenskra stjórnvalda Nauðsynlegt að láta reyna á réttinn 24 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir Norðmönnum lengi hafa verið ljóst að Íslend- ingar teldu sig í fullum rétti til veiða á Sval- barðasvæðinu, úr þeim stofnum sem þeim er heimilt. Það hafi verið fullreynt að ná sátt og því verði málinu vísað til alþjóðadómstóla. „Með hegðun sinni neyða Norðmenn okkur til þess að grípa til þessara ráða. Málið hefur aldr- ei farið í þennan farveg, við höfum ekki staðið frammi fyrir því áður að Norðmenn hóti því að taka skipin okkar og setja þau á svartan lista verði þau ekki farin af svæðinu fyrir tiltekinn tíma. Við verðum vitanlega að verja hagsmuni okkar skipa og getum ekki látið Norðmenn vinna að þessum málum þvert á Svalbarðasamn- inginn. Ég lít svo á að Norðmenn hafi ákveðið að við færum með málið fyrir alþjóðlegan dóm- stól, fremur en að vinna málin á grundvelli Sval- barðasamningsins,“ segir Árni. Getur tekið langan tíma Sjávarútvegsráðherra segir undirbúning málsins og meðferð þess geta tekið langan tíma en erfitt sé að segja til um hver réttur íslensku skipanna sé á svæðinu þangað til niðurstaða liggur fyrir. Hann er bjartsýnn á jákvæða nið- urstöðu. „Við teljum okkur hafa heimild til veiða á svæðinu og hljótum að trúa því að dóm- stóllinn verði okkur sammála um það.“ Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra Neyða okkur til þessara ráða N u a M ú b þ h e b n h i f þ ú e N v i n i g s h s m v E h v s F h U t u t L agt verður til á fundi ríkisstjórnar- innar í dag að vísa deilum Íslend- inga og Norðmanna um veiðar á Svalbarðasvæðinu til Alþjóðadóm- stólsins í Haag. Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra segir það taka nokkurn tíma að undirbúa málið áður en það fari fyrir dómstólinn. Rætt hafi verið við norsk stjórn- völd í gær og ákveðið að hann hitti utanrík- isráðherra Noregs vegna málsins þegar þeir sækja fund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um miðja næstu viku. „Það hefur alltaf verið okkar skoðun að það væri farsælt fyrir báðar þjóðirnar að leysa þetta mál við samningaborðið. Ég vona að það sé líka skoðun Norðmanna,“ segir Halldór. Já- kvætt sé að þeir stingi upp á þessum fundi við þetta tækifæri. Halldór telur það hafa verið rétt hjá útvegs- mönnum að sigla af Svalbarðasvæðinu fyrir miðnætti í fyrradag og hætta þar síldveiðum þrátt fyrir að þeim hafi ekki verið það skylt samkvæmt samkomulagi um veiðar á svæðinu, sem Ísland sé aðili að. Það geti verið heppilegt, sérstaklega í ljósi komandi viðræðna við norsk stjórnvöld. Norðmenn hafi ekki heimild til að hindra veiðar íslenskra skipa við Svalbarða. Vísa Svalbarðadei Alþjóðadómstólsin Íslendingar veita Norðmönnum vaxandi samkeppni auðveldara með að laga sig að breyttum markaðsað DÓMSTÓLALEIÐ EÐA SAMNINGALEIÐ? Ákvörðun Halldórs Ásgríms-sonar utanríkisráðherra, umað leggja til við ríkisstjórn- ina í dag að hafinn verði undirbún- ingur að því að vísa til alþjóðlegs dómstóls deilu Íslands og Noregs um aðgang að hafsvæðinu umhverfis Svalbarða, er vel skiljanleg. Í deilu ríkjanna um veiðar úr norsk-ís- lenzka síldarstofninum hafa Norð- menn sýnt Íslendingum