Morgunblaðið - 17.08.2004, Side 33

Morgunblaðið - 17.08.2004, Side 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2004 33 við áttum saman og allt sem þú kenndir mér. Hvíldu í friði. Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason. Elsku amma mín, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér, gert fyrir mig og sagt mér. Það eru ákveðin forréttindi að fá að þekkja manneskju eins og þig, ég mun aldrei getað fullþakkað þér fyrir allt en af- komendur mínir og vinir munu fá að vita hversu mögnuð kona þú varst. Þú átt rosalega stóran hluta af mér og tekur stóran stað í hjarta mínu. Þú hefur mótað mig á margan hátt, hverju ég trúi, hvernig ég met hlutina og lífið sjálft. Fæstir geta trúað hvað ein amma getur haft mikil áhrif. Fjöl- skylda þín ber mikla og djúpa virð- ingu fyrir þér. Þú sýndir öllum ást þína, örlæti og hlýju. Ég tel mig heppna að hafa kynnst þér og fengið að vera mikið í kringum þig allt mitt líf. Það gerir auðvitað söknuðinn sterkari og missinn meiri, en svona er lífið. Þú lifðir löngu lífi, misgóðu en alltaf svo þakklát og stolt með þitt. Trú þín á Guð færðist til mín og er ég þér mjög þakklát fyrir það. Þegar ég var lítil vöktu mamma og pabbi mig snemma morguns og klæddu mig í hálfsofandi, keyrt var aðeins neðar í götuna, bankað á svefnherbergisgluggann eins og ætt- ingjarnir áttu að gera, þá kom amma með hvíta hárið í ljósum náttkjól, opn- aði bæði lás og keðju, síðan skreið ég í afaholu undir heitu sængina hennar ömmu og þar sofnaði maður aftur. Þegar ég eltist tóku helgarnar við, næstum hverja helgi, þegar ekki voru sundmót, hljóp ég yfir til ömmu svo hratt, og horfði aftur fyrir mig vegna myrkfælni, þá var alltaf svo gott að koma í litla örugga húsið hennar ömmu, þar var alltaf svo hlýtt og gott að vera. Við horfðum á lögregluhund- inn Rex og spiluðum langt fram á kvöld – alltaf tók amma fleiri slagi. Maður gat verið tímunum saman í húsinu hennar ömmu og ekki gert neitt sérstakt, mér leið svo vel þar og þér þótti svo gott að hafa einhvern hjá þér. Enginn kom í heimsókn án þess að fá heimalagaðar kökur og kaffi. Öll- um börnum er áttu leið hjá var gefið súkkulaði og alltaf þótti krökkunum í vinnuskólanum gaman að fá að slá hjá Dísu því öllum var boðið inn í kaffi og kökur. Alltaf þurfti að vera til nóg og bar ískápurinn merki um það – fullur af mjólk. Gott er að lýsa ömmu Dísu sem ömmu allra. Keypt var korn handa fuglunum og matarleifunum hent upp á skúrinn handa hrafninum, henni þótti svo vænt um öll dýr. Amma var sjálfstæð og dugleg, aldrei gat hún skuldað neinum, þegar reikningarnir komu inn um dyrnar fyrir hádegismatinn var ekki hægt að bíða eftir mömmu þar til seinnipart- inn, hún sendi þá mig eða við fórum saman í hádeginu út í banka til að borga sem fyrst. Ég kveð þig með söknuði en ást mín og þakklæti er óendanlegt, elsku amma. Loksins færðu að hitta afa, stóru ástina í lífi þínu. Takk fyrir allt. Þín nafna, ömmubarn og vinkona Þórdís Kolbrún.  Fleiri minningargreinar um Þór- dísi Katarínusardóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar þeirra eru: Kristín, Ingvar, Ómar og Anna Ólöf, Ásdís Björg, Sigríður Berg- lind, Gylfi Veigar, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Hulda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÝR VIGGÓSDÓTTIR, Skúlagötu 2, Stykkishólmi, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju- daginn 10. ágúst. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju mið- vikudaginn 18. ágúst kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á St. Franciskusspítalann, Stykkishólmi. Ólafur Þórir Sighvatsson, Eggert Bjarni Bjarnason, Hafdís Sverrisdóttir, Sævar Berg Ólafsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir, Þorvarður Einarsson. Ægir Þór Ólafsson, Eydís Bergmann Eyþórsdóttir, María Bryndís Ólafsdóttir, Ásgeir Héðinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, FINNBOGI SIGMARSSON, Garðavegi 15, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 9. ágúst, verður jarð- sunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 19. ágúst kl. 15.00. Birgir Finnbogason, Hrafnhildur Blomsterberg, Lilja María Finnbogadóttir, Árni Baldursson, Valgerður Birgisdóttir, Davíð Smári Jóhannsson, Hjördís Birgisdóttir, Elva Árnadóttir, Finnborgi Árnason. Útför ástkærrar eiginkonu minnar, KÖRLU STEFÁNSDÓTTUR, Kópavogsbraut 1b, fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsam- legast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Friðrik Jónsson. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGURLAUG FRIÐGEIRSDÓTTIR, Gullsmára 10, áður Mosabarði 12, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 18. ágúst kl. 13.30. Konráð Sæmundsson, Geir Viðar Guðjónsson, Ómar Konráðsson, Sævar Þór Konráðsson. Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÁGÚSTS GUÐJÓNSSONAR múrara, Hjallaseli 33. Svanhvít Gissurardóttir, Anna K. Ágústsdóttir, Gunnar V. Andrésson, Gróa G. Ágústsdóttir, Guðmundur Hilmarsson, Gissur Þór Ágústsson, Sigríður Alla Alfreðsdóttir, Auður Ágústa Ágústsdóttir, Finnbogi Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn.Hjartkær eiginmaður minn og vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STYRMIR GUNNARSSON, Langholti 11, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 20. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta Félag langveikra barna njóta þess. Kristín Sigurðardóttir, Guðný Styrmisdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Sigurður Styrmisson, Arnfríður Ólafsdóttir, Birgir Styrmisson, Bára Ingjaldsdóttir, Margrét Styrmisdóttir, Jón Ólafsson, Sigurlína Styrmisdóttir, Sigvaldi Már Guðmundsson, Agnes Jósavinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og fóstur- bróður, KARLS GEORGS KRISTJÁNSSONAR frá Ármúla, til heimilis í Kötlufelli 7. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins- deildar Landspítalans við Hringbraut. Rósa María Karlsdóttir, Sigurður Guðmundur Karlsson, Bylgja Hrönn Karlsdóttir, Hilmar Skúli Hjartarson, Ármann Múli Karlsson, Stefanía Helga Ásmundsdóttir, Kristján Bjarni Karlsson, Elísabet Margrét Jónasdóttir, Óskar Gunnar Karlsson, Ásta Minney Guðmundsdóttir, Aron Elmar Karlsson, barnabörn, fóstursystkini og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, HARALDUR KRISTJÁNSSON fyrrv. kaupmaður, andaðist á Landspítala Hringbraut mánu- daginn 16. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gerða Herbertsdóttir, Herbert Haraldsson, Sigríður Haraldsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS JÓNSSONAR bónda, Varmalæk. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi. Jarþrúður Jónsdóttir, Birna Jakobsdóttir, Halldór Bjarnason, Jón Jakobsson, Kristín Guðbrandsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Hallgeir Pálmason, Sigurður Jakobsson, Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir, Magnea K. Jakobsdóttir, Ragnar Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, GUÐBJARGAR SIGNÝJAR RICHTER, Gljúfraseli 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á blóðmeina- deild 11G Landspítalans við Hringbraut. Guðmundur H. Magnússon, Guðný Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.