Morgunblaðið - 17.08.2004, Page 30

Morgunblaðið - 17.08.2004, Page 30
MINNINGAR 30 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Englasteinar Legsteinar ✝ Sigurjón Sig-urðsson fyrrver- andi lögreglustjóri fæddist í Reykjavík 16. ágúst árið 1915. Hann lést á Landa- kotsspítala 6. ágúst síðastliðinn, 88 ára að aldri. Foreldrar hans voru Sigurður Björnsson bruna- málastjóri, f. 14. mars 1867 á Höfnum, d. 16. maí 1947, og Snjólaug Sigurjóns- dóttir, f. 7. júlí 1878 á Laxamýri, d. 19. mars 1930. Systkini Sigurjóns voru Sigurjón (lést á fyrsta aldursári), Elín, gift Ludvig Storr, Snjólaug, gift Kaj Aage Bruun og síðar Ottó Baldvins, Ingibjörg, gift Sigur- steini Magnússyni, Jóhanna, gift Sveini Péturssyni, og Björn sem kvæntur var Sólveigu Sigurbjörns- dóttur, en sjálfur var Sigurjón yngstur í hópnum. Samfeðra hálf- systir Sigurjóns og elst í hópnum var Guðrún. Öll systkini Sigurjóns eru látin og makar þeirra einnig nema Sólveig. Hinn 31. júlí 1942 kvæntist Sig- urjón Sigríði Kjaran, dóttur Soffíu Kjaran (f. Siemsen) og Magnúsar Kjarans stórkaupmanns, og lifir hún mann sinn. Börn þeirra Sigríð- ar og Sigurjóns eru sex: a) Soffía, f. 3.10. 1944, kennari og bókavörður, gift dr. Stefáni J. Helgasyni yfir- lækni, og eiga þau þrjú börn, Sig- urjón Örn (kvæntur Bryndísi Böðv- arsdóttur; þau eiga tvö börn), Ragnheiði Hrönn (gift Þórarni Kristmundssyni; þau eiga tvö börn) og Sigríði Helgu (sambýlismaður Hann kom til starfa hjá lögregl- unni í Reykjavík árið 1944 sem fulltrúi, eftir að hafa starfað um tveggja ára skeið hjá Sjóvátrygg- ingafélagi Íslands hf. Hann var settur lögreglustjóri í Reykjavík frá 1. ágúst 1947 en skipaður í emb- ættið í febrúar 1948 og gegndi stöðu lögreglustjóra óslitið í tæp- lega fjóra áratugi eða til loka árs- ins 1985 er honum var veitt lausn frá störfum fyrir aldurs sakir. Sig- urjón hafði yfirumsjón með Bif- reiðaeftirliti ríkisins í meira en þrjá áratugi, var skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins í tvo áratugi 1965–1985 og kenndi við skólann nokkuð fram á áttræðisaldur. Sam- hliða lögreglustörfum gegndi hann setudómarastörfum í ýmsum mál- um. Sigurjón var formaður og fulltrúi í mörgum opinberum nefndum, m.a. formaður heilbrigð- isnefndar og umferðarnefndar Reykjavíkur um langt árabil. For- maður umferðarlaganefndar var hann á árunum 1955–1987 og var um langt skeið í Almannavarnaráði ríkisins og almannavarnanefnd Reykjavíkur. Þá var hann formað- ur Umferðarráðs í fjórtán ár. Með- al mikilvægra verkefna í embætt- istíð Sigurjóns var breyting í hægri umferð árið 1968 og bygging lög- reglustöðvarinnar við Hlemm. Eftir Sigurjón liggja rit tengd lögreglustörfum og umferðarmál- um og á farsælum ferli sem emb- ættismaður hlaut hann fjölmargar heiðursviðurkenningar hér á landi sem erlendis, m.a. hina íslensku fálkaorðu (stórriddarakross með stjörnu), heiðursmerki allra nor- rænu ríkjanna og gullmerki Lög- reglufélags Reykjavíkur, Öku- kennarafélags Íslands og Um- ferðarráðs. Sigurjón verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jón Þór Grímsson). b) Sigurður, f. 24.3. 1946, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, kvæntur Hönnu H. Jónsdóttur, BA, og eiga þau þrjú börn, Tómas, Soffíu Elínu og Jóhann. c) Magnús Kjaran, f. 3.5. 1947, arkitekt hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, kvæntur Þór- unni Benjamínsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn, Kristbjörgu (gift Þorsteini Jó- hannssyni, börn þeirra eru þrjú), Árna og Sigríði. d) Birgir Björn, f. 20.2. 1949, forstöðumaður kjaraþróunardeildar Reykjavíkur- borgar, maki dr. Ingileif Jónsdótt- ir, dósent við Háskóla Íslands og eiga þau tvo syni, Magnús og Árna. e) Jóhann, f. 25.10. 1952, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, maki Helga Bragadóttir, skipu- lagsfulltrúi Reykjavíkur, og eiga þau þrjú börn, Fríðu Sigríði, Soffíu Dóru og Sigurjón. f) Dr. Árni, f. 28.12. 1955, framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna, kvæntur dr. Ástu Bjarnadóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, og eiga þau þrjú börn, Ólaf Kjaran, Soffíu Svanhvíti og nýfæddan son, en fyr- ir átti Árni Snjólaugu með Lilju Valdimarsdóttur. Sigurjón varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1935 og lauk lögfræðiprófi frá Há- skóla Íslands árið 1941. Kynnti sér skipulagningu og framkvæmd lög- reglumála á Norðurlöndum og í Bretlandi árið 1948, í Bandaríkjun- um árið 1952 og í Þýskalandi 1954. Sigurjón tengdafaðir minn er all- ur. Hann kvaddi þessa jarðvist tíu dögum fyrir 89 ára afmælisdaginn sinn. Hugurinn reikar til baka er fundum okkar bar fyrst saman fyrir liðlega þrjátíu árum. Tók hann mér af slíkri hlýju að aldrei kólnaði. Auð- vitað vissi ég hver Sigurjón, lög- reglustjóri í Reykjavík, var frá því ég komst til vits og ára og fyrir bregður svipmyndum af honum frá embætt- isverkum, svo sem þegar tekin var upp hægri umferð hér í Reykjavík. En fyrstu minningar mínar um Sig- urjón eru hins vegar tengdar heim- ilisföður á stóru rausnarheimili þeirra Sigríðar á Ægisíðunni, þegar hann sinnti umfangsmiklu og eril- sömu starfi. Sigurjón var glæsilegur maður svo af bar og hafði yfir sér suðrænt yf- irbragð, eins og fylgt hefur ætt hans. Hann hafði til að bera meðfædda hæversku og sjálfsögun, var á stund- um alvarlegur á svip, er vék á auga- bragði fyrir blíðu og ótrúlegri hlýju er stafaði frá augum hans. Hann var á vissan hátt hlédrægur og afar heimakær. Ekki skal hér rakinn áratuga lang- ur starfsferill Sigurjóns, en hann segir ekki nema hálfa sögu. Mér er tengdafaðir minn minnisstæðastur sl. tvo áratugi þegar hann réð yfir eigin tíma, því við starfslok hófst mikilsverður kapítuli í lífi Sigurjóns. Hann hafði ungur þurft að axla þá byrði að missa móður sína og naut þess að sjá börnin sín sex vaxa úr grasi í skjóli foreldra sinna. Ekkert launungarmál er að heimilisrekstur og barnauppeldi hvíldi aðallega á herðum Sigríðar því annir voru mikl- ar í starfi Sigurjóns, þótt hann gæfi sig allan heima við þegar stundir gáf- ust. Nú gat hann gefið sig fjölskyld- unni óskiptur. Það var eins og hann væri að endurgjalda Sigríði þann skilning og tillitssemi sem hún sýndi honum í starfi, slíkur var áhugi hans á hugðarefni hennar til margra ára, myndlistinni. Síðasta árið sem við Jóhann vorum við nám í Osló dreif Sigríður sig þangað til myndlistar- náms í nokkra mánuði. Hún bjó á stúdentagarði, hann kom í heim- sóknir en hélt heimili á Ægisíðunni, þar sem Eyþór mágur hans var dag- legur gestur. Þau hjón voru samvöld öllum stundum, hvort sem var við myndlistina, garðyrkju, þar sem þau ræktuðu það sem vaxið gat í íslenskri sumarsól, eða á ferðalögum. Þegar við fjölskyldan dvöldum í Frakklandi um skeið komu þau tengdaforeldrar mínir auðvitað í heimsókn. Þau voru í einni af fjölmörgum menningarreisum sínum um Evrópu þar sem Sigurjón sat við stýrið óbanginn við að aka hraðbrautir og fjallavegi, þótt kominn væri hátt á áttræðisaldur. Tengdaföður mínum gafst kærkomin stund til að sinna hinum ört vaxandi hópi barnabarna og gat hann sennilega varið meiri tíma með þeim en eigin börnum er ung voru. Þau gerðu sér grein fyrir hversu lánsöm þau voru að eiga afa sem naut svo lengi við. Afi Sigurjón varðveitti í sér barnið og kunni að hlakka til og hrífast. Það var alltaf gaman að skoða kríu og taka upp kartöflur á Álftanesi, þar sem hann dvaldi löngum sem ungur drengur, eða spila, galdra og kippa í knall á gamlárskvöld. Þá sýndi hann námi og tómstundum krakkanna áhuga og var ætíð reiðubúinn að aka þeim á áfangastað. Um leið og hann naut návista við þau og stytti þeim stundir, fannst honum líka gefandi að létta undir með sínu fólki í erli dagsins. Sigurjón var mikill Reykvíkingur og þótti vænt um borgina sína. Hann sýndi störfum mínum að byggingar- og skipulagsmálum ætíð áhuga og ræddum við um verndun byggðar, nýbyggingar og umferðarmál, þar sem hann var sannarlega á heima- velli. Þá hafði hann það tómstunda- gaman seinni árin að kynna sér kirkjustaði á landinu, skrá sögu þeirra og ljósmynda og hafði áhuga- verða skoðun á því hvernig til hefði tekist með kirkjubyggingarnar. Sigurjón naut langra lífdaga en varð aldrei gamall maður. Hann hélt fullri reisn fram í andlátið. Og við, sem kynntumst honum best og áttum því láni að fagna að eiga hann að, kveðjum hann í dag með söknuði og trega. Ég þakka ekki hvað síst þann kærleika sem Sigur- jón sýndi mér og börnunum okkar Jóhanns og bið honum blessunar á nýjum vegum. Helga Bragadóttir. Á sólskinsdegi renndi svartur Dodge að húsinu gegnt æskuheimili mínu á Rauðalæk og út stigu ung hjón, unglingsstúlka og 5 strákar. Þetta voru Sigurjón og Sigríður með börnin að heimsækja Þórunni, syst- ur Sigríðar. Ég var 6 eða 7 ára og man vel hvað mér fannst þau glæsi- legt par og glaðvær fjölskylda. Þeg- ar við Birgir Björn fórum að vera saman kynntist ég yndislegum tengdaforeldrum mínum, sem strax tóku mér opnum örmum og hafa um- vafið fjölskylduna ást og umhyggju alla tíð. Sigurjón var skarpgreindur, fróð- ur og einstaklega minnugur. Oft sát- um við á Ægisíðu og hlustuðum á lif- andi frásagnir Sigurjóns af barnæskunni, menntaskólaárunum, ferðalögum víða um heim, en einkum af samferðafólki, frændum og vinum, og alltaf var stutt í kímnina. Þjóð- málin voru rædd. Sigurjón fylgdist vel með og hafði sterkar skoðanir, en virti skoðanir annarra og var alltaf tilbúinn að hlusta. Það sem ein- kenndi frásagnir Sigurjóns, og það sem hann lagði til mála, var einlægur áhugi hans á fólki. Sigurjón og Sigríður voru einstak- lega samrýnd og alltaf eins og nýtrú- lofuð. Þau áttu mörg sameiginleg áhugamál, ferðuðust mikið og oft voru börn og barnabörn með í för. Ein fyrsta tjaldferðin okkar Birgis Björns með þeim er mér minnisstæð. Við tjölduðum á grasbala við Mark- arfljót í skjóli jökla og í kyrrðinni var spjallað fram á nótt. Í Suður-Vík, þar sem Sigurjón var ungur í sveit, rifj- aði hann upp bjargsig, fýlaveiðar og sögur af Kötlu. Í Skaftafelli nutum við náttúrufegurðarinnar og að kvöldi útbjó Sigríður veislu með „omhu og kærlighed“. Sigurjón var fróður um náttúru landsins, sögu og staðhætti. Hann ljósmyndaði flestar kirkjur landsins og skráði hjá sér sögu þeirra. Strákarnir okkar, Magnús og Árni, minnast ferðalag- anna með afa og ömmu. Börnin fengu vasabækur til að skrifa í ferða- söguna og nöfn fugla sem þau sáu. Alltaf var boðið uppá Kók & Prins. Þeir komu heim uppfullir af fróðleik um land og þjóð. Ferðin í Aðaldal og Náttfaravíkur og frásögn Sigurjóns af æsku móður sinnar á Laxamýri er mér ógleymanleg. Sigurjón var mikill fjölskyldumað- ur. Þau Sigríður héldu oft stórveislur og þá var glatt á hjalla. Á gamlárs- kvöld var hátíðarstund þegar Sigur- jón las „Hvað boðar nýárs blessuð sól“. Sigurjón fylgdist af áhuga með lífi, störfum og áhugamálum barna sinna, tengdabarna og barnabarna, deildi með okkur reynslu sinni og visku og hvatti okkur til dáða. Sig- urjón hafði tíma fyrir okkur öll. Hann var traustur vinur og kær- leiksríkur. Ég kveð Sigurjón tengdaföður minn með söknuði og þakklæti fyrir allt. Blessuð sé minning hans. Ingileif Jónsdóttir. Þegar ég kynntist Sigurjóni tengdaföður mínum var hann hættur opinberu starfi. Hann var svo hepp- inn að eiga 19 góð eftirlaunaár, og þá naut fjölskyldan nærveru hans í meira mæli en áður og þau Sigríður undu sér saman við sameiginleg áhugamál. Það vakti strax athygli mína hversu vel Sigurjón, sem á starfsárunum hafði gegnt umsvifa- miklu embætti, fann sig í því að um- gangast aðallega fjölskylduna og styðja konu sína í hennar listsköpun, sem þá tók að blómstra. Það er ekki öllum gefið að skipta svona um gír við starfslok, en Sigurjón átti auðvelt með það, enda var hann í raun ekki mikið gefinn fyrir að vera í sviðsljós- inu sjálfur. Samband þeirra Sigríðar og Sigurjóns var framúrskarandi fal- legt alveg fram á síðasta dag, og ein- kenndist af mikilli hlýju, djúpri virð- ingu og fallegri framkomu í hinu daglega lífi. Það er gott veganesti fyrir okkur sem eftir lifum að minn- ast þessa, og ótalmargra gleðistunda með þeim, til dæmis daganna sem við héldum upp á 50 og 60 ára hjúskap- arafmæli þeirra hjóna. Síðasta brúð- kaupsafmælið, daginn þegar þau höfðu verið gift í 62 ár, héldu þau há- tíðlegan með litlu samsæti með börn- um og tengdabörnum í glampandi sólskini á Ægisíðunni, tæpri viku áð- ur en Sigurjón lést. Þann dag bað hann um að keyptar yrðu rósir handa Sigríði og stóðu þær við rúmið hans þegar hann lést. Yngstu börnin okkar Árna eiga ekki eftir að muna eftir afa sínum þegar þau vaxa úr grasi, og ekki heldur mörg barnabarnabörnin, fædd og ófædd. Við sem vorum svo heppin að kynnast honum munum halda minningunni lifandi með frá- sögnum og myndum, og ég veit að þessi börn verða stolt af því að til- heyra hans ættboga. Sigurjóns verð- ur sárt saknað og erfitt verður að venjast því að sjá hann ekki framar í stólnum sínum í kontórnum á Ægisíðunni. Vonandi berum við gæfu til að taka okkur hans góða inn- ræti, hlýlega viðmót og fallega líf til fyrirmyndar. Ásta Bjarnadóttir. Afi minn er dáinn. Ein af fyrstu minningum mínum um afa var þessi áleitna spurning: Hvernig stendur á því að afi er lögga og á fullt af orðum og fínan búning en er samt aldrei í löggubúning? Ég var nú ekki gamall þá og í ljósi aldurs míns hlaut svarið að verða það að afi væri leynilögga. Sumir sögðu raunar að það væri ekki þannig heldur væri afi eitthvað sem hét lögreglustjóri en það gat bara ekki verið – hann afi var svo góður og alls ekki nógu strangur til að vera stjóri. Seinna komst ég samt að því að afi var lögreglustjóri. Það þótti mér heldur lakara en afi varð nú samt ekkert minna merkilegur fyrir þetta, afi var til dæmis töframaður sem átti dularfullan kassa fullan af töfradóti, hann vissi allt um fugla og kunni nöfnin á öllum stöðum á Íslandi, enda alltaf á ferðalagi. Afi naut ferðalaga. Við hvert tæki- færi voru þau amma rokin af stað, ýmist innanlands eða til útlanda og þegar heim var komið var öllum smalað saman í myrkvað herbergi, afi skellti niður hvíta tjaldinu til að sýna allar slidesmyndirnar og út- skýrði hvað var að sjá á hverri mynd. Í rökkrinu ákvað ég að sjá alla þá staði sem afi og amma höfðu heim- sótt en þar á ég víst langt í land enn. Í dag er ég orðinn heldur eldri og á dreng á svipuðum aldri og ég var þegar ég man fyrst eftir afa mínum. Drengurinn minn veit líka fyrir víst að langafi hans var galdramaður og vissi allt um fugla. Sjálfur veit ég nú að afi minn hafði mikið á sinni könnu en það sem var allra best við afa minn var að hann hafði alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin. Alltaf tíma til að sýna nokkur töfrabrögð, tíma til að leyfa okkur að skoða bækur inni á „kontór“, tíma til að koma út í stofuglugga til að kíkja á merkilega fuglinn niðri í fjöru – þótt það hafi bara verið enn einn sílamáfurinn. Tíminn er einmitt það mikilvæg- asta sem hægt er að gefa börnum og ég mun alltaf vera þakklátur fyrir þann tíma sem afi gaf mér. Samveru- stundir skapa minningar sem ekki verða frá manni teknar þótt annað hverfi. Ég á eftir að sakna afa míns. Sigurjón Örn Stefánsson. Elskulegur afi okkar er dáinn. Í huga okkar hafa afi og amma alltaf verið eitt, óaðskiljanleg og samstiga. Afi rólyndur, skipulagður og traust- ur maður og amma einstaklega líf- leg, eljusöm og skapandi. Þau voru SIGURJÓN SIGURÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.