bæði óbil- girni og ósanngirni. Þeir hafa ekki viljað halda í heiðri það samkomu- lag, sem náðist milli Íslands, Nor- egs, Rússlands, Færeyja og Evr- ópusambandsins árið 1996 eftir áralangt þref og ærna fyrirhöfn. Norðmenn hafa viljað sölsa undir sig hærri hlutdeild í veiðum úr stofninum en þá samdist um, eða 70% í stað 57%, á kostnað hinna landanna. Þannig vilja þeir að 15,5% hlutdeild Íslands í veiðunum minnki um helming. Í síðustu viku hótuðu norsk stjórnvöld svo íslenzkum skipum á Svalbarðasvæðinu aðgerð- um, héldu þau áfram veiðum eftir að 80.000 tonna kvóti, sem Norðmenn ákváðu einhliða að mætti veiða þar, væri veiddur. Það er afar dapurlegt að norsk stjórnvöld skuli enn á ný vilja efna til ófriðar við grannríkin um fisk- veiðistjórnun í Norður-Atlantshafi og Barentshafi. Fiskveiðideilur Ís- lands og Noregs á síðasta áratug voru erfiðar fyrir samskipti þessara nánu vinaríkja og mörgum, í báðum löndum, raunar afar þungbærar. Þær leystust hins vegar farsællega með víðtækum samningum, sem voru báðum ríkjum til sóma. Það er auðvitað fyrst og fremst fyrir þrýst- ing frá hagsmunasamtökum innan- lands, sem norsk stjórnvöld vilja nú taka upp þessa samninga á nýjan leik, þrátt fyrir að síldveiðarnar skipti Norðmenn hlutfallslega miklu minna máli en Íslendinga. Norskir stjórnmálamenn virðast ekki hafa haft þrek til að standa gegn þröng- sýnum kröfum útgerðar- og sjó- manna um hærri hlutdeild í síld- veiðunum, á kostnað farsællar sambúðar nágrannaríkja. Ísland hefur aldrei viðurkennt rétt Noregs til að stjórna veiðum á fiskverndarsvæði því við Svalbarða, sem Norðmenn lýstu yfir einhliða árið 1977, á grundvelli laga um norsku efnahagslögsöguna. Íslenzk stjórnvöld – rétt eins og stjórnvöld allra annarra ríkja, sem hagsmuna eiga að gæta, nema Finnlands og Kanada – telja að fiskveiðistjórnun á svæðinu verði að byggjast á Sval- barðasáttmálanum frá 1920. Með honum var Noregi falið að fara með stjórn mála á Svalbarða, sem fram að því hafði verið umdeilt einskis manns land. Fullveldisrétti Noregs voru hins vegar settar ríkar skorður með sáttmálanum. Þannig er kveðið á um að allir þegnar ríkjanna, sem aðild eiga að sáttmálanum, skuli hafa jafnan rétt til að veiða dýr eða fisk á eyjunum og í landhelgi þeirra, sem var með sáttmálanum ákveðin aðeins fjórar mílur. Jafnframt mega Norðmenn ekki mismuna samnings- aðilum á nokkurn hátt varðandi nýt- ingu dýra- og plöntustofna á svæð- inu. Það er þessi jafnræðisregla, sem íslenzk stjórnvöld hafa vísað til í deilum við Noreg um Svalbarða- svæðið, en Norðmenn hafa haft til- hneigingu til að líta á fiskverndar- svæðið sem norska efnahags- lögsögu. Ísland gerðist aðili að sáttmálanum árið 1994, eftir að deil- ur komu upp árið áður um veiðar ís- lenzkra skipa á svæðinu. Sú ákvörðun Norðmanna að opna fiskverndarsvæðið fyrir síldarskip- um annarra strandríkja, sem nytja norsk-íslenzka síldarstofninn, er til marks um að þeir séu ekki of vissir í sinni sök og vilji forðast deilur um yfirráð sín við Svalbarða. Þær regl- ur um hámarksafla og veiðitilhögun, sem norsk stjórnvöld hafa sett, telja Íslendingar hins vegar brjóta í bága við jafnræðisregluna og ekki vera reistar á vísindalegum grunni. Þrátt fyrir þetta verður að telja það rétta ákvörðun hjá útgerðar- mönnum íslenzku skipanna, sem voru á Svalbarðasvæðinu um síð- ustu helgi, að sigla þeim út af svæð- inu áður en lokafrestur Norðmanna til að yfirgefa það rann út. Með því afstýrðu útgerðarmenn því að til átaka kæmi, sem hleyptu deilunni í enn harðari hnút, eins og gerðist sumarið og haustið 1994 þegar ís- lenzkir togarar voru teknir á svæð- inu og færðir til hafnar – og jafnvel hleypt af skotum. Hitt er svo annað mál að hefði slíkt gerzt í þetta sinn, hefði það verið óþolandi ögrun af hálfu Norðmanna. Íslenzk stjórnvöld hafa áður þurft að hefja undirbúning að málskoti til alþjóðlegs dómstóls vegna deilna við Norðmenn um þorskveiðar á Svalbarðasvæðinu um miðjan síð- asta áratug. Til þess kom hins vegar ekki að vísa þyrfti málinu í dóm, því að loks náðist samkomulag, sem báðir gátu unað við. Þar til annað kemur í ljós verður að líta svo á að ákvörðun um að hefja undirbúning málssóknar sé fyrst og fremst aðferð til að knýja Norðmenn að samningaborði. Þann- ig má ná niðurstöðu, sem báðir geta sætt sig við. Ef engir samningar nást og málið fer í dóm, er atburða- rásin hins vegar komin úr höndum stjórnvalda í ríkjunum tveimur og niðurstaðan getur orðið báðum í óhag. Það er þess vegna jákvætt að Halldór Ásgrímsson og norski starfsbróðir hans, Jan Petersen, hyggjast ræða málið í næstu viku. Raunar verður öðru ekki trúað en að þessi nánu, norrænu vinaríki geti leyst deilur sínar með samningum. Þannig hefur það verið og þannig á það áfram að vera. Dómstólaleiðin er auðvitað friðsamleg leið í sam- skiptum ríkja og hefur stundum verið farin í milliríkjadeilum nor- rænu ríkjanna, en síðan eru liðnir margir áratugir. Hún er neyðarúr- ræði, þegar önnur friðsamleg ráð þrýtur. Bæði íslenzk og norsk stjórnvöld hljóta að leggja alla áherzlu á samningaleiðina. FORSETI Alþingis, Halldór Blöndal, mun ekki hitta Arnold Schwarzen- egger ríkisstjóra Kaliforníu í dag eins og til stóð, en Halldór er ásamt sendinefnd frá þinginu í heimsókn í Kaliforníu. Halldór og kona hans Kristrún Eymundsdóttir, sem er með í förinni ásamt Guðmundi Árna Stefánssyni, Gunnari Birgissyni og mökum, hafa í heimsókninni m.a. hitt þingmanninn Tom Torlaksson sem er af íslenskum ættum en Halldór og Torlaksson munu vera fjórmenningar. Torlaksson hefur aldrei komið til Íslands en afi hans var Íslendingur sem fluttist ung- ur til Kaliforníu. Heimsóknin stendur til 19. ágúst. Í dag munu þingforsetinn og föru- neyti hitta aftur forseta þings Kaliforníu og fleiri þingmenn fylkisins. Meðal þess sem ræða á við ráðamenn í fylkinu í dag eru viðskipti, fjár- mögnun vegaframkvæmda með tollum, menntamál og fleira. Þá heimsæk- ir sendinefndin skrifstofu neyðarþjónustu fylkisins þar sem jarð- skjálftavarnir verða kynntar. Gærdeginum varði íslenska sendinefndin í Sacramento, höfuðborg Kali- forníu, og kynnti sér m.a. sjávarútveg sem er stundaður í fylkinu. Heimsókn forseta Alþingis til Kaliforníu Halldór Blöndal, forseti A John Burton, forseti þings Hittir ekki Schwarzenegger

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